Þjóðviljinn - 11.06.1987, Blaðsíða 3
Hassolía
FRÉTTIR
Húsnœðisstofnun
Stórsmygl
upplýst
Skrúlað fyrir lofbrð
Mikil óvissa umfjármögnun kerfisins meðan skýr svörfástekki um
vaxtastefnu stjórnvalda. Lífeyrissjóðirnirhalda að sérhöndum. Um
2000 umsóknir verið frystar í Húsnæðisstofnun. Fyrsta von um úthlut-
un árið 1989
Tveir íslendingar og einn Eng-
lendingur hafa verið úrskurðaðir
í 30 daga gæsluvarðhald eftir að
Fíkniefnalögreglan handtók þá á
hóteli í Reykjavik á laugardag.
íslendingarnir höfðu í fórum
sér 500 gr. af hassolíu og daginn
eftir gengu 150 gr. til viðbótar
niður af Englendingnum. Hann
kom til landsins frá Marokkó í
gegnum London og hafði gleypt
60 smokka með hassolíu fyrir
ferðalagið.
Þetta er stærsta smygl á hassol-
íu sem upplýst hefur verið hér-
lendis en olían samsvarar um 7.5
kg. af hassi. Fjórði maðurinn sem
tengist þessu smyglmáli er bróðir
annars íslendingsins. Sá er bú-
settur í London og kom á sam-
bandi þremenninganna sem
handteknir voru á laugardag.
Stjórn Húsnæðisstofnunar
ríkisins hefur ákveðið að
hætta að gefa loforð fyrir lánum
til nýbygginga og kaupa á eldra
húsnæði um óákveðinn tíma,
vegna óvissu um framtíðarfjár-
mögnun byggingasjóðs ríkisins og
lífeyrissjóðirnir eru ekki tilbúnir
að semja um frekari skuldabréf-
akaup af Húsnæðisstofnun fyrr
en skýrari línur eru komnar hjá
stjórnvöldum um vaxtarkjör.
Sigurður Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Húsnæðisstofnun-
ar segist þeirra skoðunar að
hækka þurfi útlánsvextina í góð-
æri.
Allar umsóknir sem borist hafa
Húsnæðisstofnun frá því í byrjun
mars sl. um 2000 talsins hafa því
verið frystar. - Það er nauðsyn-
legt að hætta áframhaldandi út-
gáfu lánsloforða þar til vaxtast-
efnan liggur ljós fyrir og hægt er
að ganga til samninga við Iífeyris-
sjóðina, sagði Sigurður Guð-
mundsson í gær. Telja má víst að
lánsloforð vegna þessara um-
sókna og þeirra sem berast stofn-
uninni þessa dagana verði ékki
afgreidd til útborgunar fyrr en á
árinu 1989.
Samningar lífeyrissjóðanna við
Húsnæðisstofnun gilda út næsta
ár og er þegar búið að ráðstafa
með lánveitingum stórum hluta
af þeirri fjárhæð sem sjóðirnar
hafa lofað að fjárfesta fyrir. Alls
hefur stofnunin afgreitt tæplega
5200 iánsloforð frá því nýja hús-
næðiskerfið tók gildi sl. haust, að
fjárhæð 7.3 miljarðar. Um 8500
umsóknir hafa borist fram til maí-
loka en stofnunin hefur hafnað
221 umsókn.
f könnun sem Félagsvísinda-
stofnun Háskólans gerði nýlega
fyrir stofnunina kemur m.a. fram
að um 80% aðspurða er ánægður
og sáttur við þá vinnureglu að fá
fyrst bindandi lánsloforð áður en
farið er út í fjárfestingar. Pá kem-
ur einnig fram að yfir 12% að-
spurða, sem svarar til hátt í 20
þúsund landsmanna á aldrinum
18 - 75 ára hyggst sækja um lán
hjá Húsnæðismálastofnun á
þessu eða næsta ári. -Ig.
Alþjóða hvalveiðiráðið
Búist við átakafundi
Hvalveiðar í vísindaskyni og hvalveiðarfrum-
byggja íbrennidepli á ársfundinum í Borne-
mouth. Islendingar veiða 40 sandreyðar og 80
langreyðar
Búist er yið að vísindahval-
veiðar íslendinga og fleiri
þjóða verði í brennidepli á árs-
fundi Alþjóða hvalveiðiráðsins
sem haldinn verður í Bornemouth
á Englandi dagana 22.-26. júní
n.k. Auk hvalveiða í vísindaskyni
munu umræður um hvalveiðar
frumbyggja og heildarendurmat
á hvalastofnum heimsins setja
svip sinn á fundinn. Reiknað er
með að þetta verði fundur mikilla
átaka rétt eins og verið hefur
fram til þessa.
Að sögn Kjartans Júlíussonar,
deildarstjóra í sjávarútvegsráðu-
neytinu, standa nú þessa dagana
yfir fundir vísindanefndar ráðsins
og frá 15. júní til 20. júní munu
vinnunefndir koma saman.
Visindanefndin fjallar m.a. um
bráðabirgðaniðurstöður af rann-
sóknum hérlendis og verða þær
á þessu ári
ræddar frekar á ársfundinum
sjálfum.
Búist er við að Japanir og
Suður-Kóreumenn muni leggja
fram áætlanir um hvalveiðar í vís-
indaskyni, en ekki er vitað um
fyrirætlanir Norðmanna og So-
vétmanna. Sovétmenn hafa sem
kunnugt er hætt veiðum í ábata-
skyni, eins og komist er að orði,
en ekki er vitað hvort þeir munu
taka upp veiðar á sömu nótum og
íslendingar, sem í ár munu veiða
40 sandreyðar og 80 langreyðar í
vísindaskyni.
