Þjóðviljinn - 14.08.1987, Page 3

Þjóðviljinn - 14.08.1987, Page 3
ÖRFRÉTTIR Níels Árni Lund lætur nú af störfum sem einn af þrem ritstjórum Tímans, en aö- eins fram að næstu áramótum. Jón Helgason landbúnaöarráð- herra hefur ráöið Níels til ráöu- neytisins og felst starfiö í því aö kynna ráðuneytið, auk þess sem hann verður ráöherra til aðstoðar i ýmsum sérverkefnum, Félagslegar afleiðingar eyðni og aðgerðir til úrbóta verða til umræðu á námskeiði, sem Há- skólinn og Landlæknisembættið heldur dagana 7.-11. september nk. Námskeiðið er sérstaklega ætlað starfsfólki í heilbrigðis- og félagsmálaþjónustu. Námskeið- ið verður á ensku og er aðal fyrir- lesari þess Bretinn David Matt- hews, sem hefur stjórnað skipu- lagi og samræmingu félagslegrar þjónustu fyrir eyðnisjúklinga og aðstandendur þeirra á vegum heilbrigðis- og félagsmálaráðu- neytis Bretlands. Þá munu ís- lenskir fyrirlesarar fjalla um þætti sem snerta ísland sérstaklega. Fjöldi þátttakenda er takmarkað- ur við 25 og fer námskeiðið fram í Odda. T ekið er á móti umsóknum í síma 694500 frá kl. 10-12 og 13-15 virka daga til 28. ágúst. Námskeiðsgjald er kr. 3.000. Borgaraflokkurinn heldur landsfund sinn á Hótel Sögu dagana 24.-26.september. í fréttatilkynningu frá flokknum stendur, að landsfundurinn sé opinn öllum flokksmönnum úr öllum kjördæmum landsins. Á landsfundinum verður kosinn for- maður flokksins auk fleiri emb- ættismanna. Á undan fundinum verður haldinn sérstakur Borg- arafundur þar sem almenningi gefst kostur á að kynna sér stefnumál Borgaraflokksins. Dagvist barna í Reykjavík stendur fyrir kynning- arnámskeiði fyrir fóstrur og ann- að uppeldismenntað fólk, sem hefur verið fjarverandi dagvistar- uppeldi forskólabarna um lengri eða skemmri tíma, en hefur hug á að hefja starf að nýju. Námskeið- ið verður dagana 17.-18. ágúst. Námskeiðsstjórar eru umsjónar- fóstrurnar Fanny Jónsdóttir og Arna Jónsdóttir. Veita þær allar upplýsingar um námskeiðið og annast innritun í síma 27277. Vesturland Kennara- skortur - Kennararáðningar standa ekki nógu vei í ár. Það vantar kennara við þó nokkuð marga skóla ennþá. Það er reyndar óvíða mikið, - víðast frá einu uppí tvö stöðugildi sem eru ómönnuð við skóla, sagði Snorri Þorsteinsson, fraeðslustjóri Vest- urlands. - Það verður að segjast eins og er að það hefur lítið þokast áleiðis í sumar við að ráða í stöðu- rnar. Á vorin sækja flestir um, en yfir hásumarið er lítið um um- sóknir. Það er ekki aftur fyrr en um þetta leyti, - um miðjan ág- úst, þegar lausar kennarastöður eru auglýstar á nýjan leik, að við megum eiga von á því að fá um- sóknir. í heildina tekið hefur ásókn í kennarastarfið ekki aukist, öfugt við það sem við mátti búast eftir síðustu kjara- samninga kennara, sagði Snorri Þorsteinsson. - Annars er ástandið hér við- unandi miðað við mörg önnur fræðsluumdæmi, hvað réttinda- fólk áhrærir. Ætli það láti ekki nærri að á síðasta skólaári hafi milli 70 og 80 prósent allra stöðu- gilda í fræðsluumdæminu verið mönnuð réttindafólki, sagði Snorri Þorsteinsson. -RK FRÉITIR Þjóðminjasafnið Skammarlegt fjársvelti Guðmundur ólafssonfornleifafrœðingur: Þurfum að leita til fátækustuþróunarlanda til að finnaþjóðminjasafn sem jafn illa er búið að Þjóðminjasafnið býr við skammarlegt fjársvelti. Ég hugsa að við þurfum að leita til fátækustu þróunarlanda til að fínna þjóðminjasafn sem jafn illa er búið að og Þjóðminjasafni Is- lands," sagði Guðmundur Ólafs- son fornleifafræðingur, þegar Þjóðviljamenn bar að á Bessa- stöðum í gær, en þar er í fulium gangi uppgröftur á Konungs- garðinum svokallaða. Að sögn Guðmundar hefur fjárveitingum til safnsins hrakað stórkostlega á undanförnum árum. „Við fengum hálfrar milljónar króna aukafjárveitingu í þetta verkefni," sagði Guð- mundur, „en undanfarin ár hafa alls engir peningar verið veittir til rannsókna. Fjárveitingin hefur ekki dugað fyrir daglegum rekstri safnsins hvað þá meir.