Þjóðviljinn - 03.07.1987, Qupperneq 3
^ÖRFRÉTTIR^
Fasteignarverð
á Akureyri og Suðurnesjum
hækkaði um 3-5% umfram al-
mennar verðhækkanir á sl. ári.
Útborgunarhlutfallið hækkaði
lítillega á Akureyri og er nú tæp
69% en nokkru lægra á Suður-
nesjum eða 66.7%.
FRÉTTIR
Brjánslœkur
Bíðum eftir kallinu
Konráð Eggertsson, framkvœmdastjóri Flóka hlfá Brjánslæk: Fáum að veiða 40 hrefnur
í vísindaskyni, þegar Halldór sjávarútvegsráðherra gefur okkur grœnt Ijós. Mikil vinna í rækjunni.
Mannlífið mjöggott
Eg hef ekki trú á öðru en að
Halldór sjávarútvegsráðherra
standi við orð sín og gefl okkur
grænt Ijós á hrefnuveiðar i
sumar. Ef það verður, þá koma í
hlut Flóka h/f 40 hrefnur, sem er
helmingur þess sem veiða má í
vfsindaskyni af hrefnum í sumar,
sagði Konráð Eggertsson, fram-
kvæmdastjóri Flóka h/f á Brjáns-
Iæk á Barðaströnd, við blaða-
mann Þjóðvifjann.
Sagði Konráð að þeir væru til-
búnir að fara af stað um leið og
kallið kæmi. Þeir þyrftu ekki
nema viku fyrirvara til að gera
allt klárt.
Að öðru leyti hefur verið mikil
vinna í rækjunni hjá Flóka h/f frá
því í byrjun apríl. Unnið alla daga
á vöktum og einnig á laugar-
dögum og sunnudögum. Hjá
fyrirtækinu vinna um 25 manns,
18 konur og 7 karlar. Kemur fólk-
ið úr sveitinni í kring og munar
ekki um að keyra 20 kílómetra í
vinnuna þeir sem lengst eiga að
fara. Þrír bátar hafa lagt upp
rækju hjá fyrirtækinu og er sá
fjórði væntanlegur þá og þegar.
Aðallega hefur verið um að ræða
innfjarðarrækju og hefur aflinn
verið þetta tonn til tvö tonn á bát
úr hverjum róðri. Þetta eru frek-
ar litlir bátar eða 30, 40 og 60
tonna bátar. Einn túr hefur verið
farinn á úthafsrækju og fengust
þá 30 tonn, en síðan varð einn
báturinn að fara í slipp.
Að sögn Konráðs hefur mann-
lífið á Brjánslæk verið með ein-
dæmum gott í sumar. Fyrir
skömmu kom þangað íeikflokkur
úr Dölunum og hélt uppi stans-
lausri skemmtun í fimm tíma frá
kl. 20-03 um nóttina án þess að
taka sér hvfld. í hópnum voru sex
harmónikkuleikarar sem spiluðu
fyrir dansi og hefur annar eins
dansleikur ekki verið haldinn þar
um slóðir í langan tíma.
grh.
Krakkarnir [ Vinnuskóla Kópavogs stóðu fyrir skemmtun í Hlíðargerðisgarðin um i gær. Allur ágóði af veitingasölunni rennur til sumarbúða fatlaðra í þetta
skiptið. Þessi hátíð er nú orðin hefð í Kópavogskaupstað og íbúar kunna vel að meta framtak krakkanna. -gsv
ísafjörður
Mikil vinna í viðhaldi skipa
Skipasmíðastöð Marselíusarhlf: Stefnuleysi stjórnvalda ínýsmíði stálskipa. Verkkunnátta
og þekking ískipasmíðum að glutrast niður. Búið að gera samninga um nýsmíði30-40 skipa erlendis
iðngrein er alls ekki gömul í árum meira en 20 ára gömul og með ast fastlega við því að hún nái
talið hér á landi. Hún er ekki áframhaldandi stefnuleysi má bú- ekki þrítugsaldri," sagði Sævar.
Útflutningur
Islenskt til Kína
Arnþór Helgason hefur gert athugun ásamt Emil Bóassyni um aukin
viðskiptasatengsl við Kína. Arnþór Helgason: Kína æ mikilvægari markaður.
Þráinn Þorvaldsson, Útjlutningsráði: Kína ekki á dagskrá í bili
Símskeyti
eru ekki lengur borin út til viðtak-
anda heldur lesin fyrir hann í
síma. Óski menn eftir afriti af
skeytinu er hægt að sækja það á
viðkomandi pósthús eða láta
senda það til sín samdægurs og
borga 90 kr. fyrir þá þjónustu.
Sýslunefnd
Rangárvallasýslu hefur lýst ó-
ánægju sinni með þá seinkun
sem orðið hefur á áætlunum um
gerð nýrrar brúar yfir Markarfljót
og fullnaðar uppbyggingar veg-
arins að henni. Leggur nefndin
áherslu á að framkvæmdum
verði hraðað og brúin tekin í notk-
un árið 1990.
5 ár eru liðin
á morgun frá því að Arnarflug hóf
áætlunarflug til Evrópu, en nú
flýgur Arnarflug í áætlun til
þriggja borga í Evrópu; Amster-
dam, Zurich og Hamborgar.
