Þjóðviljinn - 03.07.1987, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 03.07.1987, Blaðsíða 2
FRÉTTIR M5PURNINGINM Hvað finnst þér um fyrstu að- gerðir tilvonandi ríkisstjórnar í efnahagsmálum? Haukur Nikulásson sölustjóri: Engin ástaeöa til að mótmaala söluskatti á tölvubúnað ef við eigum að notast við sölu- skattskerfi á almennar vörur yfirleitt. En það maetti líkagjarnan sparaáöðrum stöð- um. Mér finnst óeðlilegt að gera mun á endurskoðendaþjónustu og lögfraeðiþjón- ustu. Kristín Steingrímsdóttir gjaldkeri: Er þetta ekki nauðsynlegt? Einhvers stað- ar verður að taka peninga í góðærinu. En óg er alls ekki hrifin af þessu, því svona aðgerðir bitna alltaf meir á þeim verr settu f þjóðfólaginu. Pétur Helgason matvælafræðingur: Þegar menn reka fyrirtæki verða þeir að eiga fyrir reikningunum og þjóðarbúið hef- urverið rekið með halla í góðæri. Það verð- ur að ná inn peningum til að rétta við halla rikissjóðs núna, því erfiðara verður það þegar illa árar. Ég get í fljótu bragði ekki séð að það sé verið að ráðast á þá verst settu. Magnús Pálmason teiknari: Mér líst ekkert á þetta. Ég hef trú á þvl að þessar aðgerðir hleypi verðbólgunni upp um nokkur stig. Þetta er engin lausn. Margrét Kjartansdóttir jarðfræðingur: Eitthvað þarf að gera í hallarekstri rfkis- sjóðs. En ég skrifa nú ekki upp á það að þessar ráðstafanir séu nákvæmlega þær réttu. Ferðaþjónusta bænda verður sífellt vinsælli valkostur ferðamannsins. Það er alltaf nóg um að vera í sveitinni eins og á þessu myndarlega býli í Langadal í Húnavatnssýslu sem Ijósmyndari blaðsins átti leið framhjá á dögunum. Mynd - E.ÓI. Ferðaþjónusta bœnda Stærsta hótel landsins 88 sveitabœir viðurkenndir af samtökumferðaþjónustu bænda. 600 svefnpláss til afnota. Pjónustan teygir sig smátt og smátt um allt landið. Hestaferðir sífellt vinsœlli. Fjölbreyttir veiðimöguleikar. Einnig boðið uppájöklaferðir. Aferlendumferðamönnumermestum Þjóðverja, Breta og Frakka. Islendingar mœttu vera fleiri Það er feikilegur vöxtur í ferða- þjónustu bænda og í ár getum við boðið uppá 600 svefnpláss hjá 88 aðilum í sveitum landsins og getum með sanni sagt að við séum með stærsta hótel landsins, segir Paul Richardson, formaður Fé- lags ferðaþjónustubænda. Að sögn Pauls er ferðaþjón- usta bænda að teygja sig smátt og smátt um allt landið og nýtur sí- fellt meiri vinsælda meðal ferða- manna, jafnt innlendra sem er- lendra. Af erlendum ferða- mönnum er mest um Þjóðverja, Frakka og Breta en minna af ferðamönnum frá Norðurlönd- unum. Einnig er þó nokkur vöxt- ur í fjölda innlendra ferðamanna sem sækjast eftir að eyða fríinu sínu í friðsæld sveitanna, þó svo að hann mætti að ósekju vera meiri. Vinsælustu staðirnir eru í Borgarfirði, við Mývatn og raun- ar Suðurlandið allt austur að Hofi í Öræfum. Sagði Paul að það væri mjög mismunandi eftir sveitabæjum hvaða þjónustu og afþreyingarmöguleikar væru í boði hverju sinni, en þeir staðir sem byðu upp á hestaferðir, fjöl- breytta veiðimöguleika og núna síðast ferðir upp á jökul, nytu mikilla vinsælda. Á mörgum sveitabæjum er hægt að fá gistingu allt árið um kring, en af skiljanlegum ástæð- um væri sumarið lang vinsælast. Á meðan gist er á sveitabæ er hægt að njóta friðar og hvfldar, en einnig geta þeir, sem vilja komast í kynni við störf bóndans, tekið þátt í daglegri vinnu og komist þannig í nánari snertingu við daglegt líf í sveitum landsins. grh Smábátaeigendur Fögnum nyju mælingarreglunum Landssamband smábátaeigenda: Nýju reglurnar hefðu að ósekju mátt vera komnar löngufyrr. Tekurfyrir alltbraskmeð stærð skipa ogbáta. Stœrð margra skipa í engu samrœmi við skráða stærð þeirra í brúttórúmlestum Við smábátaeigendur fögnum þessum nýju mælingarreglum á skipum og bátum og höfum raunar gert samþykktir þar að lútandi í okkar samtökum, segir Arthúr Bogason, formaður Landssambands smábátaeig- enda. Sagði hann að það hefði verið fyrir löngu kominn tími á stjórnvöld að breyta mælingar- reglunum til að koma í veg fyrir það brask sem hefði viðgengist í stærðarmælingum skipa og báta. Nefndi hann sem dæmi strand- ferðaskipið Esjuna sem liti út eins og fljótandi hótei, en væri aðeins 485 brúttórúmlestir að stærð. Einnig mætti nefna til fjöl- marga skuttogara sem væru mældir niður, einungis til þess, samkvæmt gömlu lögunum, að á þeim giltu bátasamningar, sem þýddi að á þeim væru aðeins 12 manns og skiptahluturinn því hærri. Ef þessi skiphefðu verið mæld samkvæmt þessum nýju reglum þegar skuttogarabylting- in stóð sem hæst hér á landi, væri áhöfnin mun stærri á mörgum þessum skuttogurum. Samkvæmt gömlu lögunum um mælingar á skuttogurum væri til dæmis ekki í stærðardæminu allt milliþilfarið. „En það má alls ekki sícilja mig þannig að ég sé að væna einn eða neinn um lögbrot í þessu sam- bandi. Þetta er allt gert sam- kvæmt þeim lögum sem hafa ver- ið í gildi um stærðarmælingar á skipum, þangað til í gær, þegar nýju lögin tóku gildi. En það sér hver maður með sæmilega sjón að stærð margra báta er í engu samræmi við skráða brúttótonna- stærð þeirra,“ sagði Arthúr Bogason að lokum. grh Lífeyrisþegar Leyft að diýgja tekjumar Frítekjuhámark elli- og örorku- lífeyrisþega hefur verið hækkað um 25% og geta lífeyrisþegar því drýgt tekjur sínar, eigi þeir þess á annað borð einhvern kost, án þess að bætur þeirra verði skertar. Samkvæmt reglugerð heil- brigðismálaráðherra frá 1. júlí geta elli- og örorkulífeyrisþegar nú haft 7900 kr. í tekjur á mán- uði, án þess það komi til frádrátt- ar á bótagreiðslum. Hjón geta samkvæmt reglugerðinni, haft 11058 kr. á mánuði, án þess að eiga á hættu skerðingu elli- og ör- orkulífeyrisbóta. -RK Því miður. Nautasteikin er bara búin, og smálúðan hefur verið rifin út í allt kvöld. Væri hægt að bjóða þér eitthvað annað? 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 3. júií 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.