Þjóðviljinn - 12.03.1987, Page 6
LANDSBYGGÐIN
Búvöruverð
Furðulegar yfirlýsingar
formanna stjórnarflokkanna
Stjórn Félags sauðfjárbænda
við Eyjafjörð kom saman til fund-
ar 2. mars s.l. og gerði þar svo-
fellda bókun:
1. Ekki kemur til greina að
sauðfjárbændur gefi neitt eftir af
þeirri hækkun verðlagsgrundvall-
ar sem full samstaða er um í verð-
lagsnefnd búvara og átti að taka
gildi 1. mars s.l. nema annað
komi til sem tryggi þeim samsvar-
andi tekjur. Stjórnin getur þó
eftir atvikum fallist á þann hálfs-
mánaðar frest sem samkomulag
er orðið um enda verði hann not-
aður til þess að finna hagkvæm-
ustu lausn þessara mála. Það er
þó alger krafa að sá verð-lags-
grund-völl-ur sem gefinn verður
út að þessum fresti liðnum verði
afturvirkur til 1. mars.
2. Stjórnin minnir á, að s.l.
haust gáfu sauðfjárbændur eftir
197.000 kr. af launalið við gerð
nýs verðlagsgrundvallar. Var það
forsenda fyrir því að hægt væri að
ná viðunandi samningum við rík-
ið. Ber því ríkisstjórnin fulla
ábyrgð á þeirri gífurlegu kjara-
skerð-ingu sem þetta hafði í för
með sér fyrir sauðfjárbændur.
3. Ekki verður séð að ríkis-
stjórnin hafi uppi minnstu til-
burði ril að bæta sauðfjárbænd-
um þessa kjaraskerðingu. Þvert á
móti hafa formenn stjórnarflokk-
anna látið frá sér fara hinar furð-
ulegustu yfirlýsingar varðandi
framreikning verðlagsgrundvall-
arins til samræmis við launa-
breytingar viðmiðunarstéttanna.
Steingrímur Hermannsson fer
fram á frestun og telur að margir
bændur hafi alla burði til að bera
enn frekari kjaraskerðingu og
Þorsteinn Pálsson kallar auknar
niðurgreiðslur til lausnar þessum
vanda sýndarmennsku fyrir kosn-
ingar. Stjórnin lýsir furðu sinni á
því skilningsleysi sem þessi um-
mæli bera með sér á kjörum
sauðfjárbænda og ættu þeir að
minnast þeirra 25. apríl n.k.
4. Samkvæmt opinberum hag-
töl-um eru bændur tekjulægsta
stétt þessarar þjóðar og ætti
öllum að vera ljóst að sú kjara-
skerð-ing sem varð á s.l. hausti,
hvað þá enn frekari skerðing á
kjörum sauðfjárbænda, getur
ekki leitt til annars en gjaldþrots
þeirra í hundraðatali og að þeir
verði að fara frá jörðum sínum
eignalausir með þunga skulda-
bagga á baki.
5. Stjórnin krefst þess að ríkis-
stjórnin geri það upp við sig hvort
eigi að stunda sauðfjárbúskap í
þessu landi og hvort hún ætlar að
tryggja ákvæði laga sem, hún
beitti sér sjálf fyrir að sett yrðu,
þar sem segir að kjör bænda skuli
vera í sem nánustu samræmi við
kjör annarra stétta.
6. Þá mótmælir stjórnin harð-
lega endurtekinni íhlutun for-
ystumanna A.S.Í. þegar rætt er
um eðlilega hækkun launaliðar
verðlagsgrundvallar og telur það
koma úr hörðustu átt.
Stjórnin skorar á Stéttarsam-
band bænda að það leiti allra
hugsanlegra leiða til að bæta bág
kjör sauðfjárbænda og það sýni
enga linkind í baráttu sinni við
skilningssljó stjórnvöld. ógv/hmg
FLÓAMARKAÐURINN
Lúxemburg
Til sölu opinn flugmiði til Luxem-
burgar aðra leið. Gildir fram í júní.
Selst ódýrt. Upplýs. í síma 19842.
