Þjóðviljinn - 09.08.1987, Blaðsíða 10
Herberg von Karajan sýmr engan bilbug.
Karajan enn ofursfími
kominn fast að áttrœðu
Meðal þeirra mynda af tón-
listarmönnum, sem stillt er út í
svo að segja alla búðarglugga í
Salzburg meðan á tónlistarhátíð
borgarinnar stendur, ber mest á
hrjúfu og valdsmannlegu andliti
hljómsveitarstjórans Herberts
von Karajan. Þótt hann sé orðinn
79 ára er hann enn potturinn og
pannan á tóniistarhátíðinni og
aðalstjarna hennar og hófst dag-
skráin síðustu vikuna í júlí með
því að flutt var ópera Mozarts
„Don Giovanni” undir hans
stjórn. Lýkur hátíðinni svo 31.
ágúst með tónleikum undirstjórn
Riccardo Muti, þar sem flutt
verða verk eftir Hindemith og
Brahms.
Menningarvinir og listunnend-
ur hvaðanæva að hafa úr mörgu
að velja á þessari tónlistarhátíð
sem er sennilega hin vandaðasta
sinnar tegundar í heiminum.
„Við leitum fyrst og fremst að
gæðum en ekki magni,” sagði for-
maður hátíðarinnar, Albert Mos-
er, við fréttamanna Reuters. „Ef
ekki er hægt að finna hina einu
réttu hlutverkaskiptingu eða allt
að því - þar sem það eina rétta er
kannski ekki til - setjum við verk-
ið ekki á svið.”
Moser var of hógvær til að
segja að hátíðin í fæðingarborg
Mozarts væri mesta listahátíð í
heimi. „En hvergi annars staðar í
heiminum er hægt að finna jafn
marga snillinga saman komna.”
Alfred Brendel kemur á hátíðina
tíl að Ieika píanóverk eftir Schu-
bert, söngkonurnar Montserrat
Caballe og Jessye Norman munu
halda söngskemmtanir og einnig
mikill hópur fremstu óperu-
söngvara heims, Lucia Popp,
Ruggiero Raimondi, Samuel
Ramey, Thomas Allen og Fre-
derica von Stade.
„Pau koma vegna þess að þeim
fellur Salzburg vel í geð, af því að
það er mikill heiður að vera boð-
ið, af því að þau fá góða borgun
og af því að hingað koma miklir
hljómsveitarstjórar,” sagði Mos-
er, sem áður var stjórnandi Vín-
aróperunnar. „Karajan hefur
mikið aðdráttarafl.”
Þótt Moser sé að nafninu til
formaður þeirrar fimm manna
stjórnar sem sér um hátíðina,
viðurkennir hann að Karajan hafi
meira áhrifavald. „Hann er prim-
us inter pares (fremstur meðal
jafningja),” sagði hann, „ef hann
segist vilja gera eitthvað, er það
auðvitað gert.” Karajan, sem er
einn eftirsóttasti hljómsveitar-
stjóri heims og sá sem mest hefur
leikið inn á hljómplötur, hefur
verið driffjöðurin og vinsælasti
krafturinn á hátíðinni síðan hann
yfirgaf Vínaróperuna 1964. En
meðal annarra þekktra hljóm-
Tónlistarhátíðin í
Salzburg ein hin
fremsta íheiminum
sveitarstjóra, sem koma fram á
þessari 37 daga hátíð að þessu
sinni, eru Claudio Abbado,
Leonard Bernstein, Carlo Maria
Giulini og James Levine, tón-
listarstjóri Metropolitan óper-
unnar í New York.
Tónlistin er stærsti þátturinn á
dagskrá hátíðarinnar og verða
þarna sýndar hvorki meira né
minna en sex voldugar óperur:
„Don Giovanni”, „Brúðkaup
Fígarós” og „Brottnámið úr
kvennabúrinu” eftir Mozart,
„Capriccio” eftir Richard
Strauss, „Endurkoma Ódysseifs
til föðurlandsins” eftir Montever-
di í útgáfu þýska tónskáldsins
Hans Wemer Henze og hin ófull-
gerða ópera Arnolds Schönbergs
„Móses og Aron”.
En „New York’s dance theater
of Harlem” stendur einnig fyrir
ballettsýningu og svo eru á dag-
skránni nokkrar leiksýningar.
Þannig mun einn af þekktustu
Ieikurum Austurríkis, Klaus
Maria Brandauer, sem einnig
hefur getið sér gott orð í Holly-
wood, Ieika aðalhlutverkið í
leikritinu „Jedermann” eftir
Hugo von Hofmannsthal, sem
var einn af stofnendum hátíðar-
innar í Salzburg á sínum tíma.
