Þjóðviljinn - 14.08.1987, Side 8
HEIMURINN
Ronald Reagan
Fáskrúðugt ávarp
Forsetinn kvaðst bera ábyrgð á athœfi
undirmanna sinna en minntist ekki aukateknu
orði á lögbrot þeirra né baðst hann
velvirðingar á því að hafa logið að þegnum
sinum
Lengi hafði verið beðið með
eftirvæntingu í Bandaríkjun-
um eftir því að Ronald Reagan
forseti kveddi sér hljóðs og gerði
hreint fyrir sínum dyrum varð-
andi hið margtuggna írans/
Kontrahneyksli. í fyrrakvöld
flutti hann loks sjónvarpsávarp
um það mál og olli það nokkrum
vonbrigðum. Fjallið tók jóðsótt
og það fæddist iítil mús.
Að vísu kvaðst forsetinn vita-
skuld bera ábyrgð á atferli undir-
mannasinna. Hann endurtók hin
fleygu ummæli Poindexters að-
míráls um að „ábyrgðin næði ekki
lengra en hingað“ og sagðist einn
standa þegnum sínum skil á
gjörðum stjórnar sinnar.
En hann lét algerlega hjá líða
að fordæma lögbrot undirmanna
sinna, hann bað engan velvirð-
ingar á því að hafa logið að þing-
inu og bandansku þjóðinni né
gerði hann að umtalsefni þá
staðreynd að nánir samverka-
menn hans reyndu með ýmsum
hætti að afvegaleiða og blekkja
þá aðila sem höfðu rannsókn
hneykslisins með höndum.
Þess í stað ræddi hann ítarlega
um hve annt honum hefði verið
um líf og limi bandarísku gíslanna
í Líbanon og að sú umhyggja
hefði leitt til mistaka af sinni
hálfu. „í þrjósku minni hélt ég til
streitu stefnu sem mér hefði átt
að vera ljóst að farið hefði úr-
skeiðis."
Hann sagði ennfremur: „North
ofursti og Poindexter aðmíráli
töldu sig vera að gera hluti sem
væru mér að skapi, að halda
áfram stuðningi við andstöðu
lýðræðissinna í Nicaragua.“ En
athygli vekur að Reagan láðist að
taka það fram hvort honum hefði
verið brall þessara undirmanna
sinna að skapi. Að minnsta kosti
fordæmdi hann það ekki.
Ávarp forsetans hefur ekki
varpað neinu ljósi á óupplýstar
hliðar hneykslismálsins og í raun
urðu menn ekki mikils vísari eftir
að þingnefnd yfirheyrði alla
helstu þátttakendur fyrir
skemmstu. Pað er því talið næsta
víst að málið eigi eftir að vera
Reagan til ama þá sautján mán-
uði sem eftir eru af kjörtímabili
hans. Svo dæmi sé tekið þá hafa
skoðanakannanir ítrekað leitt í
ljós að um helmingur Banda-
ríkjamanna telur forseta sinn
hafa sagt ósatt um þátt sinn í
hneykslinu.
George nokkur Mitchell, öld-
ungadeildarþingmaður fyrir
Demókrataflokkinn, átti sæti í
Ronald Reagan. Menn eru engu nær.
rannsóknarnefnd þingsins. Hann
kom fram í sjónvarpi í gær og
gerði ræðu forsetans að umtals-
efni. „Við förum ekki í neinar
grafgötur um það að höfuðvillan í
máli þessu var ekki röng útfærsla
undirmanna á stefnu forseta síns
heldur stefnan sjálf.“ Hann
nefndi vopnasöluna til íran sem
dæmi um ranga stefnu og „svo
alvarleg mistök að nú stæðu
menn augliti til auglitis við þann
möguleika að Bandaríkjamenn á
Persaflóa yrðu vegnir með vopn-
uxn sem við seldum írönum.“
-ks.
Fomt herskip siglir á ný
170 rœðarar á þremur hœðum
Bjúgt stefni grísks herskips af
sama tagi og þau skip sem sigruðu
persneska flotann fyrir einum
2400 árum klýfur nú að nýju
öldurnar í Eyjahafi. Er þetta ná-
kvæm eftirh'king af herskipi frá
stórveldistímum Aþenuborgar,
sem er 37 m löng, með þremur
áraröðum og knúin áfram af 170
ræðurum, sem sitja á þremur
hæðum. Fram úr stefninu stendur
langt brons-spjót, sem haft var í
fornöld til að sökkva óvinveittum
skipum.
