Þjóðviljinn - 12.03.1987, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 12.03.1987, Blaðsíða 4
LEtÐARI Sundrung samlyndra hjóna Ástir þeirra samlyndu hjóna sem mynda ríkis- stjórn lýöveldisins gerast nú æ dramatískari. Til skamms tíma ríkti meö þeim gagnkvæmur skilningur, sem einkum kom fram í því að báöir aðilar klifuöu á því við möguleg og ómöguleg tækifæri, að núverandi ríkisstjórn væri einskon- ar guösgjöf til íslensku þjóöarinnar. Henni væri flest gott aö þakka, einkanlega góður árangur af ástalífi þorsksins í sjónum, sem heföi leitt til verulegrar aflaaukningar meö þessari guðs vol- uöu þjóð. Nú hefur semsagt hlaupiö snuröa á þráð ást- arinnar innan ríkisstjórnar lýðveldisins. Samkvæmt málgögnum ríkisstjórnarflokk- anna beggja er efnahagsbatinn og góöæriö nefnilega ekki lengur að þakka ríkisstjórninni. Morgunblaðíð lætur á sér skilja, aö eitthvað sem blaðiö kallar trausta stjórn efnahagsmála sé alfarið aö þakka ráðherrum Sjálfstæðis- flokksins. Tíminn er hins vegar á ööru máli. Samkvæmt honum er hin trausta efnahagsstjórn aö þakka ráðherrum Framsóknarflokksins. Þannig er því borginmannlega haldiö fram í skondnum leiðara Tímans í fyrradag, aö það hafi verið ráöherrar Framsóknar sem þurftu „aö taka á erfiðu málum ríkisstjórnarinnar". Það hafi þeir auövitaö gert með glæsilegum hætti, og á þeim „byggist góöur árangur ríkisstjórnarinnar.“ Málgagn Framsóknarflokksins heldur því með öörum orðum fram, að traust stjórn efna- hagsmála komi Sjálfstæöisflokknum ekkert við. Þannig eru ríkisstjórnarflokkarnir komnir í hár saman útaf því, hverjum beri aö þakka hina „traustu stjórn efnahagsmála". Köpuryröi stjórnarflokkanna í hvors annars garð af þessu tilefni eru hins vegar gjörsamlega óþörf. Það er einfaldlega staöreynd, aö núver- andi ríkisstjórn hefur staðið sig frámunalega illa í flestu sem lýtur að fjármálum og fjármála- stjórn. Látum dæmin tala: Ríkisstjórnin hefur ekki haft nokkurtök á ríkis- fjármálunum. Frá því hún tók við hefur fjár- lagahallinn samtals verið sex miljarðar króna! Arfleifð hennar til ríkisstjórnarinnar sem tekur við að loknum kosningum er ekki heldur glæsi- leg: halli upp á þrjá miljarða.. Hvernig á að brúa þessa þriggja miljarða gjá? Hvaðan á að taka peningana? Þegar Þorsteinn Pálsson er spurður þessar- ar spurningar, er hans eina svar að yppa öxlum. Hann hefur ekki minnstu hugmynd um það. Sjálfur fjármálaráðherrann! Fjárlagagerð ríkisstjórnarinnar hefur sömu- leiðis verið í molum frá upphafi. Þar hefur ekkert verið að marka. Út úr neyð var skipt um fjár- málaráðherra, en fjárlög Þorsteins Pálssonar hafa ekki reynst hætishót betri en fjárlög Al- berts. Það segir líka sitt um, hversu ábyrgum tökum stjórnin hefur tekið fjármál þjóðarinnar, að á tíð sinni hefur henni tekist að setja heilan ríkisbanka á hausinn. Það er líka fróðlegt, að á sama tíma og hún talar um „trausta stjórn", þá er ósamið við stærstu hópa ríkisstarfsmanna, og við blasir að þúsundir þeirra munu á næstu dögum og vikum ganga út! Kalla menn þetta góðan viðskilnað? Verðbólgan er annað dæmi. Sýknt og heilagt klifa talsmenn ríkisstjórnarinnar á því, að henni hafi tekist að ná niður verðbólgunni. En lítum ögn á hvernig staðan er þar: Við samningana síðustu ábyrgðist ríkisstjórn- in að halda verðbólgunni niður við 7-8 prósent. Um þessar mundir tala hins vegar ráðherrarnir um 10 prósent verðbólgu. Staðreyndin er hins vegar sú, að verðbólgan er komin í 20 prósent nú þegar. Og allt bendirtil að þenslan, sem hinn svakalegi halli á fjárlögum mun skapa, skjóti verðbólgunni upp á nýjan leik. Þannig er eins konar tímasprengja fólgin í óreiðunni, sem núverandi stjórn skilur eftir í fjármálum ríkisins, og hún mun springa í andlit þjóðarinnar í haust. Afleiðingin kann að verða sú, að verðbólgan fari upp úr öllu valdi. Þetta er viðskilnaður ríkisstjórnarinnar. Mitt