Þjóðviljinn - 17.07.1987, Qupperneq 6
HEIMURINN
Greenpeace gegn kjam-
oriaivMwnaði í höfunum
Samtökin hyggjast verja miljónum dollara í herferð gegn kjarnorku-
vígbúnaði í höfunum á nœstu árum. 500fljótandi Tsjernobylkjarna-
kljúfar á höfunum segja samtökin. Athyglinnisérstaklega beintað
N-Atlantshafinusegir William Arkinf einn afstjórnendum herferðar-
innar. Áhersla lögð á hafnbann á kjarnorkuskip
Samtökin Greenpeace Inter-
national eru um þessar mundir að
hefja herferð gegn kjarnorkuvíg-
búnaði í höfunum, og er fyrirhug-
að að hún muni standa næstu árin
og að til hennar verði varið milj-
ónum doliara. I þessu skyni hafa
samtökin komið sér upp flota sem
telur 5 skip, og er meðal annars
fyrirhugað að þeim verði beitt
gegn flotaheimsóknum kjarn-
orkuskipa til landa sem ekki eru
kjarnorkuveldi, auk þess sem
samtökin munu hvetja rfkis-
stjórnir til þess að leggja bann við
slikum heimsóknum. Green-
peace-flotinn mun einnig storka
kjarnorkuskipum Sovétmanna,
Bandaríkjamanna, Breta, Fra-
kka og Kínverja á opnu hafl segir
í fréttatilkynningu samtakanna,
en herferðin hófst formlega í síð-
ustu viku, þegar tveir fjallgöngu-
menn á vegum samtakanna kli-
fruðu upp í 80 hæða háan turn í
Sydney f Ástralíu, þar sem þeir
breiddu út merkisfána herferðar-
innar. Herferðinni verður þó
ekki hvað síst beint að N-
Atlantshafínu og þess vegna hafa
aðalstöðvar herferðarinnar verið
settar upp í Hamborg í V-
Þýskalandi.
Þarf 2 til
að heyja styrjöld
Það er hinn kunni bandaríski
fræðimaður William Arkin, sem
er heilinn á bak við herferðina,
en fáir óháðir fræðimenn munu
jafn vel kunnir vígbúnaðarbrölti
kjarnorkuveldanna, jafnt á hafi
sem á landi. Það var William
Arkin sem á sínum tíma benti ís-
lenskum stjórnvöldum á að hér í
Keflavík væri allur viðbúnaður til
kjarnorkuhemaðar til reiðu, og
að Bandaríkjaforseti hefði árum
saman undirritað sérstaka heim-
ild til flotans um að flytja til ís-
lands kjamorkuvopn á hættutím-
um án vitundar íslenskra
stjórnvalda.
Arkin segir að herferðinni
verði ekki hvað síst beint gegn
kjarnorkuflota Sovétríkjanna,
því „það er mikilvægt," segir
hann, „að fólk skilji að það þarf
tvo til að heyja kjamorkustyrj-
öld, og kjamorkuvígvæðing So-
vétmanna í höfunum er jafnvel
enn víðtækari en Bandaríkja-
manna“.
Hafnbann á
kjarnorkuskip
Samtökin efndu til frétta-
mannafundar í Washington síð-
astliðinn föstudag til þess að
kynna herferðina, og var það
sama daginn og fáni herferðar-
innar var hengdur upp í turninum
í Sydney. Þar kom meðal annars
fram að samtökin fyrirhuga að
freista þess að loka höfnum fyrir
kjarnorkuherskipum, þegar tæk-
ifæri gefst. í herferðinni munu
samtökin sérstaklega beita sér
gegn kjamorkuherskipum Sovét-
manna á Miðjarðarhafi og
Eystrasalti í þeim tilgangi að fólk
skilji að hér er ekki um staðbund-
ið vandamál að ræða, heldur
vandamál sem varðar öll ríki og
tekur til allra heimshafanna. Þá
munu samtökin sérstaklega beita
sér gegn þeirri leynd, sem nú hvíl-
ir yfir kjamorkuvígbúnaði í höf-
unum, þar sem hún auki mjög á
óvissuþáttinn og þar með á hætt-
una á stríði, en eins og sérfræð-
ingar samtakanna segja, þá er
mest hætta á að kjarnorkustyrj-
öld brjótist út á hafinu fyrir mis-
tök.
