Þjóðviljinn - 29.09.1987, Page 10
LÖGREGLUSTJÓRINN í REYKJAVÍK
Hverfisgötu 115 - Sími 10200
Auglýsing um almenna
skoðun ökutækja í Reykja-
vík í október 1987
Skráð ökutæki skulu færð til almennrar skoðunar
1987 sem hér segir:
1. Eftirtalin ökutæki sem skráð eru 1986 eða fyrr:
a. Bifreiðir til annarra nota en fólksflutninga.
b. Bifreiðir er flytja mega 8 farþega eða fleiri.
c. Leigubifreiðir til mannflutninga.
d. Bifreiðir sem ætlaðar eru til leigu í atvinnuskyni
án ökumanns.
e. Kennslubifreiðir.
f. Lögreglu-, sjúkra- og björgunarbifreiðir.
g. Tengi- og festivagnar, sem eru meira en 1500
kg að leyfðri heildarþyngd.
2. Aðrar bifreiðir en greinir í lið nr. 1, sem skráðar
eru nýjar og í fyrsta sinn 1984 eða fyrr. Sama
gildir um bifhjól.
Skoðun fer fram virka daga aðra en laugardaga
frá kl. 08.00 til 15.00 hjá Bifreiðaeftirliti ríkisins,
Bíldshöfða 8, Reykjavík, á tímabilinu frá:
01.10 til 30.10.
Ökutæki nr. R-62501 og yfir.
Við skoðun skulu ökumenn leggja fram gild öku-
skírteini, kvittun fyrir greiðslu bifreiðaskatts og
vottorð um að vátrygging ökutækis sé í gildi.
Skráningarnúmer skulu vera vel læsileg. A leigu-
bifreiðum skal vera sérstakt merki með bókstafn-
um L, einnig gjaldmælir sem sýnir rétt ökugjald á
hverjum tíma.
í skráningarskírteini skal vera áritun um það
að aðalljós bifreiðar hafi verið stillt eftir 31.
júlí 1987.
Lögreglustjórinn í Reykjavík,
24. september 1987.
Böðvar Bragason
Tilkynning
til þeirra sem reka mötuneyti
Athygli þeirra sem reka mötuneyti er vakin á því
að frá og með 1. október n.k. ber þeim að skila
25% söluskatti af fæðissölu sinni. Á sama hátt og
veitingahúsum er mötuneytum heimilt að draga
frá heildarveltu sinni áður en söluskattur er
reiknaður fjárhæð sem svarar til 75% af
innkaupsverði hráefnis til matargerðar og skila
söluskatti af þannig fengnum mismun. Þau mötu-
neyti sem ekki hafa þegar tilkynnt skattstjórum
um starfsemi sína ber að gera það fyrir 5. október
n.k.
Fjármálaráðuneytið,
25. september 1987
Námskeið um stýritækni
- loftstýringar
Ætlað sveinum í greinum málmiðna og öðrum
sem annast loftbúnað. Verður haldið í Vélskóla
íslands og hefst mánudaginn 5. okt. kl. 13.00.
Þátttökugjald er 10.000.- kr. Innifalin eru náms-
gögn og kaffi. Upplýsingar og innritun í símum
687440 og 687000.
FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ
IÐNAÐARINS
Auglýsið í Þjóðviljanum
ERLENDAR FRÉTTIR
Sovéskur kafbátur og bandarískfreigáta á norðurslóðum. Virðingarmenn í Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi hafa
miklar áhyggjur af aukinni víðvæðingu í norðri í kjölfar afvopnunarsamnings risaveldanna. Hafa íslenskir kollegar þeirra
ekkert til málanna að leggja?
Vopnaskak
UGGUR
á Norðuriöndum
ÍNoregi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi óttast málsmet-
andi menn aukna vígvœðingu á norðurslóðum í kjölfar af-
vopnunarsamnings risaveldanna
Bráðabirgðasamningur Sovét-
manna og Bandaríkjamanna
um eyðingu allra meðaldrægra
kjarnflauga hefur vakið ugg á
Norðurlöndum og óttast ráða-
menn sumra þeirra að í kjölfarið
sigli mikil vígvæðing á norður-
slóðum.
Stjórnmálamenn og embættis-
menn í Skandinavíu segja fullvíst
að stórveldin muni reyna að vega
upp á móti minni hernaðarmætti
sínum í Mið-Evrópu með því að
auka hann á útjöðrum álfunnar.
Þeir eru svo vissir í sinni sök að
þeir hafa komið sér upp kenningu
er þeir nefna „sperðlakenning-
una.“
Hún er ákaflega einföld og
skýr og á hvers manns færi að
sannreyna ágæti hennar. Menn
taki sér bjúga í hönd og kreisti
það í miðju af öllum lífs og sálar
kröftum. Viti menn, innvolsið
þokast til beggja enda og linni
menn ekki látunum þá verður
hvellur.
