Þjóðviljinn - 24.09.1987, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 24.09.1987, Blaðsíða 15
IÞRÓTTIR Staðan í 3. riöli Evrópukeppni landsliða: Sovétríkin..6 4 2 0 11-2 10 A.Þýskaland.5 2 2 1 8-2 6 Island....7 2 2 3 4-12 6 Frakkland.6 1 3 2 3-5 5 Noregur...6 1 1 4 3-8 3 Atli E&valdsson, fyrirliði íslands, gekk á undan með góðu fordæmi í gær. Skoraði sigurmarkið og átti frábæran leik í íslensku vörninni. Sigfried Held landsliðsþjálfari, sem er til hægri á myndinni, má vera ánægður eftir tvo sigra í röð gegn Norðmönnum. Noregur-ísland Uppfyrir meistarana! Fyrsti útisigur Islands í Evrópukeppni landsliða Evrópukeppnin Svíum skellt Svíar urðu fyrir miklu áfalli í gær- kvöldi þegar þeir biðu óvæntan ósigur fyrir ungu liði Portúgala, 0-1, á heimavelli sínum í Stokkhólmi. Leikurinn var liður í 2. riðli Evrópu- keppni landsliða og þar stóðu Svíar best að vígi fyrir leikinn. Nú eru það ítalir sem eiga mestu möguleikana á að vinna riðilinn og komast í úrslitak- eppnina í Vestur-Þýskalandi næsta sumar. Það var gamli markakóngurinn Fernando Gomes sem skoraði sigur- mark Portúgala á 35. mínútu. Eins og mörgum er í fersku minni skiptu Port- úgalar nánast algerlega um lið þegar flestir landsliðsmannanna fóru í verk- fall að lokinni heimsmeistarakeppn- inni í Mexíkó í fyrra. Staðan í 2. riðli: Svíþjóð.................7 4 2 1 11-3 10 Italia..................5 4 0 1 11-3 8 Portúgal...............5 13 1 5-5 5 Sviss...................5 1 2 2 8-8 4 Malta...................6 0 1 5 3-19 1 Belgar úr leik? Möguleikar Belga í 7. riðli eru hverfandi eftir 2-0 tap fyrir Búlgörum í Sofia í gær. Búlgarar þurfa tvö stig úr tveimur leikjum til að vera öruggir með sæti í úrslitakeppninni. Sirakov og Tanev skoruðu mörkin en inná milli fengu Belgar gullið færi til að jafna þegar Nico Claesen skaut í stöng. Staðan í 7. riðli: Búlgaría..............6 4 2 0 12-3 10 (rland................7 3 3 1 8-5 9 Belgía................6 2 3 1 13-6 7 Skotland..............5 1 2 2 4-5 4 Luxemburg.............6 0 0 6 2-20 0 Pólland vann Pólverjar lögðu Ungverja 3-2 í Varsjá í 5. riðli. Dziekanowski, Tar- asiewicz og Lesniak skoruðu fyrir Pólverja en Dognar og Mesaros fyrir Ungverja. Leikurinn skipti litlu máli því Grikkir og Hollendingar berjast um sigur í riðlinum en staðan er þessi: Grikkland..........6 4 1 1 12-7 9 Holland.............5 3 2 0 6-1 8 Pólland.............6 2 2 2 8-9 6 Ungverjaland........6 2 0 4 9-11 4 Kýpur...............5 0 1 4 3-10 1 -VS/Reuter England Torquay tók Tottenham! Torquay, sem varð næstneðst í 4. deild á síðasta keppnistímabili, sig- raði stórveldið Tottenham 1-0 í 2. um- ferð deildabikarkeppninnar í knatt- spyrnu í gærkvöldi. Þetta var þó að- eins fyrri leikur liðanna og Tottenham á heimaleikinn eftir. Úrslit í gærkvöldi urðu þessi: Blackburn-Liverpool................1-1 Blackpool-Newcastle................1-0 Charlton-Walsall...................3-0 Doncaster-Arsenal..................0-3 Leeds-York.........................1-1 Leicester-Scunthorpe...............2-1 Manch.Utd-Hull.....................5-0 Middlesboro-Aston Villa............0-1 Nottm.Forest-Hereford..............5-0 Oxford-Mansfield...................1-1 Peterborough-Plymouth..............4-1 Q.P.Ft.