í öllu góðærinu er allt að fara úr böndunum. -ÖS KLIPPT OG SKORIÐ SéraólafurSLond^rófaSffi , - , Bamaefni Stöðvar 2 hefur stor- dregið úr kirkjusókn barna ö . . , • mAnnurn mikið ahvfi Se^^dinga^iban^niverató^—"jSSÍ • ' var- ;ir Hannarsson hafdi svo samband við mig «g viö ræddum þotta fram „g til baka, m.a. moguleika a þvi KIRKJUNNAH menn hafa miklar áhyggjur af því hvada I áhrif útsendingar Stbdvar l a I bamaefni á sunnudagsmorgn- lum hafa á aðsókn barna . Ibarnaguðsþjónustur. A«) sogn Iséra Olafs Skúla.son;ir dom- ■prófasts dró verulega ur Ikirkjusókn barnanna fyrst eft.r f að útaendingamar hófust. Hun hefur eitthvað aukist aftur. þo hún sé engan veginn h.n sama og áður var. „Kirkjusókn barna Reykjavíkursvæðinu hefur sr ..„nnlfiió eftir að Stöð 2 her snar minnkad eftir ad Stiid i hiif útsemlingar á bamaefm a snnnu- (tausmnrKnum. Sérstaklega var þaA áberandi fyrst eftir að þessar útsendingar hófust. Þá hrundi aðsóknin,“ sagði séra Olafur i samtali við Morgunblaðið. Ég hringdi til þeirra á Stoð 2 eftir fyrstu útsendinguna og að auka útsendingar á kirkjulegu og kristilegu efni. Kg lagð. á það áherslu að þrur væru okki með þ<-ssar útsendingar á þeim t.ma sem við erurn sérsLíWega að hofða til bamanna, en hann sagði að það væri ekki endanlcga frá þv. gengið að útsendingar yrðumeð þessum hætti, en það yrði núna um sinn að minnsta kosti, sagð. séra Ólafur. Við höfum miklar áhyggjur af "þessu og ég vona aj StM 2 átti sig á þvi ad það er ekki æski- legt að hefja samkeppm um salir hamanna, annars vegar guðsorði og hins vegar skrípamyndum,“ sagði séra með með Ólaf- Hljóövarp örvandi - sjónvarp deyfandi Þeir sem horfa á sjónvarp kom- ast að því fyrr eða síðar, að mjög erfitt er að sinna öðrum verkum rétt á meðan maður er að glápa á sjónvarpið. Um hljóðvarp gegnir allt öðru máli. Hljóðvarp mun vera talið örvandi, en sjónvarp hins vegar deyfandi eða sljóvgandi. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að tónlist hefur ákaflega góð áhrif á kýr, sérstaklega mjólkurkýr. Það var því þjóðráð á árunum áður en offramleiðsla á landbúnaðar- vörum varð helsta vandamál ís- lensku þjóðarinnar að fara með langspil eða harmónikku út í fjós og leika létt lög fyrir beljurnar, svo að nytin yrði meiri. Hljóðfæraslátturinn eða „live music“ í fjósum landsins lagðist þó af þegar Ríkisútvarpið var stofnað, því að þá var einfaldara að fara með viðtækið út í fjós og Ieyfa kúnum að hlusta á fagra tónlist flutta af heimsfrægum tón- listarmönnum, heldur en að standa í tónleikahaldi í fjósdyr- unum. Engum lifandi manni hefur dottið í hug að prófa, hvort sjón- varp eða jafnvel vídeó geti virkað örvandi á framleiðslu landbúnað- arafurða, enda er nú svo komið á því sviði, að ekki þarf annað en segja orðið „kótiletta" til að hag- fræðingum renni kalt vatn milli skinns og hörunds. Hins vegar gæti það verið athugandi, hvort ekki megi nota sjónvarp og vídeó tii að draga úr landbúnaðarfram- leiðslunni. Sjónvarps- og myndbanda- væðing landbúnaðarins Sjónvarps- og myndbandavæð- ing landbúnaðarins í fram- leiðslufyrirbyggj andi skyni gæti þá hafist í útihúsunum með því að jórturdýrunum væru sýndar vald- ar myndir, sem gætu stuðlað að því að hjálpa þeim að drepa tím- ann, því að líklegt er að mörg jórturdýranna, en þó fyrst og fremst sauðféð, éti mun meira en nokkur þörf er á, einfaldlega út úr leiðindum. Með því að auka sjónvarps- og myndbandavæðingu inni á sveita- heimilunum sjálfum mætti hins vegar stefna að því marki, að fá fólkið til að fara sér hægar við framleiðslustörfin, með því að beina athygli þess að því þægilega aðgerðaleysi sem sjónvarpsgláp getur verið. En þessar bollaleggingar um jákvæða sjónvarps- og mynd- bandanotkun kunna að vera skýjaborgir og eru settar hér fram án ábyrgðar, því að ef til vill er ennþá of snemmt að fara að velta fyrir sér jákvæðum áhrifum