Leikverk þetta, sem byggt er á
samnefndu ensku miðaldaleik-
riti, er sýnt undir berum himni á
sviði fyrir framan óperuhúsið í
Salzburg á hverjum sunnudegi á
hverri hátíð. „Eins og Beethoven
sagði er listin prestsþjónusta,”
sagði Jóhannes Páll páfi annar
eftir að hafa séð verk þetta á gest-
asýningu í Róm fyrir fjórum
árum og bætti því við að hann
óskaði listahátíðinni í Salzburg til
hamingju með að inna svo vel af
hendi þá þjónustu.
En hátíðin er þó að langmestu
leyti harla veraldleg og keppa
yfirstéttarmenn þar við einlæga
tónlistaraðdáendur um miða á
helstu sýningar og tónleika. Þeir
sem ekki fá boðsmiða verða að
borga miða sína mjög dýru verði.
Að þessu sinni kosta miðar á óp-
erusýningar allt að 3000 austurr-
ískum skildingum eða upp undir
9000 kr. og miklu meira á svört-
um markaði.
f ýmsum geirum austurríska
þjóðfélagsins er það nánast
skylda að fara á hátíðina í Salz-
burg, enda hefst hún á skrautlegu
boði fyrir um það bil þúsund
framámenn. Meðal gestanna að
þessu sinni voru Kurt Waldheim
forseti Austurríkis, Franz Vranit-
sky forsætisráðherra og margir
Monserrat Caballé.
aðrir þekktir menn.
Moser neitar því samt að hátíð-
in sé aðeins fyrir fáa útvalda og
segir að nóg sé af ódýrum miðum.
En hann vill samt stuðla að því að
hún nái til enn fleiri, t.d. með því
að útvarpa tónleikum beint gegn-
um hátalarakerfi. Fjörutíu af
hundraði miðanna fara til er-
Iendra ferðamanna.
Þrátt fyrir hátt miðaverð nema
tekjurnar af miðasölunni aðeins
tveimur þriðju af kostnaði við
hátíðina sem er alls um 300
milljónir austurrískra skildinga.
Þriðjungur kostnaðarins er
greiddur með opinberum styrkj-
um. En óbeinar tekjur ríkisins af
hátíðinni eru miklu meiri en þessi
styrkur: telja forráðamenn henn-
ar að umsvif kaupmanna og ann-
arra slíkra af völdum hennar
aukist um þrjá milljarða skild-
'nga- (Reuter)
mmmmmammm
Kvikmynda-
höfundur setur
ópeniásvið
„ L ohengrin “ í uppfœrslu Herzogs fœr
misjafna dóma
Þegar hinn kunni kvikmynda-
höfundur Werner Herzog fékk
tilboð um að setja óperu Ric-
hards Wagners „Lohengrin“ á
svið á óperuhátíðinni í Bayreuth,
hljóp hann út í búð og keypti
plöturnar með verkinu. Tók
hann ekki boðinu fyrr en hann
var búinn að hlusta á þær.
„Ég þekkti „Lohengrin" alls
ekki,“ sagði Herzog, „en um leið
og ég heyrði forleikinn vissi ég að
ég varð að setja hana á svið.“
Með því að svara þessu tilboði
játandi tók kvikmyndahöfundur-
inn talsvert mikla áhættu. Tón-
listarhátíðin í Bayreuth, sem er
algerlega helguð verkum óperu-
tónskáldsins Richards Wagners,
ereinn af helstu tónlistarviðburð-
um heims ár hvert, og eru því
gerðar miklar kröfur til leikstjóra
og söngvara. Þótt Wagner-
óperur séu gjarnan firnalangar og
trésætin í hátíðaleikhúsinu, sem
hann lét sjálfur reisa, óþægileg,
hefur óperuhátíðin orðið mikil-
vægur þáttur f opinberu félagslífi
Vestur-Þýskalands, og sækja
stjórnmálamenn og kvikmynda-
stjörnur frumsýningar.
Wolfgang Wagner, sonarsonur
Richards Wagners, stjórnar óp-
eruhátíðinni að öllu leyti, bæði
fjármálahlið hennar og listrænni
hlið, og var það hann sem fól
Werner Herzog að setja „Lo-
hengrin“ á svið fyrir hátíðina í ár,
sem hófst síðustu vikuna í júlí og
stendur yfir í mánuð. En þessi
ákvörðun hans mæltist misjafn-
lega fyrir meðal vestur-þýskra
óperuunnenda, þar sem Herzog,
sem er einn af kunnustu kvik-
myndahöfundum landsins og hef-
ur orðið frægur fyrir fjölmargar
kvikmyndir, hafði til þessa aðeins
sett á svið eina óperu. Var það
„Doctor Faustus" eftir Busoni,
sem hann leikstýrði í Bologna.
Þegar Herzog gekk fram á
sviðið eftir frumsýninguna á „Lo-
hengrin“ mætti honum voldugt
HB9BK
Þetta er erfitt stríð og hátæknilegt..
