Þjóðviljinn - 13.06.1987, Qupperneq 3
FRETTIR
■■■■
■?
Verðlaunatillagan að ráðhúsi við Tjörnina. Arkitektarnir Margrét Harðardóttir
og Steve Christer kampakát á innfelldu myndinni.
Reykjavíkurborg
Ráðhúsið á rekspöl
Verðlaun veittísamkeppni um hugmyndir að
borgarráðhúsi við norðurenda tjarnarinnar. Margrét
Harðardóttir og Steve Christer hlutskörpust
Tillaga Margrétar Harðardótt-
ur og Steve Christer varð hlut-
skörpust í samkeppni um hug-
myndir að Ráðhúsi Reykjavíkur-
borgar, sem ætlað er að reisa við
norðurenda tjarnarinnar. I sam-
keppnina bárust alls 38 tillögur.
Dómnefnd sá ástæðu til að verð-
launa fjórar tillögur og festa kaup
á öðrum fjórum.
í samkeppnisreglum var miðað
við að tillögurnar gerðu ráð fyrir
að væntanlegt ráðhús kæmi til
með að hýsa alla starfsemi borg-
arstjórnar og skrifstofur borgar-
innar auk fundarsala, upplýsing-
amiðstöðvar fyrir ferðalanga,
skrifstofur, eldhús og veislusal.
Undir byggingunni er gert ráð
fyrir bflageymslu fyrir um 150
bfla.
Hugmyndum um byggingu
ráðhúss var fyrst hreyft 1919 og
með reglulegu millibili hefur ráð-
húsbyggingu verið hreyft, en
aldrei áður komist á slíkan rek-
spöl sem nú.
Dómnefnd skipuðu þau Sigrún
Magnúsdóttir borgarfulltrúi, Da-
víð Oddsson borgarstjóri, Þor-
valdur S. Þorvaldsson frá Borgar-
skipulagi og arkitektarnir Guðni
Pálsson og Þorsteinn Gunnars-
son.
-RK
Natófundurinn
Afangasigur fyrir
friðariireyfingamar
Hafrannsóknastofnun
BBCá
Bjama
Hafrannsóknastofnun
Islands, bandarísk
hafrannsóknastofnun og
breska sjónvarpið saman
í rannsóknaleiðangur á
Bjarna Sœmundssyni
Bjarni Sæmundsson, rann-
sóknaskip Hafrannsóknastofnun-
ar, leggur upp í nokkuð nýstár-
legan rannsóknaleiðangur í
næstu viku. Ferðinni er heitið til
Kolbeinseyjar, þar sem jarð-
varmasvæði á hafsbotni verður
kannað i samvinnu við banda-
ríska hafrannsóknastofnun og
sjónvarpsmenn frá BBC.
Að sögn Jakobs Jakobssonar
forstjóra Hafrannsóknastofnun-
ar verður lagt upp 18. júní og er
búist við að leiðangurinn standi
yfir í tæplega tvær vikur.
Starfsmenn Hafrannsókna-
stofnunar hafa lengi haft áhuga
fyrir þessu svæði, en ekki haft þá
tækni sem til þarf til þess að rann-
saka botninn á fullnægjandi hátt.
Nú horfir hins vegar öðruvísi við,
því hafrannsóknastofnun í Wo-
ods Hole í Bandaríkjunum tekur
þátt í rannsóknunum og leggur
m.a. fjarstýrðan kafbát til rann-
sóknanna.
Bresku sjónvarpsmennirnir
sem verða með í leiðangrinum
hafa m.a. unnið sér það til frægð-
ar að gera þættina um Lífið á
jörðunni, sem sýndir voru í Sjón-
varpinu á sínum tíma við miklar
vinsældir. Þeir vinna nú að þátt-
aröð um tilurð Atlantshafsins og
hafa mikinn áhuga fyrir eldvirk-
um svæðum í hafinu.
Hl LAUSAR STÖÐUR HJÁ
W REYKJAVÍKURBORG
Staöa forstöðumanns viö leikskólann Fellaborg,
Völvufelli 9.
Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og umsjón-
arfóstrur á skrifstofu dagvistar barna sími 27277.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæö á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Ólafur Ragnar: Nató-fundurinn samþykkir afvopnunarskref ífyrsta
sinn. Astœðan ekki síst þrýstingur frá almenningsálitinu
Friðarhreyfingarnar í Evrópu
geta litið á það skref sem
Nató-ráðherrarnir stigu hér í
Reykjavík sem áfangasigur í bar-
áttu sinni, sagði Óiafur Ragnar
Grímsson við Þjóðviljann í gær
um niðurstöður Natófundarins
Sjómannadagurinn
Myndarlegt blað
frá Neskaupstað
í tilefni sjómannadagsins á
sunnudag er komið út Sjómanna-
dagsblað Neskaupstaðar, og er
þetta í tíunda skipti.
Blaðið er stórt og efnismikið,
um 130 síður. Þar eru greinar um
sjóferðir og veiðiskap fyrr og nú,
framtíð sjávarplássa, fiskeldi,
hvali, fiskna skipstjóra og fleira
og fleira.
Ritstjórar blaðsins eru Albert
Einarsson og Smári Geirsson, og
í Reykjavík má kaupa það í
Blaðasölunni hjá Eymundsson,
Austurstræti 18.
og stöðu afvopnunarmála að hon-
um loknum.
- Þrátt fyrir andstöðu margra
Nató-stjórna á undanförnum
mánuðum hefur þessi fundur
samþykkt ráðagerðir um að fjar-
lægja meðaldrægar og skamm-
drægar kjarnorkuflaugar risa-
veldanna úr Evrópu, sagði
Ólafur. - f rúman hálfan áratug
hafa forystumenn Natóríkjanna
haldið því fram að þessi vopn
væru nauðsynleg „til að tryggja
friðinn“. Síðan árið 1980 hafa
evrópskar friðarhreyfingar barist
gegn bæði sovéskum og banda-
rískum kjarnorkueldflaugum í
Evrópu, og nú samþykkir Nató í-
fyrsta sinn að ganga til samninga
um að fækka kjarnorkuvopnum,
- slíkur samningur hefur aldrei
verið gerður áður. Hin hefð-
bundna hernaðarkenning Nató
hefur verið að nauðsynlegt væri
að fjölga kjarnorkuvopnum og
auka fjölbreytni þeirra „til að
tryggja friðinn".
- Það er hinsvegar ljóst að ýms-
ir innan Nató halda áfram að
draga lappirnar og ætla að setja
það að skilyrði að eldflaugar
undir stjórn Vestur-Þjóðverja
verði undanþegnar í þessum
samningum. Þá vaknar sú spurn-
ing hvort verið sé að segja að
Þjóðverjar séu kjarnorkuveldi,
hvort verið er að gera hugsan-
legan kjarnorkuherafla Þjóð-
verja, ekki bara Breta og Frakka,
að sérstökum lið í afvopnunar-
málum. Þetta skilyrði Nató er
fáránlegt og eingöngu sett fram
til að þvæla málin og tefja fyrir.
- Að loknum Reykjavíkur-
fundi Reagans og Gorbatsjofs
sögðu ýmsir forystumenn í Nató
að ekki kæmi til greina að ganga
útfrá þeim grunni sem þá var
lagður. Það hefur tekið tæpt hálft
ár að draga Nató að samninga-
borðinu sem Reagan og Gorbat-
sjof smfðuðu í Reykjavík, og
framkvæmdastjóri Nató hefur
viðurkennt að það sé fyrst og
fremst vegna þrýstings frá al-
menningsálitinu sem Nató er nú
knúið til að samþykkja þessi
samningsdrög, sagði Ólafur
Ragnar. - Niðurstaðan sýnir að
friðarbarátta almennings getur
skipt sköpum í afvopnunarmál-
um. -m
|H LAUSAR STÖÐURHJÁ
W REYKJAVÍKURBORG
Staða forstöðumann við leikskólann Leikfell,
Æsufelli 4. Fóstrumenntun áskilin.
Umsóknarfrestur er til 28. júní.
Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri og umsjón-
arfóstrur á skrifstofu Dagvistar barna í síma
27277.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Laugarvatnsstúdentar
Aðalfundur og árshátíð Nemendasambands ML
verður haldinn miðvikudaginn 16. júní í Lækjar-
hvammi, Hótel Sögu, og hefst kl. 19.00. Matur
verðurframreiddur kl. 20.00. Þátttöku í borðhaldi
og dagskrá þarf að ákveða 14. júní.
Miðapantanir á kvöldin í símum 23494 (Hjálmar),
75617 (Þorleifur), 43575 (Stefanía) og 29647
(Guðlaug).
Miðar verða seldir eftir kl. 22.00 við innganginn.
Laugardagur 13. júní 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3