Þjóðviljinn - 24.09.1987, Blaðsíða 10
ERLENDAR FRETTIR
IÐNTÆKNISTOFNUN
Eftirtalin námskeið verða haldin
á næstunni hjá Iðntæknistofnun:
FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ IÐNAÐARINS:
26. okt.-4. nóv.
Efnisfræði stáls og áls. Stál: efnisuppbygging, framleiðsla, oxun og afox-
un, tæring og tæringarvarnir, ofl.
Ál: flokkun og eiginleikar. Suðuaðferðir og tækjabúnaður.
Suðurgallar og orsakir þeirra. 32 kennslustundir.
Hefst 14. okt.
Fræsing og rennismíði, framhald. Notkun formúlna. Útreikningar og
stilling deilis, útreikningar á skurðhraða, snúningshraða, færslum og fræs-
itíma. 50 kennslustundir.
19.-22. okt.
Rafstýringar (loftstýrikerfi, vökvakerfi, hita- og loftræstikerfi). Raftæknileg
hugtök. Ihlutar, tengingar, bilanaleitog mælingar. 45 kennslustundir. Hefst
5. okt.
Stýritækni- og loftstýringar. Loft sem orkugjafi. Raðferli, starfsrit. Bygg-
ing kerfa sem framkvæma einföld sjálfvirk ferli. Tímaþættir. Teikningar. 40
kennslustundir.
8.-16. okt.
Vökvakerfi I og II. Grunnnámskeið og framhaldsnámskeið um vökvakerfi,
haldið í lotu. 70 kennslustundir.
19.-22. okt.
Loftræsti- og hitakerfi. Námskeiðið er ætlað mönnum sem annast upp-
setningu og smíði kerfanna. 20-25 kennslustundir.
RAFTÆKNIDEILD:
26.-28. okt.
Örtölvutækni I. Grundvallarhugtök örtölvutækninnar. Hvernig vinnur ör-
tölvan? Kynning á forritun á véla- og smalamáli 8088 örgjörvans. Hagnýt
forritunardæmi. 30 kennslustundir.
REKSTRARTÆKNIDEILD:
5. okt.
Strikamerki I. Kynntar verða helstu tegundir strikamerkja, hvað vinnst
með notkun strikamerkja, nauðsynlegur búnaður. 4 kennslustundir.
6. okt.
Strikamerkl II. Hvað er strikamerki, notkun, staðsetning, strikamerkja,
stærðir, prenttæknileg atriði, gerð umbúða og eftirlit. 6. kennslustundir.
12.-14. okt.
„Just-in-time“. Markmiðið er að skýra grundvallaratriði JIT hugmynda-
fræðinnar (stjórnunarstíls) og hvernig bæta má nýtingu fjármagns á tiltölu-
lega einfaldan hátt.
19.-24. okt.
Stofnun og rekstur fyrirtækja. Ætlað konum. Haldið á kvöldin og fyrir
hádegi á laugardegi. Námskeiðinu er ætlað að auka skilning þátttakenda á
því, hvað atvinnurekstur útheimtir, hvað þarf aö athuga og hvað þarf að
varast.
26.-28. okt.
Markaðssetning. Markmiðið er að gera grein fyrir þeim atriðum sem
nauðsynleg eru til að koma vöru á markað.
VERKSTJÓRNARFRÆÐSLAN:
9.-10. okt.
Samstarf og samvinna. Hvað er stjórnun og hvert er hlutverk verkstjóra,
skipulag samstarfs og samvinnu.
12.-13. okt.
Samstarf og samvinna. Haldið á Akureyri.
14.-15. okt.
Stjórnunaraöferðir og starfshvatning. Farið er yfir helstu kenningar í
stjórnun og stjórnunarstíl, hvað hvetur menn til vinnu og hvernig eiga góð
verkfyrirmæli að vera.
28.-29. okt.
Stjórnunaraðferðir og starfshvatning. Haldið á Akureyri.
16.-17. okt.
Verktllsögn Farið er yfir skipulagða verktilsögn, móttöku nýliða og starfs-
mannafræðslu, vinnuvistfræði, líkamsbeitingu við vinnu.
5.-6. okt.
Verkáætlanir Farið er yfir undirstöðu í áætlanagerð og verkskipulagningu,
CPM-framkvæmdaáætlun, Gantt-áætlun á mannafla og aðföngum.
26.-27. okt.
Verkáætlanir. Haldið á Akureyri.
23.-24. okt.
