Þjóðviljinn - 02.09.1987, Blaðsíða 11
Persaflói
Staðan
er 9-2
írakar hafa ótvírœttforystu í
„skipastríðinu “ sem hófst ánýá
laugardag
að er óneitanlega nokkuð
spaugilegt að heyra þá miklu
fjendur Irana og íraka stæra sig
af því að valda spjölium á skipum
óvinarins eliegar bandamanna
hans. írakar segjast hafa valdið
skemmdum á níu olíuflutninga-
skipum írana frá því á laugardag
og íranir hafa gert árásir á tvö
fley, gámaskip frá Kuwait og
spænskt risaolíuflutningaskip.
En ekki eru neinir til frásagnar
aðrir en írakar sjálfir um árangur
tveggja af þessum níu árásum og
ekki hafa nema fjögur skip verið
nefnd á nafn. Ekki er úr vegi að
rekja gang mála frá því „skipast-
ríðið“ hófst á ný á laugardag.
írakar sögðust hafa gert fjöl-
margar velheppnaðar loftárásir á
laugardag. Þeir hefðu varpað
sprengjum á Rakhsh olíuvinns-
lustöðina undan ströndum írans
og olíubirgðahafnir á Lavan og
Farsi eyjum. Ennfremur kváðust
þeir hafa gert árás á „mikilvægt
skotmark á hafi“ en það kvað
hafa verið íranska olíuflutninga-
skipið Aland.
Daginn eftir héldu þeir uppt-
eknum hætti og stjórnin í Bagdað
greindi stolt frá því að flugmenn
sínir hefðu hæft þrjú gnoð and-
stæðingsins. Þetta munu hafa
verið olíuflutningaskipin San-
andaj, sem ráðist var á þegar ver-
ið var að ferma það olíu við
Kharg eyju, og Shoush en það
varð fyrir aðkasti nærri ströndum
Larak eyju. Ekki er vitað um
nafn þriðja skipsins en á það var
ráðist undan Ras Al-Mutaf höfða
í Persíu.
ERLENDAR FRÉTTIR
Olíuflutningaskip ferma olíu á Persaflóa. Einsog glögglega má sjá eru þau ekki alelda!
Loks svöruðu íranir fyrir sig á
mánudag en ekki var það gert á
sérlega snöfurmannlegan hátt. í
rauðabítið réðust byltingarverðir
um borð f þrem hraðbátum á
gámaflutningaskipið Jebel Ali frá
Kuwait. Þeir hringsóluðu í kring-
um dallinn og létu vélbyssuskot
og smásprengjur rigna yfir hann
án þess að valda verulegu tjóni.
Ekki þarf að taka það fram að
Jebel Ali naut ekki bandarískrar
verndar.
Þetta þótti frökum ansi hart og
örfáum klukkustundum síðar
hefja þotur þeirra sig til flugs.
Ferðinni var heitið til íran.
Skammt frá Barkan á norðurh-
luta flóans koma flugmennirnir
auga á olíuflutningaskipið Ro-
dosea sem siglir undir fána Pa-
nama í þjónustu Persa. Þeir
hleypa af og hitta í mark.
Gærdagurinn gengur í garð, ír-
akar rísa árla úr rekkju og fara í
árásarferð. Skömmu síðar standa
tvö írönsk olíuflutningaskip í
ljósum logum, annað við Kharg
eyju en hitt í höfninni í Bushehr.
Ekki vissu menn nöfn þeirra.
Seinna í gær hleypa íranskir
byltingarverðir heimdraganum
öðru sinni um borð í hraðbátum
sfnum. Að þessu sinni ráðast þeir
á risaolíuflutningaskip sem flagg-
ar spænskt og er statt um 50 míl-
um norðan Bahrain. Fleyið verð-
ur alelda en vösk áhöfn nær að
ráða niðurlögum eldsins og það
siglir sína leið. Ekki verða telj-
andi meiðsl á mönnum. Nú er að
bíða og sjá hvað dagurinn í dag
ber í skauti sér. Kannski verður
samið um frið?
- ks.
Vestur-Pýskaland
Strauss í fýlu
Straussverjar eru öðru sinni á þessu sumri heiftarlega uppá
kant við samstarfsflokka sína
Frans Jósef Strauss nær ekki
uppí nefið á sér fyrir bræði
þessa dagana vegna óskammfeilni
gamals félaga síns og vopna-
bróður, Helmuts Kohls kanslara.
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að í síðustu viku bauðst
kanslarinn til að fórna 72
Pershing-IA flaugum Vesur-
Þjóðverja til að greiða fyrir því að
risaveldin gætu undirritað sam-
komulag um eyðingu meðal-
drægra kjarnflauga sinna. Ráða-
menn í Washington og Moskvu
kunnu honum þakkir fyrir og al-
menningur var í sjöunda himni.
