Þjóðviljinn - 21.07.1987, Síða 10

Þjóðviljinn - 21.07.1987, Síða 10
ERLENPAR FRETTIR Indland Jafnvel hundar gelta nú að Gandhi Forsœtisráðherra nœstfjölmennasta ríkis heims á undir högg að sœkja á öllum vígstöðvum. Landið logar ítrúflokkaátökum, Kongressflokkurinn er í upplausn ogþekktur lögfrœðingur Gandhis sakar hann og konu hans um fjármálaspillingu Rajiv Gandhi fékk forsætisráð- herraembætti og formennsku í Kongressflokki að erfðum frá Indiru móður sinni fyrir tveim og háifu ári síðan. Rajiv naut sam- úðar þjóðarinnar vegna sviplegs fráfaiis móðurinnar er hann efndi til kosninga skömmu síðar en synd væri að segja að hann hefði ávaxtað sitt pund. Nú er svo komið að ríki og flokkur eru í upplausn. Hryðju- verk sikha gerast æ tíðari og hind- úar svara í sömu mynt. Öðru hvoru skerst í odda með múslim- um og hindúum og gúrkar eru farnir að láta á sér kræla. Rajiv Gandhi hefur ítrekað sætt ámæli fyrir að taka þessi mál ekki föst- um tökum og á þriðjudaginn var lét þekktasti múslimi ríkisstjórn- arinnar, Mohammad Sayed, af ráðherradómi og bar við ráðleysi Gandhis gagnvart trúflokkaerj- um. Kongressflokkurinn í upplausn En þótt Gandhi eigi í stökustu vandræðum með að varðveita einingu ríkisins gengur þó sýnu verr með Kongressflokkinn. Hvert spillingarmálið hefur rekið annað meðal háttsettra flokksfé- laga og Gandhi hefur skort vilja og kjark til að taka þau mál föst- um tökum. Upplausn í ríki og flokki hefur síðan leitt til þess að kjósendur yfirgefa flokkinn í stórum stíl og er skemmst að minnast óskaplegs afhroðs flokksins í fylkisþingskjörinu í Haryanafylki fyrir skemmstu. Haryana var löngum eitt helsta vígi Kongressflokksins. Jafnvel nánustu stuðnings- menn forsætisráðherrans viður- kenna að síðasta árið hafi ein- kennst af klúðri á klúður ofan og nú sé Gandhi ekki lengur nefndur „herra Hreinn“ nema af fjendum sínum í háðungarskyni. Og síðustu dagar hafa verið honum sérlega erfiðir. Nýverið sá Gandhi sig knúinn til að fara þess á leit við kvikmyndstjörnuna og æskufélaga, Amitabh Bachan, að hann segði af sér þingmennsku fyrir Kongressflokkinn sökum meints fjármálamisferlis bróður hans. Hann mælti einnig fyrir um opinbera rannsókn á innistæðum bróðurins í svissneskum bönk- um. Samtímis gerði hann sér lítið fyrir og rak fjóra atkvæðamestu andstæðinga sína úr flokknum. Arun Nehru, frænda sinn, Vidya Charan Shukla og Arif Moham- mad Khan voru strikaðir út af fé- lagaskrám á miðvikudag og um helgina fór fyrrum fjármála- og varnarmálaráðherra Indlands, Vishwanath Pratap Singh, sömu leið. Hann hafði í ráðherratíð sinni skorið upp herör gegn spilltum embættis- og fjármála- Ítalía Goria í vanda Sósíalistar og verkalýðsleiðtogar óánœgðir með hugmyndir hans um „aðhald og sparnað“ inum „barnunga“ og fjail- myndarlega fyrrum fjármála- ráðherra Italíu, Giovanni Goria, ætlar ekki að ganga jafn skínandi vel að mynda ríkisstjórn og menn höfðu gert sér vonir um. Sem kunnugt er fól Cossiga forseti honum umboð til stjórn- armyndunar fyrir rúmri viku og var það talið snilldarbragð þar eð með því sneiddi