Þjóðviljinn - 14.08.1987, Page 1
Auglýst
eftir
samherja
Þröstur Ólafsson:
Áhyggjuefni að
verðbólganfœrist í
aukana
Það cr injög mikið áhyggjuefni
að fá verðbóiguna á það stig
sem var fyrir tveimur til fjórum
árum. Hún hefur verið að færa
sig uppá skaftið undanfarið og ef
ekkert verður að gert færist hún
enn í aukana. Verðbólgan er
gífurlegur vágestur og fer mjög
illa með launamarkaðinn og hag
vinnandi fóiks, sagði Þröstur Ól-
afsson, starfsmaður Dagsbrúnar.
- Verkalýðshreyfingin hefur
alltaf viljað takast á við þann
vanda að finna einhverjar lausn-
ir, sem auðvelduðu mönnum að
ná tökum á verðbólgunni, eins og
kom fram í febrúarsamningunum
1986 og í desembersamningunum
í fyrra. En ég verð ekki var við
það að þeir sem ábyrgð bera á
þjóðarbúinu, hafi neinar áhyggj-
ur og reyni að draga úr þenslunni
með því að skrúfa fyrir hallann á
ríkissjóði og jafna kjör manna.
Það kom berlega fram eftir
febrúar- og desembersamning-
ana að engir aðrir en ASÍ-félagar
voru reiðubúnir til að taka á sig
fórnir til að kveða verðbólguna í
kútinn. Það þarf að auglýsa eftir
aðilum sem vilja beita sér gegn
verðbólgunni. Ég held að ASÍ-
félagar séu orðnir langþreyttir á
að standa einir í þeirri baráttu,
sagði Þröstur Ólafsson. _rk
Bridds
Sigur og jafnt
íslenska karlasveitin á Evróp-
umótinu í bridds stóð sig með
prýði í gær, vann Portúgali, 21-9
og gerði jafntefli við ísraelsmenn,
15-15. íslensku karlarnir eru nú í
4.sæti.
Síðasta umferð verður spiluð í
dag og etja íslendingar þá kappi
við Breta og eygir íslenska sveitin
möguleika á öðru til þriðja sæti,
beri þeir sigur úr býtum í síðustu
umferð.
Röð efstu liða í karlaflokki er
þessi: Svíþjóð (408,5), Noregur
(393), Bretland (389) og ísland
(386). -rk
Hann Hreinn Bjarnason var orðinn dauðþreyttur á öllu umstanginu í Kringlunni í
gær og því feginn þegar hann sá uppbúið rúm í einni versluninni. Stráksi gerði
sér lítið fyrir, skreið uppí og leið beint inn í draumheima. Hann rumskaði ekki
þótt múgur og margmenni þyrptist að, ekki fyrr en...
Kringlan
Allur bærinn
mætti
Geysilegur mannfjöldi á
opnunardaginn. Fríhafnarstemmning í
Ríkinu
Mest fínnst mér nú fólkið vera
að skoða. Miðað við fjöld-
ann hérna í dag er meira skoðað
en verslað. En þetta byrjar mjög
vel, sagði Anna Ragnarsdóttir,
verslunarstjóri í Vogue, þegar
tíðindanienn Þjóðvijjans voru á
ferðinni um miðjan dag í gær.
Geysilegur mannfjöldi var á
staðnum; allur bærinn mættur
eins og sagt er.
„Ég er ánægð með daginn.
Þetta er reglulega skemmtilegt og
mér lfst vel á framhaldið, enda
virðast allir ánægðir með húsið,“
sagði Ása Ólafsdóttir, verslunar-
stjóri í Polarn & Pyret. Hún sagð-
ist hafa átt von á þessari traffík,
enda væri fólkið bæði að skoða og
versla.
Það var hálfgerð Þorláks-
messustemmning í Kringlunni á
...amma, hún Guðrún Þorvaldsdóttir, kom á vettvang og tók Hrein litla í fangið.
Mynd Ari.
opnunardaginn. Mannfjöldinn sá
til þess. Það var mikið um að
vera; lúðrasveit lék á einum stað,
trúður skemmti krökkum á öðr-
um. Andrúmsloftið svipað og í
stórmörkuðum víða erlendis.
