Þjóðviljinn - 17.07.1987, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 17.07.1987, Blaðsíða 3
FRÉTTIR Ríkissaksóknari Norðurlandaskák Hæpin bræðrabönd Sakadómur vísar ákœru á hendurfjórum hafskipsmönnumfrá vegna skyld- leika Hallvarðs ríkissaksóknara ogJóhanns bankaráðsmanns í Útvegs- bankanum. Ákœruvaldið kœrir úrskurðinn til hœstaréttar akadómur vísaði ákæru ríkis- saksóknara á hendur haf- Hreinsjökull á Grœnlandi Veðursaga í 100 þúsund ár Norrœnt verkefni þriggja háskóla. Borað niður á nœsta ári. Mikinn fróðleik aðfinna í íshettunni „Tilgangurinn með ferð okkar til Grænlands í byrjun vikunnar var að finna ákjósanlegan jökul sem hægt er að bora niður í á næsta ári og taka sýni úr honum til rannsóknar. Þetta er norrænt verkefni sem háskólarnir í Kaup- mannahöfn, Stokkhólmi og okkar standa að,“ sagði Sigfús Johnsen, eðlisfræðingur hjá Raunvísinda- stofnun Háskóla Islands við Þjóð- vijjann. Að sögn Sigfúsar fann leiðang- urinn heppilegan jökul við Scor- esbysund á Austur-Grænlandi sem heitir heitir Hreinsjökull. Þar sem jökullinn er hæstur er íshettan aðeins 180 metra þykk og þar er ísinn elstur. í ísnum er að finna með smáheppni allt að 100 þúsund ára sögu veðurfars, ástand lofthjúpsins, kolsýru í loftinu, brennisteinssýrulög frá eldgosum og margt margt fleira sem jökuliinn hefur að geyma. Sigfús sagði að þetta verkefni hefði ekki verið mögulegt fjár- hagslega nema með samvinnu eins og þessari á milli þriggja landa. Áætlaður kostnaður verk- efnisins er uppá 18 milljónir ís- lenskar. Það var Flugfélag Norð- urlands sem flaug með 7 manna hóp í skíðaflugvél, vítt og breitt um svæðið í leit að heppilegum borunarstað. Farið verður aftur á jökulinn að ári og þá verður bor- að niður og kjarninn tekinn til rannsóknar. „Verkefni á við þetta hefði aldrei orðið að veruleika án sam- vinnu við aðra, því þetta er dýrt fyrirtæki, en um leið geysilega hagkvæmt til þess að fá vitneskju um hver þróunin hefur verið í þeim efnum sem við ætlum okkur að rannsaka,“ sagði Sigfús John- sen eðlisfræðingur að lokum. grh. skipsmönnunum Björgólfi Guð- mundssyni, Ragnari Kjart- anssyni, Páli Braga Kristjónssyni og Helga Magnússyni frá í gær. Það var Haraldur Henrysson sem kvað upp þennan úrskurð vegna setu Jóhanns Einvarðssonar, bróður Hallvarðs Einvarðssonar rflrissaksóknara, i bankaráði Út- vegsbankans. Úrskurðurinn verður kærður til Hæstaréttar. Fjórmenningamir vom ákærð- ir fyrir ýms brot gegn ákvæðum almennra hegningarlaga, lögum um hlutafélög og lögum um lög- gilta endurskoðendur, en þeir fóm fram á að málinu yrði vísað frá og tilgreindu til þess þrjár ástæður. í fyrsta lagi töldu þeir óeðlilegt að Hallvarður gegndi í senn stöðu rannsóknarlögreglustjóra og ríkissaksóknara í málinu og gagnrýndu ýmsar gjörðir Hall- varðs meðan hann gegndi fyrr- nefndu stöðunni. Þetta þótti þó ekki nægileg ástæða til frávísun- ar. í öðm lagi vísuðu fjórmenning- arnir til tengsla Hallvarðs við Al- bert Guðmundsson, sem eins og kunnugt er var um tíma stjórnar- formaður Hafskips og formaður bankaráðs Utvegsbankans. Tengsl þessara tveggja manna felast í lánveitingum Álberts til Hallvarðs úr Lífeyrissjóði starfs- manna ríkisins, meðan Albert var fjármálaráðherra. Þessi tengsl töldust heldur ekki tilefni til frávísunar. Það var hins vegar seta Jó- hanns Einvarðssonar í bankaráði Útvegsbankans og skyldleiki hans við Hallvarð, sem varð til þess að Haraldur Henrysson vís- aði málinu í heild sinni frá, en á sömu forsendu var Hallvarður á sínum tíma dæmdur vanhæfur til þess að gegna stöðu ríkissaksókn- ara í máli 7 bankastjóra Útvegs- bankahs. Búist er við að Jón Sigurðsson, dóms- og kirkjumálaráðherra, skipi nýjan saksóknara til þess að fara með þessi mál innan tíðar. -gg Misjafnt gengi Helgi tapaði, Jón og Margeir unnu. Mortens- en efstur Margeir Pétursson vann Sví- ann Schneider í fimmtu umferð' Norðurlandamótsins í Þórshöfn í Færeyjum, og er nú í 2.