Þjóðviljinn - 12.03.1987, Side 5
Verðmæti búvara
nær 8 miljarðar
/ /
Ur þingsetningarrœðu Asgeirs Bjarnasonar
Umsjón:
Magnús H.
Gíslason
Búnaðarþing
Eins og alþjóð veit lét Ásgeir
Bjarnason bóndi í Ásgarði af for-
mennsku Búnaðarfélags íslands
nú fyrir lok síðasta Búnaðar-
þings. Hann var kjörinn í stjórn
félagsins fyrir 20 árum. Síð-
astliðin 16 ár hefur hann verið
formaður þess.
Ásgeir Bjarnason hefur verið
ákaflega farsæll í störfum sínum
fyrir Búnaðarfélagið. Þar hefur
hann sameinað með sjaldgæfum
hætti lipurð og ljúfmennsku,
þrek og festu. Ekki þarf Ásgeir
fyrir aldurs sakir né annarra á-
stæðna að láta af störfum. En
hann mun hafa talið rétt að rýma
fyrir yngri manni. Það sjónarmið
er honum líkt.
Við setningu Búnaðarþings á
dögunum flutti Ásgeir merka
ræðu svo sem jafnan áður við þá
athöfn, síðan hann tók við for-
mannsstarfinu. Landsbyggð birt-
irnúkaflaúr henni. Eftiraðhafaí
stórum dráttum rakið sögu Bún-
aðarfélags fslands í 150 ár sagði
Ásgeir Bjarnason:
- Á þessum merku tíma-
mótum kemur fram í huga minn
spurningin: „Höfum við gengið
til góðs götuna fram eftir veg?“.
Þegar ég lít til allra átta, lands og
sjávar, ber saman fortíð og nútíð,
svara ég þessari spurningu ját-
andi.
Pað er af mörgu að taka þegar
nefna skal dæmi um þróun mála á
liðnum árum en ég minni á lög-
gjöf landbúnaðarins, sem hefur
haft sín áhrif, hver á sínu sviði.
Til dæmis lög um jarðrækt, bú-
fjárrækt, afurðasölu og lánastarf-
semi landbúnaðarins. Löggjöfin
hefur valdið byltingu í íslenskum
landbúnaði ásamt tækni og vís-
indum.
Hitt er svo annað mál, sem
hlýtur að mótast hverju sinni af
þjóðmálum og markaðshorfum,
hvernig til tekst að selja erlendis
þær búvörur, sem ekki er þörf á
innanlands. Dýrtíðin, verðbólg-
an, hefur leitt til þess að þrátt
fyrir alla hagræðingu hefur verð-
lag búvöru, sem út er flutt, orðið
bændum óhagstætt og skapað
mikinn vanda í framleiðslumál-
um.
Bændastéttin er í biðstöðu og
verður að þrauka um sinn og sjá
til hvort það ástand sem ríkir
lagast ekki bráðlega. Það eru að
sönnu miklir erfiðleikar í
sauðfjárframleiðslunni. Innan-
landsneysla á dilkakjöti dregst
saman og nú virðist íslenska ullin
ekki vera nothæf nema að litlu
leyti sem íblöndun í erlenda ull.
Það voru þeir tímar, að íslenska
ullin átti ekki sinn líka í veröld-
inni og þóttu það dýrindis flíkur,
sem úr henni voru unnar. Þessi
málefni er sauðfjárbúskap snertir
þarf því sérstaklega að rannsaka,
einkum að því er varðar verslun
og vinnslu vörunnar.
Það þarf engan að undra þótt
sjaldan eða aldrei hafi verið
meira rætt og ritað um landbún-
aðarmál, en á s.l. ári og það sem
af er þessu. Horfur í landbúnaði
eru ekki góðar þótt tíðarfarið hafi
oftast leikið við bændur að und-
anförnu eins og aðra landsmenn.
finnsl, tvíþættur: Annars vegar
að tryggja bændum fullt verðlags-
grundvallarverð fyrir visst magn
af kjöti og mjólk samkvæmt
samningi þar um á milli landbún-
aðarráðherra og Stéttarsam-
bands bænda. Samningar hafa
verið gerðir fyrir þrjú ár og tekist
vel, ekki síst þegar innanlands-
neysla búvöru er höfð í huga.
Hinsvegar tryggja lögin þeim,
sem fara út í búháttabreytingar,
fj ármagn og það er mikils virði að
hafa innan landbúnaðarins áfram
það fjármagn, sem áður fór í út-
flutningsuppbætur á búvörum.
Það tekur sinn tíma að byggja
upp ný bú og koma þeim í arð-
samt horf, hvort heldur það eru
refa- og minkabú, fiskeldi, ferða-
þjónusta eða annað. Því er
nauðsynlegt að lengja aðlögunar-
tímann, sem ákveðinn er í lögum,
til næstu aldamóta. Það byrja
ekki allir í einu að búa, gamlir
menn hætta og yngri taka við, viss
fjöldi á ári. Best er fyrir alla að
þetta takist vel en til þess að svo
verði þarf að tryggja fjármagn til
þesarra mála fram í tímann, svo
menn viti í upphafi að hverju þeir
ganga.
