Þjóðviljinn - 29.09.1987, Side 7
Kosningasigur danskra sósíalista:
Róttækir
án
yfirboða
Fyrir tíu árum var svo illa kom-
ið fyrir SF, Sósíalíska alþýðu-
flokknum danska, að hann fékk
aðeins fjögur prósent atkvæða.
Tíu árum síðar er flokkurinn
kominn í 14,6 % og er sigurvegari
síðustu þingkosninga í Dan-
mörku.
Þetta hefur gerst vegna þess,
segir formaður flokksins Gert
Peterson, að við höfum haldið
fram raunsærri stefnu án yfir-
boða, og okkur hefur tekist að
taka mið af langtímamarkmiðum
sósíalista um leið og við svörum
spurningum dagsins.
Danskir vinstrimenn hafa um
langan aldur ekki staðið betur að
vígi en nú. Um 20% kjósenda
kusu flokka til vinstri við Sósíal-
demókrata. Rétt rúmlega helm-
ingur kjósenda greiddi flokkum
atkvæði sem teljast til vinstri við
miðju.
Náðu til
nýrra hreyfinga
Sagnfræðingurinn Jens Kragh
reynir að útskýra hvernig á þessu
stendur í viðtali við sænska blaðið
Ny dag. Hann segir m.a. :
Danski sósíaldemókrataflokk-
urinn er miklu veikari en krata-
flokkarnir í Noregi og Svíþjóð.
Danska flokknum misstókst líka
að bregðast við kvennahreyf-
ingu, umhverfisverndarhreyf-
ingu og friðarhreyfingu á
næstliðnum áratug
- og þessir hópar leituðu í vaxandi
mæli til SF, Sósíalíska alþýðufl-
okksins.
í öðru lagi hefur SF tekist að
búa til trúverðuga lýðræðislega
stjórnlist í þágu sósíalismans.
Flokkurinn hefur tengt saman
langtímamarkmið sósíalista og
kröfur dagsins og m.a. ekki færst
undan því að taka upp baráttu
fyrir „verkamannameirihluta"
með sósíaldemókrötum.
Dægurkröfur
og framtíðin
Gert Petersen, formaður SF,
tekur undir þetta. Ég held, segir
hann, að okkur hafi tekist að út-
skýra það fyrir fólki hvað eru
endanleg markmið okkar og
hvað eru dægurmál. Að við get-
um ekki komið í gegn vissum
kröfum núna, en við getum rutt
þeim braut og útskýrt hvernig við
ætlum að nálgast framkvæmd
þeirra.
Margir Danir telja og að vel-
gengni SF sé að verulegu leyti að
þakka persónulegum vinsældum
Gerts Petersens. Hann ólst upp í
Kommúnistaflokki Danmerkur,
en tók þátt í stofnun SF 1959 og
við formennsku tók hann á erfið-
um tíma - árið 1974. Eftir það
hefur flokknum miðað áfram
nokkuð jafnt og þétt.
Óháður, lýðræðislegur
Eftir langar innanflokksdeilur
tókst okkur í lok næstliðins ára-
tugar að opna flokkinn fyrir nýj-
um hreyfingum og ungu fólki,
segir Gert Petersen. Okkur tókst
m.a. að hafa veruleg áhrif í þá
veru að kjarnorkuvæðing Dan-
merkur var stöðvuð.
Út úr innanflokksdeilum í SF
kom forystusveit sem lagði
áherslu á andstöðu við kjarn-
orku, á að taka upp kvennakvóta
í flokknum, á breitt samstarf
vinstriafla og lýðræðislega þróun
innan flokks og utan sem tæki
mið af valdreifingu í samfélaginu.
Gert Petersen segir, að það
hafi hjálpað flokknum að „and-
lýðræðislegir hópar“ innan
vinstrihreyfingarinnar hafi staðið
utan hans. Þar á hann við Komm-
únistaflokkinn, sem hefur um
skeið fengið aðeins um eitt pró-
sent atkvæða í kosningum, og
hefur þótt afar sovéthollur. Og
svo VS, flokk Vinstrisósíalista,
sem klofnaði út úr SF vegna bylt-
ingaróþreyju ýmissa hópa - og
hefur nú dottið út af þingi eftir
harðar innanfloksksdeilur.
Gert Petersen segir að það hafi
verið kostur að SF þurfti ekki að
dragast með óþægilegar minning-
ar frá Sovétaðdáun fyrri tíma.
