Þjóðviljinn - 09.08.1987, Blaðsíða 18
KROSSGATA
Nr. 579
BRIDGE
1 2 3 H <P 5 6 3 7 SS 3 2 8 9 /o
1f 8 ? s? /2 /3 H /Y s? 2 /Y fo SP 8 /2
<o /S 1(o /? SP 2 /0 /2 45* /? /Y /3 2 (o
/7 / ? <2? 3 ? /0 2o /3 12 21 s? /t> 1 8
6 /2 (o b ? 10 V /Y /? /3 ? 6 8 ss JY
3 /Y 8 ? Sp /5 /2 /0 S? ? b 7 S2 22 /?
? 8 d /5 /2 /Y /3 V" 23 <o s /3 ? /o d
2 5' /O /5 SP /0 21 % 8 SP 2Y /3 22 V
22 2 6 /Y /s /5- SP 7 /3 SS ? 25 /? /5 s?
2/, /2 H /3 S? 2? 2 rr /2 /Y /ÍT /3 ? ss %
/2 /y /O S? 28 2 /? 6 27 ss /o ss /0 9 M
/ /3 7 H /Y SP ? SP ? 3 /Y /0 £ 8 12
C? 22 21 23- /O ÍO 2 2 /3 2. 6 s?
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá nafn á
kauptúni á íslandi. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni
til Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: Krossgátan nr.
579. Skilafrestur er 3 vikur. Verðlaunin verða send til vinnings-
hafa.
30 /6 /3 /? /2 29 /3 /Y
Stafirnir mynda ísie.nskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er
lárétt eða lóðrótt.
Hver stafur hefur sitt númer og qaldurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir
stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa
stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka
fram að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða
og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á qða öfugt.
Vinningshafi krossgátu númer 577 er Hólmfríður Traustadóttir, sem
starfar á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Lykilorðið var Kotvogur.
Hólmfríður fær því senda bókina Ljóri sálar minnar, - úr dagbókum,
bréfum og öðrum óprentuðum heimildum meistara Þórbergs. Það var
Mál og menning sem gaf bókina út fyrir síðustu jól.
Verðlaunin fyrir krossgátuna að
þessu sinni eru Rásir dægranna
eftir Málfríði Einarsdóttur, sem
Ljóðhús gefur út.
EM í Brighton
Þegar þetta er ritað er 9. umf.
lokið í opnum flokki. íslenska
landsliðið hefur staðið sig ágæt-
lega og er nú í 9. sæti af 23 þjóð-
um. Prógrammið þyngist þó
senn, því liðið hefur enn ekki
mætt þjóð meðal þeirra 10 efstu.
Ef rennt er yfir árangur sveitar-
innar og helstu úrslit hverrar
umf:
1. umf.:
18 ísland - Sviss 12
11 Búlgaría - Pólland 19
16,5 Danmörk - Ítalía 13
17 Svíþjóð - Noregur 13
2. umf.:
16 Finnland - ísland 14
10 Pólland - Danmörk 20
18 Bretland - Austurríki 12
19 Holland - Svíþjóð 11
3. umf.:
10 írland - ísland 20
13 Frakkland - Bretland 17
25 Pólland - Tyrkland 0
4. umf.:
16 ísland - Holland 14
14 Austumki - Frakkl. 16
25 Bretland - Sviss 2
5 Belgía - PóUand 25
5. umf.:
23 Pýskaland - ísland 7
15 Frakkland - Noregur 15
14 ísrael - Svíþjóð 16
16 Pólland - Spánn 14
6. umf.:
9 Búlgaría - ísland 21
12 Ítalía - Pólland 18
16 Danmörk - Austurríki 14
14 Noregur - Bretland 16
7. umf.:
15 ísland - Spánn 15
2 Sviss - Póíland 25
14 Bretland - ísrael 16
5 Þýskaland - Frakkl. 25
8. umf.:
ísland 18 (yfirseta)
17 ísrael - Holland 13
15 Pólland - Svíþjóð 15
17 Bretland - Danmörk 13
18 ftalía - Noregur 12
9. umf.:
25 ísland -
Luxemborg 0 (???)
Staðan í mótinu að loknum 8
umferðum: Opinn flokkur.
1. Pólland 153
2. Svíþjóð 142.5
3. Frakkland 140
4. ísrael 139.5
5. Danmörk 135.5
6. Bretland 135
ísland var í 9.-10. sæti með 129
stig. Vegna breytinga á móta-
dagskrá detta út úrslit í 9. umf. á
fimmtudag, en fregnir herma að
landinn hafi tekið Luxemborgara
í karphúsið.
í kvennaflokki var ísland í 10.
sæti með 60 stig eftir 4 umf. Þær
höfðu þá tapað 12-18 fyrir Grikk-
land. Frakkland var efst með 74.
Þá ísrael með 73 og Ítalía hafði
71.
Skráning í opna Hótel Vala-
skjálf mótið á Egilsstöðum, 21.-
22. ágúst, gengur vel. Þátttökutil-
kynningum á höfuðborgarsvæð-
inu skal komið til H.L. í síma
41507. Nú er ljóst að fem pening-
averðlaun eru í boði, samtals kr.
100.000. Fyrstu verðlaun 40.000
kr. og hleypur síðan á 10.000
krónum: 40-30-20-10. Spilað er
um silfurstig. Spilagjald á mann
er kr. 3.500, innifalið keppnis-
ÓLAFUR
LÁRUSSON
gjald, málsverður í lokahófi og
dansleikur á laugardagskvöld.