-Millwall...................2-1 Reading-Chelsea....................3-1 Torquay-Tottenham..................1-0 -VS/Reuter Handbolti Fram meistari Fram varð í gærkvöldi Reykjavík- urmeistari í kvennaflokki með því að sigra Val 21-20 í úrslitaleik. Val dugði jafntefli og leikurinn var æsispenn- andi. Fram missti niður flmm marka forystu undir lokin og Valur jafnaði, 19-19, en með tveimur mörkum kom Fram sér í örugga stöðu á ný. Loka- staðan í mótinu varð þessi: Fram.................3 2 0 1 58-53 4 Valur................3 2 0 1 54-49 4 Víkingur.............3 1 0 2 48-48 2 KR...................3 1 0 2 51-61 2 -vs Þó haustið sé gengið í garð er svo sannarlega ekkert haust í ís- lenskri knattspyrnu um þessar mundir. Þrír landsliðssigrar í röð í þessum mánuði, það er afrek sem íslenskir knattspyrnumenn hafa aldrei áður unnið. Og tveir Evrópusigrar á Norðmönnum, sá seinni á sjálfum Ullevaal leikvanginum í Osló í gær, gegn sterkasta landsliði sem lengi hef- ur leikið fyrir Noregs hönd. A meðan voru sex af snjöllustu knattspyrnumönnum íslands fjarverandi - en þeir sem skörðin fylltu voru annað og mcira en staðgenglar. Með 1-0 sigrinum er litla ísland komið uppfyrir sjálfa Evrópu- meistarana, Frakka, í 3. riðli Evr- ópukeppninnar. Það sem meira er, ísland vann þarna sinn fyrsta útisigur frá upphafi í Evrópu- keppni landsliða og nú er nánast öruggt að okkur tekst í fyrsta Frá Baldri Pálssyni fréttamanni Þjóðviljans í Noregi: ,,Ég var ákveðinn í að neita að leika þennan landsleik ef leitað yrði til mín. En ég lét tU leiðast þegar á reyndi og sé svo sannar- lega ekki eftir því - ég hef ekki spHað skemmtilegri landsleik!“ sagði Lárus Guðmundsson, mið- herji íslenska landsliðsins, í sam- tali við Þjóðviljann eftir sigurinn á Norðmönnum í gærkvöldi.“ Lárus bætti við að íslenska lið- ið hefði verið frábær blanda af ungum og reyndum leik- mönnum. „Þeir ungu voru frá- bærir, ótrúlega rólegir og yfirveg- aðir. Áhorfendur voru stórkost- legir, þetta var eins og að leika á heimavelli,“ sagði Lárus. skipti að forðast að neðsta sætið falli okkur í skaut. Til þess þurfa Norðmenn að fá a.m.k. þrjústig úrútileikjum sín- um gegn Frökkum og Austur- Þjóðverjum og telja má mjög ó- líklegt að þeim takist það. Island situr hinsvegar í þriðja sætinu með 6 stig en afar ósennilegt er að Frakkar verði fyrir neðan okkur þegar keppninni lýkur. Það reyndist rétt sem íslend- ingarnir í norsku knattspyrnunni hafa haldið fram - að Norðmenn þoli ekki mótlæti og brotni niður við að fá á sig mark. Það gerðist á Laugardalsvellinum fyrir hálfum mánuði og aftur á Ullevaal í gær. Norska liðið virtist hafa leikinn í hendi sér, allt þar til Atli Eð- valdsson skoraði mark íslands á 30. mínútu eftir aukaspyrnu Ólafs Þórðarsonar, 0-1. Framað því hafði íslenska liðið legið við eigin vítateig, tengiliðirnir voru N oregur-ísland Atli Eðvaldsson fyrirliði var sammála því að íslensku áhorf- endurnir hefðu verið ómetan- legir. „Stemmningin var eins og best gerist heima á Laugardals- velli, jafnvel betri! Við áttum þennan sigur alveg skilinn. Eftir markið var engin spurning um úr- slit þrátt fyrir lélegan sænskan dómara sem dæmdi öll vafaatriði Norðmönnum í hag. Þessi úrslit eru frábær gegn sterkasta lands- liði sem Noregur hefur teflt fram. Þeir voru með stór nöfn úr evr- ópsku knattspyrnunni en það dugði ekki til,“ sagði Atli. Gunnar Gíslason, leikmaður með toppliði norsku 1. deildar- innar, Moss, var að sjálfsögðu í sjöunda himni. „Það er ekki hægt að hugsa sér það betra en að sigra búnir að bakka inní vörnina og Norðmenn réðu ferðinni. En eftir markið kom íslenska liðið framar á völlinn og átti í fullu tré við heimamenn á miðj- unni það sem eftir