Þjóðviljinn - 03.07.1987, Blaðsíða 9
______HEIMURINN___
Bandaríkin
Nýi
dómarinn
umdeildur
Með útnefningu Borks eru íhaldsmenn í
meirihluta. Skipan hans mœlistillafyrir
meðal demókrata
Lewis Powell, fyrrverandi hæstaréttardómari.
Ronald Reagan hefur nú út-
nefnt nýjan hæstaréttardóm-
ara. Sá heitir Robert Bork og
þykir íhaldssamur í besta lagi.
Þar með hefur forsetinn gripið þá
gæsina að verða sér úti um íhalds-
saman meirihluta í Hæstarétti.
Eitt sæti í Hæstarétti hefur ver-
ið autt síðan Lewis Powell sagði
af sér fyrir skemmstu. Talið er
víst að valið á Bork muni valda
miklum deilum, ekki síst vegna
þess að Öldungadeildin verður
að leggja blessun sína yfir
ákvörðun forsetans, en demó-
kratar eru í meirihluta í deildinni.
Bork er þekktastur fyrir þátt
sinn í að reka saksóknarann sem
annaðist Watergatemálið á árun-
um 1973-1974. Sá hét Archibald
Cox, og var brottrekstur hans
afar umdeildur á sínum tíma.
Bork hefur verið iðinn við að
gagnrýna margar niðurstöður
Hæstaréttar sem ekki hafa fallið í
góðan jarðveg hjá íhalds-
mönnum. Þar má nefna ákvörð-
unina um að fóstureyðingar skuli
leyfðar.
Kvennasamtök og ýmsir þeir
hópar sem berjast fyrir auknu
frjálsræði segjast munu berjast
gegn því að Reagan geti skapað
bandarískt þjóðfélag eftir eigin
höfði með því að útnefna Bork í
embætti hæstaréttardómara.
Reagan tilkynnti ákvörðun
sína í fyrradag og sagði að Bork
væri framúrskarandi fræðimaður
og manna fróðastur um stjórnar-
skrármálefni.
„Bork dómari er almennt
álitinn fremsti og greindasti tals-
maðurinn hófseminnar í réttar-
farssökum. hann er sama sinnis
og ég að dómarar eigi ekki að láta
stjórnast af eigin verðmætamati
þegar fengist er við lagatúlkan-
ir,“ sagði Reagan í stuttu ávarpi.
Fyrstu viðbrögð við útnefning-
unni hafa skipst mjög eftir flokks-
pólitískum línum, og hefur hún
þannig mælst illa fyrir meðal
demókrata. Til dæmis hefur
Edward Kennedy, öldunga-
deildarþingmaður frá Massac-
husetts ekkert verið að skafa utan
af því þegar Bork á í hlut:
„Draumsýn Borks í þjóðfélags-
málum byggist á því að konur
verði að grípa til ólöglegra fóstur-
eyðinga, hvítum og svörtum
verði haldið stranglega að-
skildum, lögreglan geti Vaðið
uppi um miðjar nætur heima hjá
fólki og ruðst inn eftir hentug-
leikum, ekki megi kenna bömum
þróunarkenninguna, og að dóm-
stólar verði lokaðir milljónum
borgara.“
Við þetta er því að bæta að
Kennedy á sæti í dómsmálanefnd
Öldungadeildarinnar, en útnefn-
ing Borks kemur til hennar kasta.
HS
Svíþjóð
Kafbátaveiðitímabilið hafið
Herskip skjóta djúpsprengjum að erlendum kafbáti. „Trúlegaslapp hann, efþað varþá kafbátur, “segir talsmaður
varnarmálaráðuneytisins
Skerjagarðurinn enn. Yfirvöldum berst fjöldi ábendinga um ferðir kafbáta.
Sænsk herskip skutu í fyrrinótt
djúpsprengjum að erlendum
kafbáti, en í gær sögðu embættis-
menn í vamarmálaráðuneytinu
að scnnilega hefði hann komist
undan. „Trúlega siapp hann, ef
það var þá kafbátur,“ sagði tals-
maður ráðuneytisins, Jan Tunin-
ger.
Ballið byrjaði þegar sjóliðar
töldu sig sjá óvenjulega hreyf-
ingu á sjónum skammt undan
sænsku ströndinni í Botníuflóa,
og voru sjóliðamir við æfingar á
þessum slóðum.
Af opinberri hálfu hefur verið
sagt að undanfama daga hafi er-
lends kafbáts orðið vart, en á
þessum slóðum eltust Svíar mjög
við kafbát fyrir þremur ámm en
höfðu ekki erindi sem erfiði.