Sex góðar
röksemdir
Rök Greenperace manna fyrir
því að mestar líkur séu á því að
kjarnorkustyrjöld brjótist út á
hafinu em í sex liðum:
í fyrsta lagi segja þeir að margir
herfræðingar kjamorkuveldanna
meti það svo, að minni líkur séu
til þess að beiting kjamorku-
vopna á hafi úti leiði sjálfkrafa til
allsherjar tortímingarstyrjaldar,
þar sem sprengingar á hafinu hafí
ekki í för með sér jafn tilfinnan-
legt og áþreifanlegt tjón og
sprengingar í þéttbýli á landi. Því
séu haukamir frekar innstilltir á
beitingu slíkra vopna á hafi úti.
í öðm lagi þá sé mikil hætta á
að þau mörgu slys, óhöpp og
mannlegu mistök, sem jafnan em
samfara flotaæfingum leiði til
átaka af misskilningi. í þessu
sambandi tilfæra þeir mörg dæmi
um óhöpp, þar sem minnstu
munaði að til átaka kæmi.
Tæknileg mistök
í þriðja lagi benda
Greenpeace-menn á þau mörgu
vandamál sem koma upp samfara
beitingu flota í hemaði. Þannig er
flotinn venjulega sendur til svæða
þar sem hættuástand hefur
skapast, oft með þeim árangri að
magna upp enn meiri spennu. Þá
em fjarskipti við herskip vand-
kvæðum bundin, og á það eink-
um við um kafbáta. En flestir
þeirra em ekki í stöðugu sam-
bandi við stjórnstöðvar, heldur
þurfa þeir að koma upp á yfir-
borðið til þess að ná sambandi.
Þannig líða oft 12 klst. á milli
samskipta við stjórnstöð, og því
getur t.d. reynst ómögulegt að
afturkalla röng skilaboð í tíma.
í fjórða lagi fela hemaðaráætl-
anir flotanna í sér áform sem
auðveldlega geta leitt til kjam-
orkustyrjaldar. Þannig hefur
bandaríski flotinn fyrirmæli um
að eyðileggja kjamorkuskevta-
kafbáta Sovétmanna „innan 5
mínútna", jafnvel í hefðbund-
num átökum, að sögn bandaríska
aðmírálsins Watkins, sem hélt
því jafnframt fram að slík átök,
sem einskorðuðust við hafið
myndu ekki sjálfkrafa leiða til
átaka á landi. Ekki er ólíklegt að
Sovétmenn hafi svipuð áform um
árásir á bandaríska kjamorkuk-
afbáta.
Fyrsta höggið
á hafinu
í fimmta lagi þá benda
Greenpeace-menn á að ef til
átaka komi á hafinu, þá sé það
mikil freisting fyrir stjómendur
herskipa, ekki síst kafbáta, að
grípa til kjarnorkuvopnanna.
Herskip, ekki síst kjamorkukaf-
bátar, séu freistandi skotmörk
fyrir kjarnorkuvopn, þar sem erf-
itt geti verið að staðsetja þá eða
ná til þeirra með öðm móti, auk
þess sem slík notkun kjamorku-
vopnanna muni hafa lágmarks-
hliðarverkanir í för með sér mið-
að við sprengingu í þéttbýli.
í sjötta lagi segja Greenpeace-
menn að bæði NATO og Varsjár-
bandalagið hafi yfir að ráða
kjarnorkuvopnum sem séu sér-
staklega ætluð til að „greiða
fyrsta höggið“, en það þýðir að sá
möguleiki sé fyrir hendi að grípa
til þeirra í stað hefðbundinna
vopna. Tilgangur þessara vopna
sé því ekki bara fólginn í fælingu,
heldur séu þau með orðum
Weinbergers varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna „til þess
ætluð að styrkja hið hefðbundna
vopnakerfi".