var leiks, ef undanskildir eru stuttir kaflar í seinni hálfleik þar sem íslensku leikmennirnir virtust vera að missa einbeitinguna. En baráttu- og sigurviljinn voru fyrir hendi og það réð úrslitum gegn ágætlega spilandi og baráttulausu norsku liði. Aftasta vörnin yar sá hlekkur íslenska liðsins sem aldrei brást. Guðni Bergsson, Sævar Jónsson og Atli Eðvaldíson höfðu norsku sóknarmennina í vasanum og Bjarni Sigurðsson var geipilega öruggur að baki þeirra. Þessir fjórir stigu vart eitt feilskref allan leikinn. Aðrir fylgdu með, bar- átta og vinnsla Ólafs, Péturs Arn- þórssonar og Gunnars Gísla- hér í Noregi. Eftir markið höfðum við fulla stjórn á leiknum og náðum mjög vel saman. Ahorfendur höfðu líka mikið að segja. Við vissum fyrir leikinn að Norðmenn myndu brotna saman ef við skoruðum, og það var ein- mitt það sem gerðist," sagði Gunnar Gíslason. Já, það má segja að ísland hafi unnið tvöfalt, inni á vellinum og á áhorfendapöllunum. Mikill fjöldi íslendinga fylgdist með leiknum og átti hreinlega völlinn, hvöttu íslenska liðið óspart á meðan nor- sku áhorfendurnir hlógu að sín- um mönnum. Það má mikið vera ef norsku blöðin „slátra" ekki gersamlega norska liðinu og landsliðsþjálfaranum sænska á morgun (í dag). Knattspyrna Danir lágu í Hamborg Vestur-Þjóðverjar unnu sætan sigur á Dönum, 1-0, í vináttu- landsleik sem fram fór í Hamborg í gærkvöldi. Rudi Völler skoraði sigurmarkið. í öðrum vináttu- leikjum unnu Sovétmenn Grikki 3-0, ítalir Júgóslava 1-0 og Spán- verjar Luxemburgara 2-0. -VS/Reuter Barcelona Venables rekinn Englendingnum Terry Venab- les var í gær sagt upp stöðu fram- kvæmdastjóra spænska knatt- spyrnustórveldisins Barcelona eftir ríflega þriggja ára starf. Lið- ið hefur tapað þremur af fjórum fyrstu leikjum sínum í 1. deild. Luis Aragones var samstundis ráðinn í hans stað. -VS/Reuter sonar var gífurleg, Viðar Þorkels- son óx með vandanum og Ragnar Margeirsson átti einn af sínum bestu landsleikjum. Miðherjarn- ir Lárus og Guðmundur komust hinsvégar lítið inní leikinn, fengu erfiðar sendingar til að vinna úr og norska vörnin lék þá oft rang- stæða. Það var klaufalegt hjá Pétri að láta reka sig af leikvelli, sænski dómarinn átti ekki annars úrkosta þegar Pétur sparkaði boltanum í burtu, þar sem hann hafði áður sýnt Pétri gula spjald- ið. En það munaði íslensku leik- mennina engu að vera 10 gegn 11 síðustu mínúturnar, Norðmenn voru bráðlátir og stressaðir frá því þeir fengu markið á sig og allt til leiksloka. íslensku leikmenn- irnir léku af yfirvegun og skyn- semi og gerðu það sem þeir ætl- uðu sér en fáir höfðu trú á að væri mögulegt. -VS Knattspyrna Bordeaux skoraði þrjú B-landslið íslands mátti þola tap, 3-0, gegn frönsku meisturun- um Bordeaux í gærkvöldi. Leikurinn fór fram í Bordeaux og var liður í mikilli íslandsviku sem nú stendur yfir þar í borg. Frakkarnir fengu vítaspyrnu eftir 20 mínútna leik og skoruðu, 1-0. Þann dóm voru íslensku leik- mennirnir mjög ósáttir við. Bor- deaux skoraði aftur, 2-0, á 43. mínútu og þriðja markið kom fimm mínútum fyrir leikslok. Vegna talsverðra forfalla í a- landsliðinu sem lék I Osló í gær- kvöldi vantaði nokkra lykilmenn í það sem kallað hefur verið ól- ympíulandslið íslands. Úrslitin eru i samræmi við það sem við mátti búast enda er í liði Borde- aux kjarninn úr franska iandslið- inu. -VS Lárus ætlaði að neita að spila! Fimmtudagur 24. september 1987 ÞJÓÐVIL.JINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.