Þjóðviljinn - 11.06.1987, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 11.06.1987, Qupperneq 15
Steðan í 1. deild i knattspyrnu Valur..............4 3 1 0 11-2 10 (A.................4 3 0 1 8-6 9 KR.................3 2 1 0 5-1 7 IBK...............4 2 0 2 7-13 6 Fram...............3 1115-5 4 Þór................4 1 0 3 3-6 3 KA.................4 2 0 2 3-3 3 Völsungur..........3 1 0 2 4-6 3 Víðir..............3 0 2 1 1-2 2 FH................4 0 13 1-6 1 Körfubolti Lakers sigraði Lakers er nú komið með yfirburð- astöðu gegn Boston í úrslitum NBA- deildarinnar. Lakers sigraði í Boston í gær,107-106. Pað var enginn annar en Ervin Magic Johnson sem tryggði Lakers sigur með sveifluskoti þegar tvær sek- úndur voru til leiksloka. Boston hafði forystuna framan af og þegar 15 mínútur voru til leiksloka höfðu þeir forystuna, 79-63. Þá fóru þeir að missa tökin, en voru þó með 7 stiga forskot þegar þrjár mínútur voru eftir og leiddu 106-104 þegar að- eins fjórar sekúndur voru til leiks- loka. Þá fékk Abdul Jabbar vítaskot. Hann hitti aðeins úr öðru, en Johnson náði frákastinu og tryggði Lakers sigur. Lakers þarf því aðeins að vinna einn leik í viðbót, en næsti leikur er í Los Angeles. Þess má geta að þetta er aðeins 4. leikurinn sem Boston tapar á heimavelli í tvö ár, og sá þriðji í síðustu 86 leikjum í Boston Garden. -Ibe Mjólkurbikarinn 2. umferð: Selfoss-Skallagrímur...........5-0 Leiknir-Afturelding............3-2 (R-Skotfélag Reykjavíkur.......1-0 Grótta-ReynirSandg.............1-2 Augnablik-Stjarnan.............1-2 Leiftur-Magni..................1-0 Höttur-Einherji................Fr. ÞrótturNesk.-Huginn............fr. f gær: KS-UMFSD 7-0 Víklngur-Þróttur 3-1 ÍBV-Fylkir.....................2-1 Ogþette líka... Evrópumeistarar bikarhafa, Ajax frá Hollandi, hafa náð samkomulagi við Frank Stapelton sem leikið hefur með Manchester United. Þá hefur Ajax einnig keypt Hennie Meyer frá Roda JC og Dan- ann Jan Sörensen frá Excelsior. Þá eiga þeir I samningaviðræðum við Monaco um kaup á Sören Busk, landa Sörensen. Þessir leikmenn koma til með að fylla I skarðið sem Marco Van Basten, sem er á leið til AC Milan, skilur eftir sig. Félagi Arnórs Guðjohnsen hjá Anderlecht, Frankie Vercauteren, hefur gert samning við franska liðið Nantes. Samningurinn er til þriggja ára. Stórstjarnan Gary Birtles, sem kostaði á sínum tíma rúma milljón sterlingspund, hef- ur nú gert samning við Notts County, sem leikur í 3. deild. Hann fékk frjálsa sölu frá Nottingham Forest. Bjór og pylsur voru á boðstólunum fyrir áhorfendur í síðasta leik Hanover I 2. deildinni I Vestur-Þýskalandi. Hanover vann sér inn sæti I Bundesligunni næsta keppnistímabil með sigri í 2. deild og voru þetta verðlaun til áhangenda fé- lagsins fyrir dyggan stuðning. Baldvin Guðmundsson horfir á eftir boltanum yfir línuna. Skot Sigurjóns Kristjánssonar fór I Júlíus Tryggvason og þaðan I netið. Mynd: E.OI. Reykjavík Valssigur á Hlíðarenda Valsmenn sigruðu Þór sanngjarnt í góðum og skemmtilegum leik, 2-0, á Hlíðarenda í blíðskapar veðri. Valsmenn byrjuðu leikinn af mikl- um krafti og fengu strax á fyrstu mín- útum góð tækifæri en nýttu þau ekki. Jón Grétar Jónsson fékk fyrsta hættulega tækifærið. Hann komst Tryggvi