Þjóðviljinn - 17.07.1987, Blaðsíða 11
MYNDLISTIN
Listasaf n Háskóla Islands sýnir
hluta verka sinna í Odda, hugvís-
indahúsi Háskólans. Listasafn Há-
skólans var stofnað 1979 mað lista-
verkagjöf hjónanna Ingibjargar
Guðmundsdóttur og Sverris Si-
gurðssonar, en meginuppistaða
þeirrar gjafar voru verk Þorvaldar
Skúlasonar er spönnuðu allan feril
hans. Þau verkeru einnig megin-
uppistaðan í sýningunni, auk þess
sem sýnd eru sýnishorn þeirra 130
verka sem til safnsins hafa verið
keypt síðan það var stofnað. Sýn-
ingineropindaglegakl. 13.30-17.
í Ásgrímssaf ni stendur yfir
sumarsýning á verkum Ásgríms
Jónssonar í húsakynnum safnsins
að Bergstaðastræti 74. Á sýning-
unni eru um 40 verk, aðallega
landslagsmyndir, bæði olíumál-
verk, vatnslitamyndirog teikningar.
Sýningin er opin alla daga nema
laugardaga kl. 13.30-16 til ágúst-
loka.
Áning 87 - Sumarsýning ASÍ á
verkum 11 myndlistarmanna sem
sýna glerlist, leirlist, textíl og
málmsmíði stendur nú yfir í Lista-
saf ninu við Grensásveg. Opið virka
daga kl. 16-20 en 14-20 um helgar.
Sumarsýning á verkum Kjarvals
á Kjarvalsstöðum. I Kjarvalssal eru
olíumálverk en á göngum eru
myndir sem aldrei hafa verið sýnd-
ar áður og eru hluti af gjöf Kjarvals
til Reykjavíkurborgar. Eru þettafull-
gerðar myndir, skissur og teikning-
ar sem Kjarval gerði fyrir sjálfan sig.
myndir þessar sýna áður lítið þek-
kta hlið á meistaranum og minna
um margt á hið nýja málverk. Yfir
eitt hundrað myndir eru á sýning-
unni sem stendur til 30. ágúst. Opið
alladagakl. 14-22.
Gallerí Svart á hvítu heldursam-
sýningu nokkurra ungra mynd-
listarmanna. Meðal listamanna
sem eiga verk á sýningunni eru:
Páll Guðmundsson, Jóhanna Yng-
vadóitir, Magnús Kjartansson, Að-
alsteinn Svanur Sigfússon, Bryn-
hildur Þorgeirsdóttir, Georg Guðni,
Valgarður Gunnarsson, Grétar
Reynisson, Kees Visser, Gunnar
Örn, Pieter Holstein, Sigurður Guð-
► Dr. Selma
Einn af frumkvöðlum íslenskra
listfræða, Selma Jónsdóttir, er
látin. Hún var fædd í Borgarnesi
22. ágúst 1917, dóttir hjónanna
Jóns Bjömssonar frá Bæ og
Helgu Björnsdóttur. Selma
stundaði nám í miðaldalistsögu
við þekkta háskóla beggja vegna
Atlantshafs á árunum 1941 til
1949 og lauk meistaraprófi í
þeirri grein frá Columbiaháskóla
í New York. Heimkomin réðst
hún að Listasafni íslands árið
1950 og forstöðumaður þess varð
hún 1961.