Ari Garðar
Georgsson
hefur verið ráðinn yfirmatreiðslu-
meistari Sjallans og Hótel Akur-
eyrar. Veigamiklar breytingar
hafa verið gerðar í eldhúsi Sjal-
lans og er veitingastaðurinn nú í
stakk búinn til að afgreiða mat
fyrir 500 manns á 25 mínútum.
Náttúru-
lækningafélagið
verður fimmtugt á sunnudaginn.
Félagið var stofnað á Sauðár-
króki af Jónasi Kristjánssyni
lækni og fleirum en hvatamaður
að stofnun þess var Bjöm Krist-
jánsson stórkaupmaður. Félagið
rekur nú heilsuhæli í Hveragerði
og pöntunarfélag og verslun í
Reykjavík.
Hafsbotnsréttindi
(slendinga í hafinu norður og
austur af landinu hafa verið í at-
hugun hjá utanríkisráðuneytinu
og utanríkismálanefnd Alþingis.
Niðurstöður benda til að ásamt
Norðmönnum og Dönum fyrir
hönd Grænlendinga geti (slend-
ingar gert tilkall til víðáttumikilla
hafsvæða á þessum slóðum.
Hefur ráðuneytið óskað eftir
samráði við Norðmenn og Dani
um réttargæslu á svæðinu.
Stuðkompaníið
akureyska hljómsveitin sem
kom, sá og sigraði í Músíktil-
raunum ‘87 með glæsibrag gefur
í dag út sína fyrstu plötu sem inni-
heldur fjögur ný lög. Stuð-
kompaníið kemur til höfuðborg-
arinnar í dag og heldur hljómleika
á Lækjartorgi.
Púltímar
fyrir konur og karla er eitt af því
sem boðið er uppá í nýju æfinga-
stúdíói sem tekið hefur til starfa
við Furugrund í Kópavogi. Það er
Sigríður Guðjohnsen danskenn-
ari sem rekur stúdíóið.
Vinningsnúmer
í stuðningshappdrætti Kvenna-
listans sem dregið var í 30. júní sl.
er 623 og er eigandinn beðinn að
hafa samband viö skrifstofu
Kvennalistans í síma 13725 á
Hótel Vík.
að er búið að vera ansi mikið
að gera hjá okkur í Skipa-
smíðastöð Marselíusar h/f undan-
farið eitt og hálft ár í viðgerðum
og viðhaldi skipa, en minna farið
fyrir nýsmíðinni, sagði Sœvar
Birgisson framkvæmdastjóri við
Þjóðviljann.
Þessa dagana er verið að vinna
að nýsmíði 130 brúttólesta skips
fyrir Rækjuverksmiðjuna h/f í
Hnífsdal, sem verður afhent
eigendum í haust. Einnig er að
hefjast smíði á 9,9 tonna bát.
Að sögn Sævars háir stál-
skipasmíðinni mjög mikið það
stefnuleysi sem virðist ríkja með-
al stjórnvalda í garð skipasmíða-
stöðva almennt. Á meðan ís-
Ienskar skipasmíðastöðvar fái
eitt og eitt verkefni til nýsmíða sé
verið að smíða eða búið að gera
samninga um nýsmíði skipa fyrir
íslendinga erlendis uppá 30-40
ný skip.
„Á meðan engin breyting virð-
ist vera í augsýn á sinnuleysi
stjórnvalda í garð þessa iðnaðar
má búast við því að öll verkkunn-
átta og þekking á smíði stálskipa
hverfi með öllu hér á landi. Og er
það mikill skaði þar sem þessi
Hugur manna hefur oft hvar-
flað til Kína, þegar rætt er um
nýja og hugsanlega markaði fyrir
íslenska framleiðslu. Við af-
réðum því að gera athugun á því
hvað það kostaði að brjóta sér
leið inn á kínverskan markað.
Þessi grein er ávöxtur af þeirri
athugun, sagði Arnþór Hclgason,
en nýlega birtist grein í tímaritinu
Austrið er rautt, eftir Arnþór og
Emil Bóasson, um möguleika ís-
lendinga til að hasla sér völl á
markaði austur í Kína.
- Vestræn fyrirtæki hafa und-
anfarið verið að átta sig á því að
mikilvægi Kína, sem markaðar
fyrir vestræna framleiðslu, er
alltaf að aukast. En þetta er erfið-
ur markaður. Menning Kínverja
er gjörólík vestrænni menningu
og þrátt fyrir markaðsstærðina,
er verðlag í Kína mjög lágt. ís-
lendingar ættu þó að geta gert sér
vonir um að komast inn á þennan
markað með lagni og þolinmæði.
Þar má ekki flana að neinu. Ég
reikna með því að tækniþekking
og hvers kyns hugvit sé það sem
við gætum helst boðið þeim til
kaups, sagði Arnþór Helgason.
- Kína er allavega ekki á dag-
skrá hjá okkur í dag. Við eigum
alveg fullt í fangi með að rækta
okkar viðskiptamarkaði í nág-
rannalöndunum. Ég held þó að
við verðum að hafa vakandi auga
fyrir auknu viðskiptasamstarfi
við Kínverja. Þeir hafa sýnilega
áhuga, sagði Þráinn Þorvaldsson,
framkvæmdastjóri Útflutnings-
ráðs.
Þráinn, sagði að þegar hefðu
íslendingar nokkur viðskiptas-
amskipti við Kína. - Þar ber nátt-
úrlega hæst jarðhitarannsóknir
og virkjanir sem við höfum getað
leiðbeint þeim við, sagði Þráinn
Þorvaldsson.
-RK
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3