“ Á fornleifadeild Þjóðminja- safnsins er aðeins eitt stöðugildi fornleifafræðings. „Þjóðminja- safnið á að vera miðstöð fyrir þessa hluti, og það er augljóst mál að það gengur ekki upp að hafa aðeins einn fornleifafræðing í starfi. Okkur vantar fleiri fastar stöður,“ sagði Guðmundur. Auk annars hefur fornleifa- deildin minjaskráningu á sinni könnu. Var Guðmundur á því að við værum mjög aftarlega á mer- inni miðað við nágrannalöndin í þeim efnum. Auk Guðmundar hafa Krist- inn Magnússon og Kristin Sig- urðardóttir unnið að uppgreftri á Bessastöðum í sumar. Fljótlega verður gert hlé á rannsóknunum, og tekur þá við skráning minja á Þingvöllum. Hafist var handa um þá minjaskráningu í fyrrasumar og stendur til að ljúka því verki nú í sumar. Ennfremur vinna starfsmenn safnsins að rannsókn- um í Reykholti um þessar mund- ir. Konungsgarðurinn á Bessa- stöðum er heiti sem notað er um ferhyrnda byggingu, sem að lík- indum var fyrst reist á fyrrihluta 16. aldar, og var húsagarður inni í ferhyrningnum. Þarna bjuggu embættismenn konungs frá fyrstu tíð eftir að þeir hófu að sitja hér á mWtm Hér hefur trúlega verið ruslahaugur, en neðst gæti hafa staðið hús: Guðmundur Ólafsson og Kristinn Magnússon við og ofan í 3,5 metra djúpri gryfju. Þarna eru minjar frá því um 1500 og varðveisluskilyrðin einstaklega góð. Mynd: Sig. íslandi. Að sögn Guðmundar er undanförnu, en þó hafa starfs- verkefnið með þeim stærri sem' menn safnsins átt við mörg stór Þjóðminjasafnið hefur ráðist í að verkefni undanfarin ár. HS Skúlamál Býr ekki til fisk úr engu Jón B. Jónasson, sjávarútvegsráðuneyti: Skúli býrekki tilfisk úrengu þó hann kunni að vera nýtinn. Hans eigin upplýsingar sýndu Ijóslegafram á óeðlilegt misrœmi uppgefins aflamagns og framleiðslumagns - Þótt Skúli Alexandersson kunni að vera nýtinn maður, þá skapar hann ekki físk úr engu. Ef Skúli næði þeim nýtingarstuðli sem lagður er til grundvallar út- reikningunum, þá mætti hann sem fískverkandi vel við sitt hlut- skipti una, sagði Jón B. Jónasson, skrifstofustjóri sjávarútvegs- ráðuneytisins, vegna þungra orða sem Skúli hefur látið falla í garð ráðuneytisins sökum ásakana um kvótasvindl, en Skúli heldur því fram að ráðuneytið geri í út- reikningunum ekki ráð fyrir mis- jafnri aflanýtingu vinnslustöðva. - Það er ekki rétt að við höfum ekki tekið neitt tillit til þeirra upplýsinga sem hann sendi okk- ur. Það eina sem þær upplýsingar gerðu var að sanna það sem við höldum fram. Þar kom klárt fram að það aflamagn sem hann gaf Fiskifélaginu upp var miklu lægra. Þannig að Skúli er eigin- lega dómari í sjálfs síns sök sagði Jón B. Jónasson. - Við höfum ævinlega túlkað útreikningana fiskvinnslunni í hag. Skúli segir að við reiknum þetta út án samráðs við nokkurn. Það er ekki rétt. Við leituðum ráðlegginga þeirra sem gerst þekkja til fisknýtingar, - vinnsl- unnar, söluaðila og annarra og þeir stuðlar sem við göngum út frá ættu því að vera marktækir, sagði Jón. Ekki fékkst upp gefið hjá sjáv- arútvegsráðuneytinu hvaða fimm fyrirtæki eru sökuð um kvóta- svindl, sem er allt frá nokkrum tugum tonna uppí hundruð tonna. - Skúli afréð sjálfur að svipta leyndinni af fyrirtæki sínu Jökli og af þeim aðilum sem við höfum náð tali af er hann sá eini sem ekki hefur viljað gangast við að hafa gefið upp rangt aflamagn, sagði Jón. -rk Kvikmyndir Skyttumar í Sviss Kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Skytturnar, er meðal 18 kvikmynda á alþjóð- legri kvikmyndahátíð í Locarno í Sviss. Skytturnar voru valdar úr fjölda kvikmynda og var eina kvikmyndin frá Norðurlöndum sem komst á hátíðina. Þann 16. ágúst verður ljóst hver vinningsmynd hátíðarinnar verður. Sú mynd sem ber sigur úr býtum verður svo sýnd í útibíói á torgi í Locarno, sem rúmar 7000 manns og er stærsta bíó í Evrópu. Meðal þeirra sem hafa hlotið verðlaun á hátíðinni má nefna Antonioni.Tarkowsky, Kubrick, Pasolini o.fl. Gestir hátíðarinnar í ár eru þeir Godard, Szabo, Zanussi og Wim Wenders. -Sáf Föstudagur 14. ágúst 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 70 ára afmælis- hóf Brunabótafélag íslands er 70 ára um þessar mundir og í tilefni af því verður haldið afmælishóf I Súlnasalnum á Hótel Sögu í kvöld. Fyrr um daginn verður haldinn aðalfundur hjá fulltrúa- ráði félagsins og sækja það 48 fulltrúar úr öllum sýslum og öllum kaupstöðum landsins, utan Hafnarfjarðar og Reykjavíkur. Bjarni Þórðarson, formaður Sambands íslenskra tryggingar- félaga, heldur erindi á fundinum. Afmælishófið verður væntan- lega mjög fjölmennt því öllu starfsfólki og fulltrúum BÍ er boðið til þess með mökum. Þá verða þrír erlendir gestir í hófinu, allir frá Sturebrand í Noregi. Sturebrand er stærsta einkafyrir- tæki í Noregi og sér um endur- tryggingu fyrir BÍ. Gestirnir eru Jan Erik Langangen, forstjóri fyrirtækisins, Tore Melgaard, sem hlotið hefur riddarakross fálkaorðunnar vegna starfa sinna að íslenskum vátryggingarmálum og Björn Kristofersen, forstjóri skaðadeildar fyrirtækisins. -Sáf

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.