Þjóðviljinn - 13.06.1987, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 13.06.1987, Blaðsíða 6
SKIPADEILD SAMBANDSINS LINDARGÖTU 9A • PÖSTBÖLF 1480 -121 REYKJAVÍK SÍMI 28200 • TELEX 2101 TELEFAX 622827 PÓST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN Símaskráin 1987 Afhending símaskrárinnar 1987 til símnotenda er hafin. í Reykjavík er símaskráin afgreidd á eftir- töldum afgreiðslustööum Pósts og síma: Póst- hússtræti 5, Kleppsvegi 152, Laugavegi 120, Neshaga 16, Ármúla 25, Arnarbakka 2, Hraunbæ 102 og Lóuhólum 2-6. Afgreiðslutími mánudaga, miðvikudaga og föstu- daga kl. 8.30 til 16.30. þriðjudaga og fimmtudaga kl. 8.30 til 17.30. Á Seltjarnarnesi er skráin afhent á póst- og sím- stöðinni Eiðistorgi 15. í Garðabæ á póst- og símstöðinni við Garðatorg. í Hafnarfirði á póst- og símstöðinni, Strandgötu 24. í Kópavogi á póst- og símstöðinni, Digranesvegi 9. í Mosfellssveit á póst- og símstöðinni að Varmá. Utan höfuðborgarsvæðisins er símaskráin af- hent á viðkomandi póst- og símstöð. Símaskráin verður afhent gegn afhendingarseðl- um sem póstlagði hafa verið til símnotenda. Athygli símnotenda er vakin á því að þær símanúmerabreytingar, á svæðum 92, 93 og 97, úr 4 stafa í 5 stafa númer, sem fyrirhugað- ar voru í tengslum við útgáfu símaskrárinnar, frestast nokkuð. Á 92 svæði verða þær gerðar 1. júlí n.k. Á 93 svæði 6.-10. júlí Á 97 svæði verður breytingin gerð um leið og tekin verður í notkun ný starfræn símstöð á Egilsstöðum í byrjun ágúst. Þessar breytingar verða auglýstar nánar þeg- ar að þeim kemur. Þar til þær hafa farið fram gilda gömlu símanúmerin. Að öðru leyti tekur símaskráin gildi mánu- daginn 15. júní n.k. Póst- og símamálastofnunin. Byggingaþjón ustan Kynning um helgina Um helgina verður kynningar- helgi í Byggingaþjónustunni við Hallveigarstíg þar sem fulltrúar frá flestum stærstu málningar- framlciðendum hér á landi, svo og fulltrúar frá nokkrum helstu fyrirtækjum, sem hafa með hönd- um sölu og vinnu með utanhúss- viðgerðarefni, svo sem sprungu- viðgerðar- og þéttiefni, kynna vörur sínar. Þarna verður því kjörið tæki- færi fyrir þá sem þurfa að dytta að húsum sínum til þess að koma og skoða sýningu þessa um leið og þeir fá leiðbeiningar hjá sérfræð- ingum um hvernig best er að standa að viðhaldi og fegrun utan dyra. Þeir sem búa úti á landi geta hringt í síma 91-29266. Kynningin er haldin í húsa- kynnum Byggingaþjónustunnar að Hallveigarstíg 1, laugardaginn 13. og sunnudaginn 14. júní og verður opin báða dagana kl. 14- 18. Börn Sumarbúðir í Skálholti Síðastliðið sumar var gerð tii- raun með sumarbúðir í Skálholti, fyrir börn á aldrinum 7-12 ára. Dvöldu börnin í viku. Lögð var áhersla á tónlist og myndlist ásamt útiveru og náttúruskoðun, undir leiðsögn tónmennta- og myndmenntakennara. í lok námskeiðsins var haldin sýning á verkum barnanna og sungu þau við messu í Skálholts- kirkju. Tilraunin tókst mjög vel og er ætlunin að halda tvö námskeið í sumar. Fyrra námskeiðið verður 4.-9. ágúst, seinna 10.-16. ágúst. Leiðbeinendur verða Áslaug B. Ólafsdóttir, Hjördís I. Ólafsdótt- ir og Halldór Vilhelmsson. Nánari upplýsingar gefnar í símum 13245 og 656122. Símaskráin Loks rétt Símaskráin 1987 er komin út og verður hún afhent símnotendum á póst- og símstöðvum um land allt næstu daga gegn framvísun sérstakra afhendingarseðla, sem póstlagðir hafa verið, og er af- hending þegar hafln. Upplag símaskrárinnar að þessu sinni er um 137 þúsund ein- tök. Brot skrárinnar er óbreytt frá því sem verið hefur undanfar- in ár, en blaðsíðutalið eykst um 48 síður frá því í fyrra og er nú 768 síður. í skránni nú birtast mun fleiri götukort af stærri kaupstöðum og bæjum en áður, bæði vegna óska frá einstaka sveitarstjórnum og jákvæðra undirtekta almennings við þeim. Stafrófsröð nýju sfmaskrárinn- ar er nú frábrugðin því sem verið hefur. Breytingin felst í því að allir íslenskir stafir eru jafngildir, þannig að beitt er sérröðunar- reglu og gerður greinarmunur á grönnum og breiðum sérhljóðum t.d. a og á og e og é. Nánari skýr- ingar eru á stafrófsröðuninni á bls. 27 í skránni. Skrá yfir farsíma, bæði hand- virka og sjálfvirka, samtals um 2600 eru nú á bls. 656-664 eða fyrir aftan almennu símaskrána og skrá um bæi í sveitum sem hafa síma, en þeir eru á 6. þúsund tals- ins. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Ef BJarni Fel væri kona. . . Arsrit Kvenréttindafélags íslands „19. júní“ er komið út Fæst í bókaverslunum, á blaðsölustöðum og hjá kvenfélögum um land allt. Kvenréttindafélag íslands Er V þáð sem við viljum? K.artremban er þverpólitssk BOÐSMÓT TAFLFÉLAGS REYKJAVÍKUR 1987 hefst að Grensásvegi 46, mánudag 15. júní kl. 20.00. Tefldar verða sjö umferðir eftir Monrad-kerfi þannig: 1. umferó mánudag 15. júní kl. 20.00 2. umferð föstudag 19. júní kl. 20.00 3. umferð mánudag 22. júní kl. 20.00 4. umferð miðvikudag 24. júní kl. 20.00 5. umferð föstudag 26. júní kl. 20.00 6. umferð mánudag 29. júní kl. 20.00 7. umferö miðvikudag 1. júlí kl. 20.00 Öllum er heimil þátttaka í boðsmótinu. Umhugsunartími er 1 'A klst. á fyrstu 36 leikina en síðar 'á klst. til viðbótar til að Ijúka skákinni. Engar biðskákir. Skráning þátttakenda fer fram í síma Taflfélagsins á kvöldin kl. 20.00-22.00. Lokaskráning verður sunnu- dag 14. júní kl. 20.00-23.00. Taflfélag Reykjavíkur, Grensásvegi 44-46, Reykjavík. Símar: 8-35-40 og 68-16-90. Tónlistarkennari Tónskólinn á Hólmavík óskar að ráða kennara með blásturshljóðfæri sem aðalgrein. Nánari upplýsingar gefur skólastjóri í síma 95-3392 og sveitarstjóri í síma 95-3193. Tónskóli Hólmavíkur- og Kirkjubólshreppa

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.