Selma Jónsdóttir kvaddi sér
eftirminnilega hljóðs á vettvangi
íslenskrar listasögu árið 1960
með doktorsritgerð sinni. „Bys-
önsk dómsdagsmynd í Flatat-
ungu“, er hún varði við Háskóla
íslands. Með því verki skipaði
hún sér í fremstu röð íslenskra
fræðimanna, er hún leysti á
snjallan hátt gátu er margir höfðu
glímt við árangurslaust. Ég varð
djúpt snortinn af þessu merka og
allt að því ögrandi frumkvæði
Selmu. Ég varð eiginlega aldrei
samur á eftir, því ritgerð hennar
varð öðru fremur til að beina
áhuga mínum að íslenskri mið-
aldalist. Síðan rak hver athugun-
in aðra, Saga Maríumyndar 1964,
Lýsingar í Stjórnarhandriti 1971,
Lýsingar í Helgastaðabók 1982,
ásamt fjölda ritgerða í tímaritum
um ýmsa þætti íslenskrar mið-
aldalistasögu sem hver um sig brá
nýju Ijósi á viðfangsefnin. Vinnu-
brögð Selmu einkenndust af ná-
kvæmri rannsókn samfara óvænt-
um tilgátum, stundum kannski
hæpnum, en alltaf skemmtilegum
og uppörvandi.
Enda þótt Selma Jónsdóttir
hafi eytt drjúgum hluta starfsævi
sinnar í að kanna list miðalda var
langt í frá að hún lifði fortíðinni
einni. Annar meginþáttur í lífi
mundsson, Jón Axel og Hulda Hák-
on. Meðan sumarsýningin stendur
yfir verður reglulega skipt um
myndir. Þetta er sölusýning og geta
kaupendur tekið verkin með sér
strax að kaupum loknum. Opið alla
daganemamánudagakl. 14-18.
Síðasta sýningarhelgi.
Helgi Valgeirsson sýnir í Gallerí
Gangskör að Amtmannsstíg 1.
Helgi lauk námi frá Myndlista- og
handíðaskóla (slands 1986. Hann
hefur tekið þátt í nokkrum samsýn-
ingum en þetta er fyrsta einkasýn-
ing hans. Opið alla daga kl. 14-18 til
25. júlí.
Jón Baldvinsson sýnir málverk i
Menningarstofnun Bandaríkjanna
Neshaga 16. Jón hefur lokið BFA
gráðu frá San Fransisco Art Instit-
ute og er þetta 11. einkasýning
hans. Á sýningunni eru 19 verk.
Síðasta sýningarhelgi.
ína Salóme opnar sýningu á tex-
tílverkum í Nýlistasafninu við
Vatnsstíg 3b á laugardag. Ina út-
skrifaðist frá MHÍ1978 og hefur síð-
an stundaðframhaldsnám í Svíþjóð
og Danmörku. Síustu fjögur ár hef-
ur hún dvalið í Finnlandi, þar af sex
mánuði í norrænu myndlistarvinn-
ustofunni í Sveaborg og eru verkin
sem hún sýnir nú öll unnin þar.
Þetta er önnur einkasýning inu en
hún hefur tekið þátt í samsýningum
heimaogerlendis.
Ríkey Ingimundardóttir mynd-
höggvari sýnir í Viðey. Sýningin er
tileinkuð Halldóri Laxness. Ásýn-
ingunni eru verk úr postulíni, þek-
ktar mannamyndir og fleira. Ríkey
lauk prófi frá myndhöggvaradeild
MHÍ1983 og hefur siðan lagt stund
á keramiknám við sama skóla.
Þetta er 3. einkasýning hennar en
hún hefur tekið þátt í mörgum sam-
sýningum bæði heima og erlendis.
Sýningin eropindaglegakl. 13-19
til 3. ágúst og eru stöðugar ferðir
alla daga frá Sundahöfn út í Viðey.
Byggða-, lista- og dýrasafn Árn-
esinga á Selfossi T ryggvagötu 23
er opið kl. 14-17 virka daga og kl.
14-18 um helgartil 3. september.
Ásmundarsafn sýnir um þessar
mundir yfirlitssýningu á abstrakt-
myndum Ásmundar Sveinssonar
hennar var einmitt sá að sinna list
nútímans sem fyrsti forstöðu-
maður Listasafns íslands. Hún
mótaði stefnu þess og starfshætti
af festu og alúð, vakin og sofin að
gæta hagsmuna þess og verja það
áföllum fúsks og meðalmennsku.
