Þjóðviljinn - 03.07.1987, Qupperneq 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími1
681348
Helgarsími
681663
þjómnuiNN
Föstudagur 3. júlí 1987 141. tölublað 52. örgangur
4 LEON
AÐFARS€LLI
SKÓLACÖNCU
SAMVINNUBANKi
ÍSLANDSHF
Sjálfstœðisflokkurinn
Forystan heillum horfin
^ Kópavogsuppreisnin heldur áfram.
Bragi Mikaelsson bœjarfulltrúi: Völdum við ranga forystumenn?
Dómur kjósenda er ótvíræður,
þeir töldu að forysta okkar
væri ekki traustsins verð, segir
Bragi Mikaelsson bæjarfulltrúi
Sjáifstæðisflokksins í Kópavogi í
nýjasta tölublaði „Voga“, þarsem
haldið er áfram að ræða vanda
Sjálfstæðisflokksins þrátt fyrir
umvandanir frá æðstu stöðum í
flokknum.
„Spurningin sem ofarlega er á'
baugi í dag er þessi: Er forysta
Borgarfjörður eystri
Á áætlunar-
kortið
Fjörðurinn er að
verða vinsœll
ferðamannastaður
Aþriðjudaginn hóf Austfjarða-
leið hf. áætlunarferðir til
Borgarfjarðar eystri en þangað
hefur ekki verið haldið uppi áætl-
un með bifreiðum um langt skeið.
Meiningin er að Borgarfjarðar-
ferðirnar verði einu sinni í viku í
sumar, á þriðjudögum. Farið er
frá Neskaupstað sem leið liggur
um Eskifjörð og Reyðarfjörð til *
Egilsstaða og þaðan til Borgar-
fjarðar, þar sem gerður er þrig-
gja tíma stans áður en haldið er til
Egilsstaða aftur.
í fyrstu ferð Austfjarðaleiðar
' hf. á þriðjudaginn var leiðsögu-
maður með í för og er sá mögu-
leiki alltaf fyrir hendi ef um góða
aðsókn í ferðin’a er að ræða.
Leiðin til Borgarfjarðar er mjög
fögur og á köflum hrikaleg og á
Sjálfstæðisflokksins heillum
horfin eða hvað er að gerast?“
skrifar Bragi. „Síðastliðið vor
héldum við Sjálfstæðismenn
glæsilegan Iandsfund og kusum
þar forystu sem allir virtust
ánægðir með. Það var svo ekki
fyrr en eftir þingkosningarnar
sem menn vöknuðu og töldu þá
margir að forystan væri heillum
horfin, hefði brugðist hlutverki
sínu og klúðrað málum. Kjósend-
Borgarfirði er einnig margt sem
gleður augu ferðamanna. Þar er
vinsælt að skoða verksmiðju
Álfasteins hf. sem framleiðir list-
og skrautmuni úr íslensku grjóti
ur eru sá hópur sem dómsvaldið
hefur í málum þessum, og dómur
þeirra var ótvíræður, þeir töldu
að forysta okkar væri ekki
traustsins verð.“
Forysta flokksins „má ekki
loka sig af í neinskonar ffla-
beinsturni í Valhöll og gleyma
sínum raunverulegu umbjóðend-
u,m“ segir Bragi og spyr hvort
landsfundarfulltrúar hafi haft „á
réttu að standa er þeir kusu þá
og hafa vinsældir þeirrar fram-
leiðslu vaxið jafnt og þétt á liðn-
um árum.
Hlífar Þorsteinsson hjá
Austfjarðaleið sagðist vonast til
Þorstein og Friðrik til forystu á
vordögum“.
í síðasta tölublaði Voga var
fjallað í hreinskilnum dúr um
kosningaúrslitin og segir í leiðara
blaðsins nú að viðbrögð hafi ver-
ið mikil. Flestir viðmælenda
blaðsins hafi lýst sig fylgjandi
þeim sjónarmiðum sem fram
komu, en úr Valhöll hafi borist
gagnrýnisraddir, svo og frá
Morgunblaðinu. -m
að þessi tilraun gæfi góða raun,
enda væri Borgarfjörður orðinn
mjög vinsæll viðkomustaður fýrir
ferðamenn, jafnt innlenda sem -
erlenda. hb.
Skák
Jóhann til
Búdapest
Þröstur
Þórhallsson og
Hannes Hlífar til
Filippseyja
rír íslenskir skákmeistarar
fara á sterk skákmót erlendis
upp úr miðjum júlímánuði. Jó-
hann Hjartarson stórmeistari fer
til Ungverjalands á millisvæða-
mót sem haldið er rétt utan við
Búdapest. Mótsstaðurinn er hót-
elkastali sem nefnist Zsirák. Tefl-
dar verða 17 umferðir og lýkur
mótinu ekki fyrr en 11. ágúst.