Skynsamleg
markmið
Greenpeace-samtökin hafa
samfara herferð sinni sett fram
ákveðna markmiðsáætlun, sem
stefna beri að til þess að draga úr
hættunni og stöðva vígbúnaðar-
kapphlaupið á höfunum. Þar er
fyrsta skrefið, segja þeir, að hætt-
ulegustu vopnin verði fjarlægð.
Þar er um að ræða bandarísku
stýriflaugamar af gerðinni Toma-
hawk og sovéskar stýriflaugar af
gerðinni SS-NX-21 og SS-NX-24.
Þetta em langdrægar stýriflaugar
sem ætlaðar em skotmörkum á
landi. Bandaríski flotinn hefur
þegar 125 slíkar flaugar og áætlar
að setja upp alls 758. Sovétmenn
eru nú að koma sér upp svipuðu
kerfi.
Þá er talað um að taka þurfi úr
umferð eldflaugar sem hæft geti
kafbáta af miklu öryggi, þar sem
slíkar flaugar auki á óttann við
skyndiárás og verki því spennu-
Giovanni Goría
Prinsiim sem leysir ttalíu úr
álögum stjómarkreppuimar?
Umboð hans til stjórnarmyndunar kom á óvart, en er talið líklegt til að bera
árangur. Nýrri ríkisstjórn spáð fæðingu fyrir mánaðamót
Giovanni Goria, fyrrverandi
fjármálaráðherra kristilegra
demókrata í flmmflokkaríkis-
stjóm sósíalistans Bettino Craxi
hlaut sl. þriðjudag umboð Cos-
siga, forseta Italíu, tU að mynda
nýja rikisstjórn. Útnefning Goria
kom á óvart og var ekki gerð að
fmmkvæði hins gamla forystuliðs
flokksins, en svo virðist hins veg-
ar sem hún hafl orðið tii að rjúfa
þann vítahring gagnkvæmra á-
sakana sem einkenndi samskipti
kristUega flokksins og sósíalista.
„Goria er eitt af meistaraverk-
um mínum," höfðu fréttamenn
eftir Bettino Craxi, sem ekki gat
dulið ánægju sína með útnefning-
una þrátt fyrir sparsamar yfirlý-
singar um hugsanlega aðild sósía-
Usta að ráðuneyti Goria.
Giovanni Goria er aðeins fer-
tugur að aldri, en hefur að baki
nær fjögurra ára reynslu sem
fjármálaráðherra. Útnefning
hans virtist koma flatt upp á nok-
kra af eldri leiðtogum kristilega
flokksins, sem ekki er vanur að
tefla fram sínum yngstu mönnum
í svo ábyrgðarmiklar stöður. Því
innan valdakerfis flokksins voru
gamlar kanónur eins og Fanfani,
Andreotti, De Mita og Forlani,
sem alUr áttu samkvæmt hefð-
bundnum leiðum flokksvaldsins
forgangsrétt til að leiða ríkis-
stjórn flokksins. Og þótt De
Mita, ritari flokksins og hinn op-
inberi talsmaður hans hafi veitt
Goria fullan stuðning, þá lýsti
hann því jafnframt yfir að ráðu-
neyti Goria væri ekki tilkomið að
frumkvæði flokksstjórnarinnar
og gæti því ekki talist beint
flokksráðuneyti.
Giovanni Goria.
Sterk staða
Hin sterka staða Giovanni
Goria stafar í fyrsta lagi af því að
hann getur eftir fjögur ár sem
fjármálaráðherra státað af
allgóðum árangri í stjórnun fjár-
mála ríkisins. ftölum tókst á
stjórnartíð hans að koma verð-
bólgunni niður úr 20% í 5-6% og
bæta viðskiptajöfnuðinn við út-