En ekki Strauss. Hann kvað
kanslarann hafa þverbrotið sam-
komulag stjórnarflokkanna
þriggja um að taka ekki ákvarð-
anir í mikilvægum málum án þess
að ráðfæra sig við félagana. Þar
að auki væri það fásinna að eyði-
leggja flaugarnar góðu og
jafngilti í raun einhliða afvopnun
Vestur-Þjóðverja. Hann og hans
menn myndu sniðganga alla ríkis-
stjórnarfundi í Bonn uns Kohl
hefði gert hreint fyrir sínum dyr-
um.
Og hann lét ekki sitja við orðin
tóm því í gær mætti enginn
Straussverji á fund stjórnarinnar
sem haldinn var til að leggja línur
fyrir aukafund sambandsþingsins
er fram fer í dag. Þingfundurinn
er haldinn að kröfu jafnaðar-
manna sem hyggjast knýja fram
atkvæðagreiðslu um örlög Pers-
hingflauganna.
Fundurinn í gær var skammur
og eftir hann vildi kanslarinn ekki
láta hafa neitt eftir sér um hama-
ganginn í Strauss. En illar tungur
herma að leiðtoga Bæjaralands
renni til rifja áhrif Hans Dietrich
Genschers í Bonn. Genscher er
foringi Frjálsra demókrata og
utanríkisráðherra sambands-
stjórnarinnar. Strauss kvað
löngum hafa rennt hýru auga til
þess embættis og honum finnst
Genscher alltof slappur í utan-
ríkismálunum.
Þetta er í annað sinn á þessu
sumri að alvarlega skerst í odda
með Straussverjum og samstarfs-
mönnum þeirra. í síðasta mánuði
deildu þeir hart um hvort veita
ætti 14 chileönskum dauðaföng-
um hæli í Vestur-Þýskalandi og
Strauss telur hina kampakátu Genscher og Kohl hafa farið á bak við sig og er
að vonum þungur á brún.
héldu margir þá að stjórnin væri í
andarslitrunum.
En þrátt fyrir upphlaupin
sögðust Straussliðarnir ekki ætla
að veitast að Kohl fyrir „svikin" á
fundi sambandsþingsins í dag.
Hinsvegar liggur í augum uppi að
verulegar líkur eru á því að
stjórnin leggi upp laupana ein-
hverntíma á næstu mánuðum.
- ks.
Umhverfis-
mála-
ráðstefna
AB
Alþýðubandalagið heldur ráð-
stefnu um umhverfismál í
nóvember. Opinn undirbún-
ingsfundur verður haldinn á
Hverfisgötu 105, klukkan
17.30 á morgun, fimmtudag.
Alliráhugamenn um umhverf-
ismál eru velkomnir.
Undirbúningsnefndin.
Sumarferð ABR 1987
SAMAN I HVALFJORÐ
Farið laugardaginn 5. september, skráning í síma 17500
Guðrún Helgadóttir
Jón Helgason
Ávarp Guðni
Jóhannesson
form. ABR.
Guðrún Helgadóttir les Ijóð eftir Jón Helgason í Hvalfjarðar-
botni, fæðingarstað skáldsins.
Sumarferð Alþýðubandalagsins í Reykjavík verður farin naesta
laugardag, 5. september, og verður farið um Hvalfjörð, sem allir
hafa ekið um en fáir þekkja að gagni. Haldið verður af stað klukkan
9 frá Umferðarmiðstöð og miðað við að Ijúka ferðinni um klukkan
19.
Farið verður um Mosfellsheiði og í Hvalfjörðinn um Kjósarskarð
niður með Laxá, ekið um Hvammsvík, athugaðar fjörur, framhjá
Hvítanesi, litið á Staupastein og áð í Hvalfjarðarbotni, þarsem
kostur gefst á að ganga að fossinum Glymi. Farið að Saurbæ og
minnst Hallgríms Pétúrssonar, og síðan ekið að Grundartanga og
litið á járnblendiverksmiðjuna. í bakaleiðinni verður komið við í
hvalstöðinni og ekið út fjörðinn, í kringum Eyrarfjall, um Tíðaskarð
sem leið liggur til Reykjavíkur.
Happdrætti, leikir, ávörp og valinkunnir fararstjórar. Verð 600 krón-
ur fyrir fullorðna, 400 fyrir böm.
Skráið ykkur í síma 17500 og hittumst nestuð, sæmilega búin og í
góðu skapi á laugardagsmorgun.
Ferðanefnd