Þjóðviljinn - 12.03.1987, Side 3
Háskólamenntaðir
Klerkar
semja til
tveggja ára
Prestar hafa nýverið samið um
kaup og kjör við fjármálaráðu-
neytið. Samningurinn gildir til
tæpra tveggja ára, eða áramót-
anna 1988 og 89. Gera má ráð
fyrir að launahækkunin yfir allt
samningstímabilið nemi um 20%,
en við undirskrift rétt innan við
10%.
Sr. Gísli Jónasson, fulltrúi í
samninganefnd presta, sagði að í
þessum samningum hefðu fengist
ýmsar mikilsverðar leiðréttingar
á launamálum presta. Einkum
hvað varðar greiðslur fyrir auka-
álag, s.s. yfirvinnugreiðslur á
stórhátíðum. Jafnframt fékkst í
gegn breyting á launatöflunni,
þannig að þrepum var fækkað,
sem kemur nýgræðingum í
klerkastétt til góða, en launa-
hækkun þeirra er hvað mest með
þessum nýju samningum.
-rk
Barnanauðgun
31/2 árs
fangelsi
Þrítugur Hafnfirðingur hefur
verið dæmdur í Sakadómi Hafn-
arfjarðar til 3 Vi árs fangelsisvist-
ar fyrir að hafa nauðgað þriggja
ára stjúpdóttur sinni haustið
1984. Maðurinn er sá sami og
handtekinn var fyrr í vetur eftir
að hafa ráðist að leigubflstjóra
sem barg sér með að bíta árásar-
manninn.
Rannsókn nauðgunarmálsins
stóð fram undir síðustu áramót
en sá ákærði og móðir stúlkunnar
óskuðu á sínum tíma eftir að
Rannsóknarlögreglan léti fara
fram rannsókn á málinu. Maður-
inn hefur ekki gengist við að hafa
nauðgað barninu en niðurstöður
rannsóknarinnar hníga allar í
sömu átt.
-lg
FRETTIR
Styr stendur um hæðina á nýbyggingu Blaðaprents en nágrannarnir í hlíðinni - Þýsk-íslenska - hafa kvartað vegna skerts útsýnis. Mynd: E.ÓI.
Byggingarnefnd
Húshæðin þrætuepli
Nýbygging Blaðaprents á Krókhálsi. Þýsk-íslenska kvartar- spillir útsýninu.
Meirihlutibyggingarnefndarvillhúsið lœkkað. Kristinn Finnbogason: Tóm
vitleysa að húsið sé hærra en eðlilegtgetur talist
Pað er mikill titringur í sam-
bandi við þessa byggingu.
Þeir hjá Þýsk-íslenska verslun-
arfélaginu mótmæltu hæð húss-
ins, þar sem það spillti fyrir þeim
útsýninu. Ég veit ekki hvað
mönnum gengur til með þessu.
Húsið er lægra en sum þeirra
húsa sem eru í nágrenninu og
heilum þremur metrum lægra en
húsnæði þess Þýsk-íslenska.
Þannig að það er alveg út í bláinn
að mótmæla byggingunni á þeim
forsendum að hér sé um háhýsi að
ræða, sagði Kristinn Finnboga-
son, framkvæmdastjóri Tímans,
um mótmæli við nýbyggingu
Blaðaprents á Krókhálsi, sem
Þjóðviljinn og Alþýðublaðið auk
Tímans standa að.
Byggingarnefnd hefur haft
málið til athugunar og meirihluti
nefndarinnar hefur komist að
þeirri niðurstöðu að byggingin
verði að lækka frá því sem fyrir-
hugað er. En skipulagsnefnd var
áður búin að fallast á fyrirhugaða
hæð hússins.
„í byggingarsamþykkt segir að
þarna megi byggja upp á ákveðna
hæð, en að öðru leyti er nokkuð
frjáist hvernig megi haga fyrir-
komulagi byggingarinnar. Það
hefur verið talað um það að nýt-
ingarhlutfall lóðarinnar sé of
mikið, sem er tómur þvættingur.
Þarna er t.d. Plastos, með Stöð 2
innanborðs og það er mun meiri
nýting á þeirri lóð. Þannig að við
skiljum ekki þessar aðgerðir
byggingaryfirvalda og við erum
orðin voðalega þreytt á af-
skiptum þeirra,“ sagði Kristinn
Finnbogason.
„Jú það er rétt að Þýsk-
íslenska kvartaði yfir hæðinni.
Húsið er einfaldlega of hátt - um
það er engum blöðum að fletta.
Ríkisspítalar
Skurö- og handlæknisdeildir lamast
Verkfallskellur ál9. mars og uppsagnir 400starfsmanna taka gildi um mánaðamót
„Það munu lokast um 90 af uþb
500 rúmum á ríkisspítölunum,“
sagði Davíð Á. Gunnarsson, for-
stjóri ríkisspítalanna, þegar
Þjóðviljinn innti hann eftir vænt-
anlegri röskun á starfsemi spítal-
anna um næstu mánaðamót.
„Þetta skellur að vísu fyrr á,“
sagði hann, „vegna boðaðs verk-
falls háskólamenntaðra hjúkrun-
arfræðinga og sjúkraþjálfara
þann 19. mars. Síðan taka upps-
agnirnar gildi um mánaðamót."
