Þjóðviljinn - 13.06.1987, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 13.06.1987, Blaðsíða 9
MENNING FLAUTUGRAUTUR Manuela í Hallgrímskirkju Margrét Bóasdóttir BACH: Tónleikar í dag Lokatónleikar Kirkjulistahát- íðar í Hallgrímskirkju verða í dag kl. 5 e.h. Þar syngur Mótettukór- inn undir stjórn Harðar Áskels- sonar tvær Mótettur fyrir tvo fjögraraddakóra eftir Bach og eina kantötu fyrir sópran og hljómsveit, þar sem Margrét Bó- asdóttir fer með einsöngshlu- tverk og sinfonían leikur með. Með söng sínum í dag hefur Mótettukórinn flutt allar mótett- ur Bachs utan eina. „Fiirchte dich nicht, ich bin bei dir“, en þessar tvær á dagskránni eru „Der Geist hilft unser Schwachheit auf“ og „Singet dem Herrn ein neues Lied.“ Einsöngskantatan „Falsche Welt, dir trau ich nicht" er ein af mörgum slíkum sem Back samdi í Leipzig, en í henni notar hann fyrsta þáttinn úr fyrsta Branden- burgarkonsertinum og er þar leikið á tvö horn, þrjú óbó, fagott og strengi. Er full ástæða til að hvetja menn til að sækja þessa tónleika, því Bachflutningur kórsins, undir stjórn Harðar, er með því merkilegasta sem völ er á hér í seinni tíð. Einnig má bæta við, að þó hljómburður sé erfiður í kirkjunni, þá lagast hann mikið sé fjölmennt fyrir altarinu, það heyrði maður um daginn þegar Neadermenn sungu Jesúpassíu. Og svo kann Hörður Áskelsson, organisti Hallgrímssóknar öðrum betur á húsið. LÞ Kirkjulistahátíðin í Hallgríms- kirkju heldur áfram af mikilli rausn. Fyrirutanglæsilega kvöldtónleika hafa verið styttri tónleikar í hádeginu, þar sem komið hafa fram nokkrir bestu tónlistarmenn landsins og látið Ijós sitt skína yfir verk meistar- anna. í fyrrakvöld var enn einn heimsviðburðurinn. Þá var kom- in Manuela okkar Wiesler, með flautuna sína, í örstutta heim- sókn. Hún er því miður mest í útlöndum, í Mið-Evropu og Skandinavíu, en sem betur fer hefur hún þó ekki alveg yfirgefið okkur og ætlar jafnvel að spila í Skálholti seinna í sumar. En þarna var hún semsagt á tón- leikum kirkjulistahátíðarinnar og flutti verk eftir Telemann, Carl E. Welin og Marin verður að segjas't einsog er, að jafnvel snillingur einsog Manu- ela, ræður ekki við akkústikkina í Hallgrímskirkju. Hún er í einu orði: hræðileg. Fantasíurnar fjór- ar eftir Telemann, sem eru dá- samleg músík, sem Manuela leikur öllum betur, fóru því fyrir ofan garð og neðan að þessu sinni. Manuela reyndi að leika þær eins hægt og skýrt og hugsast getur án þess að tapa þræðinum, en allt kom fyrir ekki, það var allt í einum graut. Innbyggð fjöl- röddun Telemanns varð að ó- kræsilegri hljómasúpu, sem olli streitu og þreytu í sálinni. Eigin- lega kom „Solo per Flauto" eftir Welia best út úr þessu, því þar er rólegt lagferli og ekki mikið um pólýfóníska hugsun. En verkið er bara ekki það spennandi að dygði til að hreyfa við manni að ráði. Les Folies d’Espagne tilbrigð- in, eftir franska gömbumeistar- ann Maria Marais, sem var hirð- tónskáld hjá sólkóngnum Lúðvík 14da, er verk sem flesta flautu- leikara dreymir um að ráða við býst ég við. Manuela er hinsvegar ein af örfáum sem getur leikið þessar 40-50 variasjónir þannig að þær fá dramatískt samhengi og heillegt form. Auðvitað er magn- að að heyra hana leika þetta við hvaða aðstæður sem er, jafnvel í Hallgrímskirkju. En það breytir ekki því, að ef halda á tónleikum í Hallgrímskirkju áfram, einsog Manuela Wiesler ekkert hafi í skorist, verður þar jafnfátt gesta í salnum og í al- mennum messum. Því ekki að byggja tónlistarhús innaní skipinu? Nóg er plássið, og nógir eru trésmiðirnir. LÞ VERTU MEÐ í AÐ SKAPA GLÆSILEGASTA VINNUSTAÐ Á LANDINU í Hagkaup Kringlunni ætlum við að bæta við 150-200 manns til starfa. Starf fyrir þig á glæsUegum vinnustað í ágúst opnum við nýjar og glæsilegar verslanir í Kringlunni. Við höfum þörf fyrir konur og karla til starfa - Þú ert áreiðanlega ein(n) af þeim. - Þig langar eflaust til að vinna á nýtískulegum spennandi og skemmtilegum stað, með bráðhressu fólki þar sem vinnu- aðstaðan er góð. Héper tækifærið - gríptu það! Við þörfnumst þín. Hálfan eða allan daglnn Við óskum eftir fólki á aldrinum 18 ára og eldri í hluta og heils- dagsstörf. Starfsreynsla er æskileg en ekki skilyrði. - Þú sem heima situr og þið senr þarfnist vinnu eða viljið skipta um starf - hér kemur tækifærið! Hér koma örfá dæmi um skemmtileg störf: Afgreiðsla, • upplýsingar, • vinna á kassa, • pantanir í hinum ýmsu deildum fatnaðar, • skódeild, • búsáhaldadeild, • bóka- og sportvörudeild. - Við afgreiðslu og vinnslu í sæikeraborði, kjöt- og fiskborði. Afgreiðsla í skemmtilegri sælgætisbúð, eða afgreiðslu og uppfyllingu á ávaxtatorginu eða ostaborðinu. Svo er það lagerinn og margt fleira. HAGKAUP í hiingiðu viðskipta og afhafna Við bjóðum ykkur að starfa á mest spennandi vinnustað á landinu í dag. í Kringlunni hitta allir alla og þar mun alltaf gerast eitt- hvað nýtt. Þú munt njóta þín í skemmtilegu umhverfi viðskipta, þjónustu og athafna. Þegar tími og tækifæri gefast til, getur þú sinnt þínum erindum. Skroppið í bankann, farið með fötin í hreinsun, pantað farseðilinn í sumarfríið og margt fleira. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af veðri. Þú finnur ekki notalegri vinnustað. Ylð hlökkum til að heyra í J>ér Komdu og spjallaðu við okkur milli kl. 15 og 18 alla virka daga. Ef sá tími hentar ekki - þá hringdu og við ákveðum sameiginlega annan tíma. Við erum í síma 68-65-66 í Skeifunni 15. Kristján Sturluson starfsmannastjóri Valdimar Hermannsson verslunarstjóri Karl West verslunarstjóri Rangt feðraður Þau leiðu mistök gerðust í menningardálki blaðsins s.l. mið- vikudag í texta við mynd af að- standendum sýningarinnar Grap- hica Atlantica að einn þeirra, Benedikt Kristþórsson var skráður Kristjánsson. Leiðréttist þetta hér með.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.