MULTIPLAN-forrit og kostnaðaráætlanir. Farið er yfir undirstöður áætl-
anagerðar með PC-tölvu, kennd notkun á töflureikniforritinu MULTIPLAN.
21 .-22. okt.
öryggismál. Farið er yfir helstu öryggismál og ábyrgð stjórnenda á örygg-
ismálum.
18. -19. okt.
Bruna- og slysavarnir. Farið er yfir bruna- og slysavarnir, brunaflokka,
slökkvitæki o.fl.
21.-22. okt.
Kjarasamningar og skaðabótaréttur. Farið er yfir skaðabótarétt og vinn-
ulöggjöf, sakaregluna, saknæmi o.fl.
30.-31. okt.
Undlrstaða vinnuhagræðingar. Farið er yfir undirstöðu vinnuhagræðing-
ar á vinnustöðum og helstu hjálpartæki.
19. -20. okt.
Flutningafræði. Farið er yfir ferilgreiningu flutninga utan og innan fyrir-
tækja, flutninga til og frá o.fl.
Námskeið í Reykjavík eru haldin í húsakynnum Iðntækni-
stofnunar, nema annað sé tekið fram. Nánari upplýsingar og
innritun hjá stofnuninni í síma (91 )68-7000, Fræðslumiðstöð
iðnaðarins í síma (91)68-7440 og Verkstjórnarfræðslunni í
síma (91)68-7009.
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA!
Indverskir friðarliðar standa vörð um vopn sem fyrrum heyrðu Tígrum til. Á
innfelldu myndinni er leiðtogi Tígranna, Velupillai Prabakaran. Hann fer nú
huldu höfði á Jaffnaskaga.
Sri Lanka
Fríðurinn úti
Fyrir skömmu hófust vígaferli ánýá Sri Lanka. Að
þessu sinni berjast tamílar við tamíla
Alkunna er að Júníus Jayewar-
dene, forseti Sri Lanka, og
Rajiv Gandhi, forsætisráðherra
Indlands, tóku höndum saman
fyrir tveim mánuðum og skópu
samning sem ætlað var að leiða til
lykta átök tamílskra aðskilnað-
arsinna og stjórnarhers sinha-
lesa. Borgarastríðið á Sri Lanka
hafði staðið óslitið í fjögur ár og
verið mjög mannskætt, á tímabili
voru heimsblöð full af fréttum um
hrannvíg og hryðjuverk á eyrík-
inu.
Þungu fargi var létt af leiðtog-
unum. Jayewardene sagði engum
um að kenna öðrum en honum
sjálfum að samningar tókust ekki
fyrr. Gandhi var hæstánægður
með að geta nú fengið frið fyrir
gagnrýnendum úr röðum ind-
verskra tamíla sem sakað höfðu
hann um að sitja með hendur í
skauti meðan frændur þeirra
sættu ofsóknum handan sunds-
ins. Til að tryggja snurðulausan
framgang samningsins sendi
hann 8 þúsund dáta til eyjarinnar
og fól þeim að sjá um afvopnun
tamflskra skæruliða og gæslu
friðar.
Um skeið virtist áætlun valds-
herranna ætla að ganga upp. í
norðri streymdu tamflar til aðal-
stöðva indverska setuliðsins og
afhentu þeim vopn sín, sprengjur
af ýmsu tagi, hríðskotabyssur í
massavís og fleira. í suðri fögn-
uðu sinhalesar því að geta nú
óhræddir stigið uppí strætisvagn
ellegar gengið inní verslun án
þess að þar leyndist vítisvél er
spryngi þegar minnst varði.
Hvarvetna á Sri Lanka streymdu
flóttamenn til síns heima. Ohætt
var að halda fjölmennar trúarhá-
tíðir og efnahagslífið fór að sýna
smá en ótvíræð batamerki.
En Adam var ekki lengi í Para-
dís. Vígaferli eru hafin á ný og
langþráður friður úti. Nú eru það
félagar hinna ýmsu skæruliða-
sveita tamíla sem berast á bana-
spjót og snúast átökin um það
hverjir séu réttbornir leiðtogar
þjóðarbrotsins.
