Þjóðviljinn - 03.07.1987, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 03.07.1987, Blaðsíða 5
Fjórhjól skemma Eyjólfur, Jón, Einar og Kristjánfjórhjól- akappar: Hjólin eru hœttuleg. Það á að vera skylda að nota hjálm. Henta bestá veturna. Hœgtað nota þau sem dráttar- tœki. Þeirsemaka hjólunum skemma. Bann er ekki rétta að- ferðin. Viðþurfum jákvæðan áróður „Það er engin lausn að banna umferð fjórhjóla alfarið. Það eru ekki þau sem skemma. Það eru mennirnir sem stjórna þeim alveg á sama hátt og þeir stjórna jepp- um og öðrum farartækjum. Ef á að fara banna umferð þeirra þá mætti nú banna ýmislegt fleira t.d. byssur, mótorhjól og snjó- sleða svo eitthvað sé nefnt,“ sögðu þeir Eyjólfur Bragason, Kristján Vídalín, Jón R. Sig- mundsson og Einar Tryggvason Qórhjólaeigendur í samtali við Þjóðviljann. Þjóðviljanum lék forvitni á að vita hvaða augum hinn almenni fjórhjólaeigandi liti þá umfjöllun sem verið hefur að undanförnu um þetta nýja farartæki. Eins og flestum er kunnugt hafa menn miklar áhyggjur af því hvernig ökumenn fjórhjólanna hafa farið með landið. Nokkur sveitarfélög hafa bannað umferð þeirra alveg. Við lögðum því nokkrar spurn- ingar fyrir þá félaga. Náttúruunnendur Hvenœr fenguð þið ykkur fjór- hjól og hvers vegna? „Við keyptum allir hjól í des- ember á síðasta ári og ástæður fyrir kaupunum eru eflaust marg- þættar. Við höfum allir áhuga á farartækjum almennt og höfum mikinn áhuga á útivist hvers kon- ar“. Hvað skipti mestu máli þegar þið völduð ykkur hjól? „Við völdum okkur allir hjól í því skyni að geta ferðast á þeim og jafnframt að geta notað þau til dráttar og flutninga. Okkar hjól eru með drif á öllum og hafa góð- an togkraft í lágum snúningi og þess vegna valda þau síður skemmdum en tveggja hjóla drifið. Vélaraflið er um 25 hestöfl og þau komast upp í 80 km hraða á klst“. Allir í sportinu Er þetta farartœki eins konar framhald af einhverju öðru hjá ykkur? Eyjólfur: „Já, mér finnst þetta vera framhald af skíðaiðkun minni á veturna enda notum við hjólin að mestu leyti þá. Ég sé miklu meira, yfirferðin er meiri og ég kynnist landinu betur. Annars hef ég að mestu leyti smitast af félögum mínum“. Jón: „Ég hef alla tíð verið með ólæknandi tækjadellu. Átti fjöl- damörg vélhjól og jeppa og hellti ekki Eyjólfur Bragason leyfði dóttur sinni að setjast á fjórhjólið til myndatöku upp í Brekkuskógi í Biskupstungum en þangað fór hann með það í helgarfrí um daginn. Mynd: GSv. Einar sem vinnur líka við trjá- rækt upp í MosfeIlsdaI:„Við not- um fjórhjól til þess að flytia plöntur og í ýmislegt snatt við trjáræktina. Það er mjög hentugt til snúninga hjá okkur“. Strangari reglur Hvað finnst ykkur um þá reglu- gerð sem er ígildi um fjórhjólin? „Við viljum að það komi skýrt fram að þetta eru hættuleg tæki. Það á að skylda alla til að nota hjálm og bílpróf á hiklaust að vera það skilyrði sem menn þurfa til að fá að aka hjólunum. Gróf- munstruðu dekkin sem flutt eru inn með hjólunum valda auðvit- að meiri skemmdum ef þau eru notuð í spyrnu. Samkvæmt reglu- gerðinni gilda sömu reglur um umferð fjórhjóia og annarra far- artækja utan vega. Jeppasportið hefur mikið færst yfir á vetrartím- ,ann