Kvikmyndaiðnaðurinn á í bar-
áttu sem hefur þegar verið lýst
vonlaus: við þá „sjóræningja”
sem stela kvikmyndum jafnvel
áður en þær eru fyrst sýndar í
kvikmyndahúsunum, fjölfalda og
dreifa um allan heim á lægra
verði en lögleg myndbönd munu
síðar fást fyrir.
Starfsemi kvikmyndaþjófanna
er hin umfangsmesta og best
skipulagða lögleysa sem þekkst
hefur í Bandaríkjunum frá því á
dögum bruggs og leynivínsölu á
bannárunum frægu. Að vísu veit
enginn hver gróði bófanna er, en
framleiðendur í Hollywood einni
saman telja sig tapa um milljarði
dollara á ári vegna þessa þjófnað-
ar. Víða er það svo í Bandaríkj-
unum sjálfum að ólöglegar spólur
(oft mjög fallega merktar svo að
enginn hægðarleikur er að
Hollywood tapar
miljarði dollara á ári
til þeirra
þekkja þær frá löglegum mynd-
böndum) eru um 15% af því sem
fram er boðið á myndbandal-
eigunum. Og í ýmsum öðrum
löndum er hlutfallið miklu hærra.
Öll spjót úti
Sem fyrr segir er það nokkuð
víst að ólögleg bönd koma á
markaðinn löngu áður en fram-
leiðendur hafa sjálfir sett mynd-
irnar á myndbandamarkaðinn.
Ekki nóg með það - það er ekki
óalgengt að myndir séu komnar á
kreik á markaðinum svarta áður
en þær hafa verið frumsýndar.
Filmur „leka” með ýmsum hætti
- allmargir hafa möguleika á að
prufukeyra kvikmyndir - leikar-
ar, tæknimenn og fleiri, og aldrei
skortir fé til að múta því fólki,
ekki síst ef í húfi eru myndir eins
og Platoon eða síðasta James
Bond myndin.
Annars eru aðferðir sjóræn-
ingjanna svonefndu mjög marg-
víslegar. Stundum kaupa þeir
eins og eitt löglegt eintak og fjöl-
falda það í stórum stíl. Til eru
smáþjófar sem fá eintak leigt,
fjölfalda það heima hjá sér og
drýgja svo tekjur sínar með því
að selja þann heimilisiðnað.
Sumir þjófarnir koma með uppt-
ökutæki í kvikmyndahús og taka
beint upp á sýningu. Og þar fram
eftir götunum.
klapp sem blandaðist saman við
jafn voldugt baul. Blaðadómarn-
ir voru misjafnir. „Die Welt“
sagði að ekki léki vafi á að vel
hefði tekist til um sýninguna, en
„Frankfurter Rundschau“ taldi
að Herzog hefði misst af því tæki-
færi sem hann fékk. „Frankfurter
Allgemeine“ taldi að ekkert nýtt
hefði komið fram í þessari sýn-
ingu. En allir gagnrýnendur luku
lofsorði á kanadíska tenórsöngv-
arann Paul Frey, sem kom nú
fram í fyrsta skipti á þessari óper-
uhátíð.
Það var mjög í anda þessarar
óperuhátíðar að fela Werner
Herzog að setja þessa óperu á
svið. Wolfgang Wagner er tals-
vert fyrir að gera tilraunir, og á
hverju sumri er eitt af verkum afa
hans sýnt í nýrri sviðsetningu,
sem gengur síðan í mörg ár. „Á
hverju ári reynum við að sýna
eitthvað nýtt, setja hlutina fram á
annan hátt. Það er okkar hug-
Wemer Herzog: Hafði aldrei heyrt
óperuna, sem hann var beðinn að
setja á svið (Ljósm. eik).
sjón,“ sagði Matthias Vogt, tals-
maður óperuhátíðarinnar.
Mönnum er það enn í fersku
minni, þegar franski framúr-
stefnuleikstjórinn Patrice Chere-
au var fenginn til þess fyrir
nokkrum árum að setja á svið
„aldarafmælissýningu“ í Bayre-
uth á „Niflungahringnum” eftir
Wagner.
(5peran „Lohengrin“ fjallar
um samnefnda, goðkynjaða
veru, sem kemur til jarðarinnar
vegna bænar Elsu, en elskar hana
með einu skilyrði: hún má aldrei
spyrja hann hver hann sé eða
hvaðan hann komi. Hún brýtur
þetta loforð sitt, og Lohengrin
verður að hverfa á braut.