Gunnarsson, marka- kóngur tryggði KA sanngjarnan sigur, gegn FH í gser, 2-1, með glæsimarki af 25 metra færi. Það voru reyndar FH-ingar sem höfðu undirtökin framan af. Þeir náu forystunnni snemma í leiknum, en ódýru marki. Ólafur Kristjánsson fékk boltann eftir hornspyrnu, skaut í stöng og það- an í Steingrím Birgisson og inn. Heimamenn hresstust nokkuð eftir markið og sóttu heldur meira. Halldór Halldórsson varði vel frá Þorvaldi Örlygssyni og Gauti Laxdal átti gott skot rétt yfir mark FH. Kristján Hilmars- son átti svo þrumuskot að marki KA, en Haukur Bragason varði vel í hom. FH-ingar fengu tvö góð færi í upphafi síðari hálfeiks. Haukur varði vel frá Magnúsi Pálssyni, einn framhjá vörn Þórs en missti bolt- ann of langt frá sér og markmaður Þórs átti ekki í neinum vandræðum með að verja. Á 16. mínútu skoruðu Valsmenn. Það var Sigurjón Kristjánsson sem átti gott skot að marki Þórs, boltinn fór í Júlíus Tryggvason, og Baldvin sem var í góðu færi og Kristján átti skot yfír af stuttu færi. KA jafnaði svo á 55. mínútu. Steingrímur tók aukaspyrnu á Þorvald sem skallaði til Gauta. Hann skoraði af öryggi af stuttu færi. Skömmu síðari átti Tryggvi KA-FH 2-1 (0-1) * * * Akureyrarvöllur 10. júní Dómari: Þóroddur Hjaltalín * Áhorfendur 752 0-1 Olafur Kristjánsson (16.min), 1-1 Laxdal (55.mín) 2-1 Tryggvi Stjörnur KA: Steingrímur Birgisson * * Arnar Freyr Jónsson * Gauti Laxdal » Þorvaldur örlygsson * Jón Sveinsson » Stjörnur FH: Halldór Halldórsson * Magnús Pálsson * Pálmi Jónsson * Kristján Hilmarsson * Guðmundsson markmaður Þórs sem var á leið í hitt hornið átti ekki mögu- leika á að verja. Valsmenn héldu áfram að sækja og á 26. mínútu fékk Ingvar Guðmunds- son dauðafæri í markteig en skot hans fór yfir. Á 36. mínútu var Sigurjón Krist- gott skot úr þröngu færi og skömmu síðar átti Steingrímur skalla í þverslá. Á 71. mínútu kom sigurmarkið og var það mjög glæsilegt. Tryggvi fékk boltann á miðju, lék á tvo FH-inga og skaut svo föstu skoti af 25 metra færi. Boltinn fór yfir Halldór sem stóð á markteig og strauk slána. Fallegt mark. FH-ingar reyndu ákaft að jafna á lokamínútunum, en ekki tókst það. Guðjón Guðmundsson átti þó gott skot sem Haukur varði vel. Leikurinn var jafn framan af, en eftir mark FH-inga lifnuðu heimamenn við. Steigrímur Birg- isson var yfirburðamaður í vörn KA og Gauti, Þorvaldur og Tryggvi áttu góðan leik. Hjá FH átti Halldór góðan leik í markinu og Magnús og Kristján áttu einnig góðan leik. -HK/Akureyri jánsson felldur inn í vítateig Þórs en Baldur Scheving dómari sá ekki ást- æðu til að dæma neitt. Þórsarar komu nú meira inn ( leikinn í síðari hálfleik. Það voru samt Valsmenn sem fengu fyrsta marktæk- ifærið, en Jón Grétar Jónsson hitti illa boltann. Skömmu síðar björguðu Þórsarar á línu eftir góðan skalla frá Guðna Bergssyni. Á 65. mínútu átti Einar Arason þrumuskot að marki Vals en Sævar Jónsson bjargaði í horn. Stuttu seinna fékk Nói Björnsson að sjá rauða spjaldið fyrir óþarfa brot. Harður dómur þar. Þórsarar efldust við mótlætið og á 70. mínútu átti Hlynur Birgisson góða sendingu fyrir markið og þar skullu þeir saman Halldór Áskelsson og Guðmundur Hreiðarsson markmað- ur Vals og boltinn rúllaði í átt að markinu en Þorgrímur Þráinsson kom æðandi að og bjargaði í horn. Það var svo á 86. mínútu að Vals- menn innsigluðu sigurinn. Það var Njáll Eiðsson sem það gerði eftir að Baldvin Guðmundsson hafði varið hörkuskot frá Sigurjón Kristjánssyni en hélt ekki boltanum og hann barst þá út í teig og Njál þrumaði honum inn- Ó.St. Valur-Þór 2-0 (1-0) Hlíðarendavöllur 10. júní Dómari: Baldur Scheving * Áhorfendur: 1059. 