Fyrir skemmstu var setið fyrir
hópi félaga úr Frelsissveitum
Tamfltígra (LTTE) sem eru
stærstu og öflugustu skæru-
samtök tamfla og tuttugu þeirra
vegnir á einu bretti. Fyrirliðar
Tígranna kveða samtök nokkur
er nefna sig Stjörnurnar þrjár
standa að baki árásinni. Stjörnur
þessar voru til skamms tíma ók-
unnar með öllu en leiðtogar
LTTE fullyrða að þær séu sam-
fylking þriggja smáfylkinga ta-
mfla en félagar þeirra og Tígrar
hafa löngum eldað grátt silfur
saman. Samtök þessi eru Eelam
frelsissamtök tamíla (TELO),
Alþýðufylking tamfla Eelam
(PLOTE) og Byltingarfylking ta-
mfla Eelam (EPRLF).
Tígrarnir hefndu sín gimmi-
lega. í síðustu viku réðust skæru-
liðar fylkingarinnar á einkaheim-
ili, flóttamannabúðir, skrifstofur
og strætisvagna. Að minnsta
kosti 145 menn biðu bana og var
þorri þeirra úr hópi óbreyttra
borgara. Skelfingu lostnir flykkt-
ust tamflar hundruðum saman á
náðir indversku friðargæslusveit-
anna og dáta stjórnarinnar í Kól-
ombó, gömlu erkifjendanna.
Innbyrðisátök tamflskra að-
skilnaðarsinna eiga sér langa
sögu. Fyrir nokkrum árum á-
kváðu leiðtogar Frelsistígranna
að þeir einir skyldu sjá um frelsis-
baráttu tamflska þjóðarbrotsins á
Sri Lanka. Þeir hófu grimmdar-
lega baráttu gegn öðrum hreyf-
ingum og kostuðu kapps um að
uppræta þær á Jaffnaskaga. Mörg
hundruð tamílskra skæruliða létu
lífið í átökunum sem lauk með
því að Tígrarnir urðu nær ein-
ráðir á skaganum.
Það ber vott um kaldhæðni ör-
laganna að friðarsamningur
Gandhis og Jayewardenes jók á
sundurlyndi öndverðra fylkinga
tamfla. Leiðtogi Tígranna, Vel-
upillai Prabakaran, dró í lengstu
lög að fallast á ráðabrugg þjóð-
höfðingjanna og lét ekki undan
fyrr en eftir miklar fortölur
Gandhis og langa og stranga
fundi í Nýju-Delhi.
Leiðtogar annarra tamílahópa
fögnuðu samningnum hinsvegar
ákaflega því hann gefur þeim
langþráð tækifæri til að auka
áhrif sín í norðurhluta landsins á
ný eftir ósigurinn í valdabarátt-
unni við Tígrana.
Prabakaran og sveinum hans
hefur gramist það rnjög að keppi-
nautarnir skuli fá að láta ljós sitt
skína. Frá því friðarsamningur-
inn gekk í gildi hafa félagar
TELO, PLOTE og EPRLF lagt
nótt við dag við opnun skrifstofa
og kosningamiðstöðva í austur-
héruðunum til að vinna málstað
sínum fylgis áður en bráðabirgða-
stjórn tamíla verður skipuð og
gengið til kosninga í árslok. Tígr-
arnir vilja hinsvegar öll völd í
sínar hendur hvað sem hver segir
og vfla ekkert fyrir sér til að ná
markmiðum sínum.
Fjöldamorðin að undanförnu
sýna ótvírætt að indverskir friðar-
liðar hafa ekki verið vanda sínum
vaxnir en þeim var ætlað að koma
höndum yfir öll vígtól tamflskra
skæruliða, hvar í fylkingu sem
þeir standa. Allt fram í síðustu
viku neituðu indverskir ráða-
menn að láta hermenn sína ganga
hart fram í afvopnun Tígranna af
ótta við reiði stuðningsmanna
þeirra úr röðum tamfla á Suður-
Indlandi.
Um helgina sáu þeir hinsvegar
að við svo búið mátti ekki standa
og söðluðu um. Indverskir dátar
réðust inní búðir Tígra og létu
greipar sópa um vopnabúr.
Sumsstaðar sló í brýnu og munu
þónokkrir af hvorum tveggja
hafa fallið í valinn.
Prabakaran er nú í felum ein-
hversstaðar á Jaffnaskaga.
Áform hans eru á huldu en mörg-
um býður í grun að hann muni
ekki láta sinn hlut fyrr en í fulla
hnefana. Hvað sem því líður þá
má vera ljóst að það er tómt mál
að tala um frið á Sri Lanka fyrr en
öll vígtól hafa verið rifin úr hönd-
um liðsmanna Frelsissveita tam-
fltígra.
Byggl á Newsweek
-ks.
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 24. september 1987