Þjóðviljinn - 16.07.1987, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 16. júlí 1987 152. tölublað 52. árgangur
ASÍ/VSÍ
Rauða strikið brotið
Verðhœkkanir 1. maítill. septembersagðar5V2%.
Ásmundur Stefánsson: Líklegtað launahœkkanir 1. október verði7V2%.
Þórarinn V. Þórarinsson: Þarf að skoða kaupmáttinn líka.
Hagdeild ASI spáir því að verð-
hækkanir á tímabilinu frá 1.
maí til 1. september séu um SVi%
fram yfir rauða strikið. í samn-
ingum ASÍ er gert ráð fyrir lVi%
kauphækkun 1. október og að
sögn Ásmundar Stefánssonar
forseta ASÍ má því gera ráð fyrir
þvf að launahækkanir þá verði
um 7Vi%. Miðað við þessar for-
sendur verður verðbólgan á árinu
um 21%.
Að sögn Ásmundar eru verð-
hækkanir í dag komnar 2% yfir
það sem gert var ráð fyrir að vísi-
talan yrði 1. september og gert er
ráð fyrir að hækkkun vegna mat-
arskattsins verði 1,2%. Pá væru
komnar ýmsar hækkanir á opin-
bera þjónustu sem leiddu jafn-
framt til umframhækkunar. „Það
eru ýmsar skýringar á þessum
umframhækkunum og e.t.v. er
mikilvægasta skýringin sú mikla
Loðnan
Minni
kvóli
Upphafstalan 500
þúsund lestir, 800 í
fyrra. Byggtá
ónákvœmum
mœlingum og
endurskoðað íhaust.
Engin íslenskskip
farin á veiðar
Heildarloðnukvótinn á loðnu-
vertíðinni sem hófst nú um miðj-
an mánuð hefur verið ákveðinn
500 þúsund lestir, og er hlutur
íslendinga 417 þúsund lestir tæp-
ar. Þetta er 300 þúsund lestum
minna en samsvarandi tölur í
fyrra.
Ekki hafa náðst samningar við
Grænlendinga og skiptist kvótinn
því á milli Norðmanna og íslend-
inga þannig að Norðmenn fá
15%, og rúmlega 8 þúsund lestir
að auki til leiðréttingar frá í fyrra.
Heildarkvótinn verður endur-
skoðaður í októberlok. í fyrra var
heildarkvótinn ákveðinn 800 þús-
und lestir í júlí, en heildarafli ís-
lendinga reyndist orðinn 1340
þúsund lestir þegar upp var stað-
ið í apríl.
Jón B. Jónasson skrifstofu-
stjóri í sjávarútvegsráðuneytinu
sagði í gær að búastmætti viðtals-
verðri hækkun íhaust. Kvótatal-
an nú sé byggð á mælingum sem
gengu illa og skiluðu því ekki
nægilega marktækum niðurstöð-
um. Þó bendir ýmislegt til þess að
stofninn nú sé minni en á síðustu
vertíð, sem var metvertíð.
Norðmenn eru þegar komnir á
miðin, en ekkert íslenskt loðnu-
skip hefur enn lagt úr höfn, með-
al annars vegna þess að þau eru
flest enn á rækju. -m
þensla sem verið hefur í efna-
hagslífinu í sumar,“ sagði Ás-
mundur.
Þórarinn V. Þórarinsson fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitenda-
sambandsins sagði að óvíst væri
hvort launahækkunin 1. október
yrði 7 1/2% eins og ASÍ spáir. í
forsendum launanefndar verði
horft til þróunar kaupmáttar og
æði margt bendi til þess að
kaupmáttur hafi aukist miklu
meira en reiknað var með í upp-
.hafi ársins.
Ýmsar breytingar gætu orðið
fýrir 1. október, en ljóst er nú að
samningaviðræður landssam-
banda ASÍ og VSÍ hefjast í ág-
ústmánuði þrátt fyrir ágreining
aðila vinnumarkaðarins um það
hvaða leiðir skuii fara í samning-
unum. Ásmundur Stefánsson ít-
rekaði að samböndin myndu
leggja áherslu á það að fá núgild-
andi samninga endurskoðaða
áður en gengið yrði til samninga
fýrir árið 1988. Þórarinn V. Þór-
arinsson kvað illmögulegt annað
en að semja við samböndin í ein-
um pakka en Þórarinn var engu
að síður bjartsýnn á að hægt yrði
að ná samkomulagi.
-K.Ól.
Fœreyjar
Friðhelgin
rofin
Mikil ólga ríkir í Færeyjum
vegna þeirrar óvirðingar sem
danska stjómin sýnir þjóðinni
með því að veita bandaríska her-
skipinu USS McCloy leyfi til að
leggjast að bryggju í Þórshöfn, en
skipið er granað um að hafa
kjarnorkuvopn innanborðs.
