Þjóðviljinn - 05.04.1987, Side 20
Mesta hættan á snjóflóðum er í kjörhalla flóða og fyrstu stundir eða daga eftir
mikla snjókomu.
Ari Trausti
Guðmundsson
tekursaman
nokkra punkta
um hvað varast
ber þegarferðast
erum
snjóflóðasvœði
meginflokka og verða þeir ekki
skilgreindir hér.
Hætta á snjóflóðum er mikil
um þessar mundir og þeir sem
ferðast um snjóflóðasvæði ættu
því að fara varlega, hvort sem
þeir eru á skíðum, gangandi eða á
vélsleða. Látið ekki varkárnina
halda ykkur frá öllum halla eða
eyðileggja ferðina né heldur anið
áfram eins og snjóflóð falli aldrei.
Hér eru nokkrar almennar
minnisreglur:
1. Forðastu augljósar snjóflóða-
brekkur nema lífsnauðsyn
krefji. Leitaðu hæða og
hryggja; ekki þræða brekku-
rætur.
2. Reyndu að rifja upp veðurlag
undanfarinna dægra og íhu-
gaðu hvort snjór kunni að vera
mjög óstöðugur. Til eru lý-
singar á óstöðugum snjóalög-
Nokkur vaipaðarorð um
SNJOFLO
Margir hafafarist eða slasast í
snjóflóðum á íslandi. Lítið
flóð, fáeinirtugirmetrar að
breidd og 1 -2 metra að dýpt,
geta valdið slysi á fólki og
jafnvel dauða þess.
Snjóflóð falla aðallega í halla á
bilinu 30-50 gráður, en þau geta
fallið í minni og meiri halla.
Skriðurunnar hlíðar íslenskra
fjalla (oft um og rétt yfir 30° halli)
eru miklar snjóflóðagildrur, enda
snjóar hér fremur mikið og vind
hreyfir oft. Við það verða víða til
ótryggir skaflar og hengjur,
Margir þættir ráða því hvort
srijófióö brestur fram og þá hvar.
Nefna má snjóþykkt og lagskipt-
ingu snævarins, halla brekkunnar
og lögun (íhvolf/ávöl), vind-
hraða, hita- og rakastigi. Auðvit-
að er ferðamanni engin leið að
meta hlutlægt alla þessa þætti.
Reynsla og varkárni eru til bóta
en hin almenna þumalfing-
ursregla er þessi:
Mesta hættan á snjóflóðum er í
kjörhalla flóða og fyrstu stundir
eða daga eftir mikla snjókomu.
Hættan er meiri hlémegin í fjöll-
um en vindmegin, og meiri í
brekkum en á hryggjum. Snögg
þíða getur enn aukið á hættuna.
Sá misskilningur er útbreiddur
að hengja þurfi að falla í snjó-
brekku eða að ferðamaðurinn
komi sjálfur snjóflóðinu af stað.
Auðvitað er raunin þessi í mörg-
um tilvikum en það er mjög al-
gengt að snjóþekjan rofni vegna
innri spennu eða eðlisbreytinga á
snjónum; af „sjálfri sér“.
Snjóflóðum er skipt í tvo
um ef menn hafa fyrir því að
grafa litla könnunargryfju (sjá
handbækur).
3. Ekki ferðast undir áberandi
hengjum.
4. Ef snjófljóð fellur, reyndu að
losa þig við aukahluti, taktu
sundtök og reyndu að Iosa
snjó frá vitunum þegar flóðið
tekur að stöðvast. Taktu á
öllum hugarstyrk til þess að
bægja frá innilokunarkennd.
Miðaðu klæðnað við að snjór
komist sem minnst inn á beran
líkamann og að hann sé hlýr.
5. Kynntu þér grunnatriði snjó-
flóðaleitar og slysahjálpar.
6. Ef þú sleppur við flóð en veist
um einhvern í því, jafnvel
minnsti grunur er nægur, þá
skipta skjót viðbrögð
sköpum. Þú verður sjálfur að
ÞAÐER
MATULEGT
AÞAÐ!
4
:
Snjóflóðin hafa grandað fleiri Islendingum en nokkrar aðrar náttúruhamfarir, ef
afleiðingar eldgosa eru undanskildar.
meta (með öðrum) hvernig Björgunarsveitirnar, Al-
skyndileit skuli hagað og hvort mannavamir og nokkrar sér-
oghvemigleitaðskulihjálpar. verslanir með ferðabúnað geta
íslenskar björgunarsveitir em gefið upplýsingar um fræðsluefni
sérþjálfaðar í snjóflóðaleit. um snjóflóð.
þlÓÐVILIINN
Höfuðmálgagn
stjómarandstöðunnar
Áskriftarsími (91)68 13 33
Opið hús
í KOSNINGAMIÐSTÖÐINNI
sunnudag kl. 16.00-18.00
ÁSMUNDUR STEFÁNSS0N
forseti ASÍ
situr fyrir svörum um atburði líðandi
stundar í þjóðmálum í Kosningamiðstöð-
inni, Hverfisgötu 105, 4. hæð.
Kór Tónlistarskóla Rangæinga syngur
nokkur lög undir stjórn Sigríðar Sigurðar-
dóttur.
Barnahornið opið.
Kaffi og meðlæti.
Húsið opnað kl. 14.00.
ALLIR VELK0MNIR
Sala miða
í kosningahappdrættinu
stendur yfir.
Alþýðubandalagið
í Reykjavík í Reykjavík