Þjóðviljinn - 05.04.1987, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 05.04.1987, Qupperneq 4
GLÆTAN 22 kallar og ein tuðra Spjallað við Eyjólf Sverrisson fró Sauðórkróki, 18 óra markakóng og unglingalandsliðsmann í körfu- knattleik Hann heitir Eyjólfur Sverr- isson og er 18 ára. Á síðasta ári varð hann markahæstur allra leikmanna í þriðju deild í fótbolta. Hann er í unglingalandsliöinu í körfuknattleik. Hann varð stigahæstur allra leik- manna í 1. deildinni í körfu- knattleik. Þar fyrir utan býr hann á Sauðárkróki og er í fjölbrautaskólanum þar.- Tíðindamaður Glætunnar varáferðum Norðurlandá dögunum og spjallaði við Eyjólf. „Ég held að ég hafi byrjað í fótbolta þegar ég var farinn að geta sparkað," segir hann og brosir. „Síðan lék ég með öllum yngri flokkunum með Tindastóli. Fyrir tveimur árum var ég svo tekinn upp í meistaraflokk.“ Og Eyjólfur er ekki sá eini í fjölskyldunni sem spilar fótbolta. Þeir eru hvorki fleiri né færri en fjórir bræðumir í Tindastólslið- inu. - Er ekki hörð samkeppni meðal þeirra um sæti í liðinu? „Hm... Það er náttúrlega alltaf einhver samkeppni, - það er aldrei neinn örugggur um sitt sæti. En annars höldum við ágæt- lega saman bræðumir.“ - En hvernlg var svo að byrja í meistaraflokki 16 ára? Er ekki óvanalegt að menn séu teknir svo ungir í aðalliðið? „Þetta var nú eins og alltaf þeg- ar maður byrjar í einhverju - ég var óttalegur klaufi í fyrstu. Ætli ég hafi ekki skorað eitthvað í kringum 5 mörk. En annars er það alls ekki óal- gengt úti á landsbyggðinni að menn séu teknir svona ungir í lið- ið: Þau em oft sambland af ung- lingum og gömlum kempum!“ - Svo gerðir þú góða lukku í fyrra, ekki satt? „Ég var markahæstur, það er rétt. Hversu mörk mörk? Þau vom 15 í jafnmörgum leikjum og síðan fjögur í bikarkeppninni. Liðinu gekk mjög vel framan af keppnistímabilinu en hmndi al- veg saman þegar leið á...“ - Svona mikill markaskorari - á hann ekki að leika með fyrstu deildar liðum? „Ég held að ég þyrfti nú meiri reynslu til að spjara mig þar. Ég er ekki viss um að mér tækist að vinna mér sæti í fyrstu deildar Iiði, svo ég er ekkert að hugsa útí það.“ - En segðu mér eitt, hvað er svona gaman við það að spiia fótbolta? „Ég er nú oft spurður um það, hvemig 22 kallar nenni að elta eina tuðm! Fyrst og fremst er þetta útrás. Ég fæ útrás í fótbolt- anum og körfuboltanum fyrst og fremst. Síðan er félagsskapurinn mjög góður og uppbyggilegur - það er góður mórall í kringum ■ þetta.“ - En vel á minnst, körfubolti - hvenær byrjaðirðu í honum? „Það var nú mun seinna en í fótboltanum. Það er mjög gott að hafa eina íþrótt yfir sumarið og aðra á veturna. En ekki þar fyrir, það kemur að því að menn verða að velja á milli.“ - Og hvað ætlar þú að velja? „Já, þú segir nokkuð! Það er mjög erfitt að gera upp á milli. En ætli það yrði ekki körfuboltinn... og þó!“ - Er mikili áhugi á íþróttum hér á K róknum? Hvað með áhorfendur t.d.? „Það er mikill áhugi og virki- lega góð aðstaða. í fótboltanum er góð aðstaða fyrir æfingar og keppni, við erum bæði með gras- og malarvöll og aðstöðu fyrir áhorfendur. Annars staðar er körfuboltinn vinsælli, - við fáum miklu fleiri áhorfendur en mörg Úrvals- deildarliðin. Það er oft gífurleg stemmning, fólk sem maður vissi ekki sinni til að hefði áhuga á íþróttum er farið að koma til að hvetja okkur áfram. Þetta er nú kosturinn við þessi minni bæjar- félög - að fólkið í heild er miklu upplýstara um það sem er að ger- ast og kemur og styður við bakið á sínum mönnum.“ - Að lokum Eyjólfur, ætlarðu að halda áfram í íþróttunum? „Já, ég stefni að því að vinna sæti í A-landsliðinu í körfubolta með tíð og tíma. Ég mun berjast fyrir því með kjafti og klóm!“ -hj- Eyjólfur með verðlaunagripi fyrir margvísleg afrek: Fyrst og fremst er þetta útrás.., ( kunnuglegri stellingu. Æfingasvæði á bílskúrsplaninu heima. Tíðindamaður Glætunnar skoraði á landsliðsmanninn og hafði einn heimamann sér til halds og trausts: Landsliðið tapaði! Ritfregn „Við sundin blá“ Smásagnasafn fjórða bekkjar Mennta- skólans við Sund. 7 6 sögur vóru valdar úr tœplega 180! Fjórði bekkurí Menntaskólanum við Sund sendi í vikunni f rá sér smá- sagnasafnið „Við sundin blá“. í bókinni eru 16 sögur eftir jafnmarga höfunda, sem valdarvoru úrtæplega 180er tilgreina komu. Tildrög útgáfunnar voru þau að öllum nemendum fjórða bekkjar var gert að skrifa smá- sögu með góðu eða illu og skyldi verkið koma til mats í heildar- einkunn. Arður af bókarsölunni rennur síðan í sjóð útskriftarað- alsins í M.S. „Við sundin blá“ er ríkulega myndskreytt verkum eftir nem- endur á ljósmyndasviði skólans og fer einkar vel á því að sameina þessar listgreinar í einni bók. Skemmst er síðan frá þvf að segja að sögumar eru hver ann- arri betri og bera sumar hverjar fbtxlán ftmáffóður vott um ótvíræða hæfileika, auk þess að vera skemmtilegar og frumlega unnar. M.S.-ingum er hérmeð óskað til hamingju með framtakið og er fólk hvatt til að verða sér úti um þetta ágæta rit. 4 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 5. apríl 1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.