Þjóðviljinn - 03.07.1987, Blaðsíða 8
HEIMURINN
Bretland
Gleymdu okkur ekki Kalli
Karl prins heimsœkir íbúa í niðurníddu miðborgarhverfi í
London. Áminning til Thatcherað taka tilhendinni
Karl prins, erfingi bresku krún-
unnar, kom í heimsókn í
slömm eitt í London fyrir
skemmstu. Með heimsókninni
telja menn að hann vilji undir-
strika áhyggjur sínar af þróun-
inni í málefnum miðborgar-
hverfa, og jafnframt hvetja ríkis-
stjórn Margrétar Thatcher til að
iáta vandkvæði þeirra til sín taka.
„Kalli, gleymdu okkur ekki el-
skan,“ kallaði kona ein með
sterkum cockneyhreim er prins-
inn kom út úr byggingu einni í
East End sem dæmd hefur verið
til niðurrifs. Karl prins sagði
fréttamönnum að honum hefði
ofboðið ástandið, en hverfið varð
fyrir loftárásum Pjóðverja í
seinni heimsstyrjöldinni og hefur
ekki náð séð á strik síðan.
„Þetta er algerlega óviðun-
andi,“ sagði hann. „Frumkvæði
fólks og orka er til staðar, ef hún
fengi að njóta sín. Ég held að það
Karl Bretaprins, erfingi krúnunnar,
hefur látið vandkvæöi
miðborgarhverfa mjög til sín taka.
Ítalía
Skrautleg þingsetning
Slagsmál, hjólreiðar og berbrjóstasýningar meðal annarra
skemmtiatriða er ítalska þingið kom saman ígær
Italska þingið kom saman í gær
fyrsta sinni eftir kosningarnar
14.-15. fyrra mánaðar. Um 400
nýliðar taka sæti í tveim málstof-
um löggjafarsamkundunnar,
fulltrúadeild og öldunga-.
Heilmikið var um að vera um
og fyrir setningu. Nýfasistar trufl-
uðu athöfnina er þeir hófu upp
raust og kröfuspjöld og heimtuðu
frelsi til handa einum af fangels-
uðum skuggaböldrum úr eigin
röðum. Fyrir snarræði þingvarða
urðu smápústrar milli þeirra og
þingmanna kommúnistaflokks-
ins ekki að einu allsherjar slags-
málabáli.
Utan þinghússins safnaðist
mikill mannfjöldi saman og voru
flestir að mótmæla einhverju. Fé-
lagar flokks Græningja dóluðu
um svæðið á reiðhjólum og fjórar
samstarfskonur ástmeyjarinnar
og þingmannsins Ilonu Staller
sveifluðu berum brjóstum fram
og aftur í gríð og erg. Þegar við
bættist ægileg mergð svonefndra
fjölmiðlamanna þá var hámarki
sirkússins náð.
Flokkamir fimm sem fyrir
skemmstu mynduðu ríkisstjórn
undir forsæti sósíalistans Bettin-
os Craxis plottuðu í fyrrakvöld
um virðingarstöður á þingi. Þeim
kom saman um að formaður
Repúblikanaflokksins, Giovanni
Spadolini, yrði eftirleiðis sem
hingaðtil forseti öldungadeildar-
innar. Ekki sáu þeir heldur neina
ástæðu til að svipta kommún-
istann Nilde Iotti stöðu forseta
fulltrúadeildar þannig að þau mál
voru leyst farsællega. Það þarf
hinsvegar vart að taka það fram
að ekki bólar á ríkisstjórn á ítal-
íu. -ks.
sem kemur í veg fyrir að svo geti
orðið sé ómælt formvafstur og
skriffinnska.“
Leiðangur prinsins um bygg-
ingar í niðurníðslu þar sem fólk af
asískum uppruna þrælar í
þrengslum, var áminning til
stjórnarinnar um að hann muni
fylgjast grandgæfilega með því að
hún efni þau loforð sín að láta
málefni miðborgarhverfa til sín
taka. Þetta var eitt af stóru mál-
unum í þingkosningunum á Bret-
landi á dögunum, er Margrét
Thatcher bar sigur úr býtum í
þriðja skiptið í röð.
Karl prins gekk fram á eymd af
svipaðri gráðu og lesa má um í
skáldsögum Dickens er hann virti
fyrir sér slammbyggju þá sem
kúrir í skugga fjármálaheimsins í
London með öllu sínu glysi.