Leyfið brýtur í bága við yfirlýs-
ingu færeyska Lögþingsins um
Færeyjar sem kjamorkuvopna-
laust svæði.
Sjá opnu
Laugavegur
Mánuður
eftir
Miklar framkvæmdir hafa nú
staðið yfir á Laugaveginum um
nokkurt skeið en upphafleg tíma-
mörk á verkinu voru sett á 1. ág-
úst. Nú eru hins vegar líkur á að
verkinu Ijúki um 10. ágúst sam-
kvæmt upplýsingum frá gatna-
máladeild Reykjavíkurborgar.
Að framkvæmdum stendur
fyrirtækið Víkurverk hf. og hafa
þær gengið þokkalega en ein-
hverjar tafir þó orðið. Alls munu
þessar framkvæmdir kosta um 20
milljónir en tilboð Víkurverks
hljóðaði uppá 11,1 milljón.
Reykjavíkurborg leggur til hita-
lögn í akbraut og bflastæði en
eigendur verslana leggja slíka
lögn í gangstéttir. Borgin leggur
til allt efni í verkið svo sem granít
í kanta og steypta steina í akb-
raut, hellur í gangstétt og fleira.
- gsv.
Á Laugavegi: Innan skamms fá
gangandi vegfarendur að njóta
sín betur f mestu verslunargötu
bæjarins en að undanförnu.
Mynd: Ari.
Blönduós
Pokadraumurinn rætist
Draumurinn er orðinn að veru-
leika, sagði Örn Friðriksson
framkvæmdastjóri stórpoka-
verksmiðjunnar Serkja hf. á
Blönduósi, en á næstu dögum
verður verksmiðjan opnuð og full
framleiðsla fer í gang.
Serkir hf. verður fyrsta fyrir-
tækið á íslandi sem framleiðir
stóra bréfpoka, en fram til þessa
hafa þau fjölmörgu fyrirtæki sem
notast við þá keypt þá inn að
utan. Örn sagði að bréfpokarnir
frá Serkjum yrðu á svipuðu verði
og þeir innfluttu, en kosturinn
fyrir bréfpokakaupendur yrði sá
að hægt væri að fá pokabirgðir
með mjög stuttum fyrirvara. Fyr-
irtækið hefur enn sem komið er
ekki gert samninga við kaupend-1
ur, en nokkur fyrirtæki hafa gefið
Serkjum vilyrði um kaup. Að
sögn Araar eru engin áform uppi
um að selja á erlendan markað,
en stflað er m.a. upp á kísilgúr-
inn, fóðurbætisframleiðendur,
sementsframleiðendur og fisk-
mjölsverksmiðjur.
Örn sagði að þessa dagana væri
verið að ganga frá prófun á nýju
vélunum og ekkert athugunar-
vert hefði komið í ljós. „Þær æla
pokunum út úr sér með sóma.“
Við framleiðsluna hjá Serkjum
munu starfa 5-7 manns. Að-
spurður um hvemig nafnið á
rirtækinu væri tilkomið sagði
ra: „Serkir eru umbúðir utan
um presta, þaðan er- það komið.
Ef til vill eigum við eftir að stfla á
prestamarkaðinn“. -K.ÓI.
Hvalamálið
Óvíst um iramhaldið
Viðræður íslenskra stjórnvalda
við bandaríkjastjórn vegna
vísindahvalveiðanna hefjast að
öllum Iflrindum næsta þriðjudag.
Til að liðka um fyrir viðræðunum
hafa stjórnvöld afráðið að stöðva
veiðarnar frá og með sunnu-
dagskvöldi, meðan á viðræðum
við Bandaríkjamenn stendur.
- Við töldum rétt að stöðva
veiðarnar frá og með næstu helgi
meðan á viðræðum stendur við
bandaríkjastjóra. Ég vil ekkert
tjá mig um það að svo stöddu
hvort áframhald verður á veiðun-
um í sumar, sagði Halldór Ás-
grímsson sjávarútvegsráðherra,
sem fer fyrir íslensku sendinefnd-
inni sem heldur vestur um haf á
þriðjudag.
Þær upplýsingar fengust hjá
Hval hf. í gær að þegar væri búið
að fanga 73 langreyðar af þeim 80
sem ráðgert væri að veiða á þessu
úthaldi. Tímabundin stöðvun
veiðanna kemur ekki að sök fyrir
Hval, þar sem veiðar á sand-
reyðinni hefjast ekki fyrr en síðla
sumars, en af tegundinni má
veiða 40 dýr. _rk