Þjóðviljinn - 13.06.1987, Qupperneq 2
|—SPURNINGIN'
FRÉTTIR
Er líklegt aö það takist að
mynda ríkisstjórn fyrir
þjóðhátíð?
Margrét Bóasdóttir,
söngkona:
Þaö væri allavega mikiö gam-
an ef þeim tækist aö kgma sér
saman fyrir þjóöhátíö. Ég vona
bara að stjórnmálaflokkarnir
kCiTi! sér Sáinán um stjórn sem
fyrst.
Böðvar Ásgeirsson,
trésmiöur:
Nei, ekki úr þessu. Þaö er of
skammur tími til 17. júní. Ég hef
enga trú á því aö þeim takist aö
nýta þann stutta tíma sem eftir til
þess aö mynda stjórn.
Steingrímur Pétursson,
húsvörður:
Nei, þaö verður sko örugglega
ekki búið aö mynda stjórn fyrir
þann tíma. Ég get ekki ímyndað
mér hvaða stjórn verður ofan á
aö lokum.
Margrét Eiríksdóttir,
húsmóöir:
Nei, ég hef enga trú á því.
Kjartan Jónsson,
sjómaður:
Jú, ég gæti vel trúaö því aö
þeim tækist að mynda stjórn
núna. Mér þætti ekki ósennilegt
að Þorsteinn Pálsson yrði for-
sætisráðherra.
Síldarútflutningur
Færeyingar áhugasamir
Fœreyingurfékk íslenska síld í jólaboði og hyggur nú á
innflutning. Fékk prufusendingu frá Síldarréttum hf.
að hefur cin sending farið til
Færeyja, en það verður að
koma í ljós hvort þarna er að opn-
ast markaður fyrir sfld. Það væri
ánægjulægt ef við gætum selt
þeim meira, sagði Egill Thorar-
ensen framkvæmdastjóri SHdarr-
étta hf. í samtali við Þjóðviljann ■
gær.
Fullunnin íslensk sfld í
neytendapakkningum hefur fram
til þessa ekki verið útflutnings-
vara ef frá er talinn útflutningur á
gaffalbitum til Sovétríkjanna. Nú
hefur opnast möguleiki á að flytj a
út sfld í neytendapakkningum,
því Færeyingar hafa sýnt síldinni
frá Síldarréttum áhuga. Prufu-
sending fór utan í síðasta mánuði
og bíða menn nú spenntir eftir
framhaldinu.
Að sögn Egils var aðdragandi
þessa útflutnings sá að Færeying-
ur nokkur bragðaði á íslenskri
sfld í jólaboði hjá kunningja sín-
um, sem hafði fengið hana að
gjöf frá íslandi. Honum smakk-
aðist sfldin svo vel að hann hafði
samband við Sfldarrétti og nú er
ekki loku fyrir það skotið að út-
flutningur geti hafist.
Færeysk sfld og dönsk hefur
fram til þessa verið alls ráðandi á
færeyska markaðnum.
-gg
Dvalarheimili
Hrafnista
þrítug
Fiölbraut Breiðholti
Sárvantar sérmenntaðfólk í mötuneyti
heilbrigðisstofnana
Sölusýning á handavinnu
vistfólks og kaffisala á
sjómannadaginn
Fyrstu matarfræðingarnir sem
Ijúka námi hérlendis voru
brautskráðir frá Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti á dögunum.
Það eru fjórar stúlkur, allar bú-
settar úti á landi.
Matvælafræðinámið er hlið-
stætt menntun „ökonoma" á
Norðurlöndum nema að hér hef-
ur það verið fellt inn í áfangakerfi
fjölbrautaskóla og því hægt að
Ijúka því með stúdentsprófi.
Námið tekur tvö ár en
inntökuskilyrði eru matar-
tæknapróf sem er þriggja ára nám
í fjölbrautaskóla, hússtjórnar-
próf, sveinspróf í matreiðslu eða
stúdentspróf.
Mikil vöntun er á starfsfólki
með matarfræðimenntun til
stjórnunarstarfa í mötuneytum
heilbrigðisstofnana. -Ig.
Stúlkurnar sem luku námi í matarfræði: Frá v. Sesselja Hauksdóttir frá Röðli við
Blönduós, Friðgerður Guðnadóttir frá Þverlæk í Holtahreppi, Guðrún Sigur-
geirsdóttir frá Lundarbrekku í Bárðardal og Hugrún Högnadóttir frá Patreks-
firði.
Hrafnista í Reykjavík, eða
Dvalarheimili aldraðra sjó-
manna, er 30 ára um þessar
mundir. Heimilið var vígt á sjóm-
annadaginn fyrir 30 árum og nú á
sunnudaginn verður þessara
tímamóta minnst.
í tilefni afmælisins verður m.a.
efnt til sölusýningar á handa-
vinnu vistfólks á sunnudaginn og
stendur hún yfir frá kl. 13-17.
Margt eigulegra muna getur að
líta á sýningunni.
Á sama tíma verður kaffisala á
Hrafnistu og rennur ágóðinn til
velferðarmáia vistfólksins.
-gg
Friftarhlaupiö í kringum landiö hófst vlð hátíðlega athöfn við Höfða í gærmorgun þar sem Steingrímur
Hermannsson forsaetisráðherra kveikti á friðarkyndlinum sem hlaupið verður með umhverfis landið í þessu heimshlaupi
friðarsinna. Steingrfmur hljóp síðan fyrsta sprettinn uppá Borgartún en þar tók við kyndlinum Sveinn Björnsson forseti fsí
og fylgdi honum vaskur hópur hlaupara sem fluttu logandi kyndilinn austur eftir hringveginum í gær. Mynd-Sig.
Fyrstu
matarfræðingamir
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. júní 1987