Þjóðviljinn - 23.07.1987, Síða 2
Hrefna Ósk Benediktsdóttir
ungþjónn.
Já þetta er áreiðanlega betra þó
maður verði lítið var við þetta í
daglega lífinu. En nafnið á bæn-
um er auðvitað breytt.
Jóninna Pétursdóttir
afgreiðslumaður.
Ég get nú ekki gert mér grein fyrir
því svona í fljótu bragði. Ég vissi
nú reyndar ekki að þetta stæði til
fyrr en það var afstaðið.
Hörður Jóhannesson
vinnuvélastjóri
Þetta breytir voða litlu held ég.
Maður verður alla vega ekki var
við það. Gæti frekar gert það
þegar fram í sækir.
"SPURNÍNGIN""
Telur þú aö nýfengin
kaupstaðarréttindi hafi
áhrif í bæjarlífinu? (Spurt
í Hveragerði)
Óskar Gunnlaugsson
bifvélavirki.
Ég held að þetta breyti ekki neinu
ennþá, nema bara nafninu, þetta
er titill. En það á eftir að hafa áhrif
þegar frá líður.
Magnús Stefánsson
garðyrkjubóndi.
Þetta breytir engu svona alveg til
að byrja með en kemurtil með að
hafa áhrif seinna, til dæmis vonar
maður að þetta hjálpi til með að
fá löggæsluna í betra horf. Svo er
maður náttúrlega ekki þorpari
lengur.
FRETTIR
Viðbrögðin hafa verið með ein-
dæmum góð og engin þeirra
kvenna sem byrjuðu á nám-
skeiðunum hættu við, sagði Jóna
Ingibjörg Jónsdóttir hjúkrunar-
fræðingur og kennari í kyniífsf-
ræðslu um námskeið í kyn-
fuilnægju kvenna sem hún hefur
staðið fyrir í sumar.
Það vakti athygli fyrri part
sumars þegar Jóna auglýsti í fjöl-
miðlum námskeið fyrir konur í
kynfullnægingu. Fólk flissaði
feimnislega og fjölmiðlafólk
stamaði þegar það spurði Jónu
um titrarann sem telst meðal
nauðsynlegra námsgagna,
heimaæfingar og hópæfingar.
„Ég var mjög óviss um hversu
mikil skráningin á námskeiðin
yrði, en hún varð mun betri en ég
átti von á,“ sagði Jóna. Jóna
sagði að alls hefðu 30 konur kom-
ist á námskeiðin og aðrar 30 voru
komnar á biðlista þegar að hún
hætti að skrá konur niður. „Ég
hef nú gert mér grein fyrir því
hversu mikil þörf er á kynlífsráð-
gjöf og meðferð hér á landi og að
ég get engan veginn ein sinnt allri
þeirri þörf,“ sagði Jóna.
Jóna lagði áherslu á að nám-
skeiðin væru ekki eingöngu
bundin við það að ná árangri í
kynfullnægingu jafnvel þótt þau
hafi verið auglýst þannig. Nám-
skeiðin miði almennt að því að
kenna konum að njóta kynlífs
betur og í því markmiði séu fyrir-
lestrar og umræður um margvís-
legar hliðar kynlífsins.
Aðspúrð um hvernig kynlífsá-
stand þeirra kvenna væri sem
hefðu sótt námskeiðin, sagði
Jóna að það væri mjög misjafnt
og vandamálin væru af ýmsum
toga. Nokkrar konur hefðu til
dæmis aldrei upplifað fullnæg-
ingu, hvorki einar né með öðr-
um, og aðrar gætu fengið fullnæg-
ingu einar, en ekki með öðrum.
Þá væru á námskeiðunum konur
sem ættu ekki við fullnægingar-
vandamál að stríða, en kvörtuðu
undan áhugaleysi á kynlífi og
minnkandi kynhvöt. „Oft hafa
þessar konur þá verið að miða sig
við maka sem vilja í tíma og ót-
íma hafa kynmök, en sú viðmið-
un er alls ekki endilega sú rétta
fyrir konur,“ sagði Jóna. Þá sagði
Jóna að í mörgum tilfellum væri
vandamálið það að tjáskiptin á
milli maka um kynlíf væru svo
takmörkuð að það gæti haft veru-
leg áhrif á kynlífið.
Að sögn Jónu voru flestar kon-
ur á námskeiðunum í sambúð eða
giftar. Þær væru frá aldrinum 19
ára og allt upp að sextugu. Að-
spurð um hvort feimni og óöryggi
hefði hrjáð þátttakendur, sagði
Jóna að það hafi borið ótrúlega
lítið á því. „Ég held að ein ástæð-
an fyrir því sé að ég hafi komið
mjög hispurslaust fram. Auk þess
fór ég hægt í það að byggja upp
gagnkvæmt traust hjá konunum
og ég lét þær meira um það að
finna á hvaða punkti það væri
hægt að láta allt flakka. í flestum
Jóna Ingibjörg Jónsdóttir: Flestar fóru að láta allt flakka þriðja kvöldið.
tilfellum gerðist það á þriðja
kvöldi."
