Þjóðviljinn - 23.07.1987, Blaðsíða 16
/
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þlÓÐVIUINN
Fimmtudagur 23. júlt 1987 158. tölublað 52. örgangur
AÐFARS€UJ
SKÓIACÖNCU
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Bílar
Aldrei fleiri fluttir inn
Bjarni Sœmundsson
Sex troll í prófi
Sjónvarp til aðstoðar
Rannsóknaskipið Bjarni Sæ-
mundsson hefur undanfarin dæg-
ur verið inni í Jökulfjörðum og er
verið að gera tiiraunir með sex
mismunandi troll, með aðstoð
neðansjávarsjónvarps og mynda-
véla. Að leiðangrinum standa
Hafrannsóknastofnun, Hampiðj-
an, og Netagerð VestQarða.
Að sögn Guðna Þorsteinssonar
fiskifræðings um borð í Bjarna
hefur verið slæmt skyggni í sjón-
um, enda veður slæmt á þessum
slóðum. Botninn í Jökulfjörðum
er að mestum hluta leirbotn, en
inn á milli stórgrýti. Ætlunin er
að fara víðar og reyna trollin. grh
Innfluttir bílar alls 13 þúsund fyrrihluta árs, fimm þúsund bílum meira en á sama tíma ífyrra.
Sexfaltfleirinotaðirfluttirinn. 5500 nýir japanskir á árinu, en Ladan vinsælasta tegundin
Af hinum nýju fjórhjólum er
rúmur helmingur af Kawasaki-
tegund, framleidd í Bandaríkjun-
um (439), önnur eru af tegundun-
um Suzuki, Trail Boss, Honda,
Yamaha og Fourtrax.
—m
Mér þykir ofsalega gaman að veiða, segir Harpa Sif og lætur hjólastólinn ekkert
aftra sér. Pabbi hennar, Þráinn Ólafsson, er með henni og ekur stólnum fyrir
hana. (mynd Ari)
Veiðir úr hjólastól
Hún lætur sko ekki deigan síga,
hún Harpa Sif Þráinsdóttir
sem er að veiða í Grímsnesinu.
Hún er að verða níu ára og fædd-
ist með æðaflækju í vinstri fæti og
fór í aðgerð þann 10. maí síðast
liðinn.
Hún lætur pabba sinn, Þráinn
Ólafsson, aka hjólastólnum sín-
um niður að á og þar situr hún og
veiðir. Núna er hún í sumarbú-
stað afa síns, stutt frá Laugar-
vatni og veiðir þar í lítilli á rétt hjá
bústaðnum. Stolt sagðist hún
hafa farið í laxveiði og fékk þá sex
laxa en afi hennar fékk bara einn
urriða.
Hún er aðeins byrjuð að stíga í
fótinn og vonast til að geta verið
farin að hlaupa um allt þegar
skólinn byrjar í haust.
-ing
Bflainnflutningur er búgrein i
vexti samkvæmt nýrri skýrslu
frá Hagstofu um innflutning
fyrstu sex mánuði ársins. Á þess-
um tíma hafa verið fluttir inn
13.183 bflar, en um sama leyti í
fyrra 7.251, og er aukningin um
80 prósent.
Innflutningur nýrra fólksbfla
hefur aukist um rúm 50%, og
voru rúmlega 10 þúsund á fyrri-
hluta árs, 6500 fyrrihluta 1986, en
tala notaðra bfla hefur nær sex-
faldast, eru á þessu ári 1816, en
janúar til júní í fyrra 373. Inn-
flutningur annarra bfla, vöru-,
sendi- og annarskonar, hefur
ekki aukist umtalsvert, nema
fjórhjóla, sem voru engin innflutt
fyrrihluta árs í fyrra, en 870 það
sem af er þessu ári.
Af einstökum gerðum nýrra
innfluttra bfla í ár eru flestir af
gerðinni Toyota Corolla (642),
þá kemur Subaru 1800 (637), Da-
ihatsu Charade (566), Lada
21043 (512) og Lada 2108 (453).
Lödurnar allar saman bera
höfuð og herðar yfir aðrar teg-
undir nýrra fólksbfla, og hafa ver-
ið fluttar inn 1768 á fyrrihluta árs.
Síðan koma Japanirnir: Toyota
(1152), Mitsubishi (975), Subaru
(860), Daihatsu (742), Mazda
(723), Nissan (638). Þá kemur
Skódinn (370), Volvo (341),
Ford-bílar (323), Chevrolet
(301), Honda (275), Peugeot
(217).
Þegar kemur að notuðu bflun-
um breytist hlutfallið einsog
vænta mátti. Flestir þeirra eru
Fordar (349) og Mercedes Benz
(221), 99 BMW-bílar, 141 Toy-
ota, 126 Volkswagenar, 127
AMC-jeppar.
Frá Japan kom bróðurpartur
nýrra fólksbfla á árinu, samtals
5486. Sovéskir bflar eru 1781,
vesturþýskir 523, sænskir 408,
tékkneskir 370, franskir 337,
bandarískir 312, brasilískir
(Chevrolet Monza) 298, ítalskir
269, austurþýskir (Trabbinn)
112, spænskir 66, breskir 36, fjór-
ir pólskir.
Notuðu bflarnir á árinu eru
flestir vesturþýskir (tæplega
750), japanskir (tæplega 400) og
bandarískir (rúmlega 200).