þessa öfluga deyfimiðils. Guð, Mammon og Stöð 2 Sífellt heyrist talað um hin neikvæðu áhrif, og birtust hin al- varlegustu tíðindi af þeim vett- vangi í Morgunblaðinu í gær. En þar kemur Ólafur Skúlason dómprófastur fram og skýrir frá því umbúðalaust, að barnaefni Stöðvar 2 hafi stórdregið úr kirkjusókn barna, og ennfremur segir dómprófasturinn frá því, að útsendingartími á barnaefni sé kirkjunnar mönnum mikið áhyg- gjuefni. Fréttin hljóðar svo: „Kirkjunnar menn hafa miklar áhyggjur af því hvaða áhrif út- sendingar Stöðvar2 á barnaefni á sunnudagsmorgnum hafa á að- sókn barna í barnaguðsþjónust- ur. Að sögn séra Olafs Skúla- sonar dómprófasts dró verulega úr kirkjusókn barnanna fyrst eftir að útsendingarnar hófust. Hún hefur eitthvað aukist aftur, þó hún sé engan veginn hin sama og áður var. „Kirkjusókn barna hér á Reykjavíkursvæðinu hefur snar- minnkað eftir að Stöð 2 hóf út- sendingar á barnaefni á sunnu- dagsmorgnum. Sérstaklega var það áberandi fyrst eftir að þessar útsendingar hófust. Þá hrundi að- sóknin, “ sagði séra Ólafur í sam- tali við Morgunblaðið. „Ég hringdi til þeirra á Stöð 2 eftirfyrstu útsendinguna og kvart- aði. Stöðvarstjórinn Jón Óttar Ragnarsson hafði svo samband við mig og við rœddum þettafram og til baka, m.a. möguleika á því að auka útsendingar á kirkjulegu og kristilegu efni. Ég lagði á það áherslu að þeir vœru ekki með þessar útsendingar á þeitn tíma sem við erum sérstaklega að höfða til barnanna, eti hann sagði að það vœri ekki endanlega frá því gengið að útsendingar yrðu með þessum hœtti, en það yrði núna um sitin að minnsta kosti, “ sagði séra Ólafur. „Við höfum miklar áhyggjur af þessu og ég vona að Stöð 2 átti sig á því að það er ekki œskilegt að hefja samkeppni um sálir barn- anna, annars vegar með guðsorði og hins vegar með skrípamynd- um, “ sagði séra Ólafur. “ Þetta mál þarf að sjálfsögðu að athuga gaumgæfilega áður en menn geta farið að leyfa sér að hafa skoðun á því. Og sömuleiðis þarf að rannsaka hvort sjón- varpsgláp hafi ekki líka af- kristnandi áhrif á fullorðið fólk, enda þótt sálir fullorðinna skipti kannski ekki eins miklu máli og barnssálirnar, því að meðal full- orðinna eru ansi margir nokkurn veginn alveg glataðir hvort sem er. En baráttan milli Guðs og Mammons um barnssálirnar er hörð og tvísýn og þess vegna ekki gott að segja hver áhrif það muni hafa að Stöð 2 skuli vera farin að blanda sér í þann leik. -Þráinn þJÓÐVILJINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Ritstjórar: Árni Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur Skarphéðinsson. Fréttastjóri: Lúðvík Geirsson. Blaðamenn: GarðarGuðjónsson, IngólfurHjörleifsson, Kristín Ólafsdóttir, Magnús H. Gíslason, MörðurÁrnason, ÓlafurGíslason, SigurðurÁ. Friðþjófsson, Stefán Ásgrímsson, Vilborg Davíðsdóttir, Víðir Sigurðsson (íþróttir), Yngvi Kjartansson (Akureyri). Handrita- og prófarkaiestur: Elías Mar. Ljósmyndarar: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson. Útllt8teiknarar: Sævar Guðbjörnsson, GarðarSigvaldason. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guörún Guðvarðardóttir, Guðbergur Þorvaldsson. Auglysingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir. Auglýsingar: Olga Clausen, Guðmunda Kristinsdóttir. Símvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir. Húsmóðir: Ólöf Húnfjörð. Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Útbreiðslu-og afgreiðslustjóri: HörðurOddfríðarson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ÓlafurBjörnsson. Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 681333. Aug!ýsingar:Síðumúla6,símar681331 og 681310. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 50 kr. Helgarblöð:55 kr. Áskriftarverð á mánuði: 500 kr. 4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 12. mars 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.