hann hjá erki- fjendunum de Mita og Craxi, for- mönnum stóru flokkanna tveggja úr fimm flokka stjórninni sálugu. Þótt Goria sé kristilegur demó- krati einsog de Mita þá er talið að sósíalistinn Craxi eigi betra með að fallast á hann sem forystusauð ríkisstjórnar en formanninn. Allir töldu Goria á góðri leið með að endurvekja stjórn flokk- anna fimm þar til um síðustu helgi að babb kom í bátinn. Goria lagði fram hugmyndir um efnahagsaðgerðir nú um helg- ina sem sósíalistar telja sig alls ekki geta fallist á. Þær eru í gam- alkunnum hægristíl, draga á stór- lega úr útgjöldum hins opinbera og leggja á óbeina skatta svo dæmi séu tekin. Sósíalistar og verkalýðsleiðtogar hafna tillög- unum og kveða þær myndu stór- auka atvinnuleysi og gera að engu uppbyggingu í syðri héruð- um Ítalíu fengju þær brautar- gengi. En þrátt fyrir þennan afturkipp Giovanni Goria. Menn hafa enn trú á honum þótt ekki séu allir hrifnir af til- lögum hans í efnahagsmálum. er talið að Goria klastri sama stjórn, enginn annar vaikostur < í sjónmáli og brátt gengur áj ústmánuður í garð. Þá er svo hei á Ítalíu að allir sem vettlingi gel valdið flýja borgimar, einni stjórnmálamenn. -kí Upplausn. Þetta orð lýsir öðru fremur ástandinu á Indlandi um þessar mundir, jafnt í landsmálum, ríkisstjórn sem innan Kongressflokksins. Myndin er talandi tákn um þetta, tveir strætisvagnar hafa orðið múg að bráð í Haryanafylki. mönnum, þótti sauma um of að einstaklingum í innsta valdkjarna Kongressflokksins og varð því að víkja. En rotturnar halda áfram að yfirgefa hið sökkvandi skip og á laugardaginn sagði Arun Singh, gamall vopnabróðir Gandhis, af sérembætti varnarmálaráðherra. Nánir aðstoðarmenn hans hafa gert því skóna að ástæðan sé sú að Singh hafi komist yfir plögg sem sanni óvefengjanlega að háttsett- ir embættismenn og jafnvel ein- hverjir kollega í ríkisstjórninni hafi þegið mútufé þegar vígtól voru keypt fyrir 1,3 miljarða bandaríkjadala frá sænska vopn- aframleiðandanum Bofors. Sem kunnugt er hefur Gandhi þrá- sinnis þverneitað fullyrðingum um misferli flokksfélaga í sam- bandi við kaupin. Heimildamenn innan Kong- ressflokksins kveða marga and- stæðinga forsætisráðherrans munu segja sig úr flokknum á næstunni. Þeir telja ennfremur miklar líkur á því að V.P. Singh muni beita sér fyrir falli Kong- ressstjórnarinnar í heimafylki sínu, Uttar Pradesh, þar sem hann nýtur mikils álits. Fylkið er hið fjölmennasta á Indlandi (um 111 miljónir íbúa) og það kæmi sér vægast sagt illa fyrir forsætis- ráðherrann ef efnt yrði til kosn- inga þar á næstunni. Kongress- flokkurinn hefur tapað hverju einu og einasta fylkisþingskjöri frá því Gandhi hófst til valda og ekki eru miklar líkur á því að sú óheillaþróun snerist við í Uttar Pradesh, skömmu eftir að helstu leiðtogar flokksins úr fylkinu hafa verið reknir úr honum. Niðurlægingin í Haryana hefur neytt Gandhi til að brjóta odd af oflæti sínu og hefja samningavið- ræður við „gamla lífvörðinn“ í Kongressflokknum um leiðir út úr ógöngunum. Hér er átt við menn sem móðir forsætisráðherr- ans, Indira, hafði