Þá vil ég á það minna í leiðinni,
að nauðsynlegt er að athuga vel
reglugerðir búvörulaganna og
bæta úr ýmsum ágöllum á þeim,
svo þeir sem fara illa út úr
fullvirðisrétti en hafa frambæri-
leg rök máli sínu til stuðnings, fái
leiðréttingu mála sinna. Það er
venja að endurskoða lög og
reglugerðir, þegar reynsla er
fengin fyrir því hvernig þau verka
og það hygg ég að muni verða
gert með búvörulögin frá 1985.
Nauðsyn bú-
rekstrarkönnunar
Búrekstrarkönnun, líkt og
búið er að gera á Norðurlandi,
þarf að halda áfram á landinu
öllu. Það finnst mér að sé undir-
staða þess, að hægt sé að skipu-
leggja landbúnaðinn og sérhæfa
hann í sambandi við búhátta-
breytingar. Við það skapast vinn-
uhagræðing í búskap og viss
trygging fyrir því, að svonefnd
jaðarsvæði haldist íbyggð. Flestir
íslendingar vilja halda landinu
öllu í byggð og þegar á það er litið
ætti að vera auðveldara að afla
fjár til uppbyggingar í sveitum.
Landbúnaðurinn, dreifbýlið,
hefur mikla möguleika. Frjó-
sama gróðurmold, jarðhita og
raforku um allt land og batnandi
samgöngur. Allt felur þetta í sér
áður óþekkt tækifæri. Fækkun
fólks á landsbyggðinni er mikið
þjóðhagslegt vandamál, sem að-
kallandi er að spyrna gegn með
því að efla atvinnulíf víðsvegar á
landinu og styrkja félagslega að-
stöðu þeirra er þar búa. Lands-
byggðina, sveitirnar, þarf líka að
kynna betur en gert er og umfram
allt gefa ungu fólki í þéttbýli kost
á að kynnast sveitalífinu af eigin
raun.
Landbúnaðurinn er þýðingar-
mikill fyrir þjóðarbúið, þar sem
hann framleiðir verðmæti, sem
eru nær 8 miljarðar króna og
skapar útflutningstekjur sem
næst tveimur og einum þriðja
miljarði kr. Það eru býsna marg-
ir, sem hafa atvinnutekjur af
landbúnaði. Því ber að efla hann
sem mest.
Um þessar mundir er margt
rætt og ritað um landbúnaðinn.
Hann er í brennidepli. Það verða
mörg og þýðingarmikil mál lögð
fyrir þetta Búnaðarþing svo nóg
verður að gera, en af fyrri reynslu
veit ég að þið kryfjið málin til
mergjar og bendið á margt, sem
betur má fara og til heilla horfir.
Af ásettu ráði hef ég ekki rætt
Umdeild lagasmíð
Búvörulögin eru umdeild en
þau eru nauðsynleg. Það væri
ekki betra ástand í landbúnaði ef
allir fengju að framleiða eins og
þeir vildu og markaðsmöguleikar
þeir sömu og við búum við. Það
væri ófremdarástand. Kjarni bú-
vörulaganna er, að því er mér
mikið um vandamál landbúnað-
arins nú, en ég veit að þau berast
á borð ykkar og koma til af-
greiðslu. Ég óska ykkur góðs
gengis í störfum.
Heilladrjúg
samstaða
Það tók langan tíma fyrir Bún-
aðarfélag íslands að komast á
legg og verða virkilegur aflgjafi í
búnaðarmálum. Stundum hafa
líka leikið um það naprir vindar,
en það hefur alltaf staðið þá af sér
og þess óska ég að verði í framtíð-
inni. Búnaðarfélagið er það víð-
feðmt að þar geta allir, sem vilja,
starfað að málefnum landbúnað-
arins á félagslegum grunni. Staða
landbúnaðarins er þannig í dag
að bændum veitir ekki af að
standa saman um málefni sín og
styrkja á þann hátt þessa atvinnu-
grein, sem nú á í vök að verjast.
Að þessu sinni finnst mér rétt
að geta þess sérstaklega að það er
í senn þýðingarmikið og ánægju-
legt hversu mikil og góð sam-
vinna er á milli Stéttarsambands
bænda og Búnaðarfélags fslands.
Samvinna þessi hefur leyst mörg
vandamál landbúnaðarins. Þótt
verkefni þessara félaga séu ann-
ars ólík þá starfa þau bæði fyrir
bændurna - landbúnaðinn, og
geta stutt hvort annað á fjölmörg-
um sviðum. Ég þakka Stéttar-
sambandinu góða samvinnu og
óska því góðs gengis.
áb/mhg
Það eru fleiri en bændur, sem hafa atvinnutekjur sínar af landbúnaði.
V:'
Ásgeir Bjarnason: Fækkun fólks á landsbyggðinni er mikið þjóðhagslegt
vandamál.
Fimmtudagur 12. mars 1987 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5