Þjóðviljinn - 17.07.1987, Side 5
Nicaragua
Einn afleiðtogum Nicaragua kveður Bandaríkjaforseta leggja ofuráherslu
á að brjóta Sandinistastjórnina á bak aftur áður en hann lætur afembætti
Bayardu Arce er einn af níu
æðstu ráðamönnum Nicarag-
ua. Hann ræddi í gær við frétta-
menn í tilefni af því að á sunnu-
daginn verða átta ár liðin frá því
herir Sandinista frelsuðu þjóðina
undan oki Somozas einræðis-
herra.
Arce segir að þótt völd og áhrif
Ronalds Reagans Bandaríkja-
forseta hafi augljóslega dvínað
nokkuð í heimalandinu þá geti
hann enn látið margt illt af sér
leiða og sé staðráðinn í því að
hrekja stjórn Nicaragua frá völd-
um áður en hann flytur út úr
Hvíta húsinu og rýmir fyrir eftir-
manni sínum.
„Frá því að Reagan lýsti því
yfir að hann hygðist eyðileggja
byltingu okkar hefur spennan
aukist jafnt og þétt og landsmenn
eru viðbúnir hinu versta.“
Arce segist óttast að Banda-
ríkjastjóm muni láta her sinn
ráðast inn í Nicaragua þar sem
augljóst sé að Kontraliðar geti
ekki unnið hemaðarsigur.
Reagan hefur allar götur frá
því hann sór embættiseið reynt að
telja bandarísku þjóðinni trú um
að Sandinistastjórnin sé bein
ógnun við öryggi Bandaríkjanna.
í fyrradag lýsti hann því yfir að
hann myndi beita öllum ráðum til
að verða Kontramálaliðunum
sínum úti um aukið fé og ekki
skirrast við að „klifra upp á hús-
þak og æpa“ ef það kæmi að haldi
og almenningur myndi þá láta
segjast.
Bandarískir fréttaskýrendur
segja að forsetinn hafi færst allur í
aukana er hann frétti að áróðurs-
ræður Olivers Norths ofursta úr
vitnastól fyrir málstað málalið-
anna hafi hlotið hljómgrunn hjá
mörgum þegna sinna. Hann sé
því í banastuði.
í fyrra féllst bandaríska þingið
á þá beiðni forseta síns að veita
Sandinistar á sigurgöngu um götur Managua f júlí árið 1979. Á sunnudag verða liðin átta ár frá frelsun landsins undan kúgun Somozastjórnarinnar.
Kontraliðum 100 miljónir dala til
vopnakaupa og síðan hafa átök
þeirra og herja stjórnarinnar í
Managua aukist að mun. Búist er
við því að Reagan leiti hófanna á
nýjan leik hjá þinginu í septem-
ber næstkomandi og biðji þá um
105 miljónir í viðbót.
Arce bar Reagan það einnig á
brýn í gær að hann hefði í hótun-
um við leiðtoga svonefndra
Contadora ríkja; Panama, Ven-
ezuela, Mexíkó og Kólombíu,
sem ítrekað hafa reynt að bera
klæði á vopnin og stuðla að
friðsamlegri lausn í Mið-
Ameríku.
Bandarískir ráðamenn fullyrða
að Contadorahópurinn og ríkin
sem styðja viðleitni hans; Arg-
entína, Brasilía, Uruguay og
Perú, gangi erinda Sandinista-
stjórnarinnar og sé því ómark-
tækur með öllu.
Hátíðahöld verða í lágmarki á
sunnudaginn í Nicaragua og kvað
Arce engum erlendum gestum
hafa verið boðið að vera við-
staddir. Útifundur verður hald-
inn í Matagalpa sem er um 90
kílómetra norðaustan höfuð-
borgarinnar Managua. Reiknað
er með að Daniel Ortega forseti
flytji aðalræðuna en ekki fékkst
Arce til að staðfesta það.
-ks.
„Reagan ætlar að sigra okkur“
Filipseyjar
Marcos
mkkaður
Stjórnvöld stefna Marcosifyrir stuld úr
ríkiskassanum. Óþrjótandi ákœruefni.
Vandamálið að úttektarbækur Marcosar eru
alltof yfirferðarmiklar
Stjórnvöld á Filipseyjum hafa
loksins, eftir 17 mánaða um-
þóttunartíma, afráðið að stefna
hinu arma fóli Ferdinand Marc-
osi, fyrir að hafa látið greipar
sópa í ríkisfjárhirslum landsins.
Stjórnvöld eru sannfærð um að
geta sýnt framá að 10 milfjónir
bandaríkjadala hafi lent í spill-
ingarhít Marcosar, sem hann not-
aði sem skotsilfur til einkaneyslu,
mútur og annað verra.
Að sögn Ramon Diaz, er fór
fyrir stjómskipaðri rannsóknar-
nefnd sem fór í gegnum úttektar-
bækur Marcosar í ríkiskassanum,
er mjög varlega áætlað að Marcos
hafi ekki haft meira uppúr krafs-
inu en 10 milljónir dollara á rúm-
lega 20 ára valdaferli sínum. Diaz
segir að í ákæmnni séu ekki inni-
faldar milljónir dollara, sem
Marcosi tókst að ávaxta í
svissneskum bönkum, sem hann
geymir þar til elliáranna eins og
búmanna góðra er siður. Að sögn
embættismanna sem fengist hafa
við að rannsaka fjárreiður Marc-
osar, fyrirfinnst hvergi nógu öf-
lug tölva til að vinna úr öllum
myrkraverkunum í ríkisfjár-
Marcos blásaklaus heiðurspiltur, sem telur þjóð sina bíða í eftirvæntingu eftir
að hann fái að snúa heim á nýjan leik til að rupla og ræna í ríkisfjárhirslunum.
hirslunum sem Marcosi em rétti-
lega eignaðar.
Corazon Aquino hummar enn
fram af sér að verða við beiðni
Marcosar um að fá að hitta þjóð
sína á ný og snúa úr útlegðinni á
Hawaii-eyjum, þar sem hann
dvelst í skjóli bandarískra
stjórnvalda. Talið er líklegt að
Aquino óttist að heimkoma
Marcosar gæti ýtt undir pólitísk-
an óróa heimafyrir, enda á Marc-
os þar margan stuðningsmann,
sem hann rétti líknandi hönd í
neyð og gaukaði að lítilræði.
-RK
Afganistan
Sovétmenn
í vanda
Mannfallið f liði Sovétmanna
og afganska stjórnarhersins hefur
aukist verulega að undanförnu
vegna hertrar baráttu skæruiiða.
Það em ekki vestrænir frétta-
skýrendur sem halda þessu fram
heldur Boris nokkur Pyashef,
talsmaður sovéska utanríkisráðu-
neytisins.
Hann kvað skæmliða hafa
færst alla í aukana eftir að Najib,
leiðtogi Kabúlstjórnarinnar,
hefði lýst yfir einhliða vopnahléi í
janúar síðastliðnum.
Ennfremur fullyrti m að
andstæðingarnir væn s betur
búnir vígtólum en r u sinni
áður enda hefðu nýverið
fengið myndarlega 'nasend-
ingu frá Bandaríkju m. Þar á
meðal hefðu verið ullkomnar
Stingereldflaugar sem grandað
gætu þyrlum og flugvélum.
Pyashef sagði að við svo búið
mætti ekki standa og gerðar yrðu
ráðstafanir til að stemma stigu
við umsvifum skæruliðanna.
Hann gat þess þó ekki í hverju
þær ráðstafanir yrðu fólgnar.
-ks
Föstudagur 17. júlf 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5