Hún hafði brennandi áhuga á nú-
tímamyndlist, jafnt erlendri sem
innlendri, bar gott skyn á lista-
verk og átti auðvelt með að
greina kjarnann frá hisminu.
Staða hennar var ekki öfu-
ndsverð í litlu samfélagi, þar sem
kunningsskaparsjónarmið og
flokkspólitísk ýtni ræður meiru
en heiðarleg menningarleg um-
fjöllun. Við það bættist smánar-
legt framlag ríkisvaldsins til
þeirrar merku stofnunar er hún
veitti forstöðu og varð henni og
samstarfsmönnum stöðugur
fjötur um fót. Ögn var þó að birta
til. Loks sá fyrir endann á selvist
safnsins við Suðurgötu og nýtt og
glæsilegt húsnæði við Tjörnina
var um það bil tilbúið er Selma
féll frá, en fyrir því hafði hún bar-
ist með þrautseigju um árabil.
Af kynnum mínum við Selmu
Jónsdóttur þóttist ég kenna undir
glaðværu yfirborði skapfestu og
drengskap, er varði íslenska list
með oddi og egg og lét ekki
undan annarlegum ytri þrýstingi.
Megi þessi einkenni verða
leiðarljós þeim er eftir hana
koma.
Hörður Ágústsson
Það hillir nú loks undir að
Listasafn íslands flytji í nýtt
húsnæði og öll aðstaða þess gjör-
breytist. Þegar þessi langþráði
draumur er að verða að veru-
leika, kemur sú sorgarfrétt að
Selma væri látin. Hún hafði barist
fyrir þessu húsi og því var það enn
meira miskunnarleysi örlaganna
að henni skyldi ekki auðnast að
sjá safnið flytja inn í það.
Á þessari stundu hvarflar hug-
UM HELGINA
og spannar sýningin 30 ára tímabil
áferli listamannsins. Einnig erá
staðnum sýnt myndband sem fjall-
ar um konuna I list Ásmundar
Sveinssonar.
Þjóðminjasafn islandseropið
alladagakl. 13.30-16.
Árbæjarsaf n er opið alla daga
nema mánudaga kl. 10-18. Meðal
nýjunga á safninu er sýning á
gömlum slökkvibílum, sýning á
fornleifauppgreftri í Reykjavík og
sýning á Reykjavíkurlíkönum.
Sjóminjasafn íslands Vestur-
götu 8 í Hafnarfirði er með sýningu
sem nefnist Árabátaöldin og er hún
byggð á handritum Lúðvíks Krist-
jánssonar um íslenska sjávarhætti.
Heimildarkvikmyndin „Silfur hafs-
ins“ er einnig sýnd á safninul Opið
alla daga nema mánudaga kl. 14-
18.
Þjóðveldisbærinn í Þjórsárdal
er opinn almenningi til sýnis alla
dagavikunnarkl. 13-17. Þjóðveld-
isbærinn er eftirlíking af bæ á þjóð-
veldisöld og við uppbyggingu hans
voru rústirnar á Stöng í Þjórsárdal
lagðartilgrundvallar.
Svarta skýið ersýning ungra
myndlistarmanna í vestursal Kjar-
valsstaða. ivar Valgarðsson, Erla
Þórarinsdóttir, Jón Óskar, Halldór
Ásgeirsson, kees. Visser, Sverrir
Ólafsson, Hulda Hákon, Hannes
Lárusson og Birgir Andrésson.
Opið kl. 14-22 alla daga. Síðasta
sýningarhelgi.
Sól, hnífar, skip nefnist sýning
Jóns Gunnars Árnasonar í Nor-
ræna húsinu. Á sýningunni eru
teikningar og skúlptúrar unnir á ár-
unum 1971-1987. Sýning Jóns
Gunnars er bæði I sýningarsölum
ög anddyri Norræna hússins og er
opindaglegakl. 14-19til2.ágúst.
Listasafn Einars Jónssonar er
opið alla daga nema mánudaga kl.