Varnarmálaráðherra Noregs,
Jóhann Holst, vék að þessu máli í
viðtali við norskt dagblað fyrir
helgi. „Þessi „bjúgnahætta“ vofir
yfir okkur ef samningar verða
undirritaðir um eyðingu allra
meðaldrægra kjarnflauga risa-
veldanna. Við verðum að gæta
þess að spenna færist ekki í vöxt
hér nyrðra þótt samningar takist
um að útrýma einni tegund
vopna.
Utanríkisráðherra Finnlands,
Kalevi Sorsa, ávarpaði Allsherj-
arþing Sameinuðu þjóðanna í
fyrri viku og í máli hans kom fram
að hann hefur einnig áhyggjur af
líklegri hernaðaruppbyggingu á
norðurslóðum. „Við leggjum
áherslu á að öll herveldi fari sér
hægt og sýni ábyrgðartilfinningu
gagnvart þjóðum Norður-
Evrópu. Við vonum í lengstu lög
að jákvæð þróun afvopnunar-
mála í Mið-Evrópu valdi því ekki
að jafnvægi raskist á útjöðrum
álfunnar."
Engin kjarnvopn eru staðsett
Skandínavíu svo kunnugt sé. En
þorri sovéskra kjarnorkukafbáta
er gerður út frá Kólaskaga sem á
landamæri að Finnlandi og Nor-
egi.
Sovétmenn og Bandaríkja-
menn hafa aukið hernaðarumsvif
sín á norðurhöfum. Hvorir
tveggja gera sér grein fyrir mikil-
vægi þessa svæðis ef til ófriðar
dregur.
Ráðamenn á sumum Norður-
landa hafa vakið máls á nauðsyn
þess að þau yrðu lýst kjarnorku-
vopnalaust svæði. Stjórn Ron-
alds Reagans f Washington hefur
harmað þá afstöðu og sagt slíkt
stórhættulegt hernaðarjafnvægi.
Ugglaust á sá harmur stóran þátt í
því að valdsherrar í einu um-
ræddra landa hafa ekki ljáð máls
á því að einarðleg afstaða yrði
tekin í málinu. Umræður um til-
löguna hafa legið í láginni að und-
anförnu en Sorsa dustaði af henni
rykið og gerði hana að umtalsefni
í ræðu sinni á Allsherjarþinginu.
í ljósi þess sem gerst hefur í af-
vopnunarviðræðum stórveld-
anna frá því hugmyndirnar um
kjarnorkuvopnataus Norðurlönd
komu síðast til tals hjá ráða-
mönnum þeirra ætti þeim að vera
orðið Ijóst hve brýna nauðsyn ber
til þess að tillagan verði sam-
þykkt einróma.
í Svíþjóð kvaddi talsmaður
varnarmálaráðuneytisins, Jan
nokkur Tuninger, sér hljóðs ný-
verið um gildi afvopnunarsamn-
ingsins milli stórveldanna og
aukinn vígbúnað í norðri.
„Hernaðaráætlanir risaveld-
anna hafa tekið breytingum að
því leyti að í æ ríkari mæli er einb-
h'nt á hjarana. Það er nokkur tími
liðinn frá því þessi þróun hófst qg
það er ekkert sem bendir til þess
að aftur verði snúið á næstunni,
síst ef samningar takast um
eyðingu meðalflauganna úr Mið-
Evrópu.
Okkur finnst ekki mikið til
samnings Shultz og Shevardna-
dzes koma. Aðeins um þrjú pró-
sent allra kjarnvopna verða tekin
úr umferð og sum þeirra eru
hvort eð er úr sér gengin og vita
gagnslaus í ófriði.“
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að ýmsir stjórnmálaflokkar
sem andvígir eru vígbúnaðar-
brölti yfir höfuð ellegar hafa
mjög gagnrýna afstöðu til NATO
unnu umtalsvert fylgi í dönsku
þingkosningunum fyrr í þessum
mánuði. Stjórn Pauls Schlúters á
mjög erfitt með að afla stuðnings
við fjáraustur til hermála.
Hún lýsti yfir ánægju með
bráðabirgðasamning utanríkis-
ráðherra Bandaríkjamanna og
Sovétmanna um útrýmingu með-
alflauga en engu að síður er ekki
örgrannt um að ýmsir hafi
áhyggjur af afleiðingum hans,
líktog kollegar í nágrannaríkjum.
Einn þeirra er herfræðingurinn
og kapteinninn Hans Garde.
Hann fullyrðir að undirritun
samningsins gæti orðið til þess að
auka mjög viðsjár á Eystrasalti.
Hann spyr: „Til hverra hluta
verður það fjármagn notað sem
nú verður ekki lengur þörf fyrir
til að kosta framleiðslu og við-
hald skammdrægra kjarnflauga?
Til framleiðslu annarskonar
kjarnvopna? Verði féð notað til
að standa straum af kostnaði við
framleiðslu smárra kjarnflauga
eða kjarnvopna sem komið yrði
fyrir í flugvélum og skipum má
vera ljóst að stórveldin munu
leggja mikla áherslu á að ríki
norðanverðrar Evrópu skorist
ekki undan því að veita áformun-
um brautargengi.“ -ks.
10 SfÐA - ÞJÓÐVIUINN Þriðjudagur 29. september 1987