Þjóðviljinn - 16.07.1987, Qupperneq 15
ÍÞRÓTTIR
Staðan
f 1. deild karla
Valur 9 5 3 1 17-6 18
KR 9 4 4 1 16-6 16
(A 9 5 1 3 12-11 16
Þór 9 5 0 4 16-14 15
Fram 8 4 2 2 10-7 14
KA 9 3 2 4 7-8 11
ÍBK 9 3 2 4 15-20 11
Völsungur 8 2 3 3 9-10 9
Vlðir 9 0 6 3 4-12 6
FH 9 1 1 7 7-19 4
Markahæstir:
Sigurjón Kristjánsson, Vai.
HeimirGuðmundsson, (A......
Pétur Pétursson, KR.......
Björn Rafnsson, KR.........
Óli Þór Magnússon, (BK.....
Hörður Benónýsson, Völsung
Jónas Róbertsson, Þór.....
Kristján Kristjánsson, Þór.
HlynurBirgisson, Þór.......
Tryggvi Gunnarsson, KA....
HalldórÁskelsson, Þór.....
PéturOrmslev, Fram........
....5
....5
....5
....4
....4
....4
....4
....4
....4
....3
....3
....3
★
liðið
Tvær breytingar eru á Stjörnuliðinu sfð-
an f 8. umferð. Sævar Jónsson og Heimir
Guðmundsson koma inn í stað Þorsteins
Guðjónssonar og Sigurjón Kristjánssonar.
Stjörnuliðið eftir 9. umferð:
Birkir Kristinsson, (A (7)
Vilhjálmur Einarsson, Víði (6)
Sævar Jónsson, Val (6)
Guðni Bergsson, Val (7)
Ólafur Þórðarson, (A (5)
Andri Marteinsson, KR (6)
Gunnar Oddsson, (BK (9)
Pétur Ormslev, Fram (10)
Halldór Áskelsson, Þór(10)
Pótur Pótursson, KR (9)
Jón Grétar Jónsson, Val (8)
Staðan
1 2. deild
Vfkingur 9 9 6 5 1 1 2 3 18-12 12-6 19 16
|R 9 4 2 3 18-14 14
Þróttur 9 4 1 4 18-17 13
UBK 9 4 1 4 10-9 13
IBV 9 3 4 2 15-15 13
Selfoss 9 3 3 3 17-19 12
Einherji 9 3 3 3 10-14 12
KS 9 3 2 4 13-17 11
iBl 9 1 0 8 10-18 3
Markahæstir:
Heimir Karlsson, (R................10
Trausti Ómarsson, Vfking............9
BergurÁgústsson, (BV................6
HeimirBergsson, Selfossi............4
JónGunnarBergs, Selfossi............5
Páll Rafnsson, (R...................4
Kristján Davfðsson, Einherja........4
Sigfús Kárason, Þrótti..............4
HafþórKolbeinsson, KS...............4
Guðmundur Sighvatsson horfir liggjandi á eftir boltanum á leið í netið. Porsteinn Bjarnason getur ekkert að gert. Mynd:E.ÓI.
l.deild .
Framarar á uppleio
Framarar hafa sýnt að þeir
hafa fullan hug á að verja Islands-
meistaratitilinn. Þeir hafa leikið
vel í síðustu leikjum og í gær sig-
ruðu þeir Keflvíkinga
sannfærandi , 2-0 og eru nú að-
eins fjórum stigum á eftir Val og
eiga leik til góða.
Framarar voru sterkari aðilinn
í leiknum, en þeir Ragnar Mar-
geirsson og Einar Ásbjöm Ólafs-
son náðu sér ekki á strik gegn
sínum gömlu félögum.
Framarar náðu forystunni á 10.
mínútu á heldur ódýran hátt.
2. deild
Sigur hjá Selfossi
Selfoss-Víkingur 2-1 * * *
Selfyssingar virðast vera að vakna
til lífsins eftir langan svefn. Þeir sýndu
sinn besta leik í langan tima er þeir
sigruðu Vikinga.
Það voru ekki liðnar nema 25 sek-
úndur þegar boltinn lá í neti Víkinga.
Jón Birgir Kristjánsson skoraði eftir
þvögu.
Jón Bjami Guðmundsson jafnaði
svo fyrir Víkingana á 21. mínútu.
Trausti Ómarsson átti skot af löngu
færi. Hreiðar varði, en hélt ekki bolt-
anum og Jón Bjarni fylgdi vel á eftir.