13-16. Höggmyndagarðurinn er
opinn alla daga kl. 11 -17.
urinn víða og margar minningar
sækja á, en ég staldra við
leiftrandi gáfur Selmu, djúpt
innsæi og næmni á myndlist,
glettni hennar og glaðværð í fasi.
Það fór ekki fram hjá neinum
þegar hún var á ferð, svo sterkur
var persónuleiki hennar.
Selma Jónsdóttir helgaði líf sitt
framgangi íslenskrar myndlistar.
Þetta gerði hún fyrst og fremst
sem forstöðumaður Listasafns ís-
lands, sem hún byggði upp af ein-
stökum skilningi og alúð. Einnig
vann hún brautryðjandastarf sem
sérfræðingur í miðaldalist, eink-
um á sviði handritalýsinga. Það
er sá þáttur ævistarfs hennar sem
ég ætla að gera að umtalsefni.
Selma lærði hjá meisturum
listfræðinnar beggja vegna Atl-
antsála. En tveggja lærifeðra
hennar, sem hún mat mikils, vil
ég sérstaklega geta. Sá fyrri var
prófessor Meyer Schapiro, við
Columbia-háskólann, sem á
þeim tíma var einn talsmanna
nýrra viðhorfa í iistfræðum; fjöl-
gáfaður og kynngimagnaður
fræðimaður. Hann opnaði augu
hennar fyrir ríkidómum mynd-
hstarinnar, og þá einkum miðald-
anna. Síðar lá leiðin til prófessor
Francis Wormalds, sem var einn
merkasti miðaldafræðingur
Breta fyrr og síðar, sérfræðingur í
handritalýsingum og handrita-
fræðum. Báðir þessir menn voru
brautryðjendur innan miðalda-
fræða, þess tímabils sem varð sér-
svið Selmu.
Þetta fararnesi varð henni gíf-
urleg hvatning til að takast á við
þau verkefni sem biðu hennar hér
í rannsóknum á miðaldalist.
Selma leysti gátu fjalanna frá
Bjarnastaðarhlíð, færði Stjórn á
ný til íslands og uppgötvaði að
líklega áttum við enn hina heil-
ögu Maríu, kennda við Hofstaði,
svo einhvers sé getið.
Doktorsritgerð hennar um
býsanska dómsdagsmynd, sem
TÓNLIST
Á þriðju tónleikahelgi Sumartón-
leika í Skálholti munu Manuela Wi-
esler og Einar Grétar Sveinbjörns-
son leika bæði gömul og ný verk
fyrirflautuogfiðlu.
Laugardag kl. 15 leika þau verk eftir
G. Ph.Telemann.Tværsónöturí
G-dúr og A-dúr fyrir f lautu oa fiðlu;
fjórar einleiksfantasíur, tvær í f-moll
og D-dúr fyrir fiðlu og tvær í B-dúr
ogg-mollfyrirflautu.
Laugardag kl. 17 leika þau
blandaða efnisskrá. Fyrst er partíta
í E-dúreftir J. S. Bach. Þátvösam-
tímaverk, Kransakökubitareftir
Þorkel Sigurbjörnsson og Debla
eftir Cristobal Halffter. Sfðast er
svíta í h-moll eftir Jacques Hottet-
erre.
Á sunnudag kl. 15 verða seinni tón- ;
leikar frá laugardegi endurteknir.
Kl. 17messardr. SigurðurÖm
Steingrímsson en sr. Guðmundur
Óli Ólafsson þjónarfyriraltari. Org-
anisti er Ólafur Sigurjónsson og
Manuela Wiesler og Einar Grétar
Sveinbjömsson munu einnig leika
við messu.
Áætlunarferðir verðafrá BSÍ báða
dagana kl. 13 og til baka kl. 18.
Þýskur organleikari Gabriele
Leibhold heldur tónleika í Dómkirkj-
unni á sunnudag kl. 17. Hún er org-
anisti við St. Martinikirkjuna í
Braunschweig. Á efnisskrá eru verk
eftir Bach, Mendelssohn o.fl.
