Þjóðviljinn - 02.09.1987, Blaðsíða 9
____________MENNING__________
Þjóðleikhúsið
Veisla í vetur
Fjögur ný íslensk leikverk frumsýnd
Nokkrir aðstandendur „Brúðarmyndar", standandi: Gunnar Reynir Sveinsson,
Herdís Þorvaldsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Stefán Baldursson, sitjandi: Guðný
Ragnarsdóttir, HalldórBjörnsson, ÞórunnS. Þorgrímsdóttir, ErlingurGíslason,
Guðrún Gísladóttir.
Þjóðleikhúsið hefur nú kynnt
starfsemi sína og verða tíu
verk sýnd á ríkisfjölunum í vet-
ur. Verkin eru af ólíkum toga
og úr ýmsum áttum. Alls
verða frumsýnd átta leikverk
og söngleikur. Þáverðurtekin
upp sýning (slenska dans-
flokksins „Ég dansa við þig“,
en ný ballettsýning er á dö-
finnieftiráramót.
Af átta leikverkum hússins eru
fimm íslensk, sem er hærra hlut-
fall en áður, eins og Gísli Alfreðs-
son, þjóðleikhússtjóri, tjáði
blaðamönnum á fréttafundi í
gær.
Rómúlus mikli, eftir sviss-
neska skáldið Friedrich Durren-
matt, er fyrsta verkefni vetrarins,
en það verk varð jafnframt fyrst
til að vekja athygli á þyí ágæta
skáldi. Rómúlus mikli á að vera
friðflytjandi og heimspekilegur
gamanleikur, og segir frá hinum
huglausa keisara rómverja,
Rómúlusi og þeim ógöngum sem
hann lendir í, því hann hefur hina
megnustu andúð á valdbeitingu
og á ekki uppá pallborðið hjá
samherjum sínum. Rómúlus
hefst ekki að, meðan óvinir hans
nálgast og nennir ekki að flýja.
Loks verður sinnuleysið honum
til bjargar, í lokin afræður hann
að gerast kjúklingabóndi til að
halda manníegri reisn og lífi um
leið.
Gfsli Halldórsson er leikstjóri,
en Rúrik Haraldsson fer með tit-
ilhlutverkið. Bjarni Benedikts-
son frá Hofteigi þýddi verkið og
leikmynd gerir Gunnar Bjarna-
son. Frumsýning verður 19. sept.
Nýtt verk eftir
Guðmund Steinsson
Brúðarmyndin, nýtt verk eftir
Guðmund Steinsson verður
frumsýnt í október. Nú er áratug-
ur frá því Stundarfriður rauf frið í
leikhúsinu og fyrir fimm árum
sýndi Þjóðleikhúsið leikrit hans,
Garðveisla.
Brúðarmynd lýsir því sem ger-
ist, þegar verið er að kvikmynda
fjölskyldulíf og þeim veruleika
sem myndast andspænis þeim
veruleika. Á sl. hausti var verkið
leiklesið á leikskáldaþingi í Eug-
ene O’Neill-miðstöðinni á
austurströnd Bandaríkjanna, við
óspilltar undirtektir viðstaddra.
Með stærstu hlutverk fara Er-
lingur Gíslason, Kristbjörg
Kjeld, Guðný Ragnarsdóttir,
Flalldór Björnsson, sem leikur
sitt fyrsta hlutverk hjá leikhús-
inu, Herdís Þorvaldsdóttir og
Róbert Arnfinnsson. Leikstjóri
er Stefán Baldursson og Þórunn
S. Þorgrímsdóttir gerir leikmynd
og búninga. Brúðarmynd verður
frumsýnd í október.
Vesalingarnir, söngleikur
byggður á samnefndri skáldsögu
Victors Hugo, hefur verið sýndur
í tvö ár samfleytt í London við
fádæma vinsældir, verður jóla-
verkið. Vesalingarnir er stór-
söngleikur eða rokkópera, og
hefur hlotið nafngiftina „Snilld-
arverkið með stóra hjartað“.
Þetta er viðamikið verk, um 30
íeikarar taka þátt í sýningunni og
með stærstu hlutverk fara Egill
Ólafsson, Jóhann Sigurðarson,
Sigurður Sigurjónsson, Sverrir
Guðjónsson, Aðalsteinn Berg-
dal, Edda Heiðrún Bergmann,
Sigrún Waage og Lilja Þórisdótt-
ir. Benedikt Árnason er leikstjóri
en Böðvar Guðmundsson þýddi
leikinn. Leikmynd og búninga
gerir Karl Aspelund og er Agnes
Löve æfingastjóri tónlistarinnar.
Hljómsveitarstjóri er Snæbjörn
Jónsson, en 17 manna hljómsveit
spilar í söngleiknum.
