Þjóðviljinn - 13.06.1987, Blaðsíða 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þJÓÐVIUINN
SKOLAVELTA
LEIÐIN
AÐ FARSCLLI
SKÓLACÖNQJ
Laugardagur 13. júní 1987 125. tölublað 52. örgangur
$
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF
J'-'4
Kennln«f»
Svmím#
em’Kvsmv.
isIekSj isíZkmki
ísfilm
Tíminn týndi hlekkurinn
Eyjólfurhressist. SÍS kaupir hlut Reykjavíkurborgar í ísfilm. KjartanP.
Kjartansson, fulltrúi SÍS íísfilm: Erum með ákveðinn kaupanda íhuga.
Enginn afnýju miðlunum. Indriði G. Þorsteinsson, ritstjóriogistjórn
ísfilm: Við erum að íendurnýjun lífdaga. Áhugi fyrir útvarps- og
sjónvarpsrekstri. Hugum að nýjum samstarfsaðila
íbúasamtök Vesturbœjar
Afmælishátíð
á sunnudag
íbúasamtök Vesturbæjar sem
eru þau elstu sinnar tegundar í
höfuðborginni halda hátíðlega
uppá 10 ára afmæli sitt á sunnu-
dag með útihátíð á Stýrimanna-
stígnum.
Margt verður til skemmtunar á
hátíðinni, listaverkamarkaður,
Björgvin Schram og Pétur Gunn-
arsson rifja upp sögu hverfisins
og æskuminningar, Bubbi Mort-
hens tekur lagið, harmónikkur
verða þandar og keppt í reiptogi á
milli götuliða svo eitthvað sé
nefnt.
í tilefni þessara tímamóta hafa
íbúasamtökin gefið út veglegt af-
mælisrit um Vesturbæinn þar sem
margt fróðlegt efni er að finna en
ritinu verður dreift til allra vest-
urbæinga. Formaður íbúasamt-
akanna er Anna Kristjánsdóttir.
Eg hef heimildir til að selja þann
eignarhluta sem SÍS keypti af
Reykjavíkurborg í ísfilm og ég
hef fullan hug á að notfæra mér
þann rétt. Ég er með kaupanda í
huga. Það er aðili sem þegar er í
Ijölmiðlun og á ekki aðild að Is-
film. Það er ekki Stöð 2 eða Bylgj-
an. Meira segi ég ekki, sagði
Kjartan P. Kjartansson, fulltrúi
SIS í stjórn Isfilm hf., um það
hvernig Sambandið hygðist ráð-
stafa þeim hlutabréfum sem það
keypti af borgin.ii í Isfilm.
Areiðanlegar heimildir blaðs-
ins segja að Tíminn hafi mikinn
áhuga á að koma til liðs við ís-
film, með útvarps- og sjónvarps-
rekstur í huga.
„Við erum í endurnýjun líf-
daga og við munum hressast. Það
hefur alltaf verið áhugi innan ís-
film á að fara út í útvarps- og
sjónvarpsrekstur og sá áhugi er
enn fyrir hendi. Við höfum verið
að leita hófanna undanfarið um
samstarfsaðila, en eins og er get
ég ekki nefnt við hverja við höf-
um rætt,“ sagði Indriði G. Þor-
steinsson, ritstjóri og stjórnar-
maður og hluthafi í ísfilm.
Frjáls fjölmiðlun eða DV,
virðist vera komin til leiks að
nýju í ísfilm, eftir að hafa dregið
sig til baka um skeið. „Frjáls fjöl-
miðlun er inni í þessari mynd
núna. Eftir því sem ég best veit
eru þeir hjá Frjálsri fjölmiðlun til
í slaginn," sagði Indriði G. Þor-
steinsson. -RK
Byggingafulltrúa-
embættið
Æfi sig
á borgar-
byggingum
Fulltrúar Abl. og
Alþýðuflokks í
byggingarnefnd:
Starfsmenn
byggingarfulltrúa haldi
sér við ífaginu á
byggingum borgarinnar
Gunnar Gunnarsson og Gissur
Símonarson, fulltrúar Alþýðu-
bandalags og Alþýðuflokks í
byggingarnefnd Reykjavíkur-
borgar, hafa lagt til að starfs-
menn byggingarfulltrúa borgar-
innar verði látnir halda sér við í
faginu með því að hanna bygging-
ar í eigu borgarinnar, en láti aðr-
ar byggingar lönd og leið.