LEIKLIST
Strengjaleikhúsið sýnir Sjö
spegilmyndir eftir Messíönu Tóm-
asdóttur og Patrick Kosk í Hlað-
varpanum. Verkið er leik- og tón-
verk fyrir tvo leikara, flautuleikara
og segulbönd. Leikarareru Ása
Hlín Svavarsdóttir, ÞórTulinius og
Kolbeinn Bjarnason flautuleikari.
Verkið tekur eina klukkustund I
flutningi og verður sýnt í Hlaðvarp-
anum dagana 16.-19. júlí kl. 20.30.
Alþýðuleikhúsið eríleikferðum
landið með finnska verkið Eru tígr-
isdýr i Kongó? eftir Bengt Ahlfors
og Johan Bargum. Verkið fjallar um
tvo rithöfunda semhafa fengið það
sérkennilega hlutverk að skrifa
gamanleik um eyðni. Heilbrigðis-
ráðuneytið styrkir leikferðina að
hluta og henni fylgir kaffi og veiting-
hún taldi hafa verið í Flatatungu-
skála, braut blað í rannsóknum í
íslenskri listfræði. Þar kom einnig
sterkt fram allt það er einkenndi
stfl hennar: Hann var einfaldur
og knappur en lýsandi og ná-
kvæmur - laus við allar málaleng-
ingar og skraut - og hún þorði að
varpa fram mjög afgerandi og
djörfum hugmyndum. Textinn
hefur taktfasta stígandi, svo að
stundum er sem lesandinn sé
frekar staddur í miðjum reyfara
en alvarlegu fræðiriti. Selma
byggði rannsóknir sínar á mjög
ákveðinni stflgreiningu, sem hún
nýtti síðan til að skyggnast á bak
við verkið í leit að uppruna
myndefnis og stfls. Næmni henn-
ar og vísindaleg skarpskyggni
koma vel fram í þessu verki.
Ég vil nefna hér að fyrsta grein
hennar sem birtist á prenti var í
hinu merka tímariti Art Bulietin,
árið 1950, og fjallaði hún um
höggmyndir úr steini í Kilpeck-
kirkju í Herefordshire á Eng-
landi. Hún er mjög merkt fram-
lag til rannsókna enskrar róm-
anskrar listar. Þar var sýnt fram á
að höggmyndirnar í Kilpeck
voru, ásamt höggmyndum úr ná-
lægum kirkjum, verk mynd-
höggvara sem störfuðu í því hér-
aði og mynduðu ákveðinn skóla.
Grein hennar er enn á lista yfir
skyldurit sem lesin eru til prófs í
rómanskri enskri höggmyndalist.
- Eina grein finnst mér þó ávallt
vænst um, en hún fjallar um gjaf-
aramynd í Skarðsbók, AM 350,
og birtist í Árbók fornleifafélags-
ins 1964. Hún er dæmigerð um
stfl Selmu og hvernig ein mynd
verður uppspretta gagnmerkra
rannsókna.
Að undanförnu hafði Selma
unnið við rannsóknir á Stjórnar-
handriti, AM 227, vegna útgáfu
jsess í ritröðinni um íslensk mið-
aldahandrit, sem hún var langt
komin með. Þar ætlaði hún að
endurmeta fyrri skoðanir, sem
ahúsastemningin.
Nú er Alþýðuleikhúsfólk á leiðinni til
Egilsstaða á bílnum sem heitir
Hómer en er kallaður Veiran og
mun sýna þar á laugardag, á
Seyðisfirði á sunnudag, á Eskifirði
á mánudag, á Neskaupstað á
þriðjudag og á Fáskrúðsfirði á mið-
vikudag.
Ferðaleikhúsið sýnir Light
Nights í Tjamarbíói fjórum sinnum í
viku: fimmtudags-, föstudags-,
laugardags- og sunnudagskvöld kl.
21. Sýningin er flutt á ensku enda
ætluð ferðamönnum. i 25 atriðum
eru leikin og sýnd atriði úr Egils-
sögu, þjóðsögur af huldufólki,
tröllum og draugum og gamlar
gamanfrásagnir. Er þetta 18.
sumarið sem Ferðaleikhúsið sýnir
Light Nights í Reykjavík.
