Þjóðviljinn - 14.08.1987, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 14.08.1987, Blaðsíða 15
Ogþetta lika... Sovétmenn sigruöu Norðmenn í undankeppni ól- ympíuleikanna, í knattspyrnu, 1-0 nú fyrir stuttu og hafa yfirburðastöðu í sínum riðli. Þá gerðu Frakkar og írar jafntefli, 1-1. Kvartmilljón punda verður Manchester United að greiða Arsenal fyrir Viv Anderson. Þetta er nokkru minna en Arsenal fór fram á en það voru 450.000 pund. Liðin gátu ekki komið sér saman um þetta og málinu því skotið til sérstakr- ar nefndar. Hún úrskurðaði einnig að Tottenham skildi greiða Nottingham Forest 387.500 pund fyrir Chris Fa- irclauch. Forest hafði farið fram á að fá 475.00 pund, en Tottenham vildi aðeins greiða 225.000 pund. Paulo Futre sem Atletico Madrid keypti nú fyrir skömmu af Evrópumeisturum Porto, hefur nú verið kyrrsettur í Portúgal og á að fara í herinn. Samkvæmt lögum þarf hann að gegna herþjónustu, en fær þó liklega undanþágu sökum leikni sinnar með knöttinn. Englendingar hafa fundið nýja styrktaraðila fyrir deildina. Dagblaðið Today, sem var búið að lofa styrk að uþphæð fjórar milljónir punda, rifti samningum fyrir skömmu, en forráðamenn deildarinn- ar voru ekki lengi að finna annan. Barclay's bankinn hefur ákveðiö að taka við og leggur fram sömu upp- hæð og Today hafði samið um. Útlendingarnir í ítölsku knattspyrnunni eru að gefast upp. Æfingar eru mjög erfiðar og Rudy Völler segist aldrei hafa lent í öðru eins. Hann þurfi að hlauþa í fimm klukkustundir á dag og er ekki par hrifinn af þessari atorkusemi ítal- anna. lan Rush hefur einnig kvartað og segir að æfingarnar í Englandi séu barnaleikur við hliðina á þessu púli. Þá hefur litli bróðir Maradona, Hugo, skammað bróðir sinn fyrir að hafa ekki varað sig við þessum ósköpum. Tom Jager frá Bandaríkjunum setti í gær heims- met í 50 metra skriðsundi. Hann synti á 22.32 og bætti gamla metið um 0.01 sekúndu. Hollendingar hafa ráðið nýjan landsliðsþjálfara í knattsþyrnu. Sá heitir Thijs Libregts og hefur stjórnað liði Paok Salonika á Grikklandi. Hann þjálfaði áður Fey- enoord og PSV Eindhofen og tekur nú við af Rinus Michels sem lands- liðsþjálfari Hollendinga. Schalke sem nýlega keyþti Harold Schumac- her frá Köln, hafa nú áhuga á aö bæta öðrum leikmanni Kölnarliðsins við lið sitt. Það erTony Woodcock.sem hef- ur ekki komist í liöið hjá Köln það sem af er keþpnistimabilinu. Ginka Zagorcheve setti nú um helgina heimsmet í 110 metra grindahlaupi. Hún hljóp á 12.25 sem er 0.01 sekúndu betra en gamla metið. Metið setti Ginka í Grikklandi, en þar fór fram lands- keppni milli Búlgaríu, Grikklands og Tékkóslavakíu. Skotinn Gordon Smith er nú genginn til liðs við svissneska félagið Basel. Hann hefur leikið um 500 leiki á Bretlandi með Kilmarnock, Rangers, Brig- hton og Manchester City. Hann kom til Basel frá austurríska liðinu Admira Wacker. Xie Yuxin ungur kínverskur knattspyrnumað- ur, faer ekki að leika með Zwolle í 1. deildinni í Hollandi. Ástæðan fyrir því er að menn frá löndum Evrópu- bandalagsins ganga fyrir. Hann var ekki talinn svo góður leikmaður að hollenskir knattspyrnumenn gætu ekki gert sama gagn og því var samningnum sem hann hafði gert við liðið, rift. Það verður því líklega ekkert úr því að hann leiki í Hol- landi, nema Kína gangi í Evrópu- bandalagið! Ragnar Margeirsson ídauðafæri, en hitti boltann illaog Baldvin varði. Mynd:E.