Þjóðviljinn - 13.06.1987, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 13.06.1987, Blaðsíða 1
Laugardagur 13. júní 1987 125. tölublað 52. árgangur Natófundurinn Grænt Ijós á tvö núll Nató samþykkir afvopnunarskref ífyrsta sinn. Vilja að Sovétmenn eyði Asíu-flaugunum, vilja haidaþýsk-amerískumfiaugum. Carrington: Velheppnaður og mikilvœgur fundur. Tass-fréttastofan: Léttvœgniður- staða, dregur úr samkomulagslíkum I lokayfirlýsingu Natófundarins á Hótel Sögu var Bandaríkja- stjórn gefið grænt Ijós um að halda áfram samningum við So- vétmenn um svokallaða tvöfalda núll-lausn í Evrópu. Carrington framkvæmdastjóri Nató sagði á blaðamannafundi í gær að fundurinn hefði verið mjög vel heppnaður og mikilvæg- ur, en þau skilyrði sem óbeint eru sett fram í yfirlýsingu fundarins hafa hinsvegar orðið Tass- fréttastofunni sovésku tilefni til að segja afvopnunarskref fundar- ins léttvægt, og segir fréttaskýr- andi hennar fullum fetum að af- staða fundarins dragi úr líkum á samkomulagi í risaveldaviðræð- unum í Genf. Nató-stjórnirnar komust í Reykjavík að niðurstöðu um sameiginlegt svar við afvopnun- artillögum Sovétmanna eftir átta vikna þóf útaf skammdrægum flaugum. Ýmsir forystumenn í Nató, einkum breski utanríkis- ráðherrann Howe og fram- kvæmdastjórinn Carrington, hafa lýst áhyggjum sínum yfir seinagangi í bandalaginu og tregðu í ákvarðanatöku, og segja Sovétmenn hafa haft frumkvæði í afvopnunarmálum síðustu miss- eri. Fundarniðurstöðuna nú má skilja sem tilraun til að ná því frumkvæði af Sovétmönnum. Óánægja Tass-fréttastofunnar stafar væntanlega einukum af tvennu. Annarsvegar er í yfirlýs- ingunni þess krafist að Sovét- menn eyði einnig þeim 100 með- alflaugum sem setja átti niður í Asíuhluta landsins, en þeirri kröfu hefur Gorbatsjof áður svarað með því að bjóða til sér- samninga um vopn í Asíu. Hinsvegar er það skilningur Nató, án þess það sé skjalfest, að undanþegnar samningum séu 72 skammdrægar flaugar af gerðinni Pershing-IA, sem eru í vörslu vesturþýska hersins. Bandaríkja- her geymir kjarnaodda í þessi vopn. Sovétmenn hafa lagst mjög gegn þessari kröfu sem Bonnar- stjórn varð sammála um fyrir skömmu. í yfirlýsingunni er rætt um framhaldsskref eftir væntanlegan samning um meðal- og skamm- drægar flaugar, um helmings- fækkun langdrægra flauga risa- veldanna, einsog leiðtogarnir gerðu ráð fyrir á Reykjavíkurf- undinum, um bann við efnavopn- um, um jöfnun hefðbundins he- rafla og kjarnorkubúnaðar sem dregur minna en 500 kílómetra og stundum eru kölluð vígvallar- vopn. Matthías Á. Mathiesen utan- ríkisráðherra sagði blaða- mönnum að loknum Natófundin- um að skipulag allt og aðbúnaður hefðu verið með besta móti af ís- lenskri hálfu og kvaðst ánægður með niðurstöðu fundarins. Hann sagði að vígbúnaður á Norður- Atlantshafi hefði ekki verið á dagskrá fundarins, en hann hefði gert grein fyrir þeim sjónarmið- um íslensku stjórnarinnar að af- vopnun á landi fylgi ekki vígbún- aðarkapphlaup í lofti eða í hafi. Sjá síður 3 og 5 ~m Að loknum Nató-fundi í gær. Shultz utanríkisráðherra Bandaríkjanna fylgist með blaðamannafundi Carringtons fram- kvæmdastjóra Nató í anddyri Háskólabíós nokkrum mínútum áður en hann settist sjálfur fyrir framan fréttamenn. (Mynd: EÓI) ______________________________________________________________________________ Landhelgisgœslan Fullar sættir við Breta Varðskipið Týr í kurt- eisisheimsókn í Skot- landi. Fyrsta sinn sem ís- lenskt varðskip kemur í heimsókn til Bretlands. Þorskastríðin gleymd Þorskastríðin við Breta virðast gleymd og grafin. Varðskipið Týr fór frá Leith, höfuðborg Skot- lands í