HITT OG ÞETTA
Opið húsfyrirnorrænaferða-
menn í Norræna húsinu fimmtudag
23. júlí kl. 20.30. Heimir Steinsson
þjóðgarðsvörðurog sóknarprestur
á Þingvöllum flytur fyrirlestur lum
Þingvelli. Á dönsku. Kvikmynd: Þrjú
andlit islands. Norskttal.
Sænski listfræðingurinn Áke Fant
heldur fyrirlestur í Norræna húsinu
á laugardag kl. 17 um sænska
listmálarann Hilmu af Klint (1862-
1944), óþekktan brautryðjanda ab-
straktlistar. ke Fant hefur um langt
skeið unnið að rannsóknum á lisi
Hilmu af Klint. Fant er dósent í lista-
sögu við Stokkhólmsháskóla.
í Árnagarði stendur nú yfir sýning
bóka, handrita og mynda frá hásk-
ólabókasafninu í Uppsölum í tilefni
konungsheimsóknarinnar. Ýmsir
helstu dýrgripir Uppsalasafnsins
eru á sýningunni, þar á meðal
Uppsala-Edda, elsta handrit
Snorra-Eddu, og eitt blað úr svon-
efndri Silfurbiblíu Wulfilasar erki-
biskups Gota frá 4. öld. Opið þriðju-
daga, fimmtudaga og laugardaga
kl. 14-16 út júlí.
Vikuleg iaugardagsganga Frí-
stundahópsins Hana nú verður á
laugardag 18. júlí. Lagt af staö frá
Digranesvegi 12 kl. 10. Garðar
bæjarins skarta nú sínu fegursta
blómskrúði. Nýlagaðmolakaffi.
birtust í bók hennar um Stjórn,
um skyldleika Stjórnar við ýmis
íslensk 14. aldar handrit. En
þannig voru einmitt vinnubrögð
hennar sem fræðimanns. Rann-
sóknin hélt ætíð áfram og fyrri
hugmyndir voru í stöðugri endur-
skoðun. Með nákvæmum athug-
unum á innbyrðis skyldleika
handrita, uppruna stíls og íkónó-
grafíu reyndi hún að komast að
hvemig listamennirnir störfuðu
og hvert þeir sóttu áhrif.
Það liggur eftir Selmu mikið og
fræðilegt brautryðjandastarf á
sviði íslenskrar listfræði og fráfall
v hennar skilur eftir stórt skarð í
þeim fámenna hópi fræðimanna,
sem á þeim vettvangi vinnur. Að
leiðarlokum er mér þó efst í huga
þakklæti fyrir vináttu hennar og
uppörvun og allt sem hún miðlaði
mér af þekkingu sinni og reynslu.
Ég votta eiginmanni Selmu,
dr. Sigurði Péturssyni, og fjöl-
skyldu hennar mína dýpstu sam-
úð.
Bera Nordal
Dr. Selma Jónsdóttir er fyrsti
íslendingurinn, sem lauk prófi í
listfræði, og starfaði hér á landi.
Hún var jafnframt fyrsta konan
sem fékk doktorsnafnbót frá Há-
skóla íslands árið 1960.
Á sérsviði sínu, miðaldalist,
vann hún mikið og merkt
brautryðjandastarf. Þekking og
áræðni einkenndu rannsóknar-
störf hennar. Þá er ekki síður að
minnast markverðs framlags
hennar til samtímalistar, er hún
sem forstöðumaður Listasafns ís-
lands byggði það upp og gerði að
meginsafni 20. aldar listar á ís-
landi.
Að leiðarlokum vill Félag ís-
lenskra listfræðinga þakka dr.
Selmu Jónsdóttur störf hennar í
þágu íslenskrar listfræði og
myndlistar.
Félag íslenskra iistfræðinga
Föstudagur 17. júlí 1987jÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11