„Ég dansa við þig“
Þá verða sex aukasýningar á
sýningu fsl. dansflokksins, „Ég
dansa við þig“, en sýningin er sú
langvinsælasta til þessa, af hálfu
dansflokksins. Hlíf Svavarsdótt-
ir, nýkomin heim frá Hollandi,
tekur við af Nönnu Ólafsdóttur
sem listdansstjóri.
Sam Shepard, eitt fremsta og
afkastamesta leikskáld Banda-
ríkjanna, mun eiga verk á fjölum
Þjóðleikhússins í vetur, þegar
nýjasta verk hans „A lie of
mind“, verður frumsýnt í mars-
byrjun. Sam Shepard er, þó ung-
ur sé að árum, orðinn að goð-
sagnapersónu í heimalandi sínu:
Leikskáld, kvikmyndastjarna,
tónlistarmaður og hrossarækt-
andi. Shepard hefur skrifað
meira en 40 leikrit og hlotið
Pulitzer-verðlaunin.
Eitt af þekktustu verkum hans,
„Barn j í garðinum“ (Buried
Child) var sýnt hjá Leikfélagi
Reykjavíkur fyrir nokkrum
árum, en önnur fræg verk hans
eru „True West“ og „Fool for
Love“, en það síðasttalda var
kvikmyndað og sýnt í bíóhúsi hér
í vetur. Sam Shepard samdi líka
handritið að bíómyndinni Paris,
Texas. „A lie of mind“ var út-
nefnt besta leikverk ársins 1986
af gagnrýnendum í New York.
Verkið er ástaróður, ofsafenginn
og bráðfyndinn í senn og lýsir
samskiptum foreldra og sona,
eiginkvenna og eiginmanna. Úlf-
ur Hjörvar þýddi leikritið en með
leikstjórn fer Gísli Alfreðsson.
Ljóðrœnn
harmleikur
Fjalla-Eyvindur, eitt af
meistaraverkum Jóhanns Sigur-
jónssonar, var eitt þeirra verka
sem Þjóðleikhúsið tók til sýninga
við vígsluna 1950, en var fyrst
sýnt í Iðnó árið 1911. Strax árið
eftir var Fjalla-Eyvindur sýndur í
Kaupmannahöfn og fór svo sigur-
för um Evrópu, fyrst íslenskra
leikverka, þannig að umheimin-
um varð ljóst að íslenskar bók-
menntir höfðu ekki dáið út með
söguöldinni. Fjalla-Eyvindur er
stórbrotinn, rómantískur og
ljóðrænn harmleikur um ástir og
örlög Eyvindar útilegumanns og
Höllu, konunnar sem hlýðir rödd
hjartans og fórnar öllu fyrir
skammvinna sælu. Það verður
spennandi að sjá hvað tíminn hef-
ur gert við Eyvind, eða hvort
Eyvindur hefur gert eitthvað við
tímann.
„Lygarinn“, eftir Carlo Gold-
oni, verður með seinni skipum
Þjóðleikhússins. Goldoni er
stundum nefndur hinn „ítalski
Moliére" og er líklega kunnastur
hér á landi fyrir gamanleikinn
„Tveggja þjónn“, sem Leikfélag
Reykjavíkur sýndi fyrir tuttugu
árum. Goldono (1707-1793) var
afspyrnu afkastamikið gaman-
leikjaskáld, hann samdi um 300
gamanleiki - og þegar hann stóð
á hátindi ferils síns samdi hann
sextán leikverk á einu ári, þar á
meðal mörg sem talin eru
meistarastykki, til að lenda ekki í
skuldafangelsi, ef ekki til að
forða sér frá bráðum bana.
Lygarinn er miskunnarlaus
farsi um erkilygarann og kvenna-
flagarann Lelio, sem er svo heill-
andi að enginn stenst honum
snúning, hversu ósennileg sem
lygin er. Til að setja upp þessa
sýningu hefur Þjóðleikhúsið
fengið til liðs við sig víðfrægan
ítalskan leikstjóra, Giovanni
Pampiglione. Frumsýning er í
apríl.
Hin eilífa barátta
Barnaleikrit Þjóðleikhússins í
ár er „Hvar er hamarinn", eftir
Njörð P. Njarðvík. Leikritið var
fyrst sýnt úti á landi snemma í
sumar og þótti höfða til fólks á
öllum aldri. Verkið er byggt á
Þrymskviðu og er sprellfjörugur
gamanleikur, sem segir af för
Þórs þrumuguðs í dulargervi á
fund Þryms til að endurheimta
hamarinn. Sumsé barátta góðs og
ills handa börnum. í helstu hlut-
verkum eru Erlingur Gíslason,
Örn Árnason, Randver Þorláks-
son og Lilja Þórisdóttir. Hjálmar
H. Ragnarsson semur tónlist og
leikstjóri er Brynja Benedikts-
dóttir. Sigurjón Jóhannsson gerir
leikmynd og búninga.