Selfyssingar sóttu stíft að marki
Víkinga í fyrri háfleik og Jón Gunnar
Bergs átti m.a. skalla í stöng.
Síðari hálfleikur var einstefna að
marki Víkinga. Björn Axelsson átti
þrumuskot sem Jón Otti varði vel og
Heimir Bergsson átti góðan skalla, en
Jón varði aftur.
Jón Gunnar tryggði Selfyssingum
svo sigur á 73. mínútu. Hann fékk
góða sendingu frá Jóni Birgi og skor-
aði af öryggi með góðum skalla.
Selfyssingar sýndu sinn besta leik
til þessa oglyftu sér upp af botnihum.
Liðið var jafnt og allir áttu góðan
leik. Hjá Víkingum var það aðeins
Jón Otti Jónsson sem stóð uppúr.
Maður leiksins:Bjöm Axelsson,
Selfossi.
-gh
Viðar Þorkelsson gaf þá fyrir
mark Keflvíkinga. Þar var Guð-
mundur Sighvatsson og ætlaði að
hreinsa frá marki, en það" hepp-
naðist ekki betur en svo að bolt-
inn fór í hans eigið mark.
Keflvíkingar náðu aðeins að
koma inn í leikinn og á 26. mín-
útu munaði ekki miklu að þeim
tækist að jafna á sama hátt. Þor-
steinn Þorsteinsson ætlaði að
hreinsa frá, en hitti boltann illa
og hann straukst við stöngina
utanverða. Skömmu síðar átti
Peter Farrel gott skot rétt fram-
hjá. Pétur Ormslev átti svo gott
skot að marki Keflvíkinga, beint
úr aukaspyrnu, en Þorsteinn
varði vel.
Framarar voru sterkari í fyrri
hálfleik og sóttu heldur meira, en
gekk illa að skapa sér hættuleg
færi.
Síðari hálfleikurinn var heldur
jafnari. Sigurður Björgvinsson
átti gott skot sem Friðrik Frið-
riksson varði vel, en á 74. mínútu
kom annað mark Framara sem
gerði útum leikinn. Pétur Arn-
þórsson fékk sendingu innfyrir
vömina og skoraði af öryggi
framhjá Þorsteini Bjarnasyni.
Með þessu marki voru úrslitin
ráðin. Keflvíkingar náðu ekki að
ógna marki Framara, þrátt fyrir
að hafa reynt að lífga upp á sókn-
arleikinn undir lokin.
Framarar voru tvímælalaust
sterkari aðilinn í leiknum. Þeir
léku á köflum mjög vel og virðast
vera að ná sér á strik aftir slaka
byrjun. Þá vantar þó enn nokkuð
upp á að ná jafn góðum leik og
tryggði þeim titilinn í fyrra. Pétur
Ormslev átti mjög góðan leik og
stjórnaði leik liðsins og Friðrik
var öraggur í markinu. Þá var
Kristinn sterkur í vörninni.
Keflvíkingar hafa verið eins og
jó-jó. Átt góða leik og dottið þess
á milli niður á lægra plan. Þetta
var einn af þeim leikjum. Liðið
náði ekki nógu vel saman og
vömin oft á tíðum galopin. Peter
Farrel og Jóhann Magnússon
stóðu uppúr liði ÍBK og Þor-
steinn átti góðan leik í markinu.
-Ibe
ÍBK-Fram 0-2 (0-1) * *
Keflavikurvöllur 15. júlf
Dómari: Kjartan Ólafsson * *
Áhorfendur 1186
0-1 Guðmundur Sighvatsson sjálfsm.
(10.mfn), 0-2 Pétur Arnþórsson (74.
min)
Stjörnur ÍBK:
Peter Farrel *
Jóhann Magnússon »
Stjömur Fram:
Pétur Ormslev *
Friðrik Friðriksson *
Kristinn Jónsson *
l.deild kvenna
Valur á toppinn að nýju
2.deild
Ólafur skoraði tvö
UBK-Einherji 2-0 *
Biikar náðu að halda sér í toppbar-
áttunni með sigrí gegn Einherja í
grófum slagsmálaleik á Kópavogsvell-
inum 2-0.
Blikar byrjuðu leikinn af miklum
krafti og strax á fyrstu mínútum fengu
þeir vítaspymu eftir að Rögnvaldi
Rögnvaldssyni var brugðið inn í víta-
teig Einherja.
Jón Þórir Jónsson tók vítaspyrn-
una, en Hreggviður Ágústsson átti
ekki í miklum erfiðleikum með að
verja slakt skot hans.
