Þjóðviljinn - 05.04.1987, Side 16
Sigurjón Sighvatsson kvik-
myndagerðarmaðurkom nú í
vikunni úttil íslandsfrá höfuð-
borg kvikmyndaiðnaðarins,
Los Angeles, en þar hefur
hann haft fast aðsetur undan-
farin ár. Ástæðan fyrir
heimsókninni er sú að nú um
helgina verður kvikmyndin
Einkarannsóknin, sem hann
framleiddi í samvinnu við
kunningjasinn, Steven Golin,
frumsýnd í Laugarásbíói. Hér
er um að ræða heimsfrum-
sýninguámyndinni.
„Það er eiginlega tilviljun að
kvikmyndin er frumsýnd hér í
Reykjavík og átti ég engan hlut
þar að máli. Fyrirtæki Samuel
Goldwyn sér um dreifingu á kvik-
myndinni fyrir utan Bandaríkin
og það má vel vera að þeir hafi
haft tengsl mín við ísland í huga
þegar þeir ákváðu að frumsýna
kvikmyndina hér.“
Aðdragandinn að Einka-
rannsókninni er sá að þeir Sigur-
jón og Steven Golin leituðu til
hljómplötufyrirtækisins Poly-
gram til að kanna hvort áhugi
væri fyrir hendi að fjármagna
kvikmynd. Kynntu þeir þar fyrsta
uppkastið að Einkarannsókninni
og leist Polygram strax vel á hug-
myndina. Þegar þeir sáu svo
kvikmyndina fullgerða gerðu
þeir samning við þá Sigurjón og
Golin um þrjár kvikmyndir til
viðbótar.
Sigurjón hefur dvalið í Banda-
ríkjunum í átta ár. Þar af fimm
við kvikmyndanám. Fyrst við al-
menna kvikmyndagerð við Am-
- Við Steven Golin vorum allsráðandi við gerð
Einkarannsóknarinnar. Við vorum upphafsmenn
kvikmyndarinnar og sáum um að setja endapun-
ktinn, segir Sigurjón Sighvatsson. annar af tveim
framleiðendum Einkarannsóknarinnar sem Laugar-
ásbió frumsýnir nu um heigina. Mynd Sig.
Tryllir i anda Hitchcock
Sigurjón Sighvatsson spjallar um bandaríska kvikmyndagerð og Einkarannsóknina,
sem hann er framleiðandi að
erican film Institute og seinna við
framhaldsnám í kvikmyndaleik-
stjórn við University of Southern
California. Þegar námi lauk kom
Sigurjón aftur til íslands og
leikstýrði Litlu hryllingsbúðinni í
samvinnu við Pál Baldvin Bald-
vinsson fyrir Hitt-leikhúsið.
Fyrsta kvikmyndin í fullri
lengd, sem Sigurjón framleiddi,
var Nikkelfjallið, sem sýnd hefur
verið hér. Sú mynd gekk ekki
nógu vel og kennir Sigurjón um
lélegri dreifingu. Einkarann-
sóknin á þó ekki að þurfa að líða
fyrir slíkt.
„MGM hafa keypt kvikmynd-
ina og verður henni líklega dreift
um öll Bandaríkin í sumar. Fyrst
verður hún, ef að líkum lætur,
prufukeyrð í nokkrum fylkjum,
til að kanna viðtökumar. Þá hef-
ur Samuel Goldwyn keypt
dreifingarréttinn utan Bandaríkj-
anna og hún hefur þegar verið
seld til fjölda landa.“
Sigurjón var spurður að því
hvert hlutverk framleiðenda væri
í bandarískri kvikmyndagerð.
„Það er töluverður munur á
hlutverki framleiðenda í bandarí-
skri kvikmyndagerð og í flestum
Iöndum Evrópu. Yfirleitt heldur
framleiðandinn utan um flesta
þætti kvikmyndarinnar og ræður
afar miklu. Þetta hefur þó verið
mismunandi eftir tímabilum.