Myndbandstæki -
sportfelgur
Lítið notað Xenon myndbandstæki
til sölu. Verð kr. 20 þús. Einnig fal-
legar álsportfelgur á Lödu. Upplýs. í
síma 36233 eftir kl. 16.
Til sölu
Sinclair Spectrum tölva ásamt
nokkrum leikjum. Sími 44465 e.kl.
18.
Til sölu
ónotuð sumardekk 155x14. Sími
71029 e.kl. 18.
Til sölu skrúfa og öxull
2 stórir netadrekar og 3 handfærar-
úllur. Færeyskar. Upplýs. í síma
10983 e.kl. 19.
Sófasett til sölu
Til sölu er furusófasett, 3+2+1, og
sófaborð og hornaborð. Upplýs. í
síma 76191.
Óska eftir að kaupa
stillanlegt teikniborð með teiknivél,
ca. 80x120 sm. Upplýs. á
skrifstofutíma í síma 621699.
Vill strákurinn,
sem hefur undir höndum
röndóttar buxur og Visa-kort frá
stelpunni, sem hann hitti i Broad-
way á laugardagskvöldið, skila
þessu sem allra fyrst í óskiladeild
lögreglunnar.
Óska að kaupa
notaða mótor-garðsláttuvél
Mætti þarfnast viðgerðar. Upplýs. í
síma 44465 næstu daga.
Óska eftir vellaunuðu starfi
helst við útkeyrslu. Hef eigin bíl.
Sími 11701 eftir kl. 20.
Rafha eldavél til sölu
Verð kr. 10.000.- Einnig fást á
sama stað hægindastólar og sófa-
borð. Selst ódýrt. Sími 53206.
Volkswagen fyrir 10.000,- kr.
Til sölu brúnn Volkswagen 1300
bjalla árg. '74. Góð vetrardekk og
útvarp fylgja. Upplýs. veitir Ólafur í
síma 17482.
Antik sófasett
sófi + 3 stólar, stórt og veglegt til
sölu. Selst ódýrt. Vinnusími 651616
og heimasími 54327 eftir kl. 17.
Þórhallur.
Þríhjól
Vantar vel með farið þríhjól fyrir 3ja
ára gamalt barn. Er í síma 53090.
Silkislæður
Geri silkislæður í haust-, sumar-,
vor- og vetrarlitum. Get merkt slæð-
urnar með nafni. Hringið í síma
53090.
Óska eftir
ódýrri 2ja herb. leiguíbúð
helst í Hafnarfirði eða Garðabæ.
Erum tvö í heimili og eigum von á
barni. Góðri umgengni og skilvísum
greiðslum heitið. Upplýs. í síma
50942 eftir hádegi.
Óska eftir að kaupa
rúm fyrir 4ra til 10 ára barn. Upplýs.
í síma 22631.
Til sölu
DBS kvenreiðhjól sem nýtt. Upplýs.
í síma 42935 eftir kl. 19.
Til sölu hljómborð
Viscount A 330 með kennara. Ný-
legt og lítið notað. Verð staðgreitt
kr. 20.000.- Upplýs. í síma 36858.
Svæðameðferð
Hef nokkra lausa tíma í svæðameð-
ferð. Bý í Safamýri. Sími 30807.
Birna.
Fiat Panda
til sölu 4x4. Er til sýnis á Aðalbíla-
sölunni við Miklatorg. Ef einhverjir
hafa áhuga þá hringið í síma
623086.
m Mosfellssveit
Framlagning kjörskrár
Kjörskrá vegna alþingiskosninganna 25.
apríl nk. liggur frammi á skrifstofu Mosfells-
hrepps í Hlégarði frá og með 13. mars nk.
Kærufrestur vegna kjörskrár er til 6. apríl
1987.
Sveitarstjóri
Málningartilboð
Tilboð óskast í að mála stigagang í íbúðarblokk í
Breiðholti.
Upplýsingar í síma 75707.
Gerð verði könnun á búrekstraraðstöðu á sveitabýlum um allt land.
Köimun á búrekslraiaðstöðu
Meðal þeirra mála, sem Al-
þingi sendi nýafstöðnu Búnaðar-
þingi til umsagnar var þingsálykt-
unartillaga Hjörleifs Guttorms-
sonar um könnun á búrekstrar-
aðstöðu.