Skák
Jóhann á sigurbraut
Jóhann í hópifjögurra efstu í Szirak, en þykir lítið til mótstaðarins
koma. Tap á Filippseyjum. Síðasta umferð í Þórshöfn í dag
Jóhann Hjartarson er í 1.-4.
sæti á millisvæðamótinu í Szir-
ak í Ungó ásamt Englendingnum
Nunn, Júgóslavanum Ljubojevic
og Sovétmanninum Salof. Þeir
hafa y/z vinning eftir 5 umferðir.
Jóhann vann í gær Spánverj-
ann De la Villa Garcia í 25
leikjum, og sagði við Þjóðviljann
að skákin hafi verið unnin eftir 15
Neytendasamtökin
Fimm á
svörtum lista
Fyrirtœki sem svara
ekki kvörtunar-
bréfum Neytenda-
samtakanna lenda á
svörtum lista
Fimm fyrirtæki eru nú á svört-
um lista hjá Neytendasamtökun-
um, þ.e. fyrirtæki sem samtökin
telja sig ekki geta mælt með vegna
ágreiningsmála sem ekki hefur
fundist lausn á.
Fyrirtækin lenda á svörtum
lista fyrir þá sök að þau hafa ekki
svarað bréfum Neytendasamtak-
anna vegna kvartana neytenda.
Samtökin hafa ítrekað sent fyrir-
tækjunum ábyrgðarbréf vegna
kvartana og í sumum tilvikum
hafa jafnvel verið send símskeyti,
en árangurslaust.
Fyrirtækin fimm sem nú eru á
svörtum lista hjá Neytendasam-
tökunum eru bamafataverslunin
Endur og hendur, tískuverslunin
Fanný, fataverslunin First, Guð-
mundur Andrésson gullsmiður
og ferðaskrifstofan Sólarflug.
Fjögur þessara fyrirtækja eru í
Reykjavík, en fataverslunin First
er í Hafnarfirði. -gg
leiki. Salof tapaði fyrir Mongól-
íumanninum Tódortsjavits,
Nunn tapaði fyrir Anderson frá
Svíþjóð og Ljubojevic gerði jafn-
tefli við Bandaríkjamanninn
Benjamin. Átján tefla á mótinu.
í dag teflir Jóhann við Túnis-
manninn Bouaziz.
Jóhann sagði í samtali í gær að
hann væri ánægður með árangur
sinn hingað til, hinsvegar væri
mótið rétt að byrja og engin leið
að segja til um framhaldið. Hann
sagði að skipuleggjendur stæðu
sig engan veginn vel. Mótshótelið
væri of Iítið, og væri keppendum
mismunað; hann og nokkrir aðrir
þyrftu að búa á öðru hóteli 20
kílómetrum frá, sem þýddi langar
daglegar ferðir til og frá. Allir
stigahæstu keppendurnir byggju
hinsvegar á mótsstað.
Að auki væri þorpið einangrað
og fátt við að vera þegar ekki er
teflt, - þjónusta væri einnig öll í
skötulíki, til dæmis erfiðleikar
fyrir þá Elvar Guðmundsson, að-
stoðarmann sinn, að hringja
heim. Undir þetta getur Þjóðvilj-
inn tekið, - þá sjaldan næst í
starfsmenn mótsins fást upplýs-
ingar treglega, hvað þá samtöl
við okkar menn.
Á Filippseyjum töpuðu þeir
Hannes Hlífar Stefánsson og
Þröstur Þórhallsson skákum sín-
um, hafa tvo vinninga eftir fjórar
umferðir.
í dag lýkur Norðurlandam-
eistaramótinu íÞórshöfn, þarsem
þeir Helgi Ólafsson og Margeirs-
son eru efstir í landsliðsflokki
með 7 vinninga. Daninn Mort-
ensen er næstur með 6'/2 vinning,
og landi hans Hansen með 6 vinn-
inga. -m
Fasteignaverð
Dýrt að kaupa í blokk
Fasteignaverð fjölbýlisíbúða í Reykjavík
hœkkað meira en lánskjaravísitalan
Fasteignaverð fjölbýlisíbúða í
Reykjavík hækkaði fyrsta
ársfjórðung þessa árs alinokkru
meira en nemur hækkun láns-
kjaravísitölu. Jafnframt hefur
greinileg hækkun orðið á útborg-
unarhlutfalli íbúða. Á sama tíma
hefur dregið úr mismun á fermet-
crsverði stórra og lítilla íbúða.
Samkvæmt Fasteignamati rík-
isins hefur fasteignaverð fjölbýl-
ishúsaíbúða í Reykjavík hækkað
umfram lánskjaravísitölu svo til
stöðugt í heilt ár. Frá fyrsta ársf-
jórðungi 1986 til fyrsta ársfjórð-
ungs 1987 hækkaði raunverð fjöl-
býlisíbúða um tæp 20% og á sama
tíma hækkaði útborgunarhlut-
fallið úr 71.6% í 77.9%, sem er
allveruleg hækkun.
Mismunandi er eftir stærð
íbúða hversu mikil hækkunin er.
Stærstu íbúðir og meðal íbúðir
hafa hækkað tiltölulega mest í
verði og hefur mismunur á ferm-
etersverði stórra og lítilla íbúða
minnkað stöðugt frá því á fjórða
ársfjórðungi 1985, þó það sé enn-
þá hæst á minnstu íbúðunum. Út-
borgunarhlutfall er þó nokkuð
mismunandi eftir stærð íbúða, -
hæst á þriggja herbergja íbúðum
eða 80%, en lægst á fimm her-
bergja og stærri íbúðum. -rk