Á Litla sviðinu verða frumsýnd
tvö ný íslensk verk, og verða þau
kynnt nánar síðar. En annað
þeirra er „Bílaverkstæði Badda“,
dramatískt verk eftir Ólaf Hauk
Símonarson, sem Þórhallur Sig-
urðsson mun leikstýra. Hitt er
„Kvennafár" eftir Þorvarð
Helgason og Andrés Sigurvins-
son er leikstjóri. „Kvennafár“
eru þrír einþáttungar á léttari
nótunum. Þá er hugsanlegt að
pláss verði fyrir fleiri verk á Litla
sviðinu í vetur.
Nú eru tveir höfundar á starfs-
launum hjá leikhúsinu til að
skrifa leikrit, Birgir Sigurðsson,
sem ráðinn er frá 1. september í 6
mánuði og Áskell Másson, ráð-
inn frá 1. jan. í sex mánuði til að
semja óperu.
Tölvuvœdd
mlðasala
Sala aðgangskorta hefst
fimmtudaginn 3. september en
sala aðgöngumiða hinsvegar 12.
september. Sú nýjung er tekin
upp í vetur að ellilífeyrisþegar fá
mestan og dágóðan afslátt, en ör-
yrkjar og skólafólk fá einnig um-
talsverðan afslátt.
Fyrir veisluglaða er vert að
geta þess að Þjóðleikhúsið býður
uppá svokallaða „Leikhús-
veislu", en fyrir 1750 kr. fæst þrír-
éttuð máltíð í Þjóðleikhúskjallar-
anum og leikhúsmiði á Stóra
sviðið á eftir. Lágmarksfjöldi
veislugesta er 10 manns.
Þjóðleikhúsinu er óskað til
hamingju með nýtt leikár.
-ekj.
„Besti
Besti vinur Ijóðsins, rís í kvöld
úr Ijóðelskum dvala og hyggst
treysta vináttubönd sín við Ijóð-
listina. Þá mun vinurinn standa
fyrirskáldavöku á Hótel Borg,
sem hefst kl. 8.30 stundvíslega.
Verða þar án efa fagnaðarfundir,
því eins og menn rekur minni til
voru samkomurBVLgeysivin-
sælar í fyrra, komust oft færri að
en vildu, og gáfu þannig lands-
liðsleikjum ekkert eftir.
Þau skáld sem koma fram eiga
það sameiginlegt að hafa nýverið
sent frá sér bók, eða hún er vænt-
anleg.
Sigfús Daðason les úr bók
sinni, en Sigfús hefur ekki sent
frá sér bók í tíu ár, og aðeins kom-
ið tvisvar fram á sama tíma.
Þorgeir Þorgeirsson les þýð-
ingar sínar á Ijóðum hins kunna
vinur Ijóðsins í kvöld“
Samuel Beckett.
fræðimanns og skálds, Kristjáns
Matras, sem koma út á næstunni.
Þorsteinn frá Hamri les úr ný-
útkominni bók sinni, Urðar-
galdri.
Steinunn Sigurðardóttir.
Árni Ibsen ætlar að lesa þýð-
ingar sínar á verkum Samuels
Beckett, sem koma senn út á
bók.
Þá eru eftirtalin skáld sem lesa
upp og eru öll því marki brennd
að hafa nýlega sent frá sér bók,
en það eru Isak Harðarson, Jó-
hann árelíuz, Steinunn Sigurðar-
dóttir, Kristín Ómarsdóttir,
Gunnar Hersveinn og Jón Egill
Bergþórsson. Vilborg Dagbjarts-
dóttir les einnig upp en hún er
ekki að gefa út bók.
Viðar Eggertsson leikari, sér-
legur verndari BVL, verður
kynnir á skáldavökunni. Veiting-
asalur Hótel Borgar verður opinn
af þessu tilefni og miðaverð er
ekki nema 300 krónur.
Það er óhætt að hvetja ljóða-
unnendur og aðra til að mæta á
svæðið og upplifa þá einstöku
stemmningu, sem Hótel Borg og
Besta vini ljóðsins er svo lagið að
ná fram.
-ekj.
Miðvikudagur 2. september 1987 ^ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
Hljómsveitin Gildran
heldur tvenna tónleika I þessari viku.
Þeir fyrri verða miðvikudag 2. sept. I
Duushúsi og þeir seinni
fimmtudaginn 3. sept. í Casablanca.
Meðlimir hljómsveitarinnar eru,
standandi frá vinstri: Þórhallur Árna-
son bassi, Karl Tómasson trommur,
Birgir Haraldsson gítar og söngur.
(Fréttatilkynning)