Þjóðviljinn - 05.04.1987, Qupperneq 5
Ljóð vikunnar
Ég fæ ekki skiliö svo afkáleg orð
alþjóö þú sagðir svo þýður.
Vitleysu þessari frá okkur forð
frasanum undan mér svíður.
Á kveðskap og atómi skörp eru skil,
- er skáldið Gerður þá ekki til?
Skáld vikunnar að þessu sinni er Gerður Kristný, 16 ára nemi úr
Menntaskólanum við Hamrahlíð. Eins og lesendur Glaetunnar rekur
eflaust minni til hefur áður birst eftir hana Ijóð á þessum síðum.
Kvæðið sem hér birtist er ort í tilefni þeirra orða Hrafns Jökulssonar í
Geisla fyrir viku, að ung skáld fáist nú lítið við að yrkja upp á gamla
móðinn og farist það yfirleitt óhönduglega.
Umsjónarmaður Glætunnar kann Gerði bestu þakkir fyrir kvæðið,
en þess má að lokum geta að hún mun á næstunni leggja Glætunni til
fleiri Ijóð.
Úr nölduskjóðunni. Hrafn Jökulsson skrifar
fVinnuskóli
Reykjavíkur
Vinnusköli Reykjavíkur auglýsir eftir leiöbeinend-
um til starfa viö Vinnuskólann í sumar. Starfstími
er frá 1. júní til 1. ágúst nk.
Æskilegt er aö umsækjendur hafi reynslu í verk-
stjórn og þekkingu á gróðursetningu, jarðrækt
o.fl. störfum, t.d. hellulögnum og kanthleðslu. Til
greina koma Vz dags störf. Umsóknareyðublöð
eru afhent í Ráðningarstofu Reykjavíkurborgar,
Borgartúni 3, sími 623340. Þar eru einnig gefnar
upplýsingar um starfið.
Umsóknarfrestur er til 24. apríl nk.
Vinnuskóli Reykjavíkur.
A
Forstöðumaður
Ef œskan vill rétta
þér örvandi hönd...
Félagsmálastofnun Kópavogs auglýsir stöðu
forstöðumanns á skóladagheimilinu Dalbrekku
lausa frá 15. maí.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl.
Upplýsingar veitir dagvistarfulltrúi í síma 45700.
Umsóknum skal skilað á þar til gerðum eyðu-
blöðum sem liggjaframmi á Félagsmálastofnun,
Digranesvegi 12.
Unga fólkið í Sjálfstæð-
isflokknum kom úr felum í gær.
Og það dugði ekkert minna en
heilsíða í Mogganum undir allt
galleríið. Enda stendur mikið til:
„Við erum ungt fólk á leið í kosn-
ingabaráttu,” er haft eftir víg-
reifu dilkakjötinu. Og þeim á
eftir að ganga vel því þau eru
ríkulega nestuð: „Við erum ungt
fólk sem fagnar því að Sjálfstæð-
isflokkurinn er tilbúinn að axla
þá ábyrgð er samræmist þeim
kröfum sem íslendingar gera til
stærsta stjómmálaflokks lands-
ins.” Þetta er djarflega mælt um
flokk sem nýlega hjó sjálfan sig í
herðar niður! En unga fólkið á
myndinni styður flokk Þorsteins
en ekki flokk Alberts og það
skýtur dáldið skökku við. Vegna
þess að rökin fyrir stuðningi við
Sjálfstæðisflokkinn em: „Við
erum ungt fólk sem hefúr séð
ýmis baráttumál sín rætast í
stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins,
t.d. frjálst útvarp, eign fyrir alla,
sölu ríkisfyrirtækja og hjöðnun
verðbólgu.” -Albert var fjármál-
aráðherra á þeim tíma sem tókst
að ná verðbólgunni úr 130%
niður í 10%. Steini litli fékk ekki
stól fyrr en löngu síðar. Og von-
andi veit
unga-fólkið-á-leið-í-kosninga-
baráttu hvaða aðferðum var beitt
við að ná niður verðbólgunni?
-Að banna verkföll, afnema vís-
itölubætur á laun og skerða þann-
ig kaupmátt fólks um þriðjung á
fáeinum missemm. Vonandi veit
unga fólkið að verðbólgan er
komin í tæp 30% - eftir að Þor-
steinn tók við! - og fer enn hærra
eftir nýjustu kjarasamninga.
Það sem vekur þó mesta at-
hygli af þessum fjórum upptöldu
atriðum „unga fólksins” er:
„Eign fyrir alla.” Þetta hljómar
nú satt að segja dálítið annarlega.