í hávegum en hann hefur fram að þessu hunds- að. Ástandið innan flokks og ríkis- stjórnar er ekki beysið og einn þekktasti stjórnmálaskýrandi Indverja, Nikhil Chakravarty, skefur ekki af hlutunum í dag- blaðinu Tímar Indlands: „Þegar forysta flokksins er sökuð um spillingu vita óbreyttir flokks- menn ekki sitt rjúkandi ráð. Flokkurinn sér enga færa leið út úr vandanum aðra en að kveða niður óánægjuraddir með valdi þegar stjórnarandstaðan vekur máls á einhverju gerræðinu á þingi. Undir slíkum kringum- stæðum kemur enginn auga á lausn. Og tími sjónhverfinga er liðinn. Leiðtogar stjórnarandstöð- unnar voru ekki lengi að taka við sér og báru þessar ásakanir inná þing. Gandhi missti gersamlega stjórn á skapsmunum sínum og æpti að hann léti sér ekki til hugar koma að svara „geltandi hund- um“. Daginn eftir byrjaði Jethma- lani að „gelta" svo um munaði. í þrjátíu daga lét hann birta tíu fýrirspurnir á dag um ýmis meint misferli, þar á meðal bar hann fram spurningar um fjármála- brask eiginkonu forsætisráðherr- ans, sem er af ítölsku bergi brotin og heitir Sonja, og margra vina hans. Sameiginlegir vinir lögmanns- ins og Gandhis reyndu að miðla málum í upphafi en allt kom fyrir ekki og er talið að „geltið“ hafi skaðað ímynd Gandhis mjög í augum landsmanna og endanlega riðið goðsögunni um „herra Hrein“ að fullu. í skoðanakönnun sem gerð var í tilefni fyrirspurna Jethmalanis kom í ljós að 55 hundraðshlutar töldu þær hafa skaðað trúverðug- leika forsætisráðherrans mjög, 74 prósent telja Gandhi verða að gera hreint fyrir sínum dyrum og 56 telja hann hafa óhreint mjöl í pokahorninu. -ks. Rajiv Gandhi. Riðar hann til falls? En þrátt fyrir öll ósköpin hefur ein frétt þó glatt Rajiv Gandhi í síðustu viku. Þekktasti sérfæð- ingur Indverja í hegningarlögum, lögfræðingurinn Ram Jethma- lani, hætti að sauma að honum í dagblöðum með tíu óþægilegum fyrirspurnum á dag! Þáði Gandhi mútur? Þannig er mál með vexti að í síðasta mánuði snéri Jethmalani heim úr Svíþjóðarför og fór strax við heimkomuna að ýja að því að Boforshneykslið væri mun um- fangsmeira en í fyrstu var talið og að hugsanlegt væri að Gandhi sjálfur hefði þegið mútur! Atvinna erlendis Hér er upplýsingabókin fyrir þig sem ert að leita að vinnu erlendis til lengri eða skemmri tíma. Hún inniheldur upplýsingar um störf í málm- og olíuiðnaði, við kennslu, garðvinnu, akstur, á hótelum og veitingastöðum, au-pair, fararstjórn, ávaxtatínslu í Frakklandi og Bandaríkjunum, tískusýninga- og Ijósmyndafyrirsætustörf og störf á búgörðum, samyrkjubúum eða skemmtiferðaskipum. Bókinni fylgja umsóknareyðublöð. Þetta er bókin fyrir þá sem hafa hug á að fá sér starf erlendis. Þú færð upplýsingar um loftslag, aðbúnað í húsnæði, vinnutíma o.fl. Þar að auki færðu heimilisföng u.þ.b. 1000 staða og atvinnumiðlana. Bókin kostar aðeins 98.- s.kr. (póstburðargjald innifalið). 10 daga skilafrestur. Skrifaðu til CENTRALHUS Box 48, 142 00 Stockholm Odretelefon: 08 744 10 50 P.S. Við útvegum ekki vinnu!

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.