dag, eftir að hafa legið þar þrjá daga í höfn í kurteisisskyni. En þetta er í fyrsta sinn sem, ís- lenskt varðskip kemur til hafnar í Bretlandi. Týr lagði lykkju á leið sína og gerði stuttan stans í Leith, á leið heim til íslands frá 400 ára afmæl- ishátíð dönsku strandgæslunnar. í för með Tý í þessari ferð var Gunnar Bergsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar og hélt hann boð um borð í Tý, þar sem hann tók á móti fulltrúum landbúnaðar- og sjávarútvegs- ráðuneytis Skotlands, skoskra tollayfirvalda, vitamálastofnun- unar Bretlands auk fulltrúa frá skoska og írska sjóhernum. Skotarnir endurguldu heim- sóknina með því að bjóða for- stjóra landhelgisgæslunnar og yf- irmönnum Týs um borð í skoska varðskipið Sulisker. Skoska dagblaðið The Scotsman, hafði eftir skippherr- um Týs og Sulisker að þorska- stríðin væru gleymd og grafin. - RK Stjórnarmyndun Hver dagur Þorsteini dýr Engirfundir ígœr. Hagfrœðingatríóið reyndi að stilla strengi. Líkurá að það takist að mynda stjórn íþessari atrennu hafa minnkað. Skýrist um helgina. Andstaðan gegn Þorsteini magnast. Ihaldsmenn mjög andvígir aukinni skattheimtu. Iðnrekendur áminna Þorstein H agfræðingatríó þríhjólsins, þeir Jón Sigurðsson, Geir Ha- arde og Bolli Héðisson, sat í allan gærdag og skoðaði þær tillögur sem eru uppi á borði í viðræðun- um. Hinsvegar voru engir form- legir fundir með formönnum flokkanna þriggja. Talið er að tilraun Jóns Bald- Grindavík Maðurinn enn ófundinn Maðurinn sem týndist af bát sínum frá Grindavík, var enn ó- fundinn um miðnætti í gær. Mannlaus báturinn kom í leit- irnar suður af Krísuvíkurbergi síðdegis í gær. vins sé að falla á tíma og álíta menn að ef eitthvað eigi að koma út úr viðræðunum verði það að gerast nú um helgina. f Sjálfstæðisflokknum magnast andstaðan gegn Þorsteini. Það er talið mjög erfitt fyrir Þorstein að samþykkja enn frekari skattaá- lögur, þar sem hann komst til áhrifa í flokknum með baráttu sinni fyrir skattalækkunum. Verk hans sem ráðherra hafa hinsvegar einkennst af stöðugt nýjum álögum. Þá er bent á að ef Þorsteinn færi inn í ríkisstjórn núna upp á skattheimtu á fyrirtæki og stór- eignamenn með Borgaraflokkinn í stjórnarandstöðu, ættu borgar- arnir auðvelt með að reita fjaðr- af flokknum. f gær írnar enn gerðist það svo að Félag íslenskra iönrekenda ályktaði gegn hug- myndum um aukna skattheimtu á fyrirtæki og skilja menn það ekki öðru vísi en svo að hér sé um bein tilmæli til Þorsteins að ræða; enga stjórn byggða á hugmyndum krata og framsóknar um aukna skattheimtu. „Ég tel fráleitt að hækka skatta á miðju skattaári," sagði Matthí- as Bjarnason, ráðherra við Þjóð- viljann í gær. Þá sagði Matthías að hann teldi að Þorsteinn hefði mátt hafa meira samráð við aðra ráðherra flokksins, þó hann sjálf- ur hefði ekki áhuga á ráðherra- stól í næstu ríkisstjórn. Sverrir Hermannsson hefur verið mjög gagnrýninn á hvernig Þorsteinn hefur staðið að viðræð- unum. „Það ríkir mikil upplausn og glundroði í flokknum,“ ítrek- aði hann við Þjóðviljann í gær.Þá kvartaði hann undan því að ekk- ert samráð væri haft við sig, auk þess sem „ég las í Vogum allslags yfirlýsingar eftir naflaskoðunar- nefndina." Hvað viðræðurnar sjálfar varðaði þá sagði Sverrir að það væri mikið bil á milli flokk- anna hvað varðaði fyrstu aðgerð- ir í efnahagsmálum. Halldór Ásgrímsson tók undir með Sverri í gær að þetta væri þungt og frá krötum berast þær fréttir að mjög hafi dregið úr áhuga manna að mynda stjórn á þessum forsendum; að kratar hafi þurft að fórna allt of miklu af stefnu sinni. -Sáf

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.