Gunnar og Gissur lögðu til-
löguna fram á fundi byggingar-
nefndar í fyrradag og var henni
vísað til borgarráðs.
Sem kunnugt er hefur það tíðk-
ast um all langt skeið að starfs-
menn byggingarfulltrúa hafa
teiknað byggingar í borginni, sem
síðan hafa verið samþykktar af
þeim sjálfum eða félögum þeirra.
Tillaga þeirra tvímenninga ger-
ir ráð fyrir að starfsmennirnir
hanni aðeins byggingar í eigu
borgarinnar eða byggingar í öðr-
um sveitarfélögum. -gg
Hafrannsóknastofnun
I fljótu bragði er erfitt að koma auga á sérstöðu þessarar ritvélar, en leturgerð
hennar gerir það þó að verkum að ný vegabréf verða ekki útfyllt á aðrar ritvélar.
Kalla Lóa Karlsdóttir segir að á þremur vikum hafi 2500 vegabréf farið í gegnum
þessa ritvél. Mynd Sig.
VtGABREF
PASSPOHT PASSCPQRT
ISLAND
ICELANO fSl.A.NŒ
m
Vegabréf
Rauðglóandi ritvél í Reykjavík
Útgáfa nýju vegabréfanna á alltsitt undir einni ritvél niðri á Hverfisgötu. Von á fleiri slíkum
eftir tvœr vikur. Kalla Lóa Karlsdóttir: Höfum gefið út 2500 vegabréf á þremur vikum
að hefur óneitanlega verið
mikið að gera hjá okkur síðan
þessi vél kom. Við erum búin að
afgreiða um 2500 vegabréf núna á
þremur vikum og það er óhætt að
segja að vélin hafi verið rauðgló-
andi allan tímann, sagði Kalla
Lóa Karlsdóttir hjá lögreglustjór-
aembættinu í Reykjavík í samtali
við Þjóðviljann í gær, en hún
vinnur við ritvél sem á engan sinn
líka á íslandi enn sem komið er.
Sem kunnugt er hófst útgáfa
nýrra vegabréfa í síðasta mánuði
þar sem þau gömlu voru talin of
auðveld bráð fyrir falsara og
svindlaralýð. Þessi nýju bréf eru
prentuð á sérstakan pappír í
Bretlandi og fyllt út með ritvélum
sem hafa sérstaka leturgerð sem
ekki á að vera hægt að falsa.
Gallinn er bara sá að enn sem
komið er er aðeins til ein slík rit-
vél á Iandinu og hún er staðsett
hjá lögreglustjóraembættinu við
Hverfisgötu í Reykjavík.
Kalla Lóa og samstarfsfólk
hennar verður því að þjóna öllu
landinu með þessari ritvéi þar til
fleiri slíkar koma til landsins, en
þær eru væntanlegar eftir um
tvær vikur. íbúar utan Reykja-
víkur geta sótt um nýtt vegabréf
hjá viðeigandi embætti á hverjum
stað, en síðan verður að senda
allar upplýsingar til Reykjavíkur.
Þar eru bréfin fyllt út og síðan
send aftur til viðkomandi em-
bættis, sem gefur bréfin út.
Það er því óhætt að segja að
það mæði mikið á þeim á Hverfis-
götunni og þær bíða óþreyjufull-
ar eftir því að ritvélin góða eignist
jafningja hjá lögregluembættum
út um allt land.
-gg
Afmælistúr
um flóann
Rannsóknaskip
Hafrannsóknastofnunar
verða til sýnis á morgun.
Almenningi boðið ísigl-
ingu
Hafrannsóknastofnun er 50 ára
í ár og í tilefni af því verða rann-
sóknaskip stofnunarinnar al-
mcnningi til sýnis nú á sjómanna-
daginn.
Skipin verða öll í Reykjavíkur-
höfn á morgun og gefst fólki færi
á að fara með þeim í siglingu um
Faxaflóa, þar sem starfsmenn
stofnunarinnar munu kynna
starfsemina og sýna tækjabúnað-
inn sem er um borð. -gg