Þjóðviljinn - 23.07.1987, Blaðsíða 11
mmm ÖRFRÉTTIR mmmam
Loksins! Loksins!
héldu tvö olíuflutningaskip frá
Kuwait inná átakaflóann í fylgd
þriggja bandarískra herskipa. (
rauðabýtið í gærmorgun sigldi
lestin út úr Ómanflóa sem leið lá
um hið alræmda Hormuzsund og
inná Persaflóa. Hvergi bólaði á
írönskum árásarseggjum og eru
skipin væntanleg til hafnar síðla
aðfararnætur föstudags.
Allsherjar-
verkfall
lamaði allar stærstu borgir Bang-
ladesh í gær. Víða kom til áfloga
stjómarandstæðinga annars
vegar og fylgismanna Ershads
forseta og lögreglu hins vegar.
Að minnsta kosti 100 manns
slösuðust í ósköpunum, þar af
fjölmargir eftir að andófsmenn
lögðu elda að herbækistöð í höf-
uðborginni Dhaka. Leiðtogar
stjórnarandstöðunnar voru sem
vænta mátti í sjöunda himni yfir
góðri þátttöku í vinnustöðvuninni
og kváðust ekki ætla að linna lát-
unum fyrr en forsetinn hrökklað-
ist frá völdum.
Peter Handke
er maður nefndur, heimsfrægur
austurískur rithöfundur. Hann
hefur látið fara frá sér harðorð
mótmæli vegna þess að fyrirhug-
að er að Kurt Waldheim forseti
Austurríkis opni formlega hand-
ritasýningu í Salzburg þann 27.
þessa mánaðar. Handke segir
athafnir eða athafnaleysi Wald-
heims í síðari heimstyrjöld vera
smánarblett í sögu þjóðar sinnar
en þó ætli hann ekki að láta fjar-
lægja sín eigin verk af sýningunni
þar eð slíkt myndi aðeins bitna á
gestum.
ítalir
fá að öllum líkindum nýja stjórn í
byrjun næstu viku. Talið er að þá
hafi kristilega demókratanum Gi-
ovanni Goria tekist að endur-
vekja fimm flokka stjórnina sál-
ugu sem fyrrum var undir forsæti
sósíalistans Bettinos Craxis.
Hinsvegar efast margir um að
hún eigi langt líf fyrir höndum.
Hún muni setja fjárlög fyrir næsta
ár og springa síðan þar sem á-
greiningur sósíalista og kristi-
legra demókrata sé enn óleystur.
Sýrlendingi
var skotið út í geiminn í gær. Mo-
hammad Faris ofursti er fyrstur
landa sinna til að skreppa út fyrir
gufuhvolf jarðar og er hann í
samfloti með tveim sovéskum
geimförum um borð í fari af gerð-
inni Soyuz TM-3. Síðast þegar
fréttist af þeim félögum flugu þeir
með ofsahraða í átt að geimstöð-
inni MIR. Ferðalagi þeirra mun
Ijúka eftir 10 daga.
91 árs gömul
bandarísk amma hóf í gær að
klífa fjallið Fuji í Japan sem er hið
hæsta þarlendis. Hulda Crooks
frá Kaliforníu ætlar sér þrjá daga
til að ná tindi fjallsins sem er
3,776 metra hátt. Ef hún nær því
marki verður hún elsta konan
sem prílað hefur uppá hið helga
fjall. Fyrra metið setti níræð jap-
önsk kvinna í hittifyrra.
Ríkisstjórnir
aðildarlanda Evrópubandalags-
ins verða með einhverjum hætti
að skapa 80,000 ný störf handa
verkafólki sem missir atvinnu
sína í stáliðnaði á næstu þrem
árum. í löndunum tólf er mikil of-
framleiðsla á stáli og eru uppi
áætlanir á vegum bandalagsins
um lokun mjög margra stáliðju-
vera á næstu árum.
ERLENDAR FRÉTTIR
Gorbatsjof
Fellst á eyðingu Asíuflauga
ígœr var tilkynnt í Moskvu að Sovétmenn hefðufallist á eyðingu allra
meðaldrœgra kjarnflauga sinna, jafnt íAsíu sem Evrópu. Krefjast
þess ekki að Bandaríkjamenn fjarlœgi kjarnvopn sín úr Asíu
Mikjáll Gorbatsjof Sovétleið-
togi gcrði Bandaríkjastjórn
enn citt afvopnunartilboðið í gær.
Hann kveðst fallast á að öllum
meðal- og skammdrægum kjarn-
flaugum risaveldanna verði eytt,
jafnt í Evrópu sem utan.
Fram að þessu hafa Sovétmenn
ekki vilja ljá máls á því að afsala
sér rétti til að halda eftir 100 með-
alflaugum í Asíu ef semdist um
eyðingu þeirra úr Evrópu. Þeir
hafa viljað takmarka „tvöföldu
núlllausnina" við Evrópu og sagt
sem svo að kjarnavopn Banda-
ríkjamanna í og við Japan,
Suður-Kóreu og Filippseyjar geri
það nauðsynlegt að þeir hafi
þetta mótvægi í álfunni.
En Gorbatsjof sagðist í gær
ekki lengur gera það að skilyrði
fyrir eyðingu Asíuflauganna að
Bandaríkjamenn hrófluðu við
vítisvélum sínum í og við löndin
þrjú.
Tilboðið kemur á sama tíma og
afvopnunarviðræður stórveld-
anna í Genf virtust vera að sigla í
strand vegna kröfu Bandaríkja-
manna um að Kremlverjar létu
flaugarnar í austri fokka. Þær
draga um 500-1000 kílómetra
leið.