í þingsályktunartillögunni
segir m.a. að Alþingi álykti að
fela ríkisstjórninni að láta fara
fram á fyrri hluta þessa árs könn-
un á búrekstraraðstöðu einstakra
jarða og byggðarlaga um land
allt. Markmiðið sé að safna upp-
lýsingum um framleiðsluaðstöðu
á einstökum jörðum og um áform
ábúenda og hugmyndir sveita-
fólks um nýsköpun í atvinnulífi
og breytingar á búháttum í
dreifbýli í náinni framtíð.
Könnunin miðist m.a. við það,
að unnt sé að nota þær upplýsing-
ar, sem safnast, við mótun svæða-
skipulags í landbúnaði, þar sem
tekið er tillit til aðlögunar hefð-
bundins búskapar að landgæðum
og markaði, nýtingar arðbærra
hlunninda og uppbyggingar nýrra
búgreina. Jafnframt ætti könnun-
in að leiða í ljós stöðu einstakra
byggðarlaga og verða leiðbein-
andi um aðgerðir til viðhalds
byggðinni.
Alþingi verði kynntar ntður-
stöður könnunarinnar eigi síðar
en haustið 1987 svo unnt sé að
móta aðgerðir með hliðsjón af
henni á næsta þingi. Kostnaður
vegna könnunarinnar greiðist úr
ríkissjóði.
Búnaðarþing lagði einróma til
að Alþingi samþykkti þingsálykt-
unartillöguna. - mhg
Búvöruverð
Bændur fái það,
sem þeim ber
Krafa Suður-Þingeyinga
Stjórn Félags sauðfjárbænda í
Suður-Þingeyjarsýslu kom ný-
lega saman til fundar og sam-
þykkti þar eftirfarandi ályktun,
sem send hefur verið Stéttars-
ambandi bænda:
Stjórn Félags sauðfjárbænda í
S-Þing. mótmælir þeim fresti,
sem orðið hefur á ákvörðun um
kauplið bænda í verðlagsgrund-
velli búvara hinn 1. mars. Jafn-
framt skorar stjórnin á stjórn
Stéttarsambands bænda að kvika
í engu frá því, í samningum við
ríkisvaldið á næstu dögum, að
bændur fái þá kauphækkun, sem
þeim ber lögum samkvæmt.
Stjórnin vill minna á að við
ákvörðun verðlagsgrundvallar í
sept. sl. var frestað í eitt ár hækk-
un á grundvelli sauðfjárafurða
um 12.4%, en það þýðir 197.000
kr. eftirgjöf á launalið verðlags-
grundvallarbús. Því er það brýnt,
að hækkun grundvallarins nú
skili sér þegar til bænda að fullu.
Þá vill stjórnin benda á að við
gerð kjarasamninga í des. hækk-
uðu laun viðmiðunarstétta um
allt að 30% og jafnframt ábyrgð-
ist ríkisstjórnin að búvörur hækk-
uðu ekki umfram annað verðlag.
Því eru yfirlýsingar einstakra ráð-
herra um að hækkun þessi komi
mjög á óvart, afar einkennilegar,
svo ekki sé meira sagt. Öllum átti
að vera ljóst, að búvörur hlyíu að
hækka verulega hinn 1. mars og
ef sú hækkun ætti ekki að ganga
út í verðlagið, yrðu að koma til
sérstakar aðgerðir. Ríkisstjórnin
hefur nú haft næstum þrjá mán-
uði til að vinna að lausn þessa
máls, en eftir síðustu viðbrögðum
virðist hennar eina lausn vera að
lækka enn kaup bænda, sem eru
þó tekjulægsta stétt þjóðarinnar.
Stjórn Félags sauðfjárbænda í
S-Þing. bendir á eftirfarandi til
lausnar þessa máls:
1. Aukna niðurgreiðslu bú-
vöru.
2. Lækkun raforku.
3. Lækkun á rekstrarvörum
m.a. með afnámi aðflutnings-
gjalda og söluskatts.
Slíkt gæti að nokkru komið til
móts við þá frestun, sem varð á
hækkun verðlagsgrundvallar
sauðfjárafurða s.l. haust.
es/mhg
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 12. mars 1987