í lok þessa mánaðar hefjast
umfangsmiklar hvalatalningar í
Norður-Atlantshafi og stendur
það verkefni yfir í 4-5 vikur.
Rannsóknirnar eru undir yfir-
stjórn íslenskra vísindamanna,
en auk þeirra taka Danir og
Norðmenn þátt í þeim. -gg
Fi&urféna&urinn er ekki einn um það að þykja gott að njóta sumarþlíðunnar og sólarinnar á tjarnarbökkunum í
Reykjavík. Andamömmur, dagmömmur og mæður gættu ungviðisins í góða veðrinu í Hljómskálagarðinum í gær. Þau
Hjalti, fjögurra ára, Hafdís Jóna, þriggja ára og Brynhildur Hanna, fimm ára, voru við leik og störf í Hljómskálagarðinum,
ásamt fjölda annarra barna frá dagheimilinu Iðuborg í Breiðholti. „Við komum í strætó með fóstrunum. Við vorum voða
stillt á leiðinni. Það er voða gaman að fara í ferðir. Skemmtiiegast er þó að tína blórn," sögðu þau Hjalti, Hafdís Jóna og
Brynhildur Hanna, um leið og þau skelltu sér í aðra bunu niður rennibrautina. Texti RK Mynd E.ÓI.
Stjórnarmyndun
Ný ríkisstjóm 17. júní
Alvöruviðrœðurnar eru nú aðfara afstað. Ágreiningsmálin erustór-
eignaskattur, húsnœðismál og landbúnaðarmál. Stefnt á 17.
Fullur skriður er nú að komast
á stjórnarmyndunarviðræður
Alþýðuflokks, Sjálfstæðisflokks
og Framsóknar. Nú liggur yóst
fyrir hver helstu ágreiningsmál
þessara þriggja flokka eru og á
morgun hefjast því hinar eigin-
legu samningaviðræður. Er Ijóst
að hamagangur verður í öskjunni
því eitt af því sem formenn flokk-
anna eru sammála um er að nýr
forsætisráðherra flytji 17. júní
ávarpið í ár.
„Það er að komast eggjahljóð í
viðræðurnar,“ sagði þingmaður
Alþýðuflokksins við Þjóðviljann
í gær. Þingflokksfundir voru hjá
flokkunum þrem í gærkvöldi.
Það hefur sett strik f reikning-
inn að spár stjórnarandstöðunnar
um verðbólgusprengingu virðast
nú vera að rætast. Þá var það
staðfest í gær að Húsnæðisstofn-
un er hætt að veita lánsloforð þar
til samið hefur verið við lífeyris-
sjóðina um kaup á skuldabréfum
fyrir árið 1989.
Húsnæðismálin eru eitt af þeim
málum sem hvað mestur ágrein-
ingur er um. Alþýðuflokkurinn
setti kaupleiguíbúðir á oddinn í
kosningunum og gerir það einnig
í viðræðunum. Annað ág-
reiningsmál eru landbúnaðarm-
álin en jafnvel er talið að fram-
sókn og kratar geri með sér hross-
akaup þannig að framsókn haldi
sínu til streitu í landbúnaðarg-
eiranum en kratarnir fái að
spreyta sig á húsnæðiskerfinu.
Stærsta ágreiningsmálið eru
hinsvegar fyrstu aðgerðir í efna-
hagsmálum. Kratar og framsókn
hafa sameinast um það að leggja
á stóreignaskatt en íhaldið á mjög
erfitt með að kyngja þeim bita.
Þá er ennþá óljóst hvernig hallinn
á ríkissjóði verður brúaður. Áður
hefur verið talað um stóreigna-
skattinn og á hann að skaffa um
500 milljónir króna á ári. Þá
komu tillögur frá embættis-
mönnum um krítarkortaskatt en
samkvæmt heimildum Þjóðvilj-
ans eru kratar og íhald ekkert
ýkja hrifnir af því. Einnig er deilt
um einföldun á söluskattskerf-
inu, sem myndi afla ríkissjóði
mikilla tekna.
Kratar virðast ætla að sættast á
að falla frá kröfunni um sam-
eiginlegan lífeyrissjóð allra
landsmanna. Með nýja frum-
varpinu er unninn hálfur sigur,
sagði einn viðmælenda blaðsins.
- Sáf
bbhÖRFRÉTTIRks
Atvinnuástandið
hefur sjaldan verið betra í
landinu því í Iok maí voru einung-
is 400 manns skráðir atvinnu-
lausir í landinu sem svarar til
0.3% mannafla á vinnumarkaði.
Þetta er helmingi færri atvinnu-
lausir en í maí í fyrra og hafa ekki
verið skráðir jafnfáir atvinnu-
leysisdagar í maímánuði síðan
1982.
Oddskarðsvegur
á milli Neskaupsstaðar og Eski-
fjarðar hefur verið illfær bílum
öðrum en fjallabílum það sem af
er sumri. Bæjarstjórn Neskaup-
staðar hefur sent frá sér harðorð
mótmæli vegna þessa og segir að
nú keyri um þverbak þegar ekki
einu sinni sé hægt að komast yfir
fjallið um hásumar. Krefst bæjar-
stjórnin tafarlausrar lagfæringar
á veginum öllum.
Hvað er tregða:
innri eiginleiki eða heimsfræðileg
áhrif? er spurt á fundi Eðlifræð-
ingafélagsins í kvöld þar sem Þór-
ir Sigurðsson mun ræða um kenn-
ingar þýska eðlisfærðingsins
Ernst Mach. Fyrirlesturin hefst
kl. 17.15 í kaffistofu Raunvísind-
astofnunar Dunhaga 3.
Fimmtudagur 11. júní 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3