Það er að vísu búið að taka í notk-
un nýtt húsnæði Verslunar-
skólans - og er Berki Gunn-
arssyni hérmeð óskað til ham-
ingju með það. -En þar fyrir utan
hefur fjöldi fólks misst húsnæði
sitt á nauðungaruppboðum; lána-
kerfi Húsnæðisstoftiunar er ónýtt
og vaxtabyrðin er að sliga þá sem
vom svo ógæfusamir að festa sér
„eign”.
Stuttbuxnadeildin klykkir út
með því að segja: „Við emm ungt
fólk sem ætlar að kjósa Sjálfstæð-
isflokkinn til forystu 25. apríl -
gegn sundmngu og ósamlyndi.”
-Það var og. Eitthvað virðist
geðklofi flokksforystunnr vera
smitandi ef unga fólkið ætlar að
kjósa Sjálfstæðisflokkinn gegn
sundrungu og ósamlyndi!
Ungir sjálfstæðismenn geta
huggað sig viö það að eftir kosn-
ingar þurfa þeir ekki að láta hafa
margt eftir sér en geta snúið sér
óskiptir að sandkastalabygging-
unum aftur. Og unga fólkið má
alveg trúa því að það sé að gera
gagn og að það sé raunverulega á
leið í kosningabaráttu.
En ósköp er það dapurlegur
vitnisburður um þekkingu unga
fólksins sem kemur fram á
leikskólamyndinni. Það hefði
verið nær að hafa hana ótextaða
enda halda líka allir á spjöldum
sem á stendur skýmm stöfum X-
D. Það er vel til fundið enda fleiri
en einn Sjálfstæðisflokkur í fram-
boði og fleiri en tveir.
Ég vona að unga fólkinu í Sjálf-
stæðisflokknum gangi vel í kosn-
ingabaráttunni og að það haldi
málflutningi sínum til streitu. Þá
fer það langt með að vinna jafn-
mikið af flokknum og Albert. En
vonandi rennur líka af þeim í-
myndunarfylleríið, því prófin
fara að byrja.
Hrafn Jökulsson
Áríðandi orðsending!
Til lesenda Glœtunnar
Svo sem dyggum lesendum Glætunnar er kunnugt var hún
færð úr föstudagsblaði yfir f helgarblað fyrir skemmstu. Um leið
var meiningin að auka fjölbreytni í efnisvali eftir því sem kostur
er.
Þess vegna vill umsjónarmaður eindregið hvetja lesendur til
þess að koma með eigin hugmyndir um efni og eins hvað betur
mætti fara. Best væri þó ef framtakssamt ungt fólk sendi inn
efni sjálft: hvort heldur sögur eða kvæði, greinarstúfa eða bara
vangaveltur um lífið og tilveruna.
Fyrir þá sem vilja slá á þráðinn er síminn 681333. Heimilis-
fangið er: Þjóðviljinn c/o Glætan, Síðumúla 6, 108 Reykjavík.
Félagsmálastofnun Kópavogs.
í|| Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkur fyrir hönd gatna-
málastjórans í Reykjavík óskar eftir tilboðum í
steyptar gangstéttar, gerð stíga og ræktun í Ár-
túnsholti og Grafarvogi.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, gegn 5 þús. kr. skilatryggingu. Til-
boðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 14.
apríl nk. kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBOROAR
V i ikit k|uvoy i 3 Smii 25800
j||| Skrifstofustarf
Óskum að ráða skrifstofumann frá 1. maí nk.
Starfið er einkum vinna á tölvur, við bókhald,
ritvinnslu og reikninga en einnig almenn skrif-
stofustörf.
Umsóknir sendist í pósthólf 5016,125 Reykjavík,
fyrir 15. apríl nk.
Vinnu- og dvalarheimili Sjálfsbjargar,
Hátúni 12 Reykjavík
" ^ Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir til- boðum í eftirtalin verk:
''/v/m W 1- Styrking og malarslitlög í Vestur-Húnavatns- r sýslu 1987. Lengd vegarkafla 11,5 km, magn 20.000 rúmmetr- ar. Verki skal lokið fyrir 30. september 1987. 2. Styrkingu Svartárdalsvegar f Austur-Húna- vatnssýslu 1987. Lengd vegarkafla 14,3 km, magn 15.000 rúmmetr- ar. Verki skal lokið fyrir 15. september 1987. 3. Styrkingu Slglufjarðarvegar í Skagaflrði 1987. Lengd vegarkafla 16,4 km, magn 35.000 rúmmetr- ar. Verki skal lokið 31. júlí 1987.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Sauðárkróki og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 6. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 27. apríl 1987.
Vegamálastjóri