ÓI Mjólkurbikarinn Sanngjam sigur Framara Tryggðu sérsœti í úrslitaleik Bikarkeppninnar með sigri gegn Þór Framarar áttu ekki í miklum vandræðum með að tryggja sér sæti í úrslitaleik Mjólkurbikar- keppninnar. Þeir unnu sannfær- andi sigur á Þórsurum í unda- núrslitaleik á Laugardalsvelli, 3- 1. Framarar mættu ákveðnir til leiks, staðráðnir í að hefna ófar- anna gegn Þór í deildinni. Það tókst þeim og fyrirstaðan ekki mikil hjá norðanmönnum. Framarar náðu forystunni á 19. mínútu. Viðar Þorkelsson gaf fyrir mark Þórs á Guðmund Steinsson. Hann missti af boltan- um, en Pétur Arnþórsson var á réttum stað og hljóp með boltann yfirlínuna. Vörn Þórsillaá verði. Stuttu síðar fékk Ragnar Mar- geirsson boltann á markteig, en hitti hann illa og Baldvin varði. Þórsarar áttu ekki mörg hættu- Það var þjóðhátíðar- stemmning í Garðinum í gær þeg- ar heimamenn sigruðu Val í undanúrslitum Mjólkurbikark- eppninnar, 1-0. Víðir er því kom- inn í úrslit í fyrsta sinn í sögu fél- agsins og fögnuður leikmanna og áhorfenda leikslok var mikill og einlægur. Víðismenn hafa heldur betur komið á óvart. Þeir fengu ekki auðvelt verkefni í Bikarkepp- ninni, fyrst KR og nú Valur. Bæði liðin hafa legið í Garðinum og Víðismenn ekki fengið á sig mark í Bikarkeppninni. Leikurinn fór rólega af stað. Valsmenn voru meira með bolt- ann, en komust ekki langt gegn sterkri vörn Víðismanna. Jón Grétar komst þó einn í gegn á 11. mínútu, en skaut beint á Jón Örv- ar í markinu. Víðismenn áttu svo leg færi í leiknum. Einar Arason átti þó ágætt skot, en framhjá. Annað mark Framara kom svo á 30. mínútu. Ragnar átti þá góða sendingu inní vítateig á Pétur Arnþórsson. Hann lagði boltann fyrir nafna sinn Ormslev og hann skoraði með góðu skoti frá mark- teig, 2-0. Framarar sóttu svo heldur meira það sem eftir var af fyrri hálfleik. Ormarr átti gott skot frá vítateig, en yfir. Einar Arason var svo ekki langt frá því að minnka muninn fyrir Þór, en skallaði yfir af stuttu færi. Framarar héldu uppteknum hætti í síðari hálfleik og sóttu af krafti. Ormarr gaf fyrir á Pétur Ormslev en hann skaut beint á Baldvin í góðu færi. Skömmu síð- ar fékk Kristján Jónsson dauða- færi, komst einn í gegn, en Bald- hættulegar skyndisóknir. Grétar Einarsson átti skot rétt framhjá og undir lok fyrri hálfleiks komst Guðjón Guðmundsson einn í gegn, en Guðmundur Baldursson bjargaði með góðu úthlaupi. Síðari hálfleikurinn var fjöru- gri en sá fyrri og Víðismenn, hvattir af rúmlega 800 áhorfend- um börðust af krafti. Það var svo á 60. mínútu að það bar árangur. Vilberg Þorvaldsson fékk góða sendingu frá Birni Vilhelmssyni, innfyrir vörn Vals og skoraði með góðu viðstöðulausu skoti, 1-0. Eftir markið tóku Valsmenn leikinn í sínar hendur og sóttu stíft. Strax eftir markið átti Ám- undi gott skot í hliðarnetið og hann var aftur á ferðinni skömmu síðar, en Jón Örvar varði vel frá honum. Það sem eftir var leiksins sóttu Valsmenn látlaust, en gekk illa að skapa sér færi. Víðismenn vin varði mjög vel. Þórsarar