Með byggingu þessa skips, sem
reynist hraðskreitt og lipurt, hef-
ur ræst gamall draumur fyrrver-
andi prófessors í klassískum
fræðum við háskólann í Cam-
bridge, Johns nokkurs Morris-
ons. Fékk hann þessa hugmynd
fyrst við að lesa um skip af þessari
tegund í verkum heimspekingsins
Platós, og ól hana síðan með sér
um langt skeið. „Það er dásam-
legt að hafa slíkan draum og sjá
hann rætast,“ sagði hann við
fréttamenn. „Slíkt gerist ekki
oft.“
Við byggingu skipsins fékk
Morrison aðstoð gamals skipa-
verkfræðings, Johns Coates, sem
var í sjö ár að vinna við teikning-
arnar að því. „Þetta er dæmigerð
bresk hugmynd," sagði einn af
ræðurunum, „hvar annars staðar
væri hægt að finna menn, sem
ynnu kauplaust árum saman við
að byggja að nýju forn herskip?“
En þótt hugmyndin sjálf og frum-
kvæðið kæmu frá Bretlandi, lagði
gríski sjóherinn fram meira en
átta hundruð þúsund dollara
styrk, og lét byggja skipið í lítilli
einka skipasmíðastöð nálægt Pir-
eus. „Við lítum á smíði þessa
forna herskips sem aðferð til að
rannsaka hefðir og sögu sjóhers-
ins og skipasmíðar í fornöld,"
sagði gríski flotaforinginn Apo-
stolis Vasiliadis, sem haft hefur
umsjón með verkinu.
Herskip af þessari tegund með
þrjár áraraðir drottnuðu yfir
Eyjahafinu frá lokum 6. aldar og
til loka 4. aldar fyrir Krist. Telja
sagnfræðingar að orrustunni við
Salamis, þar sem Aþeningar
gersigruðu Persa, hafi 310 slík
skip verið í flota Aþenu og 1207
skip í persneska flotanum. Her-
skip þessi voru fremur grunn,
5,25 m breið og um 40 smálestir.
Þegar þeim var róið, var hraðinn
um tólf hnútar, en náði fjórtán
hnútum, þegar seglið var notað.
Suður-Kórea
Veifcföll á verkföll ofan
Roh Tae-Woo: Kröfur verkamanna fyllilega réttlátar
Að undanförnu hefur allt logað
í verkföllum í Suður-Kóreu og
hafa verkamenn fært sér i nyt þá
stjórnarbót sem almenningur
neyddi Chun forseta til að gera
eftir látlausar mótmælaaðgerðir
fyrir nokkru.
Umliðna daga hafa verkamenn
í rafeindaiðnaði lagt niður vinnu
og í gær varð að loka Daewoo
rafeindaverinu í Kwangju af
þeim sökum. Fyrr höfðu verka-
menn í fimm verksmiðjum Kumi
fyrirtækjasamsteypunnar farið í
verkfall og í fyrradag og í gær var
ekkert unnið í neinni af fimm
bílaverksmiðjum Suður-Kóreu.
Að sögn yfirvalda liggur vinna
niðri í 241 fyrirtæki, einkum nám-
um, verksmiðjum og flutninga-
fyrirtækjum. f gær bættust síðan
53 smáfyrirtæki í hópinn þar sem
allajafna starfa 500 manns eða
færri.
„Það eru teikn á lofti um að
vinnudeilur í stórfyrirtækjum séu
að leysast en vandinn er sá að
engin lausn er í sjónmáli í smærri
fyrirtækjunum en mörg þeirra
framleiða varahluti og smávörur
fyrir stærri verksmiðjur sem fyrir
vikið geta ekki hafið starfsemi að
nýju,“ sagði yfirvald nokkurt í
gær.
Verkamenn krefjast launa-
hækkunar og bætts aðbúnaðar á
vinnustað. Þar eð verkföllin hafa
þegar kostað þjóðarbúið um 200
miljónir bandaríkjadala er
stjórnin áfram um að fyrirtæki
semji sem fyrst.
Leiðtogi stjórnarflokksins,'
Roh Tae-Woo, kom mönnum
enn á óvart í gær er hann lýsti því
yfir að kröfur verkfallsmanna
væru fyllilega réttmætar. „Verka-
mönnum ber stærri hluti af þjóð-
arauðinum en hingað til hefur
fallið þeim í skaut.“
-ks.
Ekki þurfti meira svigrúm en sem
svaraði þremur lengdum þess til
að snúa því við.
Sú eftirlíking herskipanna,
sem nú hefur verið byggð og
hleypt var af stokkunum í júní, er
gerð úr Oregon-furu, og voru
notaðir í hana 2000 tréfleygar og
25000 handsmíðaðir lát-
únsnaglar. Er nú verið að reyna
skipið, og er það að mestu leyti
mannað félögum úr siglinga-
klúbbum háskólanna í Oxford og
Cambridge. Eru þeir á aldrinum
17 til 60 ára, og sumir hverjir
kennarar í klassískum málum.
Ætlunin er að sigla skipinu í tvær
vikur, en síðan veröur það afhent
gríska flotanum. Verður það síð-
an haft í nausti, sem er nákvæm
eftirlíking af þeim sem tíðkuðust í
fornöld, og haft til ferða á fornum
siglingaleiðum.