1-0 Sigurjón Kristjánsson (16.mín), 2- 0 Njáll Eiðsson (86.mín) Stjörnur Vals: Sigurjón Kristjánsson * Jón Grétar Jónsson * Guðni Bergsson * Þorgrímur Þráinsson * Stjörnur Þórs: Halldór Áskelsson * Akureyri GlæsimáriTTiyggva Tryggði KA sigur gegn FH Akranes Markaregn á Skaganum Fjögurra marka munur í hálfleik Skagamenn sýndu hvað í þeim býr er þeir sigruðu IBK á Akranesi í gær. I hálfleik var staðan 4-0, en Keflvfkingar náðu að laga hana, en leiknum lauk með sigri IA 4-2. Leikurinn var jafn framan af og lið- in skiptust á að sækja. Óli Þór Magnússon komst einn í gegn um vörn Skagamanna, en Birkir Kristins- son varði vel. Skömmu síðar náðu heimamenn forystunni. Aðalsteinn Víglundsson fékk góða sendingu, lék einn varnarmann og skoraði með föstu skoti. Það var svo ekki fyrr en undir lok fyrri hálfleiks að markaregnið hófst fyrir alvöru. Aðalsteinn bætti öðru marki sínu við á 39. mínútu. Hann náði boltanum eftir varnarmistök og skoraði af öryggi. Heimir Guð- mundsson var svo á ferðinni skömmu síðar með mark frá miðjum vítateig. Skot hans var laust, en í stöngina og inn. Valgeir Barðason átti svo síðasta orðið í fyrri háfleik. Hann fékk send- ingu innfyrir vörnina og skoraði með þrumuskoti. Það blés því ekki byrlega hjá Keflvíkingum í hálfleik. Þeir töpuðu nýlega gegn Valsmönnum 7-1 og þá var staðan í háfleik aðeins 2-0! En þeir gáfust ekki upp og léku vel í síðari hálfleik. Akurnesingar pressuðu stíft í upp- hafi síðari háfleiks, en gáfu smátt og smátt eftir. Þá tóku Keflvíkingar við sér. Óli Þór Magnússon skoraði úr vítaspyrnu sem var dæmd á Guðbjörn Tryggvason og tæpri mfnútu síðar lá boltinn aftur í neti Akurnesinga. Ing- var Guðmundsson fékk boltann út í vítateiginn og skoraði með góðu skoti. Eftir þessi tvö mörk Keflvíkinga var leikurinn nokkuð jafn, en bæði liðin fengu góð tækifæri til að bæta við fleiri mörkum. Skagamenn léku líklega sinn besta leik til þessa. Guðbjörn og Ólafur sterkir á miðjunni og Aðalsteinn sprækur í sókninni. Þá áttu þeir Sveinbjörn Hákonarson og Haraldur Ingóifsson góðan leik. Haraldur er aðeins 17 ára og greinilega mjög efni- legur. Keflvíkingar áttu þokkalegan leik, ef undan er skilinn síðari hluti fyrri hálfleiks. Gunnar Oddsson átti mjög góðan leik og Freyr Sverrisson stóð sig einnig mjög veí. -SH/Akranesi ÍA-ÍBK 4-2 (4-0) * * * » Akranesvöllur 10. júní Dómari: Sveinn Sveinsson * » Áhorfendur 703 1- 0 Aðalsteinn Víglundsson (21,mín), 2- 0 Aöalsteinn Víglundsson (39.mín), 3- 0 Heimir Guðmundsson (42.mín), 4- 0 Valgeir Barðason (44.mín), 4-1 Óli Þór Magnússon (68.mín), 4-2 Ingvar Guömundsson (69.mín) Stjörnur ÍA: Aðalsteinn Víglundsson * * Ólafur Þórðarson * * Sveinbjörn Hákonarson * Ólafur Þórðarson * Stjörnur ÍA: Gunnar Oddsson * * Freyr Sverrisson * Flmmtudagur 11. júni 1987 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.