Flokkurinn hefur getað sagt kost
og löst á Sovétríkjunum án þess
að mönnum detti í alvöru í hug að
gruna hann um græsku. Og sem-
sagt: það dregur enginn í Dan-
mörku í efa lýðræðislegt
heilbrigðisavottorð SF - nema
náttúrlega þeir hörðu hægrimenn
sem telja að jafnvel saklaus
norðurlandakratismi sé ávísun á
alræði þegar fram líða stundir.
Ríkisstjórnarábyrgð
Þrjú ár eru síðan SF byrjaði að
ræða ítarlega þann möguleika að
verklýðsflokkarnir næðu meiri-
hluta á danska þinginu. Það var
út af fyrir sig nýjung í danskri
pólitík að SF setti fram með þess-
um hætti kröfuna um vinstri-
stjórn. En eins og menn vita hafa
sósíaldemókratar lengst af staðið
Margreta Auken þingmaður (t.h.) og fleiri SF-konur fagna kosningaúrslitum : ellefu prósent fylgisaukning á tíu árum.
Gert Petersen, formaður SF: við náðum
og unga fólkið....
þar við stjórnvöl, annaðhvort
sem minnihlutastjórn eða þá að
formlegt samstarf hefur verið
tekið upp við borgaralega flokka
nálægt miðju.
Við vildum brjótast út úr víta-
hring og ræddum það opinskátt í
kosningabaráttunni hvernig slík-
ur nýr meirihluti gæti starfað,
segir Gert Petersen.
SF setti fram sínar hugmyndir
um stjórnarsamstarf við sósíal-
demókrata og tókst um leið að
koma sinni sérstöðu til skila við
danska kjósendur. Þetta skilaði
sér í auknu fylgi flokksins.
Að sjálfsögðu var mjög um það
deiit hvaða kröfur flokkurinn ætti
að gera til samstarfsaðila í stjórn.
En á landsfundi í Árósum var
ákveðið að flokkurinn skyldi ekki
góðum fengslum við nýjar hreyfingar
setja fram neinar útslitakröfur.
Þetta var greinilegt spor fram á
við, segir Gert Petersen. Við
stjórnarmyndun er það fylgi okk-
ar sem ræður því hvaða áhrif við
höfum. En vissulega verðum við
að fá þeim kröfum framgengt, að
menn sjái mun frá því sem áður
var.
Einu helsta baráttumáli SF
lýsti Gert Petersen á þessa leið í
kosningaslagnum:
„Nú verður kosið um það hvort
menn vilja aukin áhrif launafólks
á vinnustað og í efnahagslífi eða
áframhaldandi vald atvinnurek-
enda og auðmagns.“
Gert Petersen játar því, að það
hafi staðið vinstrisinnum nokkuð
fyrir þrifum að ekki reyndist unnt
að leggja fram sameiginlega
stjórnarstefnu verklýðsflokk-
anna fyrir kosningar. Hann telur
að líklega verði auðveldara að
semja um slíkt plagg við hinn
nýja formann sósíaldemókrata,
Sven Auken, en við Anker Jörg-
ensen.
Áhrif og æskufólk
Gert Petersen er ekki hræddur
við að SF einangrist á þingi í
áframhaldandi stjórnarands-
töðu. Hann bendir á það, að SF
tók þátt í að samþykkja á síðasta
þingi 55 frumvörp sem með ein-
um eða öðrum hætti gengu gegn
vilja hægristjórnar Schlúters, og
allmörg þeirra voru frumvörp SF-
manna. Hér var fyrst og fremst
um að ræða málaflokka eins og
varnarmál, menntunarstefnu og
umhverfisvernd - en á þeim svið-
um var á þingi meirihluti gegn
stjórninni.
Ég á ekki von á vonbrigðum
kjósenda með okkur, segir hann,
okkar 27 þingmenn geta haft
mikil áhrif.
Oft er talað um SF sem flokk
opinberra starfsmanna og rétt er
það, að flokkurinn hefur meira
fylgi meðal þeirra og meðal
launafólks í nýjum starfsgreinum
en nokkur annar stjórnmála-
flokkur danskur. Meðal verka-
fólks í hefðbundnum starfsgrein-
um er SF svo í þriðja sæti á eftir
sósíaldemókrötum og Framfara-
flokki Glistrups.
En það skiptir miklu, segir for-
maðurinn, að SF hefur tekist að
ná til unga fólksins, en það hefur
sósíaldemókrötum mistekist.
Gert Petersen er bjartsýnn og
ekki feiminn að tala um bylting-
una. En til að byltingin sé lýðræð-
isleg hlýtur hún að vera löng þró-
un, segir hann. Dagar Október-
byltinga eru liðnir. Aðalinntakið
í byltingu nú um stundir er að
gagnsýra allt þjóðfélagið lýðræði.
áb þýddi og endursagði
Laugardagur 26. september 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7