Hann sagði að þetta minnti sig á
margt sem hann hefði séð á Ind-
landi. Margir frammámenn í
fjármálaheiminum slógust í för
með honum, en á meðan var
kona hans, Díana prinsessa, á
tennisleikunum á Wembley, en
tennis er fyrst og síðast íþrótt ríka
fólksins.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
prinsinn er á röltinu í skugga-
hverfum borgarinnar. Hann hef-
ur meðal annars heilsað upp á
heimilisleysingja sem sofa undir
Waterloobrúnni. í þetta sinn
kleif hann fúinn stiga í húsi sem
stendur til að rífa í East End og
spjallaði við konu frá Bengal.
„Eg er alveg orðlaus," sagði hann
þegar hann birtist aftur, og fór
ekki á milli mála að honum var
brugðið.
Ymsir hafa orðið til að líkja
þessum leiðangri við annan sem
farinn var fyrir fimmtíu og einu
ári. Þá var Játvarður áttundi á
ferðinni, en hann afsalaði sér
seinna krúnunni og gerðist her-
togi af Windsor. Játvarði varð
svo mikið um allt atvinnuleysið á
sínum tíma að hann sagði að
„eitthvað yrði að gera,“ og vöktu
þau ummæli nokkurn úlfaþyt.
Kóngafólkið í Bretlandi gerir
h'tið af því að blanda sér í umdeild
mál og aðhefst yfirleitt ekkert
sem gæti dregið það inn í flokks-
pólitískar erjur.
HS
Mengun
Rín verður tær á ný
Umhverfisráðherrar Rínarlandanna samþykkja áœtlun um
mengunarvarnir á ánni. Verður orðin silungsfœr um aldamót
Umhverfismálaráðherrar Rín-
arlandanna ákváðu í gær að
leitað yrði leiða til að draga úr
menguninni í ánni um helming
árið 1995. Iðnfyrirtækjunum við
Rín verður gert að taka nýjustu
tækni í sína þjónustu í baráttunni
gegn menguninni.
Ráðstafanirnar miða að því að
koma í veg fyrir að stórslys á borð
við það í Basel í Sviss í nóvember í
fyrra geti endurtekið sig. Það er
Alþjóðlega Rínarnefndin sem
hefur samið reglurnar, en aðild
að henni eiga Vestur-Þýskaland,
Sviss, Holland, Frakkland og
Luxemburg.
Slysið í Basel var eitthvert hið
alvarlegasta á sínu sviði í heilan
áratug, en þá fóru þrjátíu tonn af
kvikasilfri og öðrum eiturefnum
út í ána úr efnaverksmiðju einni,
og drapst mikið af fiski og gróðri í
þessari stærstu á Evrópu.
Fundi umhverfismálaráðherr-
anna lauk í gær, og höfðu þeir þá
setið á rökstólum í tvo daga.
Fundur var síðast haldinn í des-
ember í fyrra, skömmu eftir um-
hverfisslysið. Næsti fundur er
fyrirhugaður í Strassborg í októ-
ber, og þar á að hnykkja á sam-
þykkt frá desemberfundinum
þess efnis að ána hafi tekist að
hreinsa í þeim mæli um næstu
aldamót að silungur hætti sér aft-
ur í hana.
Formaður hollensku nefndar-
innar, Lodewijk, sagði að sam-
þykktin núna markaði stórt skref
fram á við, en svissneskur kollegi
hans, Rdolfo Pedroli, var ekki
eins bjartsýnn. Hann sagði að að-
ildarríkin greindi á í ýmsum mál-
um, og vísaði til þess að enn er
óútkljáð hve mikið hvert þeirra
leggur af mörkum. Pedroli sagði
að kostnaðurinn við hreinsun
Rínar hlypi á milljörðum marka,
og bætti við að enn væri ekki
fyrirséð hvenær áfanganum yrði
náð, en Frakkar hafa óskað eftir
að seinna stig áætlunarinnar
frestaðist fram yfir aldamót.
Pedroli sagði að málsóknir
vegna efnaslyssins í Sviss í fyrra
væru orðnar 520, og hefðu sættir,
tekist í 440 tilfellum. „Ég veit
ekki betur en að verksmiðjan
muni bæta öllum tjón sitt sem
eftir því leita,“ sagði hann.