Síðan kafbátaveiðitímabilið
hófst í Svíþjóð er sjóa og ísa leysti
í vor hefur hemaðaryfirvöldum
borist sægur ábendinga. Flestir
sem telja sig hafa séð kafbáta em
óbreyttir borgarar, og hefur varla
liðið svo dagur að herinn hafi
ekki fengið upplýsingar um váge-
stina. Meðal annars hafa tuttugu
manns borið vitni um að hafa séð
sjónpípu gægjast upp úr sjónum í
skerjagarðinum skammt frá
Stokkhólmi.
Það var árið 1981 að sovéskur
kafbátur, Viskí að nafni, strand-
aði við Karlskrona, en þar er
mikilvæg flotastöð sænska hers-
ins. Yfirvöld segja að síðan hafi
þeim aðeins einu sinni tekist að
bera kennsl á kafbát á þessum
slóðum, og hafi sá verið frá Sov-
étríkjunum.
Svenska dagbladet sagði í gær
að flotayfirvöld hefðu í síðustu
viku fengið í hendurnar myndir af
kafbát á svæðinu þar sem kafbát-
urinn frá í fyrrinótt var talinn
halda sig. Sænsk hernaðaryfir-
völd láta ekkert hafa eftir sér um
jessa frétt dagblaðsins. HS
Venesúela
Ólympíuleikar í Suður-Kóreu
Skipulagning í gang að nýju
Eftir mikla óvissu um möguleika sunnanmanna íKóreu áþvíað halda ólympíuleikana að ári
telja þeirnú engin Ijón á veginum lengurog undirbúa afkappi
Sigur lýSræðissinna yfir Chun
forseta í Suður-Kóreu og hin-
ar vænlegu friðarhorfur í iandinu
hafa fáa glatt jafn mikið og skipu-
leggjendur ólympíuleikanna sem
fram eiga að fara þarlendis næsta
ár. Þegar öldur risu hæst í síðasta
mánuði jókst þeirri skoðun ört
fylgi víða um lönd að það væri óðs
manns æði að stefna tugþúsund-
um erlcndra gcsta i þetta
slagsmálabæli. En þetta breyttist
á einni nóttu.
Skipuleggjendur hyggjast selja
4,3 miljónir aðgöngumiða fyrir
25 miljónir bandaríkjadala. Miði
á opnunarhátíðina mun kosta
hvorki meira né minna en 190
dali.
Gífurlegur áhugi er á leikunum
meðal almennings í Suður-Kóreu
en undirbúningsnefndin hyggst
takmarka mjög sölu á miðum í
heimalandinu. Flestir miðar í
bestu sæti munu verða seldir er-
lendis.
Fyrir þá sem áhuga hafa má
geta þess að verð á einstaka at-
burði er ákaflega mishátt. Til að
mynda mun kosta 50 dali að fylgj-
ast með úrslitakeppni í hnefa-
leikum úr stúku en áhugamenn
um róður þurfa aðeins að punga
út með tvo og hálfan dal. Frá og
með októbermánuði verður
mönnum gert kleift að panta
miða en leikarnir munu ekki hefj-
ast fyrr en 16. september að ári.
Um 5000 sjálfboðaliðar munu
gegna störfum túlka og leiðsögu-
manna og komu þeir til fyrsta
fundar í gær. Mikið mun á þeim
hvfla því í höfuðborginni Seoul
munu vera fáir vegvísar á ensku
og almennt tala landsmenn ekki
það mál.
Af þessum fimm þúsund kváðu
3000 vera enskumælandi, 1000
kunna frönsku, 500 spænsku, 200
þýsku, 100 rússnesku, 75 jap-
önsku, jafnmargir kínversku, 50
arabísku og enginn íslensku. Það
er því ljóst að tungumálaörðug-
leikar geta orðið þrándur í götu.
-ks.
Náms-
maður
felldur
Einn námsmaður beið bana í
fyrradag í átökum háskóla-
nema og lögreglu í höfuðborginni
Caracas en þeir fyrrnefndu krefj-
ast þess að 17 fangelsaðir kollegar
sínir verði látnir lausir. Þeir sitja
inni fyrir „undirróðursstarfsemi.
Um 1000 námsmenn tóku þátt í
aðgerðunum en þeir krefjast enn-
fremur þess að 11 félagar fái að
setjast að nýju á skólabekk við
Del Oriente háskólann en þeir
voru reknir eftir mótmæli í síð-
asta mánuði. -ks.
Föstudagur 3. júlí 1987 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9