Þjóðviljinn - 13.06.1987, Blaðsíða 12
Norðurlandaráð auglýsir
eftir ritara f járlaga- og
eftirlitsnefndar
Forsætisnefnd Norðurlandaráðs auglýsir lausa
til umsóknar stöðu ritara fjárlaga- og eftir-
litsnefndar Norðurlandaráðs.
Norðurlandaráð er samstarfsvettvangur þjóð-
þinga og ríkisstjórna á Norðurlöndum. Á vegum
Norðurlandaráðs starfa sex fastanefndir, sem í
eiga sæti norrænir þingmenn. í fjárlaga- og eftir-
litsnefnd fer fram þingleg umfjöllun um fjárlagatil-
lögur og fjárlög Norrænu ráðherranefndarinnar
og norrænna stofnana. Nefndin hefur og með
höndum eftirlit með þeirri starfsemi, sem fer fram
á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar.
Umsækjendur skulu hafa hagfræði- eða við-
skiptafræðimenntun ellegar aðra samsvarandi
menntun. Æskilegt er að umsækjendur hafi
reynsiu af endurskoðunar- og stjórnunarstörfum
og norrænu samstarfi. í upphafi ráðningartímans
mun annar tveggja aðstoðarframkvæmdastjóra
skrifstofu forsætisnefndar Norðurlandaráðs vera
aðalritari nefndarinnar, en hinn nýráðni ritari taka
við starfinu að fuliu að nokkrum mánuðum liðn-
um.
Forsætisnefnd leitast við að fá konur jafnt sem
karla til ábyrgðarstarfa á skrifstofur Norðurlanda-
ráðs.
Ritari nefndarinnar mun starfa á skrifstofu for-
sætisnefndar Norðurlandaráðs í Stokkhólmi.
Ráðningartíminn er fjögur ár og hefst 1. nóvem-
ber 1987.
Ríkisstarfsmenn eiga rétt á leyfi frá störfum
vegna starfa hjá Norðurlandaráði. Skrifstofa for-
sætisnefndar Norðurlandaráðs hefur stöðu al-
þjóðlegrar stofnunar.
Eftirtaldir aðilar veita nánari upplýsingar um laun,
kjör og annað varðandi starfið:
Gerhard af Schultén, framkvæmdastjóri skrif-
stofu forsætisnefndar Norðurlandaráðs í síma
9046-8-143420.
Kjell Myhre-Jensen, aðstoðarframkvæmdastjóri
skrifstofunnar, einnig í síma 9046-8-143420.
Snjólaug Ólafsdóttir, skrifstofustjóri íslandsdeild-
ar Norðurlandaráðs í síma 11560.
Umsóknum skal beina til forsætisnefndar
Norðurlandaráðs (Nordiska rádets presidium) og
skulu þær hafa borist til skrifstofu forsætisnefnd-
ar (Nordiska rádets presidiesekretariat, Box
19506, S-10432 Stockholm) eigi síðar en 10. júlí
n.k.
"" ■ ' ' 1""
A
iS&J
Kópavogur-
íbúðir fyrir aldraða
í Vogatungu
Samkvæmt samþykkt bygginganefndar íbúða
fyrir aldraða í Kópavogi, auglýsast byggingarlóðir
við neðri hluta Vogatungu með eftirfarandi bygg-
ingarskilmálum.
1. Byggja skal sérhannaðar íbúðir fyrir aldraða
samkvæmt skipulagi og teikningum sem fyrir
liggja.
2. Við sölu á íbúðum skulu Kópavogsbúar, sem
náð hafa 60 ára aldri, hafa forgang.
3. Við eigendaskipti skal Kópavogskaupstaður
jafnan eiga forkaupsrétt aö íbúðunum.
4. Gatnagerðargjöld, útlagður kostnaður og
önnur gjöld til bæjarsjóðs skulu greidd sam-
kvæmt ákvæðum bæjarráðs.
Teikningar liggjaframmi átæknideild Kópavogs,
Fannborg 2 og eru þar veittar nánari upplýsingar.
Þau byggingafyrirtæki sem áhuga hafa á þessu
verkefni, leggi inn um sóknir í síðasta lagi 22. júní
n.k.
Bæjarverkfræðingur.
íf ? LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVIKURBORG
Starfsfólk óskast í heimilishjálp. Heildags- eða
hlutastörf, Einnig unnið í smáhópum. Hentugt
fyrir húsmæður og skólafólk. Upplýsingar í síma
18800.
Heimilisþjónustan
ffl LAUSAR STÖÐURHJÁ
W REYKJAVIKURBORG
DROPLAUGARSTAÐIR heimili aldraðra, Snorr-
abraut 58.
Starfsfólk óskast í afleysingar í þvottahús og
ræstingar.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 25811
milli kl. 8-19 f.h. virka daga.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Útboð
Flugvallarvegur Siglufirði,
Siglufj.-Fjarðará, 1987
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint
verk.
Lengd vegarkafla er 1,0 km, fylling og burðarlag
7.500 m3.
Verki skal lokið 1. október 1987.
Úboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
Sauðárkróki og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og
með 15. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00
þann 29. júní 1987.
Vegamálastjóri
ARBEID UTANLANDS
No cr boka 'ncr full av in-
formasjon for dcg som sok-
jer jobb for lengre cller
kortare tid rundt om i ver-
da.