og fjórhjólasportið verður að gera það líka. Öllum finnst slæmt að vera alltaf í órétti og eðlilegast væri að hjólunum mætti aka á al- mennum og fáförnum vegaslóð- um eins og öðrum tækjum." Þarf jákvœðan áróður Hvernig á að taka á þeim vand- amálum sem fylgja innflutningi á fjórhjólum? „í fyrsta lagi teljum við félag- arnir að það sé skylda innflytj- enda að upplýsa kaupendur um þær hættur sem fylgja notkun þeirra og tjónið sem þau geta valdið á landinu. Okkur finnst það eðlilegt að Landvernd eða önnur samtök svipuð tækju að sér að vinna upp slíkan fræðslubæk- ling í samvinnu við innflytjendur. I öðru lagi þarf að halda upp jákvæðum áróðri fyrir meðferð hjólanna. Umfjöllunin hefur ver- ið núna nákvæmlega eins og hún var um okkur jeppamennina á sínum tíma og menn hættu að haga sér illa á þeim þegar umræð- urnar voru komnar á ákveðið stig. Notkun fjórhjólanna á fyrst og fremst að vera bundin við vetrar- tímann, þá henta þau best og valda ekki skemmdum. Við höf- um farið í margar fjallaferðir á veturna og svo notar maður hjól- ið náttúrlega á rjúpnaveiðum. Maður kemst fyrr á staðinn og ekki sakar þó auð svæði komi inn á milli. Það atriði takmarkar notkun snjósleðans. Þegar frost fer úr jörðu þá er viðkvæmasti tíminn og leggj a ber áherslu á það í áróðrinum jafnvel setja tíma- bundið bann á umferð þeirra. Við erum helst á því að láta tækin liggja að mestu yfir sumartí- mann, þó kitlar það svolítið að fara í eina hálendisferð“. Þeir þurfa útrás Hvar eiga spyrnustrákarnir að vera? „Hliðarklúbbar innan B.I.K.R. sem er félag áhuga- manna um bílaíþróttir hljóta að geta tekið þessa spyrnustráka að sér og skipulagt keppni fyrir þá. Þeir þurfa að fá útrás fyrir hest- öflin og það hlýtur að vera hægt að beina þeim inná ákveðnar brautir. Ef leyfi til þess að aka þessum tækjum verður takmark- að við bflpróf og spól- og spyrn- ustrákum verður gefinn kostur á því að keppa á lokuðum svæðum þá losnum við við skemmdirnar að mestu leyti,“ sögðu þeir fé- lagar að lokum. -GSv Fjórhjólaáhugamennirnir Kristján Vídalín, framkvæmdastjóri, Eyjólfur Braga- son, arkitekt, Jón R. Sigmundsson, byggingatæknifræðingur og Einar Tryggvason, arkitekt upp á þaki vinnustaðar síns við Ármúla 1 í Reykjavík. Mynd: E.ÓI. mér síðan út í rallýakstur en er nú hættur því að mestu leyti. Ég tel þetta beint framhald af allri þess- ari véladellu og svo auðvitað spil- ar útivistin og fjallamennskan inn f. Kristján: „Ég hef ferðast mikið á jeppum um landið. Ég fer alltaf í lax- og silungsveiði og á rjúpn- askytterí og fjórhjólið er beint framhald af allri þessari útivist". Einar: „Ég var lfka mikill jeppamaður frá upphafi og ég man eftir því að jepparnir voru mjög umdeildir áður, ekki ósvip- að því sem fjórhjólin eru nú. Eg er eins og félagar mínir sportitjót og maður kemur nálægt nánast hverju sem er“. Dregur eitt tonn Nýtist fjórhjólið ykkur öðruvísi en sem ferðatæki? Kristján sem er framkvæmda- stjóri trésmiðjunnar Mosfells: „Við getum notað hjólið sem dráttartæki enda dregur það um eitt tonn. Við notum það til að flytja timbur á milli bygginga hjá okkur". Föstudagur 3. júlí 1987 .ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.