-3. sæti. Jón L. Árnason vann Svíann Wedberg, en Helgi Ólafsson tap- aði fyrir Hansen hinum danska. Valkesalmi vann Færeyinginn Ziska, Finninn Maki og Daninn Mortensen gerðu jafntefli, sömu- leiðis Norðmennirnir Tissdal og Ostenstad. Staðan í landsliðsflokki: 1. Mortensen (4 vinninga), 2.-3. Schneider og Margeir (3Vz), 4. Tissdal (3), 5.-8. Hansen, Maki, Ostenstad, Helgi (2Ví), 9.-11. Jón L., Valkesalmi, Wedberg (2), 12. Ziska (0). Sjötta umferð verður tefld í dag. Á Þjórsárbrú í gær: Brúargerðarmennirnir frá Vík, þeir Sigurður Þór Þórhallsson, Gfsli Þorbergsson og Kristinn Stefánsson við vinnu sína. Þjórsárbrú Viðgerð lokið eftir viku Viðgerð á Þjórsárbrú hefur nú staðið yfir í tvo mánuði. Að- faranótt laugardagsins verður brúin lokuð og aftur aðfaranótt þriðjudags í næstu viku. Að sögn Jóns Valmundarsonar brúargerðarmanns er verið að steypa slitlag yfir brúna og gert er við steypuskemmdir og jafnaður austurendi brúarinnar sem var farinn að valda ökumönnum óþægindum. „Við erum hérna 6 77 brúargerðarmenn úr Vík í Mýrdal og klárum þetta verk sem eftir er, á vikutíma. Við unnum við þetta í tvo mánuði í fyrra- sumar líka og næsta sumar mun- um við lagfæra burðarstöpla brú- arinnar,“ sagði Jón. - gsv. Frjálsir vegfarendur Ekkert mun stöðva okkur Frjálsir vegfarendur hafa dreift hátt í3000 límmiðum á bíla sem leggja uppá gangstéttir að mun ekkert stöðva okkur. Við hættum ekki fyrr en eitthvað verður að gert, sagði Magnús Skarphéðinsson í tengi- hópi samtaka Frjálsra vegfar- enda í samtali við Þjóðviljann í gær, en lögregluyfirvöld hafa gert athugasemdir við aðgerðir sam- takanna sem felast f þvf að líma aðvörunarmiða á bflrúður þeirra bfla sem lagt er uppá gangstéttir þannig að óþarflega mikið er þrengt að gangandi vegfarend- um. Sérstaklega er miðað við það að fólk með barnavagna komist leiðar sinnar. Magnús sagði að lögreglan í Reykjavík hefði haft samband við samtökin og gert athuga- semdir við það að félagar og stuðningsmenn samtakanna væru að fara inn á verksvið lögreglunn- ar, en ýmsir ökuþórar hafa kvart- að til lögreglunnar vegna óþæg- indanna. Að sögn Magnúsar hafa aðrir ökumenn tekið fullt tillit til athugasemdanna. „Það er ótrú- legt hversu mikil áhrif límmiða- herferðin hefur haft. í sumum hverfum er árangurinn ótví- ræður.“ Nú þegar hefur hátt í 3000 miðum verið dreift og að sögn Magnúsar er mikið hringt til samtakanna og beðið um miða til dreifingar. „Við höfum greini- lega samúð almennings og við höfum orðið vör við að borgaryf- irvöld eru aðeins að ranka við sér,“ sagði Magnús. Samtökin bíða nú eftir fleiri miðum úr prentun, stærra upp- lagi að þessu sinni og fjölbreyttari límmiðum. „Ef ástandinu linnir ekki í framhaldi af límmiðaað- gerðunum munum við grípa til enn frekari örþrifaráða. Hug- myndin er að við leggjum undir okkur fjölfarna götu í miðbænum þar sem við munum sýna blikk- beljunum að gangandi vegfar- endur geta líka hertekið þeirra svæði, eins og þær okkar,“ sagði Magnús að lokum. -K.ÓI. Æðardúnn Þung kíló Það er þungt í æðardúninum kílóið í frétt Þjóðviljans í gær um útflutning á æðardúni, en þar er fullyrt að útflutningurinn nemi 2200 tonnum í stað 2200 kílóa. Magnið samsvarar dúni í sængur fyrir Asíuþjóðimar allar og tekjumar af dúninum myndu slaga hátt uppí tekjur íslenska ríkisins. En því miður, það rétta í málinu er 2200 kíló. Föstudagur 17. júli 1987 )>JÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.