Fram til 1950 réð framleiðandinn
öllu. Á sjötta áratugnum færðist
svo valdið töluvert frá fram-
leiðandanum yfir til leikstjór-
anna og stjarnanna. Stjömurnar
vildu fara að hafa meiri áhrif á
endanlega gerð myndarinnar og
því vom United Artists stofnuð.
Með tilkomu óháðu Ieikstjór-
anna fengu leikstjóramir svo
meiri völd. Upp á síðkastið hefur
þetta breyst aftur í svipað horf og
fyrir 1950. Framleiðendumir em
famir að eiga aftur lokaorðið.
Við sjáum þetta á því að leik-
stjórar einsog Georg Lucas, Spi-
elberg og Coppola framleiða
kvikmyndir jöfnum höndum sem
þeir leikstýra og þær kvikmyndir
sem þeir framleiða bera svipmót
þeirra.
Við gerð Einkarannsóknarinn-
ar vorum við Golin allsráðandi.
Þessi kvikmynd er mjög ódýr á
ameríska vísu, kostaði um 60
milljónir íslenskar, og við hefð-
um því ekki haft efni á því að hafa
leikstjóra á launum á meðan á
undirbúningi stóð. í okkar tilfelli
vomm við framleiðendumir upp-
hafsmenn verksins og við sáum
um að setja endapunktinn."
Leikstjóri Einkarannsóknar-
innar er enskur, Nigel Dick að
nafni. Þeir Sigurjón, Nigel og
Steven Golin kynntust allir í
skóla.
„Það má eiginlega segja að
þetta sé byrjendaverk því þetta er
fyrsta alvöm kvikmynd okkar
:allra. Og ég er nokkuð sáttur við
útkomuna miðað við það sem
lagt var af stað með í upphafi."
- En hvert verður svo fram-
haldið?
„Við erum í startholunum með
næstu kvikmynd fyrir Polygram.
Einkarannsóknin er tryllir í anda
meistara Hitchcock, en sú mynd
sem nú er í bígerð verður eins-
konar nútíma vestri. Hún verður
tekin í Mexíkó og heitir Blue Igu-
ana, eftir gamalli krá, sem stór
hluti kvikmyndarinnar gerist á.“
-Sáf
IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK
IÐNSKÓLADAGURINN
í dag, laugardag
Iðnskólinn í Reykjavík, Skólavörðuholti, verður
opinn almenningi í dag laugardag frá kl. 10 -16.
Þar gefst tækifæri til að kynna sér nám í löggiltum
iðngreinum, tölvutækni, tækniteiknun og á
tæknibraut.
Nemendur verða að störfum í öllum verklegum
greinum og gefst gestum kostur á að ræða við
nemendur og kennara. Atvinnufyrirtæki sækjast
eftir tæknimenntuðu fólki sem hefur haldgóða
undirstöðumenntun. í Iðnskólanum miðast
námsmarkmiðin við að uppfylla þessar kröfur.
Komið í dag á Iðnskóladaginn og kynnið ykkur
starfið.
KAFFIHLAÐBORÐ í MÁTSAL.
Iðnskólinn í Reykjavík.
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur
= LAUSAR STÖÐUR HJÁ
' REYKJAVÍKURBORG
Tæknifræðingar
- verkfræðingar
Tæknifræðingur verkfræðingur óskast til starfa
hjá byggingarfulltrúanum í Reykjavík við byg-
gingareftirlit, steypueftirlit og önnur störf á skrif-
stofu byggingarfulltrúa.
Nánari upplýsingar um starfið gefur byggingar-
fulltrúi, Borgartúni 3. Laun skv. launakerfi Starfs-
mannafélags Reykjavíkurborgar.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Vináttufélag_______yÍK
íslands og Kúbu
Vinnuferð
17. norræna vinnuferðin til Kúbu,
BRIGADA NORDICA
verður farin í sumar. Lagt af stað í lok júní, dvalist
á Kúbu í mánuð.
Unnið, ferðast um landið og fræðst um bylting-
una.
Nánari upplýsingar hjá VÍK, pósthólf 318 121
Rvík.
Umsóknir sendist þangað fyrir 10. apríl.
Stjórn VÍK