„Ég held að námskeiðin hafi
borið góðan árangur fyrir flesta
þátttakendur. Ég hef sjálf lært
mikið af þessum námskeiðum og
jafnframt fengið staðfestingu á
því hversu mikil þörf er á slikri
fræðslu. Ég vil hvetja þá sem hafa
áhuga á að mennta sig á þessu
sviði því hér er um óplægðan akur
að ræða og ég mun ekki geta sinnt
þörfinni í framtíðinni,“ sagði
Jóna að lokum en hún er á förum
utan í ágústlok og væntanleg til
landsins á ný næsta sumar. Þá
hyggst hún efna til fleiri kynl-
ífsnámskeiða fyrir konur. Þær
konur sem vilja komast í sam-
band við Jónu geta gert það í
gegnum pósthólf 274 210 í Garða-
bæ.
-K.Oi.
Surtsey
Hitastigsbreytingar
Sveinn Jakobsson jarðfrceðingur: Hiti hækkaði á litlu svœði 1985
og 1986. Fer aftur lækkandi núna
um að mælarnir væru bilaðir. En hafa að líkindum myndast brota-
Við höfum mæit hitastigið í
Surtsey nokkuð reglulega frá
því gosinu lauk 1967, sagði
Sveinn Jakobsson, jarðfræðingur
sem nýkominn er úr stuttri
könnunarferð í eyna. Við fundum
lengi vel eðlilega kólnun en svo
gerðist það 1985 og 1986 að hiti á
iitlu svæði hækkaði aftur. Fór
upp i tæpar 300 gráður.
Við skildum þetta nú ekki á
sínum tíma, sagði Sveinn, héld-
hitinn var enn í tæpum 300
gráðum í fyrra og ekki voru mæl-
arnir bilaðir þá. Nú er hins vegar
farið að kólna á þessu svæði aft-
ur. í síðustu viku var hitinn kom-
inn niður í 240 gráður og virðist
því á niðurleið.
Sveinn taldi líklegustu skýring-
una á þessari þróun hitaferilsins í
Surtsey vera þá að „sennilegast
hefði eyjan sigið til að sunnan. Þá
sprungur og opnast niðurá
heitasta hluta hraunsins. En
hraunið er um 100 metra þykkt,
þar sem það er þykkast. Þannig
hefur hitinn náð upp í yfirborð-
ið,“ sagði Sveinn að lokum.
(Vegna mistaka í prentun datt
út setningarhluti í lítilli frétt um
Surtsey í blaðinu í gcer, sem gerði
hitafrásögn lítt skiljanlega).
-ÖS
Kynlífsnámskeið
Lærði
að njóta
Námskeiðið hefur verið mjög
skemmtilegt og lærdómsrikt,
sagði þátttakandi á kyn-
fullnægjunámskeiði Jónu Ingi-
bjargar í samtali við Þjóðviljann.
„Það sem kom mér e.t.v. mest
á óvart á námskeiðinu var hversu
náin og góð tengsl sköpuðust á
milli þátttakenda á þessum 6 vik-
um sem námskeiðið stóð yfir.
Konur komu þarna fyrsta daginn
með múrvegg í kringum sig og í
lok námskeiðsins var hann gjör-
samlega hruninn til grunna. Við
gátum orðið talað um alla hluti.
Annað sem kom mér á óvart var
hversu margar konur eiga við
sambærileg vandamál að stríða.
Maður er ekki einn“.
Þá sagði viðmælandi að hún
hefði ekki sótt námskeiðið vegna
fullnægingarvandamáls, en engu
að síður hefði hún lært mikið sem
kæmi sér að gagni í því að njóta
kynlífsins betur. Hins vegar
hefðu verið konur á námskeiðinu
vegna þess vandamáls sérstak-
lega og hún gæti vitnað um það að
margar þeirra teldu árangurinn
ótvíræðan. „Ég myndi tvímæla-
laust ráðleggja hverjum sem væri
að sækja námskeið hjá Jónu. Það
mun enginn sjá eftir því sem nálg-
ast verkefnið með réttu hugar-
fari,“ sagði viðmælandi að lok-
um- -K.Ól.
Kynlífsnámskeið
Arangurinn
góður
Fœrri komustað en vildu á námskeiðJónu
Ingibjargar Jónsdóttur í kynfullnœgingu
kvenna. Jóna Ingibjörg Jónsdóttir: Viðbrögð-
in með eindœmum góð. Engin kona hætti við
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 23. júlf 1987