Det vedkjem stillingar
innan metall- og oljeindu-
stri, laeraryrket, hagear-
beid, sjáforar, restaurant-
og hotellbransjen, au-pair,
rciseleiarar, fruktplukka-
rar i Frankrike og USA,
samt mannequinar og fotomo-
dellar. Arbeid pá ranch,
kibbutz ellcr luxuscruiser.
Med boka folgjer ogsá
soknadsskjema. Dette cr ei
bok du bor ha som sokjer
jobb utanlands. Du fár in-
formasjon om klimaet, bu-
stadsforhold, arbeidstider
m m. Dessutan fár Du adres-
ser til ca 1.000 stadcr og
arbeidsformidling. Du kjo-
per boka for berre 98,-
inkl porto og frakt. 10 da-
gars returrett. Bestill i-
dag. Skriv til:
CENTRALHUS
Box 48, 142 00 Stockholm
Ordrctclefon: 08-744 10 50
P.S. Vi formidler ikkje arbeid!
Útboð
Reykhólasveit 1987
Vestfjarðavegur milli Hríshóls
''//vm og Geitarár
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum i ofangreint
VjHmy verk. Lengd vegarkafla 3,2 km, fylling 9.500 m3,
neðra burðarlag 12.000 m3.
Verki skal lokið eigi síðar en 15. desember 1987.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
(safirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 15.
þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00
þann 29. júní 1981
Vegamálastjóri
Útboð
Norðfjarðarvegur um Hólmaháls
%'s/m w Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint r verk. Lengd vegarkafla 1,8 km, skeringar 9.000 m3, þar af 3.000 m3 bergskeringar, fyllingar 13.000 m3 og neðra burðarlag 9.000 m3, Verki skal lokið 15. september 1987. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Reyðarfirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 15. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann 29. júní 1987.
Vegamálastjóri
ERLENDAR FRÉTTIR
Ítalía
Komma
eða
Kristi-
lega?
Itölsku
stjórnmálaflokkarnir eru
allir í lœgð og kjósendur
virðast áhugalitlir um
þingkjörið semfram fer
um helgina. Þó er
frœðilegur möguleiki á
miklum umskiptum að
kosningum loknum
Þingkjör fer fram á Ítalíu nú á
sunnudag og mánudag. Kosning-
abaráttan hefur verið á lágu nót-
unum, almenningur er lang-
þreyttur á endalausum hring-
landahætti stjórnmálamanna og
hugsar þeim þegjandi þörfina.
Einkum hefur reiðin beinst að
fyrirsvarsmönnum Kristilega
demókrataflokksins sem sæta
ámæli fyrir að hafa fargað stjórn
Bettinos Craxis vegna þess eins að
þeir girntust svo mjög embætti
forsætisráðherra. Samkvæmt
skoðanakönnunum mun fiokkur-
inn ekki geta gert sér vonir um að
hreppa nema um 26 prósent at-
kvæða sem er gífurlegt áfall.
Meðan Kristilegir voru og hétu
nutu þeir fylgis tæplega helmings
kjósenda.
En fylgishrunið er ekki hið
eina sem forkólfar flokksins ótt-
ast. Þótt Kommúnistaflokkur ít-
alíu fái örlítið fieiri atkvæði í sinn
hlut og verði vinsælastur ítalskra
stjórnmálaflokka þá væri hægt að
sætta sig við það ef sá möguleiki
væri ekki fyrir hendi að þeir
leystu kristilega af hólmi í ríkis-
stjórn með Sósíalistaflokknum.
Þótt Kommúnistaflokkurinn
geti vænst þess að hreppa flest
atkvæði þá er ekki allt sem sýnist
því samkvæmt spám mun hann
engu að síður tapa fylgi, bara
ekki eins miklu og höfuðfjand-
inn. Deyfð einkennir starf flokks-
ins og líkurnar á stjórnarþátttöku
hans eru ekki komnar til af
aukinni velþóknun landsmanna
heldur hatrömmum deilum
kristilegra demókrata og sósíal-
ista.
Án Sósíalistaflokks Bettinos
Craxis er ekki hægt að mynda
starfhæfa meirihlutastjórn á ítal-
íu nema hið ólíklega gerist að
stóru flokkarnir tveir taki hönd-
um saman. Sósíalistar og kristi-
legir voru mæniás og möndull
ríkisstjórnar Bettinos Craxis sem
starfaði í mettíma, þrjú og hálft
ár, áður en hún lagði upp laupana
vegna fyrrnefndrar rimmu um
forystusætið. Sá tími var framfar-
askeið í efnahagslífi landsmanna
sem kunnu vel að meta nýfenginn
stöðugleika.
En næsta ólíklegt verður að
teljast að flokkar þessir ljái máls
á samstarfi eftir þingkjörið.
Höfuðeinkenni kosningabarátt-
unnar hefur verið hnútukast og
bituryrði forystumanna þeirra í
garð hverra annarra. Craxi og fé-
lagar sjá í Andreotti og lags-
bræðrum hans tákn spillingar og
pukurs fyrri ára og telja lífsnauð-
syn fyrir ítalskt þjóðlíf að það lúti
ekki forystu þeirra.
En hvort öll þessi vopnaskipti
fyrrum lagsbræðra leiða til þess
að sósíalistar snúa sér til vinstri
og bera víurnar í komma skal
ósagt látið. Aðeins eitt er víst, illa
mun ganga að böggla saman
stjórn.
-ks.