Wemer Herzog setti þessa
sögu á svið eins og ævintýri í
snævi þöktu landslagi og var sterk
Richard Wagner.
andstæða milli hvítrar sviðs-
myndarinnar og marglitra bún-
inga söngvaranna. „Ég ætlaði að
reyna að sýna undur og forðast
alla túlkun," sagði Herzog frétta-
mönnum. „Ég vil ekki troða mér
fram gagnvart áheyrendum,
heldur leyfa þeim að mynda sér
sínar eigin skoðanir.“ En blaðið
„Frankfurter Allgemeine“
gagnrýndi sýninguna fyrir að hún
væri of hefðbundin og skorti
hreyfingu. „Die Welt“ Iýsti hins
vegar yfir hrifningu á þessum stfl,
að gera „Lohengrin" að „vetrar-
ævintýri".
Fyrir utan „Lohengrin“ verða
„Tristan og IsoIde“, „Tannhaus-
er“, „Parsifal“ og „Meistara-
söngvararnir í Núrnberg“ einnig
sýndar í Bayreuth að þessu sinni.
(Reuter)
Myndbandasjóræningiar vaða uppi
En þótt framleiðendur viti að
þeir geta ekki unnið þetta stríð
reyna þeir að verjast eftir föng-
um. Mjög hafa verið hertar regl-
ur um meðferð eintaka af kvik-
myndum sem enn em ekki komn-
ar á tjaldið. Nokkrir fram-
leiðendur hafa reynt kerfi sem
heitir Macrovision - en með því
eru merki prentuð á lögleg mynd-
bönd sem skapa truflanir þegar
reynt er að taka afrit af þeim.
Þetta hefur um tíma gefið sæmi-
lega raun - þar til kvikmynda-
þjófar uppgötvuðu að þeir gátu
keypt sér fyrir 300-400 dollara
„svartan kassa” sem þurrkar út
merkin sem Macrovision skilur
eftir sig.
Þetta er kannski ekki indælt
stríð - en það fer altént fram á
háu tæknilegu plani ...
(byggt á Newsweek)
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 9. ógúst 1987
Sunnudagur 9. ágúst 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
Hvíta húsið
Kona í forsetaframboð
Reagan er einsog Rambó og Bambi litli í einni og sömu persón-
unni, segir litrík kona sem vill verða nœsti forseti Bandaríkjanna
Demókratinn Patricia
Schroeder, 46 ára Kóloradó-
búi, hefur nú ákveðið að
blanda sér í baráttu demó-
krata um útnefningu sem for-
setaframbjóðandi Demó-
krataflokksins við næstu for-
setakosningar. Patriciaþykir
með skeleggari talsmönnum
demókrata í fulltrúadeild
bandaríska þingsins, þar sem
hún hefur setið í 14 ár. En
áður hafa 7 aðrir kandídatar
tilkynnt um vilja sinn til að
hreppa hnossið og ekki þykir
ólíklegt að vonarlömbum eigi
eftir að fjölga.
Patricia Schroeder og stuðn-
ingsfólk hennar hafa þegar
þreifað fyrir sér um undirtektir
við framboð hennar og fengið
dúndrandi undirtektir. Strax hef-
ur safnast tæp hálf miljón dala í
baráttusjóði hennar, og innan
tíðar nrun svo rnikið hafa safnast
að hún á rétt á jafnmiklu framlagi
á móti frá hinu opinbera. Takist
henni þannig að ná inn 2 miljón-
um daia á næstu tveimur mánuð-
um mun hún fleygja sér í slaginn.
Hún kveðst ekki fara í slaginn
af því húnsé kona, heldurfyrst og
fremst af því henni finnist þörf á
nýjum og ferskum hugmyndum
til að bjarga bandarísku þjóðinni
frá yfirvofandi erfiðleikaskeiði.
Patricia er mjög ákveðin í and-
stöðu sinni við Stjörnustríðsáætl-
un Reagans. í Bandaríkjunum
þykir sú andstaða hennar endur-
spegla pólitískan kjark, því Kól-
oradó fylki nýtur mjög góðs af
ýmiss konar vopnasamningum
sem áætluninni fylgja, og færa at-
vinnu ogfjármagn inn ífylkið. En
Patricia vill fremur að fjármagn-
inu sem fer í rannsóknir í þágu
Stjörnustríðsáætlunarinnar verði
varið í aðrar og hagnýtari rann-
sóknir, - á endurnýtingu vatns og
ýmissa efna, sem í dag er fleygt.
Hún vill miklu meiri rannsóknir í
þágu heilbrigðismála, einkum á
eyðni.
„Reagan talar einsog Rambó,
en framkvæmir einsog Bambi
litli,“ sagði Patricia í viðtali við
The Times fyrir skömmu. „Am-
eríka þarfnast annarra hluta.
Forystumenn okkar þurfa að
hugsa hlutina til enda áður en
þeir framkvæma."
Enginn efast um hæfni Patriciu
Schroeder til að hugsa. Hún er
þjálfaður lögmaður, og með tvær
háskólagráður frá Harvard.