Þjóðviljinn - 21.07.1987, Page 2

Þjóðviljinn - 21.07.1987, Page 2
"SPURNINGIN- Hvaö telurðu aö sængurkonur eigi aö vera lengi inni á fæðingar- deild eftir bamsburð? Jóhanna Harðardóttir verslunareigandi: Ef þær eru með börn fyrir á heimilinu, þá eru átta dagar hið minnsta á fæð- ingardeildinni. Ég lenti í því að vera send heim eftir þrjá daga eftir annað bam og það var slæm reynsla. Matthildur Guðbrandsdóttir fóstra: Ég tel að þær eigi að vera minnsf 5-7 daga inni, til þess að þær geti verið í rólegheitum með barninu og kynnst því. Að vísu er þetta dálítið einstakl- ingsbundið, en að öllu jöfnu eru 5-7 dagar algjör lágmarkshvíld. Hrafnhildur Rogers húsmóðir: I það minnsta í 4 daga. Ég held að það eigi í flestum tilfellum að duga. Fyrir mína parta, sem er 6 barna móðir, er mig alltaf farið að langa heim eftir þann tíma. Elín Óskarsdóttir póstkona: Þangað til þær hafa heilsu til að fara heim. Það er að vísu ákflega misjafnt hvað það tekur langan tíma, fer ftir hverri og einni, en eins og það hefur verið á undanförnum árum, tel ég 5-7 daga hvíld eftir barnsburð mjög við- unandi. Svandís Bjarnadóttir skrifstofumaður: 5 dagar er mjög gott, en mjög misjafnt eftir einstaklingum og hvernig móður og barni heilsast. 3 dagar eru of stutt- ur tími til að jafna sig og ná áttum. FRETTIR Síldarútvegsnefnd Of dýrt fyrir Rússann Samningaviðrœðum við Sovétmenn lokið í bili. 33-36% munur á lokatilboðiþeirra ogSíldarútvegsnefndar Samningaviðræðum Sfldarút- vegsnefndar og Sovétmanna um fyrirframsölu á saltsfld vegna komandi vertíðar er lokið án þess að samkomulag tækist um sölu- verð. Ber þar mikið á milli, segir í frétt frá Sfldarútvegsnefnd. Lokatilboð Sovétmanna í við- ræðunum jafngildir eftir stærðar- flokkum 20-23% lækkun í Bandaríkjadollurum frá fyrra árs verði en 33-36% lækkun miðað við verðtilboð íslendinga vegna komandi vertíðar. Sovétmenn voru ekki til við- ræðu um saltsíldarmagnið í þess- um viðræðum fyrr en niðurstaða lægi fyrir um verðið. í sínu verð- tilboði miða þeir við tilboð sem þeim hefur verið að berast frá Noregi, Hollandi og fleiri löndum, sem er miklu lægra en það markaðsverð sem íslending- ar miða við sem er það verð sem fæst fyrir saltsíldina á frjálsum markaði í Svíþjóð og Finnlandi. í viðskiptasamningi landanna er gert ráð fyrir 200-250 þúsund tunna saltsíldarkvóta. í fyrra tók- ust samningar við Sovétríkin um fyrirframsölu á 200 þúsund tunn- um af heilsaltaðri sfld og voru þá 65% af heildarframleiðslunni seld þangað og er þá miðað við sfld upp úr sjó. -grh Forstjórarnir skruppu í lax. Miljónaverðmæti bíður, engum til gagns, meðan farþegamir skreppa í lax og njóta lífsins lystisemda hér á landi. „Þetta eru svona um tíu vélar á ári, sem lenda hér á Reykjavíkurflugvelli með forstjóra erlendra stórfyrirtækja og bíða á flugvellinum nokkurn tíma meðan stjórarnir skreppa í lax. Núna bíða tvær vélar vegna laxveiða farþeganna, önnur í viku og hin í hálfa viku eða svo,“ sagði Sveinn Björnsson, hjá Flugþjón- ustunni á Reykjavíkurflugvelli. Texti RK/mynd HTr. Kœrumál Jóns Réttarkerfið í dóm? Gunnar G. Schram: Breytinga á réttarfarslöggjöfer ekki að vœntafyrr en dómurfellur í Mannréttindadómstólnum en það er ólíklegtað málið gangi svo langt Munnlegur málflutningur mun fara fram í haust samkvæmt kröfu Mannréttindanefndarinn- ar í Strassborg vegna kæru Jóns Kristinssonar á meðferð á máii hans, en hann var dæmdur fyrir umferðarlagabrot á Akureyri. Telur Jón og lögmaður hans Eiríkur Tómasson ekki stætt á því að bæði dómsvald og fram- kvæmdavald sé í höndum sama aðila eða eins og í þessu tilviki sama manns. Lögreglustjóri á Akureyri dæmdi í máli hans en rannsókn málsins heyrir einnig undir embætti hans eins og tíðk- ast á landsbyggðinni. „Það er allt of snemmt að fara að ímynda sér einhverjar breytingar á þessu stigi málsins, það yrði ekki fyrr en dómur félli í Mannréttindadóm- stólnum sjálfum sem úrskurður verður bindandi fyrir aðildarríki Dómstólsins. Málið fer fyrst fyrir Mannréttindanefndina í haust og hún getur fjallað um það bæði á jákvæðan og neikvæðan máta, þ.e. hún getur ljáð máls á kæru hans og beint þá tilmælum til ráð- herra viðkomandi ríkis, eða hún getur Iagt til að málið fari fyrir Dómstólinn. Ef svo færi og dóm- ur félli Jóni í vil, gæti farið svo að við þyrftum að breyta réttarfars- löggjöfinni, en um það er allt of snemmt að segja núna. Þetta á allt eftir að koma í ljós en það má geta þess að íslendingar hafa all- oft skotið málum til nefndarinnar þar sem réttarkerfið hefur verið gagnrýnt en hún ætíð vísað þeim málum frá,“ sagði Gunnar G. Schram Iagaprófessor er Þjóð- viljinn hafði samband við hann og spurðist fyrir um hvað það gæti þýtt fyrir íslenskt réttarkerfi ef Jón ynni málið. Pétur Kr. Hafstein sýslumaður á ísafirði sagði þessa umræðu ekki nýja af nálinni, umræða um aðskilnað dómsvalds og fram- kvæmdavalds hefði verið í gangi nánast frá aldamótum. „Þetta er ekki spurning um hvort, heldur hvenær,“ sagði Pétur, „og slík breyting er í rauninni mjög eðli- leg og hlýtur að verða, hvort sem þetta mál verður til að flýta henni eða ekki. Breyting sem þessi hefði þá væntanlega í för með sér aðrar breytingar á sýslumanns- embættum, ný verkefni sem nú eru unnin af ráðuneytum." -ing lög i f M \í c 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 21. júlí 1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.