Um 400 manns hafa sagt upp
störfum á ríkisspítölunum og
skiptast þannig: sjúkraliðar 233,
náttúrufræðingar 24, félagsráð-
gjafar 17, sjúkraþjálfarar 12, iðj-
uþjálfarar 5, sálfræðingar 13,
næringarráðgjafar 4 og hjúkrun-
arfræðingar 59.
Listamannsíbúð í París
Politísk stjómamefnd
Afundi borgarráðs í fyrradag
voru samþykktar reglur um
afnot af listamannsíbúð í Site Int-
ernationale des Arts í París. íbúð
þessi er keypt af Reykjavíkur-
borg, ríki og Seðiabanka og er
stjórnarnefnd íbúðarinnar
skipuð þremur mönnum. Einn er
tilnefndur af
menntamálaráðherra og tveir af
Reykjavíkurborg að fengnum til-
lögum frá menningarmálanefnd
Reykjavíkur. Nefnd þessa skipa
Elín Pálmadóttir og Herdís Þor-
valdsdóttir að tillögu menning-
armálanefndar og Sigurður Páls-
son skipaður af
menntamálaráðherra.
Að sögn Guðnýjar Magnús-
dóttur formanns Samtaka ís-
lenskra myndlistarmanna eru
myndlistarmenn ósáttir við þessa
nefndarskipan og finnst fram hjá
sér gengið.
„Það var myndlistarmaður,
Björg Þorsteinsdóttir, sem gekk í
að þessi íbúð yrði keypt og þarna
er sérstök aðstaða fyrir mynd-
listarmenn og svona íbúðir eru yf-
irleitt mest notaðar af þeim ,“
sagði Guðný. „Nú fögnum við því
vissulega að þessi íbúð sé til og
viljum gjarnan hafa afnot af
henni í samvinnu við listamenn úr
öðrum greinum en okkur finnst
nefndarskipunin óþarflega pólit-
ísk og að minnsta kosti einn
myndlistarmaður hefði átt að
eiga sæti í henni. Þarna er enn
einu sinni verið að setja mynd-
listarmenn í þá aðstöðu að geta
ekki fjallað um sín eigin mál,“
sagði Guðný að lokum.
-ing.
„Skurðstofa og handlæknis-
deildir á Landspítalanum, svo og
Blóðbankinn koma til með að
lenda strax í miklum vanda vegna
uppsagna hjúkrunarfræðinganna
og náttúrufræðinganna," sagði
Davíð ennfremur.
Aðspurður um ráðstafanir
sagði Davíð að meðan verkfallið
stæði yfir giltu lög um kjaradeilur
og von væri um að hægt væri að fá
undanþágur fyrir starfsfólk en
þegar uppsagnirnar tækju gildi
yrði þetta allt annað mál.
„Þá höfum við engan lagalegan
rétt til að biðja fólk um að vinna
þó við telj um okkur hafa siðferði-
legan rétt til að biðja fólk um að
bjarga sjúklingum".
Davíð sagði stjórnarnefnd
ríkisspítalanna ekki eiga aðild að
kjarasamningum og því hefði hún
engin tök á að fylgjast með þeim
en hún hefði sent samningsaðil-
um, þ.e. fjármálaráðherra og
viðkomandi stéttarfélögum,
áskorun í síðustu viku og lagt
þunga áherslu á að reynt yrði að
flýta samningum.
-ing.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Annars er þetta mál alfarið í
höndum byggingarnefndar.
Meirihluti nefndarmanna vill að
húsið verði lækkað. Þetta mál
verður ekki tekið fyrir á fundi
fyrr en farið hefur verið að ósk
meirihluta nefndarinnar og
lagðar fram teikningar þar sem
ráðgert er að það verði lægra,“
sagði Gunnar Sigurðsson, bygg-
ingarfulltrúi Reykjavíkurborgar.
-RK
“■ORFRETTIR1
Kvennalistinn
á Suðurlandi
hefur birt framboðslista sinn. í
efsta sæti er Kristín Ástgeirsdóttir
kennari, Reykjavík. í næstu sæt-
um eru þær: Lilja Hannibalsdótt-
ir, hjúkrunarfærðingur, Selfossi,
Ragna Björg Björnsdóttir hús-
freyja Fljótshlíð, Edda Antons-
dóttir kennari, Vík og Sigurborg
Hilmarsdóttir kennari Laugar-
vatni.
Félag
framhaldsskola
sem er félag 12 nemendafélaga
á Stór-Reykjavíkursvæðinu hef-
ur lýst yfir fullum stuðningi við
kröfur kennara innan HÍK jafn-
framt því sem félagiö krefst þess
að stjórnvöld gangi þegar til
samninga og komi þannig í veg
fyrir yfirvofandi verkfall.
Svart á hvítu
hefur hafið útgáfu nýs bókaflokks
sem nefnist Regnbogabækur,
sem verða þýddar pappírskiljur.
Fyrsta bókin er komin út og nefn-
ist Brjóstsviði eftir Noru Ephon.
Krabbameins-
félagið
ætlar nú í framhaldi af „þjóðar-
átakinu" á sl. ári að auka þjónust-
una við landsmenn með því að
opna beina símaþjónustu alla
virka daga kl. 9 — 11, þar sem
hægt verður að leita upplýsinga
og ráða varðandi krabbamein.
Síminn er 91-21122. Þessi þjón-
usta hefst á mánudaginn kemur.