Þjóðviljinn - 02.09.1987, Side 16

Þjóðviljinn - 02.09.1987, Side 16
Aðalsími 681333 Kvöldsími 681348 Helgarsími 681663 þJÓOVILJIN Miðvikudagur 2. september 1987 192. tölublað 52. örpangur LEON AÐ FARS€LL| SKÓLACÖNOJ 0 SAMVINNUBANKI (SLANDSHF Kvikmyndasjóður Kjaftshögg á kvikmyndagerð Jón Baldvin hyggst afnema lögbundin útgjöld ríkissjóðs í Kvikmyndasjóð. Hjálmtýr Heiðdal: Botnlaust skilningsleysi á menningarstarfsemi í landinu etta er kjaftshögg á alia kvik- myndagerð í landinu og sýnir botnlaust skilningsleysi á menn- ingarstarfsemi hér á landi, sagði Hjálmtýr Heiðdal, kvikmyndag- erðarmaður, sem á sæti I stjórn Félags kvikmyndagerðarmanna. Tilefni þessara ummæla er ein af niðurskurðartillögum Jóns Baldvins, fjármálaráðherra, sem kynnt var í Alþýðublaðinu sl. laugardag. Jón Baldvin leggur til að afnumið verði ákvæði um lög- bundið framlag til Kvikmynda- sjóðs íslands. „Þetta kemur manni mjög spánskt fyrir sjónir, í ljósi þeirrar umræðu sem átt hefur sér stað að undanförnu um eflingu íslenskrar menningar gegn flóðbylgju er- lendrar menningar," sagði Hjámtýr. Kvikmyndagerðarmenn hafa í mörg ár barist fyrir því að staðið sé við lögin um framlag ríkisins til Kvikmyndasjóðs en það var ekki fyrr en á síðasta ári að sjóðnum barst fullt framlag. „Kvikmyndasjóður er lífs- spursmál fyrir kvikmyndagerð í landinu. Kvikmyndagerð var komin í alvarlegar kröggur vegna þess að stöðugt var verið að skera framlag ríkisins niður og það er ekkert launungarmál að margir góðir kvikmyndagerðarmenn hafa lent undir hamrinum. J>á lagðist heimildakvikmyndagerð svo til alfarið niður, því markað- ur fyrir heimildakvikmyndir er næstum bundinn við sjónvarpið. Það er því ljóst að kvikmynda- gerð gengur ekki án kvikmynda- sjóðs.“ Hjálmtýr sagði að kvikmynd- agerðarmenn teldu að framlag ríkisins yrði að vera lögbundið því annars væru þeir komnir upp á náð og miskunn mislyndra vald- hafa. - Sáf Björgunarsveitir Æfing á Möðmdal Um næstu helgi munu um 250 björgunarsveitarmenn víðast hvar að af landinu taka þátt í samæfingu Landssambands Hjálparsveitar skáta, sem haldin verður á Möðrudalsöræfum. Samæfingar sem þessar eru reglulegir viðburðir og skiptast aðildarsveitir LHS á um að halda þær. Að þessu sinni er æfingin í höndum hjálparsveitanna í Reykjavík, Aðaldal, Fljótsdals- héraði og á Fjöllum. Æfingin á Möðrudalsöræfum hefst kl. 5 árdegis á laugardag og lýkur henni um miðjan dag á sunnudag. - lg. Einkareikningur Landsbankans er tékkareikningur með háum vöxtum, sem gefur kost á heimild til yfirdráttar og láni, auk margvís- legrar greiðsluþjónustu. Einkareikningur er framtíðarreikningur. Einkareikningur er nýr reikningur sem kemur til móts við þær kröfur sem viðskiptahættir nútímans gera um arðsemi og sveigjanleika. Vextir eru reiknaðir daglega og eru miklu hærri en áður hafa þekkst, sem þannig sparar þér snúninga við að færa á milli tékkareikninga og sparisjóðsbóka tii að fá hærri vexti. Þeir fara ekki stighækkandi eftir upphæðum heldur eru jafnháir af öllum innstæðum. Þú getur sótt um allt að 30.000 króna yfirdráttarheimild til að mæta tímabundinni aukafjárþörf og möguleiki er á allt að 150.000 króna láni til allt að tveggja ára í tengslum við Einkareikninginn. Reikningnum fylgir bankakort sem hægt er að nota í tvennum tilgangi, sem ábyrgðarkort í tékkaviðskiptum og sem aðgangskort að hraöbönkum. Bankakortið gerir 16-17 ára unglingum kieift að stofna Einkareikning. Þeir nota bankakortið í stað tékkheftis þar til þeir hafa náð aldri til að mega nota tékkhefti. Einkareikningur er þess virði að kynna sér hann betur. Snúðu þér til næsta afgreiðslustaðar Landsbankans og fáðu nánari upplýsingar. Einkareikningur er framtíðarreikningur.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.