Þjóðviljinn - 17.07.1987, Side 1
Föstudagur 17. júlí 1987 153. tölublað 52. örgangur
Sœngurkonur
Heim á þriðja degi
Þunguðum konum gert aðvart um að þœr verði e. t. v. sendar heim á
þriðja eðafjórða degi eftirfœðingu. Dóra Halldórsdóttir: Gœti komið
tilframkvæmda íágúst. Konur bregðastilla við aðvöruninni
Sængurkonur verða að vera
viðbúnar því að verða sendar
heim á þriðja eða fjórða degi eftir
fæðingu, en þungaðar konur hafa
f sumar fengið slíka aðvörun áður
en þær leggjast á sæng.
Dóra Halldórsdóttir deildar-
hjúkrunarfræðingur á fæðingar-
deild Landspítalans sagði í sam-
tali við Þjóðviljann að enn sem
komið væri hefði ekki þurft að
senda konur heim fyrr en á
fimmta degi, en líkur væru á að í
ágústmánuði yrðu konur sendar
heim fyrr vegna skorts á ljósm-
æðrum. Ágústmánuður væri
mjög erfiður vegna þess að það
væri vinsæll sumarleyfismánuður
og júlímánuður væri erfiður
vegna þess að á þeim tíma er
Fæðingarheimilið við Eiríksgötu
lokað. Dóra sagði enn fremur
að viðbrögð kvenna við aðvöru-
ninni væru yfirleitt mjög hörð, en
markmiðið væri að upplýsa kon-
ur um stöðuna þannig að fjöl-
skyldur gætu verið betur undir
það búnar að móðir og bam
kæmu heim fyrir lok áætlaðrar
spítalavistar.
„Ég dvaldist 4 daga á spítalan-
um eftir f æðinguna og f annst spít-
alavistin of stutt miðað við ástand
mitt. Þó er ég ung og í góðu
líkamlegu ástandi,“ sagði Alda
Lóa Leifsdóttir, ein af hinum ný-
bökuðu mæðrum sem Þjóðviljinn
talaði við í gær. Það er því ljóst að
jafnvel 5 daga spítalavist getur í
mörgum tilfellum, sérstaklega ef
um bammargar konur er að
ræða, verið of stutt. Hvað þá
þriggja daga vist!
-K.Ól.
Ferðalög
Hjólakappinn
í bæinn
Hinti sjötugi Jón Kristinsson
lýkurferð sinnifrá A kureyri á
Lækjartorgi í dag.
Um fjögurleytið f dag kemur
Jón Kristinsson hjólandi niðrá
Lækjartorg eftir vikuferð frá Ak-
ureyri.
Jón hefur á leið sinni safnað
áheitum og verður fénu varið til
byggingar hjúkrunarheimilis
fyrir aldraða á Ákureyri, Sels 2.
Jón er væntanlegur að Elliða-
ánum klukkan hálffjögur, og
hvetja félagar Jóns hjólreiða-
menn til að verða honum sam-
ferða niðrá torg.
Þar tekur borgarstjóri eða full-
trúi hans á móti Jóni og fær í
hendur minningargrip um þetta
frækilega ferðalag. _m
HP-könnun
Misheppnaö
ráðherra-
val
Ráðherraval
Sjálfstœðisflokksins
nýtur lítils stuðnings.
55% með stjórninni,
63% halda að hún endist
ekki
Minnihluti þeirra sem afstöðu
tóku í nýrri skoðanakönnun
HP og Skáíss er ánægður með
ráðherra Sjálfstæðisflokksins f
nýju ríkisstjórninni. Ráðherraval
Alþýðuflokks og Framsóknar
hefur meiri byr, tæp 70 prósent
segjast ánægð með þá liðsskipan.
Lítill meirihluti styður nýju
stjórnina, 54,6% þeirra sem tóku
afstöðu, 45,4% styðja hana ekki.
Stjómarflokkamir þnr fengu
samtals 61,3% í apnikosningun-
um, og virðast ellefumenningam-
ir í stjómarráðinu ekki njóta
mikilla hveitibrauðsdaga meðal
almennings.