Þorsteinn Geirsson átti hörkuskot
að marki Einherja á 12. mínútu en
Hreggviður varði örugglega.
Blikar slupppu með skrekkinn á
23. mínútu þegar Ámi Ólason átti
fast skot í þverslá Breiða-
bhksmarksins beint úr aukaspyrnu.
Tveim mínútum fyrir leikhlé kom
Ólafur Bjömsson Blikum yfir þegar
hann skallaði boltann af miklu öryggi
i mark Einherja.
Fyrstu mínútur síðari hálfleiks vom
þófkendar og mikill barátta ein-
kenndi leikinn.
Blikar fengu annað víti á 60. mín-
útu þegar boltinn hrökk í hendina á
einum vamarmanna Einherja.
Ólafur Björnsson skoraði með föstu
skoti Hreggviður náði að verja bolt-
ann, en skotið var það fast að hann
hélt honum ekki og inn fór boltinn.
Guðmundur Helgason komst í gott
færi á 87. mfnútu og þrumuskot hans
hafnaði í stöng Breiðablikmarksins.
Maður leiksins: Ólafur Björnsson
Breiðablik.
-Ó.St
Valsstúlkurnar endurheimtu
toppsæti sitt í 1. deild kvenna
með sanngjörnum sigri gegn ÍA,
2-1, í frekar döprum leik.
Leikur liðanna var ekki eins og
við var að búast af tveimur bestu
liðum deildarinnar.
Það var Ingibjörg Jónsdóttir
sem náði forystunni fyrir Val á
27. mínútu með góðu skoti af
stuttu færi.
Eftir markið sóttu Skagastúlk-
umar stíft, án þess að ná að skapa
sér hættuleg færi. Ragnheiði
Jónsdóttur tókst þó að jafna rétt
fyrir leikhlé. En það var
skammgóður vermir. Ingibjörg
Jónsdóttir bætti öðru marki sínu
við á 56. mínútu. Valsstúlkurnar
voru svo heldur sterkari það sem
eftir var leiksins og héldu fengn-
um hlut.
Þessi sigur Vals var mjög mikil-
vægur, enda virðast Skagastúlk-
umar vera skæðustu keppinautar
þeirra í baráttunni um íslands-
meistaratitilinn.
Guðrún Sæmundsdóttir og
Ingibjörg Jónsdóttir voru bestar í
liði Vals. Skagastúlkurnar áttu
frekar slakan leik og engin sem
stóð upp úr liði þeirra.
Sta&an i 1. deild kvenna:
Valur.........8 6 2 0 19-3
ÍA .... 8 6 1 1 17-4 16
Stjarnan .... 7 5 0 2 11-7 15
KR 7 3 1 3 7-4 10
Ibk 6 2 1 3 5-12 7
KA 8 1 2 5 6-15 5
UBK 6 1 1 4 5-12 4
Þór 6 0 0 6 2-15 0
20
-MHM
2. deild
Skæðir Leiftursmenn
Unnu öruggan sigur gegn Þrótti
Leiftur-Þróttur 3-0 * *
Leiftursmcnn unnu öruggan sigur á
slöku liði Þróttar á Ólafsfirði 3-0.
Jafnræði var með liðunum á fyrstu
mínútum en Leiftursmenn skoruðu
fyrsta markið á 10. mínútu. Þá gaf
Steinar Ingimundarson góða send-
ingu á bróður sinn Óskar sem skoraði
með föstum skalla.
Á 30. mfnútu fengu Leiftursmenn
vítaspymu. Þá var brotið á Gústaf
Ómarssyni sem tók spymuna sjálfur
og skaut í stöng. Dómarinn lét endur-
taka spymuna. Þá tók Sigurbjöm
Jakobsson spymuna og skoraði ör-
ugglega.
Leifturmenn gáfu eftir miðjuna í
síðari hálfleik og sóttu Þróttarar þá
mjög í sig veðrið. Á 75. mín. skall
hurð nærri hælum við Leiftursmarki
en einn vamarmanna Leifturs bjar-
gaði á línu eftir þunga sókn Þróttara.
Leiftursmenn gerðu loks út um
leikinn þegar 10 mínútur voru til
leiksloka. Halldór Guðmundsson
fékk boltann á auðum sjó inni í miðj-
um vítateig Þróttar og skoraði af
miklu öryggi.
Maður leiksins:Halldór Guð-
mundsson, Leiftri.
-jh
Mi&vikudagur 15. júlf 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15