Þjóðviljinn - 11.06.1987, Side 2

Þjóðviljinn - 11.06.1987, Side 2
Gfsli Magnússon, nemi: Ég hef ekki orðið var við verðhækk- anir. —SPURNINGIN— Hefur verölag hækkaö undanfarið? Egill Hallgrímsson, ellilífeyrisþegi: Allveg tvímælalaust. Vöruverð hef- ur hækkað mikið að undanförnu. Elli- lífeyririnn hrekkur engan veginn orðið til fyrir nauðþurftum. Helga Jónsdóttir, ellilífeyrisþegi: Maður á ekkert eftir þegar búið er að versla inn það allra nauðsynleg- asta. Verðlag hefur hækkað látlaust undanfarna mánuði. Ingólfur Sigurðsson, í bæjarvinnu: Verðlagið hefur örugglega hækk- að. Ég á þó nóg eftir af kauþinu mínu, enda bý ég hjá foreldrum mínum. Börkur Hrafnsson, nemi: Mér gengur ágætlega að láta enda ná saman. Ég er nægjusamur og er á ágætu kauþi. Ég fylgist lítið með verð- laginu og verð því lítið var við verð- breytingar. FRETTIR Hrossarækt Stopp á sæðissölu Sveinn Guðmundsson á Sauðárkróki sótti um leyfi tilsæðisútflutnings enfékk neitunfrá landbúnaðarráðuneytinu Hugsanlegur úflutningur sœðis úrgraðhestum hefur verið tilefni deilna meðal hestamanna. Úrskurður ráðuneytisins fordœmisskapandi Sveinn Guðmundsson hrossa- ræktarmaður á Sauðárkróki fékk bréf frá landbúnaðarráðu- neytinu í fyrradag, þar sem ráðu- neytið hafnaði málaleitan hans um að fá að flytja út sæði úr grað- hestum sínum. Hugsanlegur út- flutningur á sæði úr íslenskum hestum hefur verið mikið deilum- ál meðal íslenskra hestamanna, en með þessum úrskurði ráðu- neytisins hefur í raun og veru ver- ið lagt bann við slíkum útflutn- ingi. Sveinn sagði í samtali við blað- ið í gær að erlendir aðilar hefðu farið þess á leit við hann að hann seldi þeim sæði og í framhaldi af því hefði hann leitað umsagnar ráðuneytisins um það. Ráðuneyt- ið hafnaði umsókn Sveins á grundvelli búfjárræktarlaga og neikvæðrar umsagnar Búnaðar- félagsins. Graðhestarnir Otur og Kjar- val, sem báðir eru undan Sörla frá Sauðárkróki, eru í eigu Sveins og hafði jafnvel komið til tals að flytja sæði úr þeim út. Að sögn Sveins hafði ekki verið rætt um verð fyrir sæðið, en ljóst er að útlendingar eru tilbúnir að reiða fram háar fjárhæðir fyrir það. Eins og áður sagði hafa skoð- anir manna á réttmæti sæðisút- flutnings verið mjög skiptar. Hrossaræktarsamband Suður- lands hefur lagst hart gegn útsæð- inu, eins og kunnugir kalla þetta, og í 5. tbl. Eiðfaxa er sérstaklega varað við þessu. Þorgeir Guðlaugsson segir þar í forystugrein að einhverjar regl- ur verði að vera um þennan út- flutning og ennfremur: „Ef út- flutningur sæðis verður að stað- reynd er hætt við að hrossarækt- endur séu að grafa sína eigin gröf, kippa grundvellinum undan út- flutningi reiðhrossa, fórna lang- tímahagsmunum fyrir stundar- gróða. Það má ekki gerast, byrgj- um brunninn í tæka tíð.“ Landbúnaðarráðuneytið hefur með úrskurði sínum komið í veg fyrir útflutning á hrossasæði a.m.k. um sinn og allt bendir til þess að fyrr eða síðar verði settar ákveðnar reglur, sem banna þennan útflutning, þannig að er- lendir áhugamenn um íslenska hestinn verða að láta sér nægja að fá reiðhesta og stóðhesta héðan. Og ekki þá bestu. Sem betur fer búa ekki öll börn við neyðarástand í daggæslu. Á gæsluvellinum við Freyjugötu var mikið fjör í gær enda kom Brúðubíllinn í heimsókn og börnin skemmtu sér konunglega af sögunum hennar ömmu gömlu. Mynd - E. Ól. Verkfrœðingadeilan Vopnahlé hjá verirfræðingum Stéttarfélag verkfræðinga og verkfræðingar sem eru hluthafar verk- frœðistofu Sigurðar Thoroddsen leysa ágreining með málamiðlun. Samningaviðræður hafnar á ný Agreiningur verkfræðinga hjá Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen sem eiga hlutabréf í fyrirtækinu og Stéttarfélags verkfræðinga hefur verið leystur með málamiðlun sem gerir deilu- aðilum fært að hefja samninga- viðræður á ný. Ágreiningur hefur verið um það innan Verkfræðingafélags ís- lands hvort verkfræðingar sem eiga hlutabréf í fyrirtækjum sem þeir starfa við, séu skuldbundnir til þess að taka þátt í verkföllum sem Stéttarfélag verkfræðinga boðar til, en verkfall félaga í stéttarfélaginu skall á á föstudag sl. Það er mat stéttarfélagsins að hluthafar eigi að fara í verkfall eins og aðrir, en ýmsir starfs- menn Verkfræðistofu Sigurðar hafa ekki virt það álit. Verkfalls- verðir stéttarfélagsins hafa staðið vörð um stofuna frá því á þriðju- dagsmorgun og reynt að hindra verkfallsbrot. Högni Jónsson, formaður Stéttarfélags verkfræðinga, vildi ekki greina frá í hverju málamiðl- un stéttarfélagsins og verkf- ræðistofunnar væri fólgin, en hún hefði beint deilunni í biðstöðu á meðan á samningaviðræðum stendur. Samningsaðilar Stéttarfélags- ins héldu sinn fyrsta fund með samningsaðilum sínum úr Félagi ráðgjafarverkfræðinga hjá sátta- semjara í gær og er það fyrsti við- ræðufundurinn eftir að verkfallið skall á. —K.Ól. Guðgeir látinn Guðgeir Jónsson bókbindari, og fyrrum forseti Alþýðusam- bandsins, lést í Reykjavík sl. sunnudag, 94 ára að aldri. Guðgeir var fæddur að Digra- nesi í Seltjarnarneshreppi 25. apríl 1893. Hann lauk námi í bók- bandi árið 1913 og tók ungur þátt í störfum verkalýðshreyfingar- innar. Hann átti sæti í stjórn ASÍ frá 1940-1948 og var forseti sam- bandsins árin 1942-44. Eftirlifandi kona Guðgeirs er Guðrún Sigurðardóttir. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 11. júní 1987

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.