Tæplega tveir þriðju halda að
ríkisstjómin sitji ekki út kjör-
tímabilið, 63%, en 37% telja að
stjórnin sitji sín fjögur ár.
Könnunin var gerð á föstudegi
og laugardegi, og ekki náðist í 44
prósent úrtaksins. Af þeim sem í
náðist vildu 37% ýmist ekki svara
eða vom ekki vissir um afstöðu
sína til stjómarinnar.
Fáskrúðsfjörður
Deilt um
fiskverð
Mikil deila er uppi á milli sjó-
manna og útgerðarmanna á Fá-
skrúðsfirði um flskverð og liggja
allir bátar og togarar á Fáskrúðs-
firði í höfn vegna deilunnar.
Fundur sjómanna og útgerðar-
manna um fiskverðið sem hófst
eftir kvöldmat í gær stóð enn yfir
seint í gærkvöldi.
Salmonella
Áburðarvólin TF-Tún sem er eins hreyfils vól af Piper Brave 375-gerð brotlenti f
flugtaki á Markarfljótsaurum fyrir neðan Þórólfsfell um hálftvöleytið í gærdag.
Flugmaður vélarinnar, Pétur Steinþórsson, sem flogið hefur áburðarflug í 11
ár, slapp ótrúlega vel því vélin er mjög illa farin. Hann var fluttur með þyrlu
Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús í Reykjavík. Þetta var fjórtánda ferð vélar-
innar f gær en starfsmenn Landgræðslunnar voru að bera á sauðfjárbeitargirð-
ingu sem er á aurunum við Þórólfsfellið.
Að sögn Stefáns Sigfússonar hjá Landgræðslunni hefur vélin verið notuð frá
1979 og hefur hún um eitt þúsund flugtfma í áburðarflugi að baki.
Mynd: Ari.
Ferðaþjónustan í níst í Dölunum
óliJ. Óla hjá Ferðamálaráði: Sýktu matvœlin ekkiframleidd íDalasýslu.
Almenningsálitið óvœgið ídómum sínum. Vona aðfólk noti skynsemi og
láti ekki villa sér sýn
essi tvö salmonelluslys sem ég
vil nefna svo, hafa vissulega
haft mjög slæm áhrif á alla ferða-
þjónustu í Dalasýslu og liggur við
að það sé búið að leggja hana i
rúst í bili, segir Óli J. Óla hjá
Upplýsingaþjónustu Ferðamála-
ráðs.
Að sögn Óla hafa þessar
salmonellu-sýkingar sem fólk
hefur orðið fyrir í ár í Dalasýslu,
fyrst í þremur fermingarveislum
um síðustu páska í Búðardal og
svo á Laugum í Sælingsdal fyrir
skömmu, haft afar óheppileg
áhrif á uppbyggingu ferðaþjón-
ustunnar í sýslunni þrátt fyrir að
vitað væri að matvælin sem salm-
onellan hefði verið í væri komin
frá höfuðborgarsvæðinu, en alls
ekki framleidd á neinn hátt í hér-
aði. Sagði Óli að fólk væri að
spyrjast fyrir um það í fullri al-
vöru hvort óhætt væri að fá sér
pylsu í Búðardal, svo dæmi séu
nefnd.
„Þegar svona slys koma fyrir
þá er almenningsálitið alltaf ákaf-
lega dómhart og fyrir okkur sem
erum í ferðaþjónustunni og erum
að reyna að byggja hana upp á
þessu svæði, er þetta það versta
sem hægt er að hugsa sér. Ég
vona bara að fólk almennt sé
nógu skynsamt til að taka sjálf-
stæðar ákvarðanir og láti ekki
einhverjar æsifregnir villa sér
sýn, þegar það ákveður hvert skal
halda f sumarfríinu, og láti ekki
hræða sig frá því að ferðast um og
njóta þess sem Dalamenn hafa
upp á að bjóða,“ sagði Óli J. Óla
að lokum.
grh