HS
8 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN
IftlÓDIIVIIININ
Mötuneyti - sumarafleysingar
Þjóðviljann vantar starfsmann til að sjá um létta máltíð í hádeginu næstu 6
vikurnar (sendill sérum innkaup). Vinnutími kl. 10-14. Upplýsingar gefur fram-
kvæmdastjóri í síma 681333.
™ ÖRFRÉTTIR m
Mikil sprenging
varð í spænskum togara við
Bjarnarey í fyrradag, og er talið
að tveir sjómenn hafi farist.
Áhöfnin varð að yfirgefa skipið er
mikill eldur varð laus í kjölfar
sprengingarinnar. 22 menn voru
um borð, og var tuttugu bjargað
um borð í annan spænskan tog-
ara. Tveir eru taldir af, og líklegt
þykir að þeir hafi lokast inni í
klefum sínum. Norska strand-
gæslan hefur fylgst með brenn-
andi skipinu, en haugasjór og
hvassviðri veldur því að ekki er
hægt að komast um borð.
Galdraskósóli
er kominn á markað í Kína, ef
marka má dagblað eitt í Hong
Kong. Ýmsar lækningajurtir sem
notaðar hafa verið í landinu frá
fornu fari eru settar í sólann, og
valda þær því að notandinn vex
hraðar en ella. Núningurinn milli
iljar og sóla virkar hvetjandi á lífs-
kraftinn sem streymir óhindraður
í gegnum þann sem hefur ger-
semina á fætinum.
Lögreglan
í London yfirheyrir nú mann einn
sem hún gómaði er hann var að
klifri inn á Karl Bretaprins og Dí-
önu konu hans í gær. Atburður-
inn átti sér stað í Kensington Pal-
ace, en þar halda hjónakomin til
ásamt fleiri meðlimum konungs-
fjölskyldunnar. Þetta er ( annað
skipti á árinu sem lögreglan
handtekur mann fyrir að snuðra (
kringum höllina. Fyrir fjórum
árum komst annar maður í svip-
uðum erindagerðum inn í Buck-
inghamhöll. Sá komst óáreitturtil
rekkju Elísabetar drottningar og
spjallaði við hana í tíu mínútur
áður en öryggisvarslan tók við
sér.
Gullsmygl
í hjáverkum: Edgar Sanchez,
sendiherra Costa Rica ( Suður-
Kóreu var handtekinn á föstu-
daginn var í Nepal, og er gefið
gullsmygl að sök. Tollverðir
fundu rúmlega 37 kíló af gulli í
farangri hans. Þetta er í annað
skiptið á árinu sem diplómat frá
Costa Rica gerist helsti gírugur í
hinn þétta leir; sendiherrann á
Taiwan, Ruben Acon, var rekinn
fyrir sömu sakir í júníbyrjun.
Verkamenn
í þúsundatali efndu til mótmæl-
agöngu á götum Rio de Janeiro í
Brasilíu í fyrradag. Degi fyrr hafði
komið til mikilla óeirða í borginni,
er fargjöld með strætisvögnum
voru hækkuð um 50%, og voru
almenningssamgöngutæki grýtt
og brennd. Stjómvöld hafa nú
fallið frá hækkuninni, en verð-
stöðvun hefur verið í gildi í
landinu frá 12. júní.
Prentvillu-
púkinn
á ritstjórastóli? Nýlegar fréttir frá
Nýja-Sjálandi benda til þvílíkrar
stöðuhækkunar, en blað náms-
manna á fjölmiðlanámskeiði þar í
landi hefur verið bannað, og er
ástæðan sú að það var morandi (
stafsetningarvillum, málfræði-
mistökum og uppsetningarklúðri.
Sex námsmenn höfðu unnið að
því í tíu vikur að búa blaðið til
prentunar, og átti það að sýna
hvað þeir hefðu lært á námskeið-
inu.
Herforingja-
stjórn
verður við lýði í Nígeríu til ársins
1992, en síðan ekki söguna meir.
Fyrirhugað er að halda kosningar
í landinu það ár. Forsetinn, Ibra-
him Babangida, upplýsti þetta í
sjónvarpsútsendingu nýlega.
Hann komst til valda í hittifyrra og
hefur áður heitið því að koma á
lýðræðislegum stjórnarháttum,
en þá átti það að vera árið 1990.
Hann segir að hafist verði handa
um breytingar þessar siðar á ár-
inu.