fengu gullið tækifæri til að komast inn í leikinn á 54. mínútu. Kristján Kristjánsson fékk þá boltann við markteigs- horn, en Friðrik varði vel skot hans. Stuttu síðar átti Ragnar frá- bæra sendingu á Pétur Ormslev. Hann var einn gegn Baldvin og reyndi að lyfta boltanum yfir hann, en einnig yfir markið. Pét- ur fékk svo annað dauðafæri skömmu síðar eftir sendingu frá Ragnari, en skaut í Siguróla og þaðan í stöngina. Þriðja mark Fram kom á 67. mínútu eftir góða sókn og það gerði út um leikinn. Guðmundur Steinsson gaf boltann í hornið á Ormarr og hann gaf fyrir á Ragn- ar Margeirsson sem skoraði með góðu skoti frá markteig, 3-0. Eftir þriðj a markið má segj a að börðust vel í vörninni og biðu eftir að leiktíminn rynni út og þegar Eysteinn Guðmundsson flautaði til leiksloka brutust út mikil fagnaðarlæti áhorfenda, enda full ástæða til. Víðismenn léku vel, þrátt fyrir að þeir hefðu verið minna með boltann. Vörnin sterk með Daní- el Einarsson sem besta mann og þeir Jón Örvar og Sævar Leifsson áttu einnig góðan leik. Hjá Val bar mest á Ámunda Sigmundssyni og Val Valssyni. Þá átti Jón Grétar góða sprett í fyrri hálfleik. Það hefur ekki farið eins og við var búist í leikjum Vals og Víðis í sumar. Víðismenn hafa sigrað í einum og tveir hafa endað með jafntefli. Sannarlega óvænt úr- slit, en sýna að Víðisliðið er sýnd veiði en ekki gefin. -SÓM/Suðurnesjum úrslitin hafi verið ráðin. Pétur Ormslev átti skot rétt yfir, en Halldór Áskelsson átti skot rétt framhjá marki Fram. Þórsarar minnkuðu svo muninn á 73. mín- útu. Viðar Þorkelsson braut á Júiíusi Tryggvasyni á markteig. Júlíus tók vítaspyrnuna sjálfur og skoraði af öryggi, 1-3. Ormarr Örlygsson var svo ekki langt frá því að bæta fjórða mark- inu við á 76. mínútu. Hann komst einn í gegn og skaut yfir Baldvin í markinu. Baldvin var fljótur að átta sig og náði að kasta sér á boltann áður en hann fór yfir lín- una. Síðasta færi Þórsara fékk Halldór Áskelsson, en hann skaut í hliðarnetið frá vítateig. Sigur Framara var sanngjarn og þeir voru mun ákveðnari. Lið- ið lék í heild mjög vel. Ragnar, Guðmundur og Ormarr voru sterkir í sókninni og Pétur Orms- lev stjórnaði miðjunni. Þórsarar virtust aldrei komast almennilega inní leikinn og liðið náði sér aldrei á strik. Annað slagið brá fyrir ágætum köflum, en ekki nóg til sigurs. -Ibe England Pfaff tij Jean-Marie PfaíT, markvörður Bayern Miinchen og belgíska lands- liðsins, hefur áhuga á að fara til Manchester United. United leitar nú að reyndum markverði og hafa lengi reynt að fá Dasejev hinn sovéska, en án áran- gurs. Alex Ferguson, framkvæmda- stjóri Manchester United, hefur reynt að ná í forráðamenn Bayern, en án árangurs. í viðtali við Reuter fréttastofuna sagði Pfaff, sem enn á tvö ár eftir af samningi sínum við Bayern, að hann hefði áhuga á að spila í Englandi. „Manchester Un- ited er topplið sem leikur í einni af bestu deildum i heimi. Ef þeir hefðu samband við mig þá gætum við náð samkomulagi," sagði Pfaff. -Ibe/Reuter Föstudagur 14. ágúst 1987 pjÓÐVILJINN - SÍÐA 15 Mjólkurbikar Gleði í Garðinum Þjóðhátíðarstemmningþegar botnliðið í 1. deild lagðiþað efsta

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.