„Við ætlum að rannsaka
hvernig skipið reynist í sjó til að
komast á raunhæfan hátt að ýmsu
í sambandi við flota forn-
aldarinnar og nota það þannig
sem tæki í sagnfræðirannsókn-
um,“ sagði John Coates. Skipið
hefur reynst vel, en þó hafa kom-
ið upp erfiðleikar við að sam-
ræma hreyfingar hinna 170 ræð-
ara, sem róa með 12 kg þungum
árum í litlu rými á þremur hæðum
og því við harla óvenjulegar að-
stæður. Er þá hætta á að árarnar
flækist og rekist hver á aðra.
Skipstjórinn er grískur sjóliðs-
foringi, Dimitrios Papadas að
nafni, oghafagárungarbentá, að
það brjóti í bága við bresk lög að
hafa þannig grískan skipstjóra og
breska áhöfn: samkvæmt lögum
frá 1879 á breskur þegn nefnilega
yfirvofandi tveggja ára fangelsis-
refsingu ef hann setur sig undir
stjórn herforingja erlends ríkis...
e.m.j.
'ÖRFRÉTTIR*
Sovétmenn
vita af miklum olíu- og gaslindum
djúpt undir mjög þykkri steinklöpp í
Jakútíu - héraði í Síbiríu en eiga í
mesta basli með að nálgast þær auð-
lindir. Nú hafa þeir um nokkurt skeið
gert tilraunir með kjarnorkusprengjur
í því skyni að rjúfa steinskjöldinn. Al-
exei nokkur Zolotof tjáði frétta-
mönnum í gær að í fyrradag hefði
þriðja slík sprengjan verið sprengd.
Hann sagðist gera sér vonir um að
vinnsla olíu og gass ykist um 50 af
hundraði við notkun þessarar tækni.
Atvinnuleysi
hefur eitthvað minnkað í Bretlandi á
undanförnum mánuðum og í júlí náð-
ist sá merki áfangi að atvinnu fengu
47,600 manns umfram þá sem
misstu störf sín. Hafa atvinnulausir
ekki verið færri síðan árið 1983. Þó
fylgir sá böggull skammrifi að í síð-
asta mánuði misstu 10,000 verka-
menn í verksmiðjum atvinnu sína
þannig að aukningin er ekki í svon-
efndum „undirstöðuatvinnuvegum
þjóðarinnar." Nú fá 2,870 þúsund
Bretar ekki handtak að gera sem
lætur nærri að séu um 11,7 af hundr-
aði vinnufærra manna.
Frú Jean Brooks
vann glæsilegan sigur í allsérkenni-
legri keppni sem breskt flugfélag
efndi til fyrir skömmu. Forráðamenn
félagsins ákváðu að verðlauna
þyngsta farþega sumarsins með því
að afhenda honum þyngd sína í
pappírskiljum að því tilskildu að við-
komandi hefði svarað rétt þrem létt-
um spurningum. Jean fór í frí til Tyrk-
lands eigi alls fyrir löngu og á flugvell-
inum var hún viktuð auk þess sem
hún hafði svör á reiðum höndum við
spurningunum. Þar sem hún vegur
113 kílógrömm hreppir hún að
minnsta kosti 700 pappírskiljur. „Ég
hef örugglega lesið margar þeirra því
ég er óttalega feitur bókaormur,"
sagði Jean er henni voru færðar gleð-
ifréttirnar.
Juan Ponce Enrile
fyrrum varnarmálaráðherra Filipps-
eyja og núverandi höfuðfjandi Aquin-
os forseta var í gær úrskurðaður lög-
lega kjörinn öldungadeildarþingmað-'
ur af hæstarétti þarlendra. Þá lauk
þriggja mánaða löngu þrasi um það
hvort honum bæri seta í deildinni ell-
egar Augusto nokkrum Sanchez sem
bauð sig fram fyrir flokk forsetans og
hafði sakað Enrile um Ijótan leik.
Hæstiréttur féllst ekki á kröfu hans
um endurtalningu atkvæða né kvaðst
hann geta fundið neitt sem renndi
stoðum undir fullyrðingar Sanchesar.
Aquino forseti sagðist ekki gera
neinar athugasemdir við dóminn og
bera fullt traust til réttarins.
Gott er
að vera skínandi klár og afbragð jafn-
aldra sinna að mannviti. John Evans
er níu ára gamall Breti og í gær fór
hann létt með að Ijúka stærðfræði-
prófi sem allajafna er lagt fyrir 18 ára
gamla einstaklinga er hug hafa á há-
skólanámi i þeirri grein við Oxbridge
háskóladúettinn. Hann er yngstur
allra sem þreytt hafa þetta próf og
fengið tíu í einkunn. Fyrra aldursmet
átti tíu ára gömul gáfnasnót.
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 14. ógúst 1987