„Árangur minn á síðasta
svæðamóti tryggði mér þátttöku í
þessu móti sem er liður í
heimsmeistarakeppninni. Þetta
er geysisterkt mót og meðal þátt-
takenda eru Ljubojevic, Beljav-
sky, Portisch, Nunn og Christi-
ansen svo einhverjir séu nefnd-
ir,“ sagði Jóhann Hjartarson.
Þröstur Þórhallsson og Hannes
Hlífar Stefánsson fara á
heimsmeistaramót yngri skák-
meistara sem haldið verður á Fil-
ippseyjum 18. júlí -3. ágúst. Þar
verða tefldar 13 umferðir og
margir bestu skákmenn yngri
kynslóðarinnar munu leiða sam-
an hesta sína. - gsv.
Borgaraflokkurinn
Lands-
fundur
Unnið að stofnun
kjördœmisráða um
allt land í sumar
Úr verksmiðju Álfasteins hf. á Borgarfirði, þar sem framleiddir eru list- og skrautmunir úr íslensku grjóti. (mynd: hb.'
Sláturhúsin
Meirihluti á undanþágum
Sláturhúsanefnd villfœkka sauðfjársláturhúsum Úr49íl8á
næstufimm árum. Langmestfœkkun áAusturlandi
Sauðfjársláturhús í landinu eru
þrjátíuogeinu of mörg ef
marka má niðurstöður nefndar
sem falið var að kanna rekstrar-
grundvöll sláturhúsanna og gera
tillögur um hagræðingu í rekstri
þeirra. Auk þess uppfyllir aðeins
minnihluti sláturhúsa þau skil-
yrði sem heilbrigðisreglur gera
ráð fyrir.
Nefndin var skipuð af landbún-
aðarráðherra árið 1985 og skilaði
niðurstöðum sínum í ítarlegri
skýrslu til ráðherra fyrir
skömmu.
í frétt frá ráðuneytinu segir að
sláturhús í landinu hafi verið 49
talsins í fyrra. Nefndin leggur
hins vegar til að þeim verði fækk-
að niður í 18 á næstu fimm árum
og myndi nýting þeirra sem eftir
stæðu þá aukast verulega. Slátr-
un í húsunum 18 myndi þá aukast
um 40% að mati nefndarinnar og
\
meðalnýtingartími húsanna
myndi lengjast úr 19 dögum í 26.
Ef farið væri að tillögum
nefndarinnar myndi sláturhúsum
á Norðurlandi fækka úr 11 í 5, á
Austurlandi úr 13 í 3, á Suður-
landi úr 10 í 4, á Vesturlandi úr 6 í
2 og á Vestfjörðum úr 9 í 4. Lang-
mest yrði fækkunin á Austur-
landi.
Meirihluti húsanna er sem fyrr
segir rekinn á undanþágum frá
heilbrigðisyfirvöldum og er talið
að nauðsynlegar lagfæringar á
þeim myndu kosta hundruð
milljóna króna.
Skýrsla nefndarinnar verður
lögð fyrir alþingi í haust, þegar
fjallað verður um lög um slátur-
hús og sláturleyfi.
-gg
Akveðið hefur verið að halda 1.
landsfund Borgaraflokksins á
Hótel Sögu 25. og 26. september f
haust.
í næstu viku verður haldinn
undirbúningsfundur fyrir stofnun
kjördæmisráðs á Vesturlandi v
Borgarnesi og stofnfundur kjör-
dæmisráðs Borgaraflokksins á
Norðurlandi vestra verður á
Blönduósi 11. júlí.
Kosning kjördæmaráða í öðr-
um landshlutum er þegar í undir-
búningi en þegar hefur verið
gengið frá stofnun kjördæmis-
ráðs á Reykjanesi og Norður-
landi eystra og auk þess stofnað
sérstakt flokksfélag í Reykjavík.
-lg-
Byggingarnefnd
Dýr mistök við Seiðakvísl
850þúsund í bœturfrá borginni vegna stœrðar
nágrannahússins. Varaformaður byggingarnefndar teiknaði
Borgarráð hefur ákveðið að
greiða eiganda hússins við
Sciðakvísl númer 5 850 þúsund
krónur í bætur vegna þeirrar á-
kvörðunar byggingarnefndar að
heimila nær helmingi stærri
byggingu en upphaflega var áætl-
uð á lóðinni við hliðina, Seiða-
kvísl 7.
Eigandi Seiðakvíslar 5 kvart-
aði yfir stærð nágrannahússins í
maí árið 1985 og fór þá fram á að
borgin keypti hús hans, en
greiddi honum ella 1,7 milljónir í
bætur. í síðustu viku ákvað borg-
arráð að greiða honum 850 þús-
und krónur í bætur. Bóta-
greiðslan var samþykkt sam-
hljóða, en Sigurjón Pétursson
taldi greiðsluna of háa og sat því
hjá við atkvæðagreiðsluna.
Athygli vekur að sjálfur vara-
formaður byggingarnefndar,
Gunnar Hansson, teiknaði húsið
við Seiðakvísl 7 og fékk teikning-
ar sínar samþykktar í byggingar-
nefnd fyrirhafnarlaust.
-gg