Þjóðviljinn - 23.07.1987, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 23.07.1987, Blaðsíða 15
í kvöld eru tveir leikir í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarkeppninn- ar. Valur og Völsungur leika á Valsvelli og Víðir og KR leika í Garðinum. Þá er einn leikur í 2. deild karla. Víkingur og Breiðablik eigast við á Valbjarnarvellinum og hefst viðureignin kl. 20. Fimleikar Gengið á höndum! Knattspyrna I kvöld Fimleikafólk í Ármanni er á leið í æfingabúðir í Danmörku og til að fjármagna ferðinna mun fimleikfólk félagsins efna til f]ár- öflunargöngu í dag - á höndum! Steinar Ingimundarson skorar jöfnunarmark Leiftursmanna, 1-1. Friðrik Friðriksson og Janus Guðlaugsson koma engum vömum við. Þetta mark næqði Leiftursmönnum þó ekki því Framarar bættu tveimur mörkum við. Mynd: E.OI. Knattspyrna/Bikar ^ Hörkurimma á Olafsfirði Framarar þurftu að hafa fyrir sigrinum gegn Leiftri Gengið verður frá Stjörnunni, Sigtúni 7 og þaðan niður á Lækj- artorg. Áætlað er að koma þang- að um 15.30. Alls munu 25 krakkar taka þátt í þessari göngu og ef tekst að ljúka henni er það íslandsmet. Þeir sem hafa áhuga á að heita á göngumennina get skráð sig hjá Stjörnunni eða hitt hópinn á leiðinni. Ármenningar munu einnig verða með ýmsar uppákomur á útimarkaðnum á Lækjartorgi á morgun. Valsstúlkurnar tryggðu sér sæti í 4-liða úrslitum bikarkeppn- innar með naumum sigri gegn Stjörnunni í gær, 1-0. Leikurinn var mjög vel spilað- ur og Stjörnustúlkur mættu til leiks með því hugarfari að hefna fyrir 5-0 tap gegn Val nú fyrir skömmu. Fyrri hálfleikurinn var fjörug- ur, en án hættulegra marktæki- færa. En strax í upphafi síðari hálfleiks fengu Valsstúlkur gott færi, en skot þeirra fór í þverslá. Skömmu síðar kom sigurmarkið. Arney Magnúsdóttir var þar að verki. Valsstúlkumar fengu síðan gott tækifæri til að bæta við, en Anna Sigurbjörnsdóttir varði meistaralega frá Ingibjörgu Jóns- dóttir. Á síðustu mínútu voru Stjaman nálægt því að ná að Framarar þurftu aldeilis að hafa fyrir sigrinum gegn Leiftri í 8-liða úrslitum á Ólafsfirði í gær, 3-1. Úrslit leiksins réðust á vafasamri víta- jafna eftir óbeina aukaspyrnu, en Valur slapp með skrekkinn. Bæði liðin léku vel, en Vals- stúlkurnar höfðu meistarahepp- nina með sér. Guðmundur Har- aldsson dæmdi leikinn mjög vel. í fyrra kvöld sigraði IA KA, 2-0 á Akureyri. Ragnheiður Jónsdóttir og Vanda Sigurgeirs- dóttir skorðuðu mörk Skaga- stúlknanna og sigur þeirra var sanngjarn. Þjálfara- lausir Blikar Ómar Arason, þjálfari Blika- stúlknanna er nú hættur. Það kemur ekki mikið á óvart, enda árangur Blikastúlkanna vægast sagt slakur og þær enn í fallhættu. Nokkuð sem menn höfðu ekki búist við. -MHM spyrnu, eftir að Leifturmenn höfðu náð að jafna. Það var ótrúleg stemmning á Ólafs- firði. Rúmlega 600 áhorfendur í 1200 manna bæ, segir líklega það sem segja þarf um stemmninguna. Og áhorf- endur fengu eitthvað fyrir aurana, fjörugan leik og fjögur mörk. Framarar byrjuðu vel, en gekk illa að skapa sér hættuleg færi. Leifturs- menn vörðust vel. Það voru þó heimamenn sem áttu