Mótið er 30-36 para „Baro-
meter“, 3 spil milli para. Keppn-
isstjóri verður Hermann Lárus-
son sem veitir nánari upplýsingar
um flug og bókanir. Spilurum
fyrir austan og norðan sem hug
hafa á þátttöku er bent á að hafa
samband við hótelhaldara í Vala-
skjálf vegna skráningar, fyrir 16.
ágúst.
Sveit Sigurðar B. Þorsteins-
sonar varð 4. sveitin til að tryggja
sér sæti í 8-Iiða umferð Bikar-
keppninnar, þegar hún vann sveit
Halidórs Tryggvasonar frá
Sauðárkróki örugglega. Þegar
hafa tryggt sér framhald: Flug-
leiðir, Ulfar Örn Friðriksson,
Kópavogi og Ásgrímur Sigur-
björnsson, Siglufirði.
í sumarbridgeinum hefur Jón
Stefánsson velt makker sínum,
Sveini Sigurgeirssyni, af stalli og
leiðir nú í Bronsstigakeppninni
með 290 stig. Sveinn er með 288.
Jacqui McGreal 287. Þorlákur
Jónsson 259. Hulda Hjálmars-
dóttir og Þórarinn Andrewsson
230. Lárus Hermannsson og
Gunnar Þorkelsson 204.
SKYRT OG SKORINORT:
Er Kölski kynvilhur?
i
„Kynvillaermyrkur,
kristindómurinn ljós“, sagði
Gunnar nokkur Þorsteinsson í
samtali við menningartimaritið
HP í vikunni. Gunnar er í
trúfélaginu Krossinum, en þar
syngja menn og tralla í messum -
útvaldir sauðir í hjörð Guðs
almáttugs og þessvegna beturtil
þess fallnir en aðrir menn að
koma skilaboðum onúr himnaríki
til mannkynsins.
Yfirlýsing Gunnars markar því
meiri tímamót en grunnhyggið
fólk kann að ætla. Því fram til
þessa hefur enginn stillt kynvillu
og kristindómi upp sem
andstæðum á borð við Ijós og
myrkur; líf og dauða; dag og nótt.
Samkvæmt þessari
kennisetningu fá því
strangtrúaðir bæði andlega og
líkamlega fullnægingu í
sambandi sínu við almættið. Það
tíðkaðist víst í eina tíð að brenna
á báli galdrakerlingar sem
djöfullinn gamnaði sér við.
II
Á síðustu árum hafa sprottið upp
hérlendis ýmsir hópar sem
ganga erinda Guðs og telja
gömlu þjóðkirkjuna úrelt apparat.
Hafa það helst til marks að þar er
hvorki spilað á gítar í messum né
gripiö framí fyrir
sóknarprestinum.
HP talaði við liðsmenn í nokkrum
þessara flokka til þess að fá það
alveg á hreint hvað Guði fyndist
um kynvillu. Og það höfðu allir
fengið sömu skilaboðin og
Gunnar á Krossinum. Friðrik
Schram sem er í félagi með það
yfirlætislausanafn „Ungtfólk
með hlutverk" áréttaði að það
væri vafasamt að tala um
samkynhneigða kristna menn;
Halldór Lárusson íTrú og lífi benti
á að eyðni væri sjúkdómur sem
rekja mætti til kynferðislegs
siðleysis og Björn Ingi í Veginum
vitnaði í sjálft Rómverjabréfið, en
þarstendursvart á hvítu að
kynvillaséröng.
Þar með hafa þessir fjórir
heiðursmenn og sérstakir
talsmenn Guðs á jörðu niðri
talað. Og þeir komast alveg
ábyggilegatil himnaríkisfyrir
bragðið.
III
Það fólk er lánsamt sem byggir
lífsskoðun sína á 2000 ára
gamalli sögu austan úr
gyðingaiandi og er reiðubúið að
dæma lifendur út frá jafngömlum
sendibréfum. Og staðfesta þess
mættiverðamörgum
vinstrimanninum til eftirbreytni,
sem velkist í vafa um svo
kornung trúarbrögð sem
sósíalismann.
IV
En ef við eigum að trúa á Biblíuna
er eins gott að stíga skrefið til
fulls. Og þá hljótum við að spyrja:
Af hverju í ósköpunum rak Guð
Adam og Evu á vergang fyrir það
eitt að narta í epli unaðarins? Og
aldrei var Jesú við kvenmann
kenndur en safnaði í kringum sig
ýmsum skömmbóum síns tíma.
V
Ef Gunnar á Krossinum hefur rétt
fyrir sér- og það er engin ástæða
til að efast um það - þegar hann
stillir kynvillu og kristindómi upp
sem andstæðum þá hlýtur með
því að vera sönnuð kynvilla uppá
Kölska gamla. Samkvæmt því
hljóta samkynhneigðir að vera
sérstakir útsendarar hans. Og
eyðni - þegar allt kemur til alls -
refsingGuðs. Þeirkumpánar
faðirinn og sonurinn hans
eingetni hafa því loks látiðtil
skararskríða.
Útibússtjórar þeirra á jörðinni
hljóta því að lýsa heilögu stríði
gegn öllum þeim sem gera hitt
öðruvísi en samkvæmt uppskrift
Guðs.
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 9. ágúst 1987