Orðrétt sagði leiðtoginn:
„Með tilliti til sjónarmiða Asíu-
ríkja eru Sovétmenn reiðubúnir
til að fallast á eyðingu^allra með-
aldrægra kjarnflauga sinna, í
Asíu sem annars staðar. Með
öðrum orðum, við viljum að
„tvöfalda núlllausnin“ nái til
heimsins alls.“
Og þótt Sovétmenn geri ekki
að skilyrði að Bandaríkjamenn
geri slíkt hið sama við kjarnvopn
sín í Asíulöndunum „þá gerum
við okkur að minnsta kosti vonir
um að þeir fjölgi þeim ekki.“
Sovétmenn eiga um 30-40
skammdrægar kjarnflaugar í As-
íuhluta ríkisins og Gorbatsjof
bauðst ennfremur til að eyða
þeim. Einnig kvað hann stjórn
sína ekki hafa í hyggju að fjölga
flugvélum sem borið geta kjarn-
írans/Kontrahneykslið
Shultz krafim sagna
í dag hefjastyfirheyrslur yfir utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna. Bœði Poindexter og
North hafa ýjað að því að Shultz hafi vitað
meira en hann vill vera láta
John Ppindexter aðmíráll hefur
lokið vitnisburði sínurn fyrir
þingnefndinni sem fer ofaní
saumana á írans/
Kontrahneykslinu. í dag heljast
yfirheyrslur yfir George Shultz,
utanrfldsráðherra Bandaríkj-
anna.
Mál þetta er orðið hið óþægi-
legasta fyrir æðsta ráðgjafa Reag-
ans forseta í utanríkismálum því
bæði Poindexter og Oliver North
ofursti hafa gefið sterklega í skyn
að hann hafi haft fyllri vitneskju
um vopnasöluna til íran og fjár-
streymið til Kontraliðanna en
hann hefur sjálfur viljað vera
láta.
Aðmírállinn sagði um þátt
Shultz og Weinbergers, varnar-
málaráðherra, í hneykslinu: „Ég
hélt engu leyndu fyrir þeim sem
þeir vildu fá að vita.“
Ofurstinn fullyrti að Shultz
hefði tekið sig á eintal í veislu á
vegum utanríkisráðuneytisins
„og hrósaði mér í hástert fyrir
prýðis frammistöðu við að halda
andspyrnuhreyfingunni í Nicar-
agua gangandi... ég vissi hvað
hann átti við.“
Shultz hefur ítrekað haldið því
fram að hann hafi ekki haft græn-
an grun um flest það sem máli
skipti í þessu utanríkismáli. Pað
hefur komið mönnum mjög
undarlega fyrir sjónir að sjálfur
ráðherrann hafi vitað svo lítið en
þó vitað eitthvað og ekki notað
þá vitneskju sína til að ráða for-
setanum heilt.
Þegar málið komst í hámæli
brugðust margir bandarískir
hægrimenn ókvæða við og
kröfðust afsagnar utanríkis-
ráðherrans og ekki bætti úr skák
að Towernefndin svonefnda
komst að þeirri niðurstöðu að
bæði hann og Weinberger hafi
haft einhvern ávæning af því sem
fram fór en stungið höfðinu í
sandinn og brugðist skyldum sín-
um við forseta Bandaríkjanna.
Báðir ráðherranna mótmæltu
hástöfum niðurstöðu nefndarinn-
ar og kváðu ekki flugufót vera
fyrir aðdróttununum. Hvorugur
var í rónni fyrr en Reagan sjálfur
hafði gefið þeim syndakvittun
opinberlega.
-ks.
George Shultz utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Bæði aðmíráll og ofursti hafa
grafið undan trausti manna á honum.
sprengjur og sagðist reiðubúinn
til að gánga til samningaviðræðna
við Bandaríkjastjórn um að tak-
marka athafnasvæði kjarnkaf-
báta í úthöfum.
Bandarískir embættismenn
voru mjög varkárir þegar þeir
voru inntir álits á tilboðinu í gær.
„Þetta er allt á réttri leið,“ sagði
einn. „Þetta lítur vel út,“ sagði
annar.
Sá þriðji, sem ekki vildi láta
nafns síns getið, kvað ekki svars
að vænta frá stjórn sinni fyrr en
samninganefnd Sovétmanna í
Genf hefði lagt hugmyndirnar
formlega fyrir viðsemjendur sína
í dag. -ks.
Þessar tvær eiga ekki framtíðina fyrir sér ef semst í Genf. Til vinstri er sovésk
SS-20 meðaldræg kjarnflaug en til hægri er Pershing-2 meðalflaug „made in
USA“.
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir júnímánuð 1987
hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 27.
þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir
hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau
eru orðin 20%, en síðan reiknast dráttarvextir til
viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og
með 16. ágúst.
Fjármálaráðuneytið, 20. júlí 1987
Grunnskólinn
á Raufarhöfn
Óskar eftir kennurum. Meðal kennslugreina eru
íþróttirog kennslayngri barna. Ódýrt húsnæði og
barnaheimili til staðar. Upplýsingar gefur Líney
Helgadóttir skólastjóri í símum 96-51225 og 96-
51131.
Alúðarþakkir fyrir vinsemd og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður og ömmu
Halldóru Þórðardóttur
Höfðabraut 3
Hvammstanga
Þórður Skúlason Elín Þormóðsdóttir
Hólmfríður Skúladóttir Þorvaldur Böðvarsson
og barnabörn
Fimmtudagur 23. júlí 1987 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 11