fyrsta færi leiksins. Helgi Jóhannsson fékk bolt- ann óvænt á markteig, en hitti bolt- ann illa og fór rétt framhjá marki Fram. Skömmu síðar fékk Halldór Guðmundsson svipað færi, en hann náði ekki nógu góðu skoti. Það var svo á 30. mínútu að Fram- ara náðu forystunni. Eftir góða sókn Framarar fékk Einar Ásbjörn Ólafs- son boltann á markteig og afgreiddi hann snyrtilega í hornið fjær. Leiftursmenn byrjuðu vel í síðari hálfleik, en gekk illa að skapa sér færi. Þorvaldur Jónsson bjargaði vel þegar Ragnar Margeirsson komst einn í gegn og skömmu síðar jöfnuðu Leiftursmenn. Steinar Ingimundar- son, sem var nýkominn inná sem varamaður, fékk boltann á markteig og skoraði með góðu skoti, 1-1. En gleði Leiftursmanna stóð ekki iengi. Á 80. mínútu fengu Framarar nokkuð umdeilda vítaspyrnu. Þór- oddur Hjaltalín dómari dæmdi hendi á Leiftursmenn, en ekki voru allir sammála um það. Pétur Ormslev tók spyrnuna og skoraði. Þorvaldur hafði þó hendur á boltanum, sló hann í stöngina og inn. Eftir markið var sem allur vindur úr Leifturmönnum. Fimrn mínútum fyrir leikslok bætti Kristján Jónsson öðru marki við. Ormarr Örlygsson lék upp kantinn og gaf fyrir á Kristján sem var einn rétt við markið og skoraði af öryggi. Leiftursmenn lifnuðu þó við í síðari hálfleik, en tókst ekki að skora þrátt fyrir góða viðleitni. Leikurinn var skemmtilegur og spennandi, rétt eins og bikarleikir eiga að vera. Framarar voru sterkari á miðjunni, en gekk illa að nýta sér það. Pétur Arnþórsson var bestur í liði Fram, mjög snöggur og skapaði oft hættu við mark Leifturs. Ormarr Örlygsson átti einnig góðan leik. Hjá Leiftri voru það Þorvaldur Jónsson, sem var öruggur í markinu og Hafsteinn Jakobsson sem voru bestu menn. Hafsteinn mjög sterkur á miðjunni. -jh/lbe Frjálsar íþróttir Einar sigraði Kastaði 78.94 metra á sterku móti í Róm Einar Vilhjálmsson gerði sér lítið fyrir og sigraði í keppni í spjótkasti á stigamóti í Róm í gær. Hann kastaði 78.94 metra. Einar hafði ekki í hyggju að taka þátt í þessu móti, en ákvað á síðustu stundu til að reyna að komast á lokamótið í Brussel. Það borgaði sig og hann stendur nú mjög vel að vígi á Evrópulist- anum. Á þessu sama móti setti Said Aquita heimsmet í 5.000 metra hlaupi á 12.58.39. Hann sagö' eftir hlaupið að hann hafði ekki átt von á þessu og ef hann hefði ekki verið í þungum æfingum að undanförnu hefði hann hlaupið undir 12.50 mínútum. _lbe Knattspyrna/Bikar Kvennaknattspyrna Naumt hjá Val Handbolti íslenskur sigur Gegn Bandaríkjamönnum í handbolta íslenska landsliðið í hand- knatUeik átti ekki í miklum vand- ræðum með það bandaríska er liðin léku í gær. ísland sigraði 26- 20 í góðum leik. íslenska landsliðið er nú á keppnisferðalagi í Bandaríkjun- um og þrátt fyrir að í liðið vanti marga af máttarstólpunum, lék það mjög vel í gær. Leikmenn Iiðsins létu ekki 40 stiga hitann í höllinni í Atlanta hafa áhrif á sig. Heimamenn komust einu sinni yfir í leiknum, 1-0. Eftir það tóku Islendingar völdin og náðu góðu forskoti. í hálfleik var staðan, 13- 9 íslandi í vil. ísland náði svo níu marka for- skoti