Byggingin er björt og vistleg,
og lífga gosbrunnar og gróður
upp á hana. Rúllustigar milli
Grjótaþorp
Grænt Ijós á framkvæmdir
Meirihluti bygginganefndar samþykkti í gær að leyfa SH að hefjaframkvœmdir
við stórhýsi sitt í Grjótaþorpi. A að leggja vegyfir útivistarsvœði og leikvöll íbúanna.
GunnarH. Gunnarsson: Húsið í blóra við Kvosarskipulagið
SH og Tryggingamiðstöðin
geta nú hafið framkvæmdir á lóð
Fjalakattarins sáluga. Á fundi
byggingarnefndar í gær sam-
þykkti meirihlutinn að gefa grænt
Ijós á uppgröftinn en fulltrúar
minnihlutans lögðust gegn því.
Samþykki meirihlutans er þó
háð því að aðkoma sé tryggð fyrir
slökkvilið að húsunum við
Bröttugötu, að sögn Gunnars Si-
gurðssonar byggingafulltrúa.
Þá aðkomu á að tryggja með
því að leggja veg yfir opið svæði
með leiktækjum fyrir börn, sem
íbúar Grjótaþorps hafa gert að
útivistarsvæði hverfisins. Hefur
verið lögð inikil vinna í að gera
svæði þetta sem vistlegast af íbú-
unum og hafði áður fengist
munnlegt leyfi frá borgaryfir-
völdum fyrir útivistarsvæði
þessu.
Gunnar H. Gunnarsson, full-
trúi Alþýðubandalagsins í bygg-
inganefnd, sagði að hann ogGiss-
ur Símonarson, fulltrúi Alþýðufl-
okksins, hefðu mótmælt því að
framkvæmdir færu af stað þar
sem byggingin sem rísa á þarna er
í blóra við Kvosarskipulagið.
Samkvæmt því eiga að vera þarna
tvö mishá hús algjörlega aðskilin.
í stað þess verða húsin svipuð að
hæð og samtengd.
Borgarskipulagið er með
grenndarkynningu í gangi og
rennur frestur íbúa til að skila inn
athugasemdum ekki út fyrr en 22.
ágúst. Þá hefur byggingin ekki
enn verið samþykkt af bygginga-
nefnd.
íbúar í Grjótaþorpi segjast
munu grípa til sinna aðgerða, en
vildu að svo komnu ekki ljóstra
því upp í hverju þær væru fólgn-
ar.
-Sáf
hæða eins og vera ber, en ekki
hefur landinn lært á „akreina-
skiptinguna“ frekar en í umferð-
inni. I þeim löndum þar sem
mikið er um rúliustiga er nefni-
Iega plagsiður að þeir sem ekki
eru að flyta sér standi til hliðar
svo að hinir geti arkað í kapp við
stigann. Engin slík hraðferð var
möguleg í rúllustiganum i Kringl-
unni í gær.
70 verslanir eru í byggingunni,
stórar og smáar. Þær minnstu frá
28 fermetrum og hin stærsta 1100
fermetrar, en þá er stórmarkaður
Hagkaupsmanna sjálfra undan
skilinn. Ein þessara verslana er
áfengisútsala ÁTVR. Þar var
hálfgerð fríhafnarstemmning,
enda á maður þess sjaldan kost
hér á landi að skoða þann varn-
inginn sem þar fæst keyptur.
Bjarni Þorsteinsson útsölustjóri
sagði að sér virtist fólk ánægt með
þessa nýbreytni.
Að sögn lögreglunnar gekk
umferðin í námunda við Kringl-
una þokkalega fyrir sig miðað við
aðstæður, og engin sérstök
vandamál komu upp. Stöðubann
fyrir bfla er við göturnar allt í
kringum verslunina, og segir lög-
reglan að mikil brögð hafi verið
að því í gær að þetta bann væri
ekki virt. Hvetur hún ökumenn
til að taka sig á í þessu efni.
HS