í síðari hálfleik, en heima- menn náðu að klóra í bakkann undir lokin, en sigur íslands þó öruggur, 26-20. Fjórir leikmenn lék sinn fyrsta A-landsleik. Bjarki Sigurðsson, Konráð Olavsson, Birgir Sig- urðsson og Bergsveinn Berg- sveinsson. Guðmundur Hrafnkelsson stóð í markinu og varði mjög vel, en Geir Sveinsson stjórnaði varn- arleik liðsins af öryggi. Mörk íslands: Júlíus Jónasson 6, Aðalsteinn Jónsson 6, Einar Einars- son 3, Héðinn Gilsson 3, Konráð Ol- avsson 3, Bjarki Sigurðsson 2, Karl Þráinsson 2 og Jón Kristjánsson 1. -Ibe Sjo vita i suginn Þórsigraði í vítaspyrnukeppni Það var ótrúleg spenna í leik Þórs og ÍBK á Akureyri í gær. Leikurinn jafn og skemmtilegur, en Þórsarar sigruðu 4-3 eftir vítaspyrnukeppni. Alls voru 10 vitaspyrnur teknar, en aðcins skorað úr þremur! Það leit ekki út fyrir mikla spennu í fyrri hálfleik. Daufur leikur beggja Uða og lítið um færi. Baldvin Guð- mundsson bjargaði þó tvívegis mjög vel, frá Gunnari Oddssyni og Ingvari Guðmundssyni. Síðari háfleikurinn var opinn og skemmtilegur. Á 51. mínútu náðu Þórsarar forystunni. Hlynur Birgis- son gaf fyrir á Halldór Áskelsson sem skoraði með góðu skoti frá víta- punkti. Þremur mínútum síðar jöfnuðu Keflvíkingar. Freyr Sverrisson gaf fyrir mark Þórs og Óli Þór Magnús- son kastaði sér fram og skoraði með góðum skalla. En Þórsarar náðu forystunni á nýj- an leik. Hlynur lék á tvo varnarmenn og gaf boltann beint á kollinn á Krist- jáni Kristjánssyni, sem átti ekki í miklum erfiðleikum með að afgreiða hann í netið. Skömmu síðar fengu Þórsarar gullið tækifæri til að gera útum leikinn. Þá var brotið á Hlyn í vítateig, en Þorsteinn Bjarnason varði vítaspyrnu frá Jónasi Róberts- syni, með blátánni, eftir að hafa farið í rangt horn. Það var svo ekki fyrr en að fjórar mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma að Keflvíkingar jöfnuðu. Boltinn barst úr vítateig Þórsara til Skúla Rósantssonar sem skoraði með þrumuskoti út við stöng. Framlengingin var jöfn. Halldór fékk þó gott færi, en skaut í þverslá eftir þvögu í vítateig ÍBK. Skömmu síðar komst Ingvar í gott færi, en skaut beint á Baldvin. Staðan enn 2-2 eftir framlengingu og því komið að vítaspyrnukeppn- innni. Jónas skoraði fyrir Þór, 3-2 og Baldvin varði frá Óla Þór. Kristján skoraði úr sinni spyrnu og staðan því 4-2. Sigurður Björgvinsson minnkaði muninn fyrir ÍBK, 4-3. Guðmundur Valur Sigurðsson tók næstu spyrnu fyrir Þór, en Þorsteinn varði. Skúli var næstur fyrir ÍBK, en skaut hátt yfir. Þá var komið að Valdimar Pálssyni, en hann skaut framhjá. Keflvtkingar áttu því enn færi á að jafna, en Baldvin varði frá Gunnari Oddssyni. Þórsarar gátu tryggt sér sigur með marki, en Sigurbjörn Viðarsson skaut í þverslá og beint niður. Það var því mikil pressa á Rún- ari Georgssyni í síðustu spyrnu ÍBK. Hann skaut í þverslá og yfir oe sigur Þórs í höfn, 4-3. Leikurinn var bráðskemmtilegur og mikil spenna í lokin. Þórsarar höfðu heppnina með sér og eru komnir í undanúrslit. -hk/